Þjóðviljinn - 22.10.1982, Page 3
Föstudagur 22. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Sunnuhlíð
í Kópavogi:
Bæjaryflrvöld í Kópavogi af-
hentu Sunnuhlíð hjúkrunarheimili
aldraðra í bænum, 1.1 miljón að
gjöf fyrir skömmu til stuðnings og
framkvæmda fyrir heimilið. Það
var forseti bæjarstjórnar, Rann-
veig Guðmundsdóttir, sem afhenti
gjöfina, og kvað hún þetta viðbót-
arframlag hafa verið ákveðið í til-
efni árs aldraðra og væri það von
bæjarstjórnarinnar að fyrir vikið
yrði unnt að halda áfram af fullum
krafti við að fullgera heimiiið.
Kópavogsbær hefur styrkt bygg-
Rannveig Guðmundsdóttir forseti bæjarstjórnar Kópavogs afhendir for-
manni stjórnar Sunnhlíðar, Ásgeiri Jóhannessyni, gjöfina frá Kópavogs-
bæ.
Fékk 1,1 mlljóii að
gjöf frá Kópavogsbæ
ingu Sunnhlíðar með ráðum og
dáð, en auk myndarlegra fjár-
styrkja á fjarlögum lagði bærinn til
efni, tæki og vinnu unglinga í
Vinnuskóla Kópavogs sl. sumar og
frágang lóðarinnar, og nam sá
stuðningur 410.000 krónum. Hefur
bærinn því fært Sunnuhlíð 1.5 milj-
ón á þessu ári.
Sunnuhlíð hefur nú tekið á móti
80 sjúklingum, en 38 vistmenn geta
verið á heimilinu í einu. Hefur því
megintilgangi hjúkrunarheimila
verið náð, það er að endurhæfa
fólk og gera því kleift að snúa aftur
til síns heima.
Dagvistun aldraðra er fyrirhug-
uð í Sunnuhlíð, geta þá vistmenn
komið að morgni og dvalist í sam-
vist við jafnaldra sína yfir daginn.
Einng er í athugun að nýta kjallara
hússins fyrir sjúkraþjálfun og
koma þar upp vernduðum vinnu-
stað fyrir aldraða og öryrkja. -v.
Það er þrútið loft á milli Fram-
sóknarmanna og Sjáifstæðismanna
á alþingi þessa dagana. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur staðið fyrir því að
framsóknarmennirnir Olafur
Þórðarson, Alexander Stefánsson
og Stefán Valgeirsson hafa verið
fclldir frá formennsku í nefndum
neðri deildar alþingis. „Eg kann
ekki við þessi vinnubrögð”, sagði
Páll Pétursson formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins í við-
tali við blaðamann í gær. Sjálf-
stæðismenn segjast ekki kannast
Framsóknarmennirnir féllu í formannskjöri í
deildar.
nefndum neðri
Framsóknarmenn voru felldir úr
formennsku nefnda í neðri deild
Kann ekki við þessi vinnubrögð segir Páll Pétursson
við neitt samkomulag um þessar
nefndir og kosningar til for-
mcnnsku í þeim.
í kjöri innan nefndanna féll
Ólafur Þórðarson í kosningum um
formennsku í allsherjarnefnd fyrir
Jósef H. Þorgeirssyni, Stefán Val-
geirsson í landbúnaðarnefnd fyrir
Steinþóri Gestssyni og Alexander
Stefánsson féll fyrir Jóhönnu Sig-
urðardóttur til formennsku í fé-
lagsmálanefnd neðri deildar.
Páll Pétursson formaður þing-
flokks Framsóknarmanna sagði að
samið hefði verið um óbreytta
nefndarskipan í haust með þeirri
undantekningu að kosið var á milli
Eggerts Haukdals og Friðjóns
Þórðarsonar í fjárveitingarnefnd.
Ólafur G. Einarsson þingflokksfor-
maður Sjálfstæðismanna hefði
ekki staðið við samkomulag þing-
flokksformanna um þessi mál.
Sagði Páll að Ólafur hefði líkegast
verið borinn ofurliði af sér lakari
mönnum í þingflokki Sjálfstæðis-
manna. Hér hefði verið um lið í
allsherjarsamkomulagi um þing-
störf að ræða og væri ekki hægt að
una við slík vinnubrögð.
Sagði Páll að það hefði verið
hægur vandi fyrir stjórnarflokkana
að neyta meirihluta í sameinuðu
þingi og koma í veg fyrir kjör Egg-
erts Haukdals í atvinnumálanefnd.
Það hefi hins vegar ekki verið gert
vegna áðurnefnds samkomulags.
En með sinnaskiptum Haukdals
fékk stjórnarandstaðan einmitt
meirihluta (með honum) í þeim
nefndum þar sem þeir Stefán Val-
geirsson, Alexander Stefánsson og
Olafur Þórðarson voru felldir úr
formennsku.
-óg
Býður Kvennaframboðið fram
til alþingiskosninga?
Engin ákvörðun
verið tekin ennþá
— segja fulltrúar
Kvennaframboðsins
í Reykjavík
„Það hefur enn ekki verið tekin
nein ákvörðun hvort Kvennafram-
boðið bjóði sig fram til næstu al-
þingiskosninga. Slík ákvörðun
verður væntanlega tekin á næst-
unni,” sagði Magðalena Schram
einn fulltrúi Kvennaframboðsins á
blaðamannafundi sem Kvenna-
framboðið hélt í gær. Tilefni fund-
arins var þó ekki komandi alþingis-
kosningar, hcldur nýtt blað,
VERA, sem framboðið gefur út.
Blaðið verður auk þess að gcgna
hlutverki sem málgagn Kvenna-
framboðsins, innlegg í jafnréttis-
umræðuna. Það mun koma út 9
sinnum á ári og í allstóru broti, 34
síðum. í það skrifa ýmsir fulltrúar
Kvennaframboðsins og fleiri
aðilar.
Magðalena var spurð að því
hvort ekki reyndist erfitt fyrir
Kvennaframboðið að halda utan
um félagsskapinn þar sem ljóst
væri að skoðanir væru allverulega
skiptar um ýmis þau mál sem hæst
ber á góma í þjóðfélaginu.
Kvaðst hún hafa góðar vonir um
að hópurinn sem staðið hefði að
framboðinu stæði saman ef til
framboðs til alþingis kæmi.
Kvennaframboðið fór allvel út
úr síðustu kosningum til borgar-
stjómar. Það mikla fyrirtæki sem
það er að bjóða fram hefði verið
rekið hallalaust. Á Akureyri varð
nokkur afgangur. Útlagt fé Kvenn-
aframboðsins til borgarstjórnar-
kosninganna var um 400 þús. krón-
ur, en þess má geta að afar stór
partur allrar vinnu í sambandi við
framboðið var unninn í sjálfboða-
vinnu. -hól.
Húsnæðisstofnun ríkisins
Allar lánsumsóknir
á árinu af greiddar
„Með þessari samþykkt er
Húsnæðismálastofnun búin að
ganga frá öllum venjubundnum
lánveitingum sem afgreiddar eru
á hverju ári“, sagði Ólafur Jóns-
son formaður Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins í samtali við Þjóðvilj-
ann
Á fundi stjórnar Húsnæðis-
stofnunar í vikunni voru sam-
þykktir útborgunartímar fyrir
eftirtaldar lánveitingar:
Lokalán (3. hluti) skulu veitt til
greiðslu eftir 5. nóvember þeim
sem fengu 1. hluta á sama tíma
fyrir ári, en eftir 5. desember
þeim sem fengu frumlán á þeim
tíma fyrir ári.
Frumlán (1. hluti) verða
greidd út eftir 5. nóvember þeim
sem sent höfðu fokheldisvottorð
fyrir 1. september og áttu þá full-
gildar umsóknir, en eftir 5. des-
ember þeim sem áttu fullgildar
umsóknir fyrir 1. október s.l.
Lán til orkusparandi breytinga
og meiriháttar cndurbóta
verða veitt til greiðslu eftir 10.
desember þeim sent lögðu inn
fullgildar umsóknir á tímabilinu
1. apríl - 30. júní á árinu.
Lán til meiri háttar viðbygg-
inga sem fokheldar urðu á tíma-
bilinu 1. júlí - 30. september í ár
verða greidd eftir 10. desember.
G-lán verða til greiðslu eftir 15.
desember fyrir umsækjendur sem
lögðu inn umsóknir frá 1. apríl til
júníloka og að síðustu verða mið
lán (2. hluti) veitt til greiðslu
eftir 20. desember til þeirra sem
fengu frumlán sín greidd 20. júní
s.l.
-Ig-
Auglýsið í
Þjóðviljanum
OPtÐ UM HELGINA
islensk úrvals húsgögn