Þjóðviljinn - 23.09.1982, Side 3
Fimmtudagur 23. september 1982 ÞJÓÐVILJÍNN — SÍÐA 3
íslenska hljómsveitm
Eins og skýrt hefur verið frá í Þjóðviljanum var á dögunum stofnuð ný Sinfóníuhljómsveit hcr á landi.
Hljómsvcitina munu skipa 45 manns þegar mest er, en um 20 þegar minnst er. Meðfylgjandi mynd var tekin
af aðstandendum hinnar nýju hljómsveitar í garði Félagsstofnunar stúdenta við Hringbraut. F.v.: Ásgeir
Sigurgestsson, dr. Ingjaldur Hannibalsson, Guðmundur Emilsson, Sesselja Halldórsdóttir, Anna Guðný
Guðmundsdóttir, Þorkell Jóelsson, dr. Þorsteinn Hannesson, Sigurður I. Snorrason og Hafsteinn Guð-
mundsson.
Olympíunefndin íslenska:
12 bflar í einu
happdrætti
Ólympíunefnd íslands hefur hleypt af stokkunum ntjög umfangsmiklu
happdrætti til þess að kosta undirbúning og þátttöku fyrir Olympíuleikana
1984 en nú cr aðeins rúmt ár til Vetrar-Olympíulcikanna í Sarajevo í
Júgóslavíu og rúmlega eitt og hálft ar til sumarleikanna í Los Angtlcs.
Vinningarnir í happdrættinu eru
12 veglegar bifreiðar, samtals að
verðmæti um 2,7 milj. kr. Bif-
reiðarnar eru tvær BMW 315 bif-
reiðar, kr. 192.200 hvor, tvær Bu-
ick Skylark bifreiðar, verðmæti kr.
412.400, tvær Saab 900 GL, verð-
mæti kr. 242.700, þrjár Escort GL,
verðmæti kr. 179.000 og þrjár Suz-
uki Fox bifreiðar, verðmæti kr.
132.000. Eins og upptalningin ber
með sér er hér á ferðinni stærsta
skyndihappdrætti, sem efnt hefur
verið til hér á landi.
Sala happdrættismiðanna fer
þannig fram, að öllum kjarna-
fjölskyldum landsins til 73 aldurs
og einhleypum 17 - 73 ára eru send-
ir tveir miðar með áföstum gíró-
seðli, eða alls 109.458 aðilum. Tala
úsendra miða er því 218.916.
Að auki verður nokkuð af mið-
um selt í lausasölu en lög um happ-
drætti af þessu tagi heimila sölu
fleiri miða en þegar hafa verið
sendir út. Tala lausasölumiða er
enn óráðin en reynt verður að fá
fyrirtæki og stofnanir til að kaupa
miða til styrktar málefninu.
Von Ólyntpíunefndarinnar er
sú, að happdrættið megi skila þeim
árangri, að unnt verði að styðja
betur en áður við bakið á íþrótta-
fólki okkar, sem líklegt er að fari á
næstu Ólympíuleika, sem aftur
skilar sér í vaxandi fþróttaáhuga, -
að unga kynslóðin verði hvött til
dáða.
Athygli alheimsins mun beinast
að næstu Ólympíuleikum í ríkara
mæli en nokkru sinni fyrr m.a.
vegna sífelldra tækninýjunga á
sviði gervihnattasendinga og
fjölntiðlunar. Það er því mikið í
húfi að þátttaka okkar verði
landinu til sóma. Vonir okkar
byggjast því á góðum og tímanleg-
um undirbúningi.
Það, sem hér hefur verið rakið,
kom fram á fundi með þeim, sem
hafa með að gera undirbúning að
þátttöku okkar í Ólympíuleikun-
um.
Því má svo bæta við að vinningar
eru skattfrjálsir, liver ntiði kostar
kr. 60,00 og að dregið verður þann
15. nóv. n.k. -mhg
Hverjir verða svo heppnir að hljóta þá þessa?
Olíudúsan til
útgerðarfnnar
60 miljón kr. framlag til áramóta
Handhafar forsetavalds í
landinu hafa gefíð út bráða-
birgðalög um Olíusjóð fiski-
skipa og hækkun fískverðs.
Olíusjóður fiskiskipa skal greiða
jniður að hluta olíuverð til fiski-
jskipa. Sjóðurinn er fjármagnaður
með greiðsluafgangi frá Trygging-
arsjóði fiskiskipa að upphæð 30
miljónir kr. auk þess sem sjóðnum
er heimilað að taka lán að fjárhæð
30 miljónir sem ríkissjóður mun
veita sjálfskuldarábyrgð fyrir.
Þær 60 miljónir sem Olíusjóði
fiskiskipa verða útvegaðar verða
að fullu nýttar til þess að greiða
niður olíuverð til fiskiskipa á tíma-
bilinu 1. september til n.k. ára-
móta.
Auk þess er að finna í bráða-
birgðalögunum ákvæði uni 4%
hækkun fiskverðs til viðbótar við
almennt fiskverð sem áður hafði
verið ákveðið og gildir sú ákvörðun
frá 15. september til 30. nóvember.
— lg-
Mikill áhugi
meðal hönnuða
landsins:
Ilinn heimsfrægi hönnuöur Jakob
Jensen, seni m.a. hannaði þessi
tæki fyrir Bang og Olufsen, mun
flytja hér fyrirlestur i tengslum
viö samkeppni um islenska iön
hönnun, sem Sparisjóöur Reykja
vikur og nágrcnnis gengst fyrir.
Samkeppni
um iðnhönnun
Á liðnu vori ákvaö stjórn Spari-
sjóðs Reykjavikur og nágrennis
að efna til sérstakrar samkeppni
uni islenska iðnhönnun I tilefni af
50 ára afmæli sparisjóösins.
Sparisjóönum hafa borist mjög
margar fyrirspurnir frá væntan-
lcgum þátttakendum og má þvi
búast við að margar tillögur bcr-
ist áður en skilafrestur rennur út
þann 15. október næstkomandi.
Tilgangurinn með þessari sam-
keppni er umfram allt að örva
þann þátt islensks iðnaðar sem
hvað mest hefur skort að væri
nægilega sinnt i uppbyggingu iðn-
aðar á Islandi, segir i fréttatil-
kynningu frá Sparisjóðnum. Með
markvissri iðnhönnun nýtist sú
þekking, sem til er i iðngreinum,
og um leið eiga aö geta opnast
nýir markaðir fyrir islenskan iðn-
varning, bæði innanlands og utan.
Góð islensk iðnhönnun getur
þannig stuölað að þvi að iðnaður-
inn verði sá vaxtarbroddur i at-
vinnuuppbyggingu landsmanna,
sem vonast hefur verið til, segir i
fréttatilkynningunni.
Heimild til þátttöku i keppninni
hafa allir Islendingar og einnig
þeir útlendingar, sem haft hafa
búsetu á Islandi a.m.k. sl. 6 mán-
uði. Verðlaun verða þessi: 1.
verðlaun — kr. 50.000: 2. verð-
laun — kr. 25.000: 3. verð-
laun — kr. 10.000.
Dómnefnd i samkeppninni
skipa Hjalti Geir Kristjánsson,
fulltrúi Sparisjóðs Reykjavikur
og nágrennis, Þráinn Þorvalds-
son, fulltrúi Útflutningsmið-
stöðvar iðnaðarins, og danski
hönnuðurinn Jakob Jensen.
Þess má að lokum geta, að
Jakob Jensen mun halda hér
fyrirlestur um samstarf iðnhönn-
uða og iðnaðarins i Danmörku
þann 15. október. Jakob Jensen er
einn af fremstu hönnuðum ver-
aldar og hefur m.a. áunnið sér
frægð fyrir útlitshönnun sina á
hljómtækjum, t.d. frá Bang og
Olufsen, nýrri gerð af simtækjum
(takkasimann á bls 13 i sima-
skránni), húsgögnum og fleiru.
Japanir sækjast mikiö eftir
vörum, sem Jakob Jensen hefur
hannað og ætti það aö vera góö
meðmæli!
Stjórnandi:
HEMMI GUNN.
Meðal vinninga:
Myndsegulband,
ferðavinningar,
heimilistæki o.fl. ■
P
d«81""
kvo
23. ^pnað
Híóið °Y
• .
H
-iA ^0 •í&'&'
lcl. I9'3 :?#S
. .véíSSíil:.*"''.' ’
Kvennalandsliðin í handknattleik