Þjóðviljinn - 02.10.1982, Side 32

Þjóðviljinn - 02.10.1982, Side 32
DJÚÐVIUINN Helgin 2.-3. október 1982 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382,81482 og81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgrciðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 Nýja viðbyggingin: Eins og dömuskór — lítil að utan en rúmgóð að innan. Eitt af því skemmtilegasta sem maður getur gert á frídegi í Kaupmannahöfn er að taka járnbrautarlestina norður í Humlebæk og skoða Louisiana-safnið, eitt sérstæðasta myndlistarsafn á Norðurlöndum og þótt víðar væri leitað. Aðkoman er eins og á einkaheim- ili og byggingin lætur ekki mikið yfir sér við fyrstu sýn: Vinalegt andyri þar sem hægt er að kaupa listaverkabækur, veggspjöld og eftirprentanir listaverka. En brátt opnast fyrir manni víðir salir og óvænt stefnumót við nýjustu strauma í myndlist og myndrænni tjáningu. Nú hafa þær fréttir borist, að ný- verið hafi verið tekin í notkun ný- bygging við safnið er geri því kléift að hafa jafnan uppi sýningu á þeim merku verkum, sem safninu hafa áskotnast ásamt þeim alþjóðlegu farandsýningum, sem þar eru að jafnaði haldnar. Hin nýja viðbygg- ing mun vera um 3500 fermetrar, er bætast við þá 5000 er fyrir voru. Það var Knud Jensen, nú 65 ára gamall, sem fyrir 24 árum keypti Lousiana-villuna í Humlebæk og gerði hana að sjálfstæðri stofnun. Húsið hafði þetta nafn vegna þess að sá er byggði það upphaflega hafði gifst þremur konum, er allar hétu Louise. í fyrstu var safnið fyrst og fremst vettvangur þess nýj- asta sem var að gerast í danskri myndlist, en ekki leið á löngu áður en safnið var orðið að alþjóðlegri iistamiðstöð þar sem dönskum al- ménningi var boðið upp á það merkasta sem var að gerast í evr^ ópskri og bandarískri myndlist. Safnið er í fögru umhverfi í skrúð- garði á lágri klettaströnd út við Eyrarsundið og á það sinn þátt í að gera safnið að þeim unaðsreit sem það er öllum þeim er njóta þess að eyða dagsstund í fögru umhverfi innan um myndverk er sýna okkur í fjölbreytilegu myndmáli sögu og reynslu samtímans. I hinum fagra garði sem umlykur safnið og mynd- ar í rauninni hluta þess sjáum við bronsmyndir Henry Moore bera við sindrandi hafflötinn, egg- höfuðin eftir Hans Arp standa á grasflötinni og hreyfimynd eftir Calder bærist í sjávargolunni. Sjálf er byggingin eins og hluti af garðinum og umhverfinu þar sem trén verða meira áberandi og sjálf- ur hefur Knud Jensen sagt að hin fullkomna safnbygging eigi að vera eins og kvenmannsskór: Lítil að utan og rúmgóð að innan. Við- byggingarnar, sem Jensen hefur látið gera í samvinnu við arkitekt- ana Jörgen Bo og Vilhelm Wohlert láta lítið yfir sér og eyðileggja ekki umhverfið, en innan dyra eru rúm- góðir sýningarsalir, veitingastofa, konsertsalur og annað sem góðu safnhúsi tilheyrir. Nýja álman, sem opnast til suðurs er stærri um sig. Þar eiga að rúmast þau stóru form, sem gjarnan einkenna listaverk síðari tíma. Nú er þar sýning á þrí- víðum verkum eftir Mario Merz. Þá mun þýski þúsundþjalasmiður- inn Joseph Beuys, sem eitt sinn sýndi í Gallerí Súm, sýnaþar „hun- angsdælu" sína á næstunni og einn- ig er væntanleg sýning á verkum bandaríska pop-málarans Jim Dine. Knud Jensen segir að nú hyggist hann gera neðanjarðargallerí fyrir grafík er tengi saman norður- og suður álmu safnsins. Væntanlega munu íslendingar sem leggja leið sína um Kaup- mannahöfn halda áfram að gera sér dagamun og njóta þeirrar veislu fyrir augað, sem heimsókn í Louisiana-safnið venjulega er. allt til sláturgerðar nýtt og ófryst slátur kæli Opið alla daga allan daginn |$l Sparimarkaðurin Austurveri v/Háaieitisbraut Neðra bílastæði (sunnan hússins). Við viljum vekja athygli leigjenda og leigusala á því, að Félagsmálaráðune^í^ gefur út eyðublað fynr leigusamninga um íbúðarhúsnæði. Notkun þess tryggir réttindi beggja aðila. Leigjendasamtökin HÚSEIGENDASAMBAND ÍSIANDS Hið löggilta eyðublað fyrir leigusamninga um íbúðarhúsnæði fæst án endurgjalds hjá bæjar- og sveitarstjórnum °g á skrifstofum okkar. Önnur samningseyðublöð eru ekki gild. 1 llúsiiæðisslofmin ríkisins Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða ritara. Starfið er fólgið í vélritun og almennum skrif- stofustörfum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf sendist starfsmannastjóra. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.