Þjóðviljinn - 02.10.1982, Síða 5

Þjóðviljinn - 02.10.1982, Síða 5
Helgin 2.-3. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 I ár verða þjóðartekjur litlu hærri en 1976, en kaupmáttur ráðstöfunartekna hafði hækkað um 27% síðan fram að sú áætlun sé reyndar enn óviss hvað varðar árið 1982. Aldrei getur hjá því farið, að veruleg lækkun þjóðartekna hafi meiri eða minni áhrif á kaupmátt launa og tekna vinnandi fólks, en fyrir þá sem telja að í þessum efn- um skipti engu máli, hvaða ríkis- stjórn sitji hér að völdum - allt sé þetta sjálfvirkt - þá er hollt að bera saman þessar tölur frá árunum 1976 og 1982 um þjóðartekjur ann- ars vegar og kaupmátt launa og tekna hins vegar. Kauprán eða kjara- vörn Stundum heyrist nefnt, að Al- þýðubandalagið sé nú með þátt- töku sinni í ríkisstjórn að fram- kvæma sams konar kaupránsstefnu og hér var iðkuð af öðrum flokkum á fyrri árum. Til marks um þetta nefna menn setningu bráðabirgða- laganna í ágústmánuði s.l. Þar er m. a. gert ráð fyrir að hinn 1. des. n. k. verði aðeins 'greiddar hálfar verðbætur á laun, en á móti konti sérstakar láglaunabætur, lenging orlofs um 4-5 daga og svo að sjálf- sögðu mun minni verðbólga en ella. En berum nú stuttlega saman annars vegar aðstæður og hins veg- ar aðgerðir stjórnvalda hvað kaupið varðar fyrr og nú. Mættum við fyrst minna á „við- reisnarstjórn" Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins, sem hér ríkti 1959 til 1971. Sú ríkisstjórn hóf fer- il sinn með því að banna með lögum allar vcrðhætur á laun, ekki í eitt skipti af fjórum á ári, heldur alla tíð uns öðru vísi yrði ákveðið, og það tók verkalýðshreyfinguna 4-5 ár að brjóta þetta bann á bak aftur. Hvernig litist mönnum á slíkar „leiftursóknaraðgerðir" nú? 1976 hafði kaupmáttur fallið um 19% en þjóðartekjur um 2% Skoðum svo einnig þróun kaupgjaldmálanna á valdaárum Sjálfstæðisflokksins og Framsókn- arflokksins, þegar Geir Hallgríms- son var forsætisráðherra 1974- 1978. Á árinu 1975 lækkuðu þjóðar- tekjur á ntann um 7%, en hækkuðu aftur á árinu 1976 urn 5%. Ef kaupmáttur kauptaxta launafólks hefði þróast í takt við breytingar á þjóðartekjum á þessum árurn, þá heföi kaupmáttur taxtakaupsins átt að vera um 2% lakari 1976 heldur en 1974. Kaupmátturinn féll hins vegar á þessum árum um 14,7% árið 1975 og cnn um 5,1% árið 1976 og var þannig 19% lakari á árinu 1976 heldur en verið haíði 1974, enda þótt þjóðartekjur á mann hefðu aðeins fallið um 2% milli þessara ára. Hverniglitist mönnum á, ef þessi háttur væri hafður á nú? - Það var verkalýðshreyfingin, sem braut þessa kaupránsstefnu á bak aftur árið 1977 í hörðum átökum. Þá og nú Fall þjóðarteknanna er hlutfalls- lega litlu minna nú árið 1982 heldur en hér átti sér stað árið 1975. Mun- urinn er hins vegar sá, að þá var efnhagsaðgerðum beitt til að lækka kaupmátt kauptaxta launafólks um ' 19% á tveimur árunt, en í ár telur Þjóðhagsstofnun að mcðalkaup máttur kauptaxta launafólks lækki alls ykki neitt, þrátt fyrir fall þjóð- artekna, og að lækkun kaupmáttar verði 6% á næsta ári. í þeirri tölu hefur þó ekki verið tekið tillit til orlofslengingar, sem segja má að með beinum hætti svari til um 2% launahækkunar hjá mcginþorra launafólks, né heldur til láglauna- bótanna, sem meta má upp á 1-2%. Sé þróun kaupmáttar í Ijósi þjóðartekna á árunum 1975 og 1976 þannig borin saman við það sem nú hefur gerst. þá er ólíku saman að jafna. 1976 - 1978 hækkuðu þjóðar- tekjur um 16,6%, en hafa nú lækkað um 4% á þremur árum Og hvað fólst í febrúarlögum ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar árið 1978. Samkvæmt þeim átti að skerða verðbætur á laun um helm- ing, ekki í eitt skipti, heldur a.m.k. fjórum sinnum í röð og ræna þann- ig á ný ávinningi kjarasantning- anna 1977. Voru þau ólög, febrúarlögin 1978, þásett vegna þess, að þjóðar- tekjur hefðu farið minnkandi? Nei, aldeilis ekki. Á árunum 1976 til 1978 hækkuðu þjóðartekjur á mann um 16,6% á þremur árum og var öll árin um verulegan vöxt að ræða. Samt átti að ræna launafólkið helmingi verð- bóta a.m.k. fjórum sinnum í röð og þrýsta kaupmættinum niður úr öllu valdi. Þetta var ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar sem hér stjórnaði, þegar viðskiptakjör okk- ar út á við voru hagstæðari á árun- um 1977 og 1978 en nokkru sinni bæði fyrr og síðar. I ár munu þjóðartekjur á mann hins vegar falla um 5% að dómi Þjóðhagsstofnunar, og í staðinn fyrir 16,6% vöxt á þremur árum, 1976-1978, þá koma árin 1980 til 1982 út með rösklega 4% í rnínus. Hér er því um ákaflega ólíkar að- stæður að ræða. Það er heimskreppan ásamt minnkandi afla, sem hér segir til sín nú. Dæmuni í ljósi staðreynda Ætli menn að dæma um aðgerðir flokka og ríkistjórna fyrr og nú hvað baráttuna um kaupmátt launanna varðar, þá verða menn að hafa allar þessar beinhörðu stað- reyndir í huga. Annars verður dómurinn marklaus. Það skal tekið fram að allar þær upplýsingar, sem hér eru bornar fram eru byggðar á opinberum gögnum Þjóðhagsstofnunar, sem Morgunblaðið hefur ekki lakari aðgang að heldur en Þjóðviljinn. Þar skortir hins vegar viljann til að segja satt og rétt frá staðreyndum. Bændur móti stefnu í náttúru- verndar málum Naumast er á því nokkur vafi, að miklir atvinnumöguleikar eru fólgnir í þjónustu við ferðamenn, jafnt innlenda sem erlenda. En jafnframt þarf að gæta þess, að ferðamannastraumurinn valdi ekki landspjöllum svo sem sumstaðar hefur viljað við brenna. Stéttarsamband bænda ræddi þetta mál á síðasta aðalfundi sínum og samþykkti um það svofellda á- lyktun: „Fundurinn" vekur athygli á þeim miklu atvinnumöguleikum, sem fólgnir eru í ferðaþjónustu samfara vaxandi straumi ferða- manna til landsins og aukinna fer- ðalaga landsmanna innanlands. Fundurinn bendir á, að landbún- aðurinn og strjálbýli eiga hér mik- illa hagsmuna að gæta og miklu varðar hvernig umferð ferða- manna er skipulögð um byggðir og óbyggðir. Tímabært er að bændur móti stefnu á þessu sviði og í um- hverfis- óg náttúruverndarmálum, sem eru náskyld og felur stjórn Stéttarsambandsins að vinna að því. Þá fagnar fundurinn þeim fram- förum, sem orðið hafa á síðustu árum í umgengni manna um landið. - Sérstaklega þakkar fund- urinn forystu margra búnaðarsam- banda og fleiri félaga, er leitt hefur til stórbættrar snyrtimennsku í sveitum landsins. Hinsvegar skal bent á að enn er mikið verk óunnið á þessu sviði því lengi má um bæta. Því mælist fundurinn til að stjórn Stéttarsambands bænda og Bún- aðarfélag Islands beiti áhrifum sín- um við búnaðarsambönd og sveit- arstjórnir að þau taki upp skipulegt starf til að koma þessum málum í sem allra best horf.“ - mhg Bylminnshnmi Bílasýning íbílasalnum! veltir sýnir splunkunýjan Voívobíl, sem sannaríega kemur þér á óvart. Volvo 760 CLE einnig Volvo 240 DL Volvo 240 CL VOlVO 340 DL

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.