Þjóðviljinn - 23.09.1982, Síða 20

Þjóðviljinn - 23.09.1982, Síða 20
V WÐVIUINN Fimmtudagur 23. september 1982 Afta’ tmi Þjóftviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag tii föstudags. UU.i pess tima er hegt aft ná I blaftamenn og aftra starfsmenn blabsins f þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aft ná 1 af- greiftslu blaftsins 1 sima 81663. Blaftaprent hefur slma 81348 og eru blaftamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Homfirðingar á reknetaveiðar: „Okkur stillt upp við vegg” segir Örn Þ.. Þorbjörnsson, skipstjóri „Það var búið að stilla okkur upp við vegg. Við getum ekki staðið í aðgcrðum sem þessum, þegar nótabátarnir eru farnir af stað og brjóta með því á bak aftur samstöðuna“, sagði Örn Þ. Þorbjörnsson skipstjóri á Höfn í Hornafirði. Sjómenn og útgerðarmenn á Höfn samþykktu á fundi í gærdag með 37 atkvæðum gegn 17 að halda á reknetaveiðar, þrátt fyrir inikla óánægju með ákvörðun verðlags- ráðs um nýtt síldarverð, 40 sátu . ' Islensk stúlka finnst látin í Briissel Ung íslensk kona, Sólveig Magn- úsdóttir, starfsmaður sendiráðs Is- lands í Brússel fannst látin þar í borg sl. þriðjudag. Síðast sást til Sólveigar á laugardagskvöldið en þegar farið var að sakna hcnnar var hennar strax leitað og fannst hún látin við járnbrautarteina í Brússel. Öll málsatvik eru óljós vegna láts Sólveigar, sem var 24 ára göm- ul. Þjóðviljinn leitaði til sendiherra íslands í Belgíu, Hendriks Sv. Björnssonar, og kvað hann málið vera í rannsókn. Nánari upplýsing- ar gat hann ekki gefið. v — hól. hjá. Áður höfðu sömu aðilar á- kveðið að halda ekki til veiða fyrr en nýtt síldarverð lægi fyrir, en hálf önnur vika er liðin frá [jví rekneta- veiðar máttu hefjast. Verðlagsráð samþykkti í fyrra- kvöld með atkvæðum oddamanns og kaupenda gegn atkvæðum selj- enda, nýtt síldarverð. Hækkunin milli ára er um 33% á stærstu og millistærðar flokka, en tæp 40% á minnsta stærðarflokk. Sjómenn höfðu farið fram á rúmlega 60% hækkun og síðar 42% hækkun. Reknetabátar héldu margir út frá Höfn í gær, en þaðan er gerður út nær helmingur reknetabáta á lapdinu. Nótabátar frá Norðurlandi héldu á miðin í gær en lítill afli hefur erin fengist. Hornafjarðarbátarnir ætla að leita síldar á heimamiðum fyrst til að byrja með. „Það hefur aldrei verið jafnmikið áhugaleysi um þessar veiðar hér og nú. Ævintýra- Ijóminn er farinn af þessu, og menn eru óánægðir með sín kjör. Það hefur mikið breyst frá því í fyrra", sagði Örn Þ. Þorbjörnsson skip- stjóri á Höfn. — lg- Hið nýja skip Patrekur fyrir utan skipasmiðastöðina Skipavík hf. á Stykkishólmi. Skipinu er ætlað að taka við af Garðari BA, kunnu aflaskipi sem var lagt í fyrra eftir að hafa verið í gagninu frá 1912. Við hliðina á Patrcki er Sif SH 3 sem þessa dagana gengst undir yfirbyggingu hjá Skipavík. Verkefnaskortur er framundan í Skipavík „Það er nú svo komið, að í fyrsta sinn í sögu þessa fyrirtækis, sjáum við fram á verkefnaskort og þar af leiðandi uppsagnir á starfsfólki“, sagði Ólafur Kristjánsson framkvæmdastjóri skipasmíðastöðvarinnar Skipavík h/f á Stykkishólmi þcgar Þjóðviljinn sló á þráð til hans í gær. Ólafur sagði að Skipavík væri móta. Eftir það væri ekki nein með yfirbyggingu á gömlu skipi í verkefni fyrirsjáanleg. Hann sagði gangi og ætti það að duga til ára- að ástandið væri ekki aðeins dökkt Miðstjórnarfundur 2. og 3. október: Stjómarskrármálið og kosningaundirbúningur Á dagskrá fundarins eru talin atriði: eftir- 1. Stjórnarskrármálið, framsögu- ráðherra. maður Ragnar Arnalds fjármála- 2. Húsnæði flokksins, framsögu- maður Baldur Oskarsson fram- kvæmdarstjóri Alþýðubandalags- ins. 3. Undirbúningur flokksráðs- fundar. 4. Stjórnmálasviptingar fram- undan - Kosningaundirbúningur - framsögumaður Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins. 5. Önnur mál. Miðstjórnarfundurinn hefst kl. 14 laugardaginn 2. október í Þing- hóli, Hamraborg 11, Kópavogi. -ekh hjá Skipavík, heldur einnig hjá öðrum skipasmíðastöðvum í landinu og væri ástæðuna m.a. að rekja til þess að í æ ríkara mæli sigldu menn út til viðgerða og við- halds, jafnvel þó engar heimildir lægju fyrir. Hjá Skipavík starfa nú 40 manns. Fyrir stuttu síðan skilaði fyrirtækið nýju skipi, Patreki, til eigenda sinna á Patreksfirði, Jóns Magnússonar útgerðarmanns og Sigurgeirs Magnússonar útibús- stjóra Samvinnubankans. Patrekur heldur til veiða í næsta mánuði og skipstjóri verður Magnús Jónsson. Skipið er 175 lestir af stærð búið öllum fullkomnustu tækjum, tilbú- ið til veiða á línu, net og tog. Heildarkostnaðartölur liggja ekki fyrir, en skipið fer á flot með 85- 90% lánum úr Byggðasjóði og Fiskveiðasjóði. — hól. Unglingaheimilið tíu ára: ✓ A annað þús. ungllnga hafa lettað Á annað þúsund unglingar hafa leitað til fjög- urra deilda Unglingaheimilis ríkisins á þeim tíu árum sem liðin eru frá stofnun þess. A blaða- mannafundi sem boðaður var í gær í tilefni af tíu ára afmæli heimilisins kom m.a. fram að 144 hefðu dvalið langdvölum á meðferðarheimilinu í Kópa- vogi, en auk þess eru nú starfandi á vegum ung- lingaheimilisins neyðarathvarf unglinga, sambýlið að Sólheimum 17 og unglingaráðgjöf. Á líflegum blaðamannafundi í gær kom fram að töluvert hefði dregið úr fordómum gagnvart starfseminni á síðustu árum en til að byrja með þurfti mikið að berjast við þá. En þörfin fyrir starfsemina hefur fremur vaxið með árunum enda er hún orðin mun fjölþættari en var á upphafsár- unum. Krakkarnir sem tóku þátt í blaðamannafund- inum búa á heimilinu í Kópavogi og voru hin hressustu. Skóli starfar á heimilinu og leyndi sér ekki að þar er unnið skapandi starf. Á veggjunum voru ljóð og myndir eftir krakkana og meðal þess sem bar fyrir augu á fundinum var þetta ljóð eftir Hannes: til heimilisins frá upphafi Verulega dregið úr fordómum Frá blaðamannafundinum í Kópavogi í gær. Stríð Stríð, hvers vegna stríð? Eg horfi á heiminn í glötun og lönd aiheimsins eyða hvert öðru, miskunnarlaust. Hvers vegna er svona mikil landagræðgi? Hvers vegna getur ekki hvert land unað við sitt? Án þess að leggja út í stríð við aðrar þjóðir þótt þjóð þeirra fjölgi sér. Út af hverju þarf mannkynið að eiga á hættu að verða eytt bara út af því að háttsettir menn vilja það? Vopn þeirra deyða alla. Hannes Nánar verður sagt frá blaðamannafundinum og þessum merku tímamótum síðar í blaðinu. — óg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.