Þjóðviljinn - 23.09.1982, Qupperneq 1
DJÚÐVIUINN
Til hvers hefur ung-
lingaheimili starfað
í Kópavogi í tíu ár?
Nokkur svaranna
eru á bls. 20
Sjá 20.
september 1982
Fimmtudagur
216. tölublað
47. árgangur
Enn
verkfall
a
virkjana-
svæðinu
við
Tungnaá
Þokast í átt til
samkomulags segir
Guðmundur J.
Guðmundsson
formaður Verka-
mannasambandsins
„Þetta er ákaflega snúin og erfið
deila en undanfarna daga hefur
talsvert miðað áleiðis eftir að tilboð
fóru að ganga á milli aðila“, sagði
Guðmundur J. Guðmundsson for-
maður Verkamannasambandsins
um deiluna á virkjanasvæðinu við
Tungnaá, en þar hefur öll vinna
verkamanna legið niðri síðan um
miðjan mánuðinn.
í þéssari kjaradeilu, sem hátt í
300 manns taka þátt í, er tekist á
um kauptaxta og breytingar á bón-
usútreikningi. Þarna hafa veriö
samningar í gildi sem gerðir voru
1978 og hafa verið gerðar á þeim
ýmsar breytingar, en smávægilegar
þó. Að sögn Guðmundar J. Guð-
mundssonar er sú krafa höfð uppi í
þessari deilu að bónusreglur verði
samræmdar fyrir alla starfsmenn á
vinnusvæðunum.
Stefna stjórnvöld í
Peking að því að
gera Hong-Kong og
Maceo að
kapítalískum eyjum
innan kínverska
alþýðulýðveldisins?
Framarar léku gegn
írska liðinu
Shamrock Rovers í
Evrópukeppni
fclagsliða í
knattspyrnu í
gærkvöldi og
keppnihófstí 1.
deild karla í hand-
knattleik.
Fundurinn á Austurvelli:
Útifundur stjórnmálaflokkanna á Austurvelli í gær var fjölsóttur og vott-
uðu menn þar samúð sína fórnarlömbum fjöldamorðanna í Beirút á dög-
unum. Ljósm. - eik.
Fjöldamorðunum mótmælt
Þúsundir Reykvíkinga komu saman á Austurvelli í gær til að láta
í Ijós hluttekningu sína með fórnarlömbum fjöldamorðanna í
Beirút í síðustu viku. Var þessi samúðarstund haldin að frumkvæði
stjórnmálaflokkanna og flutti herra Pétur Sigurgeirsson biskup
þar stutt ávarp. Hvatti hann til þess að allir menn fengju að lifa í
friði og að hörmungunum í hinu stríðshrjáða Líbanon mætti sem
allra fyrst linna.
Eftir útifundinn á Austurvelli hélt hluti fundarmanna að bandaríska
sendiráðinu við Laufásveg og stóð Fylkingin fyrir þeirri aðgerð. Voru
haldin stutt ávörp og að þeim loknum afbent mótmælayfirlýsing vegna
atburðanna í Beirút. Þar voru kröfur settar fram um að Frelsissamtök
Palcstínumanna, PLO, verði viðurkennd sem réttmætur fulltrúi þjóðar
sinnar.
- Bandaríkjastjórn hætti þegar i stað öllum hernaðar- og efnahags-
stuðningi við ríkisstjórnina í Israel.
Fundurinn við bandaríska sendiráðið fór friðsamlega fram og vakti
athygli að starfsmenn hússins opnuðu dyr sínar fyrir sendimanni Fylking-
arinnar en hingað til hafa skeyti hennar orðið að fara leið bréfalúgunnar.
— v.
Ólga vegna væntanlegrar skipunar fræðslustjóra:
Annarlegum þrýst
Ingi mótmælt
14. menn, tengdir fræðsluráði og
skólastjórnum í Reykjavík hafa rit-
að mcnntamálaráðhcrra bréf þar
sem meðferð fræðsluráðs á um-
sóknum um stöðu fræðslustjóra er
véfengd og mótmælt er annarlcgum
þrýstingi sem beitt hafi verið í þessu
máli. Meðal þeirra sem rita undir
bréfið eru flokksbundnir Sjálf-
stæðismenn og hefur Þjóðviljinn
fregnað að einn þeirra sé Bessí Jó-
hannsdóttir, en umsókn hennar var
hundsuð af fræðsluráði og fékk
hún ekki að koma til álita þcgar
greidd voru atkvæði þar um um-
sögn ráðsins.
Menntamálaráðherra er væntan-
legur til landsins í dag en hann
skipar í þessa stöðu. Þrjár umsókn-
ir bárust fræðsluráði Reykjavíkur,
frá Áslaugu Brynjólfsdóttur, Bessí
Jóhannsdóttur og Sigurjóni Fjeld-
sted. Við afgreiðslu fræðsluráðs
lágu fyrir tvær tillögur, önnur frá
Sjálfstæðisflokknum um Sigurjón
og hin frá Gerði Steinþórsdóttur
um Áslaugu. Mótmælti Þorbjörn
Broddason því að ekki yrðu greidd
atkvæði um alla umsækjendur í
leynilegri atkvæðagreiðslu en for-
maður fræðsluráðs kvað upp þann
úrskurð með fulltingi borgarlög-
manns að einungis yrðu greidd at-
kvæði um tillögurnar tvær. Fékk
umsókn Bessíar því ekki að koma
til álita.Sigurjón hlaut 4 atkvæði en
Áslaug 3.
í Morgunblaðinu s.l. föstudag
birtist síðan frétt um að „flestir
styddu Sigurjón” og var sagt að all-
ir skólastjórar nema tveir og allir
yfirkennarar nema fjórir hefðu rit-
að undir stuðningsyfirlýsingu við
Sigurjón Fjeldsted. Gekk Sigurjón
sjálfur á milli manna með plaggið
sem var afhent Steingrími Her-
mannssyni í fjarveru menntamála-
ráðherra í síðustu viku.
Sem fyrr segir mótmæla nú 14
manns þeirra á meðal skólastjórar
og yfirkennarar, fulltrúar kennara-
samtaka og aðilar að fræðsluráði
málsmeðferðinni í fræðsluráði og
þrýstingsaðgerðum Sigurjóns
Fjeldsted.
Utför
Kristjáns
Eldjárns
Útför dr. Kristjáns Eld-
járns, fyrrverandi forseta ís-
lands verður gerð frá Dóm-
kirkjunni kl. 14.00 í dag. Jarð-
arförin fer fram á vegum ís-
lenska ríkisins og verður flest-
um opinberum stofnunum
lokað eftir hádegi, sem og
skrifstofum Þjóðviljans.
Kristjáns Eldjárns er
minnst í blaðinu í dag á síðum
9-13.