Þjóðviljinn - 22.10.1982, Qupperneq 1
„Samstaða sem á stuttum tíma fylkti 80% vinnandi manna undir sitt merki, verður að fá fullt athafnafrelsi í pólsku þjóðfélagi“. ' £ _ | ^^október 1982 * ^ ^ föstudagur W W 238. tölublað Æ f 47. árgangur
Sjá 20 mmwt #
Uppsagnlr hjá
Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar
„Jú, það er rétt. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hefur
verið að segja upp kvenfólki sem vinnur við pökkun, og
að sögn forráðamanna fyrirtækisins er ástæðan sú að
meginhluti aflans er illseljanlegur karfl sem gerir það að
verkum að frystigeymslur hússins eru orðnar fullar“,
sagði Hallgrímur Pétursson formaður Verkamannafél-
agsins Hlífar í samtali við Þjóðviljann í gær.
Nú mun 12 starfsmönnum BÚH hafa verið sagt upp og sá kvittur uppj að
fleiri starfsmönnum kynni að verða sagt upp á næstunni. Að sögn Hall-
gríms í Hlíf er hér einkum að ræða fólk sem hefur unnið skamman tíma hjá
fyrirtækinu. Ekki tókst að ná í Björn Ólafsson forstjóra Bæjarútgeröar
Hafnafjarðar í gær. -v.
B-álma
Borgarspítalans í
Reykjavík er risin af
grunni og er nú
verið að vinna við
frágang innan dyra.
Fyrstu tvær
hæðirnar verða
teknar í notkun á
næstaári.
Málefni kvenfólks
innan
Handknattleikssa ni-
bands íslands eru
í brennidepli þessa
dagana, og á í
þróttasíðu er fjallað
um handknattleik
kvenna.
tgeaum aa m mm
aagur
Þá fer að styttast í sumrinu; síðasti sumardagurinn er í dag, og á
morgun verður veturinn búinn að taka öll völd, i það minnsta á
almanakinu. Sumarið hefur veríð með betra móti um land allt i ár,
sólrikt á stundum, en heldur kalt í haustbyrjun. Og það hefur viðrað
vel til húsbygginga í sumar; en hvar skyldi þessi mynd vera tekin? Þið
'
Rækjuveiðimenn á ísafirði
neita að hefja veiðar
Rækjuveiðimenn í ísafirði eru mjög óánægðir mcð það lágmarksverð á
rækju, sem ákveðið hefur verið og á fundi sjómanna um málið, sem
haldinn var í fyrradag, samþykktu þeir einróma að ráða sig ekki á rækju-
báta og hefja því ekki veiðar 29. okt. n.k. fyrr en verðið hefur verið
leiðrétt. Að sögn Reynis Torfasonar sjónmanns á ísafirði var alger einhug-
ur um málið.
J.VXS0A
. v'. ‘-.i'.. V.
Vinnslustöðvar bjóða
þelm 5,55 fyrir kflóið
Verðið sem ákveðið hefur verið
er 5,55 kr. kg af rækju þar sem í
eru 260 til 350 stykki. Og á sama
tíma og þetta verð er ákveðið
kaupa rækjuvinnslur á ísafirði
frysta rækju af Rússum fyrir 1 doll-
ar, eða 15 kr. íslenskar kílóið. Þessi
rækj a er að vísu aðeins stærri, en að
sögn Reynis hefur ekki fengist
hærra verð erlendis fyrir stóra
rækju, eins og til að mynda úthafs-
rækju, en þá sem sjómenn frá ísa-
firði veiða.
Þetta er að sjálfsögðu alls óþol
andi, eða hvað myndu menn segja
ef frystihúsin neituðu að kaupa fisk
af íslenskum togurum, en keyptu
þess í stað fisk af erlendum skipum
á þreföldu verði? spurði Reynir.
Við ræddum einnig við Elísabetu
Gunnlaugsdóttur, en hún og mað-
ur hennar, Finnbogi Jónasson,
hafa gert út rækjubát frá ísafirði.
Hún sagði að fiskifræðingar hefðu
gefið leyfi til að hefja veiðar í byrj-
un október, en vinnslurnar hefðu
ekki viljað að veiðar hæfust fyrr en
29. okt. n.k. Hún staðfesti líka
þetta með rækjuna sem keypt er af
Rússum og sagði að þau hjón væru
orðin uppgefin á þessum erfiðleik-
um, sem ævinlega væru í kringum
rækjuvinnslurnar á ísafirði og
hefðu þau ákveðið að selja bát sinn
og hætta þessari útgerð.
. Að lokum má geta þess, að kjör-
in hefur verið 3ja manna nefnd sjó-
manna til að ræða við kaupendur
um málið. -S.dór
Gabriel Garcia Marquez
hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels í ár
Bókmenntaverðlaun Nóbels
voru tilkynnt í gær, og hlaut þau
s-ameríski rithöfundurinn Gabriel
Garcia Marquez Gabricl Garcia
starfaði áður sem hlaðamaður í
nokkrum S-Ameríkulöndum, en
hann er frá Columbíu.
Á íslensku hafa komið út eftir
hann bækurnar Hundrað ára ein-
semd og Liðsforinginn fær aldrei-
bréf, í þýðingu Guðbergs Bergs-
sonar. Væntanleg er einnig á mark-
aðinn eftir Gabriel Garcia Marqu-
ez ný bók í þýðingu Guðbergs á.
vegum bókaforlagsins Iðunnar.
Gabriel er (,mis þekktasti og víq-
iesnasti núlifandi rithöfundur sem
skrifar á spænsku. _óg Garbriel Garcia Marquez
Vinstri sigur í H.Í.!
Vinstri menn unnu sigur í gær f kosningum til 1. des. nefndar í Háskóla
íslands A-listi Vöku, félags íhaldsstúdenta fékk 315 atkvæði eða
45.9% atkvæða en B-listi vinstri manna hlaut 356 atkvæði eða 51.9%
atkvæða. Ilannes Hólmstcinn Gissurarson kom og kaus laust fyrir mið-
nætti en það dugði að sjálfsögðu ekki hægri mönnum til. Efnið 1. des.
verður því Vísindi og kreppa.