Þjóðviljinn - 23.09.1982, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 23.09.1982, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtuda{>ur 23. september 1982 Vetrarstarf ABR að hefjast: Námskeið í efnahags- og verkalýðsmálum Húsakaup einnig ofarlega á baugi Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík hefur nú gengið frá starfsáætlun vetrarins að mestu. Þar ber margt á góma að vanda og við báðum for- mann félagsins, Arthúr Mort- hens, að skýra frá því helsta. „Starfið fram að áramótum einkennist að sjálfsögðu af undirbúningi fyrir flokksráðs- fundinn. sem haldinn verður í nóvember," sagði Arthúr. Þeim Ingólti Ingólfssyni, formanni Árbæjardeildar, og Hauki Má Haraldssyni, formanni Breið- holtsdeildar, var falið að undir- búa námskeið í efnahagsmálum og þar munu helstu sérfræðingar okkar og verkalýðsleiðtogarmið- la visku sinni til okkar óbreyttra. Búiö er að ganga frá nánr- skeiðinu í efnahagsmálum og fyrirhugað er að fyrsti íundur um það efni verði nú hinn 23. sept- ember. Þar mun Ragnar Árna- son, lektor, flytja almennan inn- gang. Síðan vcrða haldnir fundir unr efnahagskerfið á Islandi, ákvarðanatöku í efnahagsmálum og valkosti í efnahagsmálum. Fundirnir verða allir auglýstir nánar síðar. Fundirnir um verkalýðsmál munu hefjast í októbermánuði og vinna þeir Ingólfur, og Haukur Már að því ásamt starfsmanni fé- lagsins, Kristjáni Valdimarssyni, að skipuleggja þá fundi. Þar verða starfshættir verkalýðs- hreyfingarinnar teknir fyrir, verkalýðshreyfing og efnahags- mál, áhrif Alþýðubandalagsins á verkalýðshreyfinguna og fjallað um það hvort verkalýðs- hreyfingin sé stofnun eða fjölda- hreyfing. Þessi námskeið í efnahags- og verkalýðsmálum eru hugsuð sem undirbúningur fyrir flokksráðs- fundinn í nóvember. Annað sem á döfinni er fyrir áramót eru opnu húsin, sem ætíð hafa verið vinsæl meðal flokks- manna. Þá má nefna fyrirhugað félagsmálanámskeið í október, fulltrúaráðsfund sömuleiðis í okt- óber og ráðstefnu borgarmála- ráðs. En allt þetta verður ræki- lega kynnt þegar að því kemur. '* Eftir áramót er síðan fyrirhug- að að taka fyrir nokkra þætti í Arthúr Morthens, formaður ABR. íslensku þjóðlífi: húsnæðismál og stóriðju ber þar hæst. Annars mun starfið næsta vor að sjálf- sögðu mótast af undirbúningi alþingiskosninganna. Ég vil gjarnan nota þetta tæki- færi til þess að benda flokksfé- lögum á, að senn líður að því að við komumst í nýtt húsnæði. Það ntun óneitanlega létta allt félags- starf, en það getur engum dulist að erfitt hefur verið að halda uppi gróskumiklu starfí í núverandi húsnæði. Nýja húsnæðið verður að öllum líkindum í nýbyggingu að Hverfisgötu 105, en þessa dag- ana er verið að ganga frá kaup- samningum og er ekki annað vit- að núna, a.'m.k. en þeir samn- ingar gangi upp. Framhaldsaðalfundur félags- ins, sem haldinn var fyrir skemmstu samþykkti samhljóða tillögu um þessi húsakaup og tel ég rétt að kynna þá tillögu fyrir félögunum, þar sem ekki er unnt að ráðast í þessi húsakaup nema leita til þeirra með fjárframlög. Tillagan hljóðar svo: „Aðalfundur Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík lýsir ánægju sinni með þá ákvörðun fram- kvæmdastjórnar Alþýðubanda- lagsins að ráðast í kaup á hluta húseignar við Hverfisgötu 105 Reykjavík. Aðalfundurinn telur eðlilegt að félagið fari nú þegar af stað með myndarlega fjársöfnun og happdrætti. Verði öll fjár- framlög félaga og annarra stuðn- ingsmanna í Reykjavík eignar- hlutur Alþýðubandalagsins í Reykjavík í hinni nýju húseign. I stjórn ABR eiga sæti eftirtal- in: Arthúr Morthens, formaður, Bjargey Elíasdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Vilborg Harðar- dóttir, Ólafur Ólafsson og Úlfar Þormóðsson. Auk þeirra kjörin af deildum félagsins: Erlingur Viggósson, Jóhann Hauksson, Haukur Már Haraldsson, Ingólf- ur Ingólfsson, Pétur Reimarsson og Borghildur Jósúadóttir, sem kemur í stað Þórðar Yngva Guð- mundssonar, er nýverið baðst undan embætti sínu sent formað- ur 2. deildar sökum anna. ast Skreiðar- deild innan SAFF Nú hefur verið stofnuð Skreiðar- deild innan Félags Sambandsfísk- framleiðenda (SAFF). Að sögn Arna Benediktssonar formanns SAFF urðu sjálfkrafa félagar í deildinni þau frystihús, sem eru í SAFF, en að auki gengu 32 nýir aðilar í deildina. Mestan part eru það einstaklingar og fyrirtæki, sem áður hafa selt gegnum Sjávaraf- urðadeildina að einhverju eða öllu leyti. Skreiðarviðskipti þykja hafa verið nokkuð laus í reipunum, margir aðilar í raun og veru að bjóða til sölu sömu skreiðina. Kaupendur gætu því álitið magnið meira en það raunverulega er og gæti það leitt til verðlækkunar. Með tilkomu hinnar nýju deildar standa vonir til að betra skipulag komist á söluna. Sölukostnaður ætti einnig að geta lækkað og því fremur arðsvon af viðskiptunum, sem þá yrði endurgreiddur fram- leiðendum. Stjórn deildarinnar mun verða sölumönnunt Sjávaraf- urðadeildar til ráðuneytis og hafa við þá náið samstarf. Stjórn Skreiðardeildar SAFF mun skipa: Ríkharð Jónsson, Kirkjusandi hf., Guðmundur Pálmason, Haferninum, Akranesi og Þorsteinn Ingason, Stokkfiski í Reykjadal. — mhg Kirkjulistanefnd sendir 220 boðsbréf: Stórsýnlng á kirkjulegri og trúarlegri list um páskana Kirkjulistanefnd undirbýr nú yfírgripsmikla sýninguá trúarlegri list og verður sú sýning að Kjarvalsstöðum um næstkomandi páska, eða dagana 19. mars til 10. apríl 1983. Þungamiðja sýningarinnar verður ný verk íslenskra listamanna, og hefur þeim þegar verið sent bréf með boði um þátttöku í sýningunni. Ennfremur verður táknmyndasýning, litskyggnusýning af íslenskum kirkjum og kirkjugripum og nokkur valin verk, sem verða - fengin að láni úr kirkjum. Biskup íslands skipaði á síðasta ári Kirkjulistanefnd og hefur hún að nteginverkefni að vera ráðgef- andi um byggingu, endurbyggingu og stækkun kirkna, svo og unr kirkjubúnað. í Kirkjulistanefnd eiga sæti: dr. Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur að Reynivöllum, til- nefndur af Prestafélagi íslands, Björn Th. Björnsson, listfræð- ingur, tilnefndur af Félagi íslenskra myndlistarmanna, og Jóhannes S. Kjarval, arkitekt, tilnefndur af Arkitektafélagi íslands. Markmiðið er að piægja akurinn „Markmiðið með sýningunni er að plægja akurinn. ef.svo má segja — að fá fram hvað íslenskir lista- menn eru að fást við og urn leið að hvetja þá til starfa að kirkjulegri eða trúarlegri list," sagði dr. Gunnar Kristjánsson, formaður Kirkjulistanefndarinnar, á blaða- mannafundi þar sem erindi nefndarinnar og fyrirhuguð sýning voru kynnt. Það kom fram í máli dr. Gunnars og Björns Th. Björnssonar, að sýningunni ntun einnig ætlað að vekja athygli á listaverkum í íslenskunt kirkjum, en þau eru ærið rnörg. Okkar stærstu listamenn eiga verk í kirkjum landsins. og má þar nefna Hrepp- hólakirkju og Stóru-Núpskirkju, en verk Ásgríms prýða þær kirkjur. Trúin og listin samtvinnuð Dr. Gunnar minntist þess í kynningarorðum sínunt að list og kirkja hefðu verið samtvinnuð unt aldir. Tengslin þarna á milli rofnuðu á síðari hluta 19. aldar, hvort sem kirkjunnar mönnum eða listarinnar var unt að kenna. Ymis teikn eru nú á lofti um að Biskup íslands, hr. Pétur Sigurgeirsson, minntist fyrrum forseta íslands, í upphafí blaðamannafundar, þar sem erindi Kirkjulistanefndar var kynnt. — (Ljósm. — eik). Verk Einars Hákonarsonar „Á Valhúsahæð,,. þarna sé að komast á góð samvinna á ný, sagði dr. Gunnar, og Björn Th. Björnsson bætti við, að þaö væri einmitt í kirkjubyggingum, sem arkitektúr V-Évrópu hefði blómstrað nú undanfarin ár. Svipaða sögu mætti segja um aðrar listgreinar, svo sem höggmyndalist og málaralist. Þeir dr. Gunnar og Björn töldu. 'að hér á landi væri þessari endurvakningu ekki að heilsa — ekki ennþá að minnsta kosti. Kirkjur væru hér byggðar án nokkurrar áætlunar unt þau listaverk, sem þær ættu að prýða og væru listaverkin oft án nokkurs samræmis eða heildarsvips við bygginguna. Svipaða sögu væri að segja af endurbyggingu kirkna. Ástæður þessa töldu þeir felast í því, að prestar, byggingar- og sóknarnefndir hefðu ekki vitað hvert ætti að snúa sér í þessum efnum og ekki haft neitt ráðuneyti til þess að leita til um tillögur eða ábendingar. Úr þessu á Kirkjulistanefnd að bæta. 220 listamönnum boðið til sýningar Kirkjulistanefnd hefur sent um 220 listamönnum boðsbréf unt að senda verk á sýningu þessa. Farið var eftir félagaskrá stærstu listfé- laganna, þ.á.m. FÍM og Textíl- félagsins. Auk þess var gu.ll- smiðum, myndskurðarmönnum, vefurum og hannyrðakonum sent boðsbréf og yfirleitt öllum þeim, sem málið kann að varða. Ekki er gert ráð fyrir, að listamenn eigi slík verk á „lager" og verður þvi um trumvinnu að ræða hjá mörgum þeirra. Hér þarf ekki nauðsynlega að vera um að ræða endanleg verk, heldur allt eins fruntdrög til síðari úrvinnslu. Mun sérstök dómnefnd fjalla um innsend verk, og höfundaþóknun verður greidd fyrir þau verk, sem valin verða. Guðni Pálsson, arkitekt, og Dag- ný Helgadóttir, arkitekt, munu sjá um uppsetningu sýningarinnar. Nefndin til ráðuneytis um gjafir Kirkjulistanefnd á að vera til ráðuneytis um kirkjubyggingar og kirkjubúnað, en rnjög hefur þótt skorta sérþjónustu á því sviði — bæði fyrir almenning og sóknar- nefndir. Þeir sem skipuíeggja kirkjur að innan hal'a enga tilsögn getað fengið, né heidur þeir, sem af góðum hug hafa viljað koma kirkju sinni til liös með gjöfum. Afleið- ingin hefur óneitanlega stundum orðið sú, að lítið samræmi er í heildarmynd kirkjunnar, Með tilkomu Kirkjulistanefndar ætti þetta að breytast til batnaðar, og þá ekki síður þegar sérstakur ráðunautur hefur verið fenginn til þess arna, en á því hefur nefndin mikinn áhuga. -ast

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.