Þjóðviljinn - 02.10.1982, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 02.10.1982, Qupperneq 3
Helgin 2.-3. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 myndlist Hinn glataði frummaður Runólfsson skrifar Á leið sinni til Bandaríkj- anna hefur sýning sænsku listakonunnar Helmtrud Ny- ström, verið sett upp í anddyri Norræna hússins. Þetta eru grafík-myndir, koparætingar, prentaðar í mörgum litum, um 20-30 að tölu. Helmtrud Nyström er fædd í Þýskalandi, en löngum hefur hún verið búsett í Svíþjóð. Hún lagði stund á myndlistarnám við Forum-listaskólann í Lundi, á ár- unum 1963 - 72. Frá þeim tíma hefur hún svo rekið sitt eigið grafík-verkstæði. Helmtrud hef- ur tekið þátt í mörgum samsýn- ingum og haldið fjölmargar einkasýningar. Bæði hefur hún sýnt í Evrópu og utan hennar og hlotið alþjóðleg verðlaun og styrki. Myndirnar eru að vissu leyti áþekkar mörgu því sem undirrit- aður hefur séð í skandinavískri grafík-list, einkum sænskri og finnskri. Vinnan er mjög fínleg, litir eru gagnsæir líkastir vatns- litum. Myndmálið er ævintýra- kennt, fengið úr dýra- og jurta- ríkinu,og teiknarHelmtrud verur sínar og hluti með meðvituðu handbragði barnsins eða hins frumstæða. Fílar, refir og fuglar stíga léttan dans um flötinn innan um tré og blóm, eða óhlutkennd tákn og mynstur. Myndrúmið er lítt afmarkað og loftkennt, mynd- málinu er dreift frjálslega um flötinn, þótt viss miðlæg upp- bygging sé fyrir hendi. Helmtrud Nyström sver sig í ætt við þá Norðurlandabúa sem gera þjóðlegar tilraunir í mynd- list, eða kafa ofan í eigin menn- ingu, þjóðsögur og alþýðulist. Hún gerir spurninguna um menn- ingu nútímans áleitna, kannski fyrst og fremst hina stöðluðu menningu Norðurlanda. Hversu sterk er þessi menning, hversu sérstæð er hún og hvað ristir hún djúpt. Hvergi í Evrópu eru lönd jafn strjálbýl, að Danmörku undanskilinni, og óvíða er borg- armenning jafn ung og óreynd eins og í Skandinavíu. Þjóðir þessara landa hafa orðið að stökkva á skömmum tíma úr næsta frumstæðri sveitamenn- ingu inn í borgarsamfélagið, stökk sem þjóðir megirilandsins fengu að þreyja á miklu lengri tíma. Þessi umbylting hefur ekki gerst án fórna sem bitnað hafa á þjóðlegri menningu og menning- arvitund Noröurlandabúa. Óvíða hafa menn verið jafn iðnir við að samsama sig að hinu alþjóðlega neysluþjóðfélagi og á Norður- löndum. Svo rækilega höfum við siðbætt okkur og barið niður frumeðlið, að það leitar varla út nema þá helst undir áhrifum. Þá er þjóðleg skandinavísk menning nánast dauð, orðin safngripur fyrir fáeina sérvitringa. Allt þetta virðist herja á huga Helmtrud Nyström, líkt og svo margra annarra norrænna lista- manna. Hún kafar í myndum sín- um undir hið slétta og snurfusaða yfirborð og reyhir að finna frum- manninn í nútímanum. Til þess notar hún myndmál sem rekja má til hugmynda Jungs og kenninga hans um hina samfélagslegu dul- vitund. Reyndar er hún aðeins ein þeirra fjölmörgu myndlistar- manna sem orðið hafa fyrir áhrif- uin af þessum kenningum. í myndum hennar má sjá fjölmörg tákn sem kallast geta frumgerðir eða arkitýpur, s.s. tréð í miðjum fletinum, og auðvitað er askur Yggdrasils, eða höndin, sem óneitanlega minnir á hönd hins óþekkta listamanns hellamál- verkanna, fyrsta málarans. í framhaldi af þessu er það litil Framhald a 30. siöu. laugardag frá kl. 10-16 Kynnum nýju línuna frá Pioneer í hljómtækjum og bíltækjum. Frá Sharp kynnum við hljómtækin, vídeotækin, litasjónvörpin og ferðatækin ... á hreint ótrúlegu veröi Kynnum auk þess Sharp búöarkassa — Sharp reiknivélar Örtölvu- ILuxaR I kynning • i[iu Kynnum hina stórkostlegu PC1500 örtölvu (pocket comput- er) frá Sharp. PIONEER SHARP HUOMBÆR ^ HLJOM»HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999J

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.