Þjóðviljinn - 23.09.1982, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 23.09.1982, Qupperneq 11
Fimmtudagur 23. september 1982 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA n Við upphaf nýs kjörtímabils, en alis urðu þau þrjú. rannsóknum og margháttuðum fræðilegum ritstörfum sem skipuðu honum í fremstu röð þeirra sem við íslensk fræði fást. Bækur hans og ritgerðir eru margar og miklar að vöxtum og gæðum, en þær eru flestar alþjóð kunnari en svo að ástæða sé til að tíunda þær hér. Á eitt sérkenni þeirra skal þó drepið. Frá upphafi lagði hann á það alla stund að kynna almenningi niður- stöður fræða sinna í skýru og ljósu máli, og það eins þótt um strang- fræðileg viðfangsefni væri að ræða. Hann hafði frábærlega gott vald á íslenskri tungu, skrifaði tilgerðar- lausan og einfaldan stfl, alþýðlegan í þess orðs besta skilningi. Ekkert var honum fjær en lærdómsremb- ingur sem birtist í torskildu orða- fari og tæknilegu klúðurmáli. Rit- verk Kristjáns Eldjárns eru til fyrirmyndar um það hvernig hægt er að skrifa um flókin viðfangsefni þannig að almenningur skilji, án þess þó að slakað sé á fræðilegum kröfum. En einmitt þetta atriði átti sér djúpar rætur í skapgerð Kristjárns Eldjárns. Hann skildi manna best þörf þess að leikmenn gætu fylgst með rannsóknum á sviði íslenskrar menningarsögu og metið gildi þeirra. Fræði hans voru honum enginn fílabeinsturn heldur lifandi þáttur þjóðarsögunnar sem átti að vera öllum hugsandi íslendingum tiltækur. Og hann hafði tvímæla- iaust erindi sem erfiði. Með ritum sínum, erindaflutningi og beinum kynnum við áhugamenn á ferðum sínum víða um land eignaðist hann fjölmennan hóp vina og aðdáenda, og hann stuðlaði að því öðrum fremur að áhugi manna og skiln- ingur á fræðigrein hans fór sívax- andi. Bæði fræðigreinin og Krist- ján Eldjárn sjálfur eignaðist þann- ig það jarðsamband sem ég hygg að honum sjálfum hafi verið megin- atriði. Pað var því engin tilviljun heldur bein afleiðing þessa starfs að skorað var á Kristján Eldjárn að gefa kost á sér til forsetakjörs og að mikill meirihluti kjósenda taldi hann best fallinn til þjóðhöfðingja. Menn virtu hann ekki aðeins sem fræðimann heldur og vegna þeirra mannkosta sem hann var búinn og þeirra fjölbreyttu hæfileika sem honum voru gefnir, en um þá luku allir upp einum munni sem.persónu- leg kynni höfðu af honum. Fundum okkar Kristjáns Eld- járns bar fyrst saman í Kaup- mannahöfn á stúdentsárum hans þar, en kynni okkar urðu ekki náin fyrr en að stríði loknu. Upp frá því áttum við margvísleg samskipti sem öll voru á þann veg að því bet- ur sem ég kynntist honum því meira fannst mér til um hann. Hann var alla tíð ungur í anda, brennandi af áhuga, ekki aðeins á sérgrein sinni heldur á mörgunt öðrum sviðum, glaðvær og létt- lyndur í vinahópi, hafði glöggt auga fyrir kátlegum hliðum tilver- unnar og gat farið um þær hnytti- legum orðum. Hann var alinn upp á norðlensku menningarheimili og gjörþekkti kjör íslenskrar alþýðu fyrr og síðar. Honum var frá æsku gefinn sá alþýðlegi virðuleiki sem gerði honunt auðvelt og eðlilegt að umgangast jafnt verkamenn og bændur sem þjóðhöfðingja. Skap- gerð hans var svo heilsteypt að forsetatignin hafði á hana engin áhrif. Hann vann verk sín sleitu- laust í þágu íslenskrar þjóðar og íslenskrar menningar, og þjóðin öll leit á hann sem fulltrúa sinn og sameiningartákn meðan hann sat á forsetastóli. Vinum sínum gleymist hann ekki, vísindastörf hans munu lengi halda nafni hans á lofti, í forsetatíð sinni ávann hann sér ástsæld og virðingu allra landsmanna. Kristján Eldjárn var gæfumað- ur. Honum auðnaðist að ljúka miklu dagsverki, enda þótt hann væri of snemma kvaddur frá störf- um. Þó var sú gæfa hans ekki minnst að hann átti ágæta konu, frú Halldóru Ingólfsdóttur, sem stóð dyggilega við hlið honum hverju starfi sem hann gegndi. Til hennar og barna hennar beinist nú samúð allra landsmanna, því þeirra er missirinn mestur. Jakob Benediktsson „Þeir sem ekki vildu Gunnar, voru alveg stálheppnir með mann,” sagði einn Gunnarsmanna eftir forsetakosningamar 1968. Það var margt, sem gerði Krist- ján Eldjám forseta ágætastan, en Iíklega vegur meðferð móðurmáls- ins þó þyngst, þegar djúpt er skyggnst. Gagnvart þjóðinni inn á við er það í rauninni einn megin- kostur okkar formlega valdalitla forseta að geta haldið góðar há- tíðaræður. Það er blátt áfram brýnt sjálfstæðismál, ekki síst nú á tímum, þegar erlend áhrif hljóta óh jákvæmilega að leita á tunguna í æ ríkara mæli. Þá þarf meðfædda smekkvísi til að greina milli góðs og ills og verða einskonar sam- nefnari fyrir fagurt málfar, glögga hugsun ogskýra framsetningu. Alit þetta hafði Kristján fram að í opinberri heimsókn á ísafirði. bjóða. Samt var honum sem öðr- um sá vandi á höndum og hann kvartaði stundum um bæði eins- lega og opinberlega, að sem forseti allrar þjóðarinnar mátti hann helst ekkert segja, sem nokkum kynni að styggja. Þá er afskaplega hætt við, að ræða verði lítið annað en snoturt orðahjóm. En Kristjáni tókst oftast aðdáanlega að leysa þennan vanda, svo að á endanum varð úr mikilvægur boðskapur, enda mun hann hafa lagt mikla vinnu í ræðusmíð sína. Það er ekki algengt, að þjóðir séu svo stál- heppnar með forseta eða kónglega tign. Stundum saknaði maður þess raunar, að Kristján skyldi aldrei láta sitt ágæta og vel kunna skop- skyn njóta sín í opinberum ræðum. En hann taldi víst, að ekki myndu allir kunna slíkt að meta. Og því miður hefur hann líklega haft rétt fyrir sér. Annar kostur Kristjáns var hið heilbrigða sjálfstraust og sjálfs- mat, sem m.a. gerði hann fúsan til að þiggja ráð hjá öðmm - og fara jafnvel eftir þeim. Hann var Iíka íaus við þann algenga veikleika valdsmanna að vilja endilega finna til yfirburða gagnvart samráðs- mönnum. Þetta allt sneri einkum að okkur sjálfum. En á erlendri gmnd þótti einnig Kristján sýna óvenju frjáls- lega framkomu af þ jóðhöfðinga að vera, án þess þó að hafa nokkru sinni í frammi tilgerð eða ýkta elskusemi. Hann hagaði sér ein- ungis sem óþvingaður íslendingur. Oftlega kemur mér í hug það sem sagt var um Hallgrím Pétursson, að hann var ,,í siðferði upp á slétta bændavísu, glaðsinnaður og skemmtinn, en gáfuríkur prédik- ariog besta skáld.” Fordæmi Kristjáns hlýtur að verða þjóðinni sífelld og þörf við- miðun. Árni Bjömsson „Skjótt het'ur sól brugðið suntri." Svo varð mér hugsað þegar ég leit forsíður dagblaðanna 15. september sl. og sá þar tilkynnt lát doktors Kristjáns Eldjárns fyrr- verandi forseta íslands. Égvarfar- inn að hlakka til að hitta Kristján að liðnu sumri og frétta af því hvar hann væri staddur í sínum fornu fræðunt. Þegar Kristján ákvað að gefa ekki lengur kost á sér til for- setakjörs var honum áreiðanlega efst í huga að geta betur snúið sér að sinni fornu fræðigrein. Hvað ungur nemur gamall temur. Að loknu stúdentsprófi 1936 hóf hann nám í fornleifafræði í Kaupmanna- höfn. Heimsstyrjöldin kom í veg fyrir að hann gæti lokið prófi þar og þess vegna brá hann á það ráð að lesa til meistaraprófs í íslenskum fræðunt í Háskóla íslands nteö fornleifafræði að sérgrein. Þetta varð mér til happs því að í Háskóla Islandsog á Stúdentagarðinum bar fundum okkar saman og það var gott að kynnast Kristjáni. Eölis- kostir hans. glaðværð ásamt skarpri greind. sem birtust í léttu og hnitmiðuðu orðavali. létu engan ósnortinn. Kristjáni auðnaðist á yngri árum aö sinna þeirri fræöigrein sem hug- ur hans stóð til í upphafi. fornleifa- fræði. Hann var þjóðminjavöröur frá 1947-1968. Þá þurftu íslending- ar að kjósa sér forseta. Ekki sóttist Kristján eftir því starfi að fyrra bragöi, en fytir þrábeiðni þeirra sem skoruðu á hann aö gefa kost á sér lét hann tilleiðast og var kosinn. Enginn þarf aö sjá eftir því aö mál skipuðust þannig. Kristján sinnti embætti forseta lslands meö sónta í 12 ár. Verða störf hans ekki rakin hér en aðeins vakin athygli á einu. I Iver þjóð á sér sál og er hún gerð af mörgum eðlisþáttum. Margir hafa unnið að þeirri gerð og er hlutur þeirra þó mismikill. Sá sem er í forsvari, forseti þjóöar- innar hlýtur að liafa mikil áhrif á mótun þjóðarsálarinnar. Kristján Eldjárn talaði til þjóöar sinnar um tólf áramót. Kristján var maður orðsins listar. Þegar hann talaði hlutu allir að hlýða.Boðskapur hans var ekki síðri. Hann átti rætur í hinu besta eðli þjóðarinnar í upp- hafi. Þar fór saman forníslensk heiðríkja og mannúð síðari tíma. íslensk þjóðarsál mun lengi búa að uppeldi ÍCristjáns. Þó að Kristján Eldjárn hyrfi svo snemma af sjónarsviðinu tókst honum að nokkru að loka hringn- um í íræðigrein sinni. Hann hóf störf í fornleifafræði með upp- greftri á rústum Grænlendinga hinna fornu, þ.e. Islendinga sem settust aö á Grænlandi og í sumar auðnaðist honuni að vera við- staddur þúsund ára afmælishátíð landnáms norrænna ntanna sem þar festu byggð. En engu að síður kvaddi hann okkur alltof snemma. Ég votta fjöl- skyldu hans, vinunt og raunar allri íslensku þjóðinni samúð við hið sviplega fráfall þessa góða drengs. Helgi J. Halldórsson. Þriðjudagskvöldið 14. septemb- er kom sú fregn sem ég hafði mest kviðið að heyra, andlátsfregn míns góða vinar, velunnara og sam- starfsmanns, dr. Kristjáns Eld- járns. Fyrr um daginn hafði borist frétt um, að skyndilega hefði dreg- ið mjög til hins verra um bata- horfur hans eftir uppskurð, sem fyrstu dagana virtist hafa lánazt svo vel. Því komu tíðindin þennan dag eins og reiðarslag. Síðan hef ég rifjað upp með sjálf- urn mér ýmislegt úr viðburðarás síðustu áratuga og kynnin við Kristján Eldjárn. Það er ekki ó- eðlilegt, þegar skyndilega er skorið á taugar nær 30 ára kynna og náinn- ar vináttu. Það var 1953 er ég kynntist Krist- jáni fyrst, hafði þó einhvern tíma hitt hann áður. Ég hafði fengið í hendur forna, kúpta nælu, sem kom úr kumli fyrir norðan og fór með hana á safnið á laugardegi. Þá kynntist ég fyrst gleði safnmanns- ins og fræðimannsins yfir góðum feng, sem einhverri birtu gæti brugðið á dimmu fornaldar. „Hvar fékkstu þetta?", hrópaði hann upp með óbeizlaðri gleði og fórnaði höndum, kallaði síðan á Gísla Gestsson, sem var nærstaddur og sagði: „Sjáðu, hvað hann færir okkur!“ Þarmeð hafði myndazt kunn- ingsskapur. Næstu árin kom ég nokkrum sinnum á skrifstofuna til Kristjáns, fann mér stundum smá- erindi til að mega líta þar inn og sitja skamma stund. Ævinlega voru viðtökur hans hinar sömu, þótt ég væri ungur og óráðinn skólapiltur, hann önnum kafinn embættis- maður. Hann spurði tíðinda, hvernig gengi f skólanum, lét ýmis skemmtiyrði falla, kannske dró hann fram einhvern nýfenginn grip eða hluti, sem hann var að fást við þá stundina, sem hann sýndi síðan og útskýrði. Kristján hafði einstakt lag á að kynnast fólki og komast í | samband við það og fór aldrei í manngreinarálit. Hér í Þjóðminjasafninu varð meginstarfsvettvangur Kristjáns Eldjárns. Hann kom hingað sem aðstoðarmaður Matthíasar Þórð- arsonar árið 1945, en 1. desember 1947 var hann skipaður þjóðminja- vörður. Þegar hann kom að safninu hafði það lengst af búið við þrengsli, fátækt og verið nánast haldið í svelti alla tíð, og þótt Matt- hfas væri sístarfandi eljumaður, voru allar ytri aðstæður með fá- dæmum erfiðar. Nú fyrst fór að rofa til, er Alþingi ákvað að gefa lýðveldinu í morgungjöf nýtt hús handa Þjóðminjasafni íslands. Kristjáni féll það í skaut að ann- ast flutning safnsins ofan af lofti gamla safnahússins við Hverfis- götu og í nýja húsið suður á Melum og sjá um uppsetningu þess þar. Þar var unnið stórvirki sem tókst með afbrigðum vel miðað við hvernig aðstæður voru, litlir pen- ingar, fábreyttar fyrirmyndir og lít- ill skilningur margra, sem enn töldu þá söfn sóunarstofnanir í þjóðfélaginu. En Kristján hafði sér við hlið góða samstarfsmenn og rná þar einkum nefna Gísla Gestsson safnvörð og Stefán Jónsson teiknara, síðar arkitekt, sem áttu sinn mikla þátt í endurskipan safns- ins. Enn er flest með sömu ummerkjum hér innan veggja safnsins og var í árdaga og mun væntanlega verða svo enn um sinn og vitna um þessa kynslóð safn- manna á íslandi. Enn tala útlend- ingar, sem hér koma um það, hve safnið sé gott og vel fyrir komið. Kristján Eldjárn sameinaði vel meginkosti safnmannsins, að gera safn sitt aðgengilegt almenningi til skoðunar og að færa út akurinn með nýjum rannsóknum. Hann var fornleifafræðingur af ástríðu og hafði hann valið sér sem lokaprófs- verkefni við Háskóla íslands graf- fundi og grafsiði úr heiðni á fs- landi. Var því eðlilegt, að hann Sjá næstu siðu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.