Þjóðviljinn - 22.10.1982, Qupperneq 6
6 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. október 1982
Californíulögreglan í hita og þunga dagsins. Nýlega fundust 1000 marijuanaplöntur í gili aðeins 8 míiur frá
(jallabúgarði Bandaríkjaforseta. Eigandinn er ennþá ófundinn...
Marijuanaræktun
Ný
búgrein í
bandarískum
landbúnaði
Ræktun marijuana-jurtarinnar
er orðin útbreiddur og
ábatasamur atvinnu vegur í
Bandaríkjunum, segir í nýlegri
grein í Newsweek, þar sem því
er haldið fram að sölu verðmæti
uppskerunnar sé um 10
miljarðar dollara á ári, en
samkvæmt því væri marijuana
þriðja mikilvægasta nytjajurtin
í bandarískri jarðrækt.
við ramman reip að draga, því akr-
arnir eru gjarnan hafði smáir og
faldir innan í skógum eða innan um
nytjagróður.
Atvinnubœtur
Marijuanaræktunin hefur orðið
kærkomið verkefni margra atvinn-
uleysingja í Bandaríkjunum, en
þar er nú 10. hver vinnufær maður
atvinnulaus, „og tvö þúsund doll-
arar fyrir eina marijuanaplöntu
slær sannarlega út verðið á baunum
og maís”, eins og haft er eftir
Maddox lögregluforingja í Misso-
uri. Pannig hefur marijuanaræktun
orðið Iyftistöng margra illa
leikinna byggðarlaga í efnahags-
legu tilliti, segir í Newsweek, og
ýmsir eru farnir að draga í efa rétt-
mæti þess að ofsækja þessa atvinn-
ugrein eins og gert er.
Hippar í vígaham
Sagt er að margir friðelskandi
fyrrverandi hippar hafi lagt starf
þetta fyrir sig, en þegar ræktunin er
orðin að atvinnugrein er friðarástin
fljót að hverfa. Marijuanabændur
verja akra sína af mikilli grimmd
fyrir ásæknum fíkniefnasjúk-
lingum, og ekki er óalgengt að þeir
hafi heimatilbúnar jarðsprengjur,
dulin bambusspjót og lifandi ban-
væna skröltorma umhverfis akr-
ana.
Nýleg skoðanakönnun sýnir, að
20% Bandaríkjamanna vilja að
neysla marijuana verði gefin frjáls,
en 74% eru því andvígir. 58%
Bandríkjamanna telja að neyslan
fari vaxandi og 23% Bandaríkja-
manna eiga vini og kunningja sem
reykja marijuana að staðaldri.
- ólg./Newsweek
Hriktlr í,
stoðum
japanska
efnahags-
undursins
Efnahagskreppan í heiminum
lætur engan óhultan:
Samdráttur í útflutningi,
minnkandi neysla og
framleiðsla heima fyrir og
stórauknar skuldir við útlönd
eru nú tekin að ógna japanska
efnahagsundrinu þannig að
hriktir í Zenko Suzuki
forsætisráðherra Japans sagði
nýlega af sér formennsku í
Frjálslynda lýðræðisflokknum
(og þar með ráðherraembætti)
vegna gagnrýni, sem á hann var
borin. Ástæðan var hinar
ískyggilegu horfur í
efnahagsmálum Japana.
Sú þjóðsaga hefur myndast um
efnahagsundrið japanska að þar í
landi hefði verið fundin upp eilífð-
arvél er framleiddi stöðugan hag-
vöxt og útilokaði alla árekstra á
milli launa vinnu og auðmagns.
I raun og veru hafa Japanir hins
vegar beitt gamalkunnum ráðum
til þess að stjórna efnahagsmálum
sínum: samkvæmt kenningum
breska hagfræðingsins John M.
Keynes hafa þeir beitt ríkiskassan-
um til þess að örva eftirspurnina
þegar kreppueinkennin birtust.
Þessi úrræði hafa löngum reynst vel
þegar um minni háttar sveiflur er
að ræða í hagkerfinu, en yfirstand-
andi efnahagskreppa hefur sýnt sig
að vera dýpri en svo, að þessi
gömlu úrræði dugi til lengdar. Með
því að veita miklu fé úr ríkissjóði út
í atvinnulífið hafa Japanir stofnað
til svo mikilla erlendra skulda, að
hætta virðist á kollsiglingu.
í ársbyrjun höfðu fjármálasér-
fræðingar ríkisstjórnarinnar gert
ráð fyrir 5% hagvexti á þessu ári.
Fyrirsjáanlegt er nú, að hann verð-
ur innan við 3% jafnframt því sem
fyrirsjáanlegur er gífurlegur halli á
fjárlögum eða allt að 30%
Erlendar skuldir Japana nema
nú hátt í 360 miljörðum dollara og
afborganir og vextir af erlendum
lánum nema í ár um það bil 1/6 af
fjárlögum ríkisins sem eru upp á
um það bil 190 miljarða dollara.
Gengi yensins hefur fallið um
17% gagnvart dollar á þessu ári og
minnkandi eftirspurn erlendis og
heima fyrir hefur gert það að verk-
um að atvinnuyleysið er komið yfir
4%
Það er athyglisvert að þrátt fyrir
gengisfellingu yensins, sem hefði
átt að bæta stöðu útflutningsins,
hefur dregið úr útflutningi stöðugt
frá því í janúar á þessu ári. Petta
gildir jafnt um útflutning bíla,
myndvéla, skipa og annarrar stáls-
míði, en á öllum þessum sviðum
hafa Japanir staðið í fremstu röð á
undanförnum árum. Til dæmis
seldu Japanir 25% minna af bílum
til Evrópu á fyrri helmingi þessa árs
en í fyrra.
Og fyrirtæki í ljósmyndabrans-
anum tilkynntu að samdráttur í
sölu hjá þeim frá því í maí hefði
numið um 30% og þeir sætu nú
uppi með um það bil tvær og hálfa
milljón ljósmyndavéla, sem ekki
seldust.
Samdrátturinn á heimamarkaði
hefur einnig sagt til sín um leð og
dregið hefur úr kaupmætti launa.
Vegna samdráttar og sívaxandi
skuldabyrði við útlönd lýsti Suzuki
forsætisráðherra nýlega yfir „efna-
hagslegu neyðarástandi” og hlaut
fyrir það slfkar ákúrur meðal
flokksbræðra sinna að hann varð
að segja af sér. Eftirmaður hans
verður kosinn á flokksþingi Frjáls-
lynda lýðræðisflokksins í næsta'
mánuði, og er talið líklegt að eftir-
maður hans verði Toshio Komoto,
sérfræðingur ríkisstjórnarinnar í
efnahagslegri áætlanagerð.
Efnahagskreppan í Japan sýnir
okkur glöggt, hversu samtvinnuð
efnahagsmálin í heiminum eru: Par
gerast engin kraftaverk. En heim-
ildir herma að japanskir iðju-
höldar færi nú stórar fórnir til „In-
ari”, hrísgrjónaguðsins sem tryggja
á velgengni í viðskiptum.
ólg/Spiegel
Miklar framfarir hafa orðið í
ræktunaraðferðum og með kyn-
bótastarfsemi hafa menn náð ótrú-
legum árangri er haft eftir einum
sérfræðingunum en árangur þessi
felst í að fá fram hraðvaxandi af-
brigði og umfram allt afbrigði sem
innihalda meira af efninu delta-9
tetrahydrocannabinol (THC)., sem
gefur neytendum þann eiturlyfjar-
ús, sem gert hefur jurt þessa svo
eftirsóknarverða.
Mönnum hefur m.a. lærst að
rækta upp frælaust afbrigði „sins-
emilla”, sem inniheldur 12-13%
THCístað 1-1.5% hjá venjulegum
cannabis-plöntum. Markaðsverð á
„sinsemilla” er nú allt að 250 dollu-
rum fyrir únsuna (28,3 grömm). Af
um það bil 50 plöntum, sem þekja
um 20 fermetra akur má fá um
50.000 dollara tekjur, sem sýnir að
búgrein þessi er ákaflega spör á
landrými.
Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna telur
að heimaræktin hafi í fyrra skilað
1.200 tonnum, og að hún hafi
aðeins staðið fyrir 9% af eiturlyfj-
amarkaðnum í Bandaríkjunum, en
aðrir, t.d. samtökin fyrir bættri
marijuanalöggjöf, hafa talið að
heimaræktunin stæði undir allt að
þriðjungi markaðsins.
200 þúsund
marijuanabœndur
Sérfróðir menn telja, að Calif-
orníuríki sé leiðandi í marijuana-
ræktinni, og að þeir hafi framleitt
fyrir 1,5 miljarð dollara á síðasta
ári. Ræktunin mun hins vegar ná til
a.m.k. 11 ríkja og telur formaður
umbótasinna á marijuanalöggjö-
finni að stétt marijuanabænda
muni nú telja um 200 þúsund
manns.
Pessi nýja búgrein er að vísu
bönnuð samkvæmt bandarískum
lögum, og það er hlutskipti lyfja-
eftirlitsins og alríkislögreglunnar
að uppræta þessa starfsemi. Þar er
Sjálfsafgreiðsla gerir
blindu fólki erfitt fyrir
Nýlega var haldið hér á landi
norrænt þing blindra og sjón-
skertra. Ráðstefnuna sóttu 65
manns, þar af 30 frá hinuin Norð-
urlöndunum en viðfangscfni henn-
ar var: umhverfis- og umferðarmál
blindra og sjónskcrtra ásamt hjálp-
artækjum.
Þetta var í fyrsta sinn sem slík
ráðstefna er haldin hér á landi, en
þær eru haldnar þriðja hvert ár til
skiptis á Norðurlöndunum. Er-
lendu fulltrúarnir hrósuðu Blind-
rafélagi íslands sérstaklega fyrir
vandaðan undirbúning og góðan
aðbúnað, svo og starfsmönnum
ráðstefnunnar fyrir góða þjónustu.
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir ávarpaði gesti við setningu
ráðstefnunnar. A henni voru flutt
framsöguerindi um vandamál sjón-
skertra í umhverfinu og úrlausnir á
þeim, um hjálpartæki og um sjón-
skerta í umferðinni. Auk þess
störfuðu vinnuhópar á ráðstefn-
unni sem stóð í þrjá daga, 13. - 15.
október.
í erindi sem Teuvo Ruponen, frá
Finnlandi flutti á. ráðstefnunni,
fjallaði hann um þróun samfélags-
ins í átt að sífellt meiri sjálfsaf-
greiðslu á öllum sviðum. Benti
hann á hversu mikil vandkvæði
fylgja þessari þróun, ekki aðeins
fyrir blinda og sjónskerta, heldur
einnig fyrir börn og aldraða, og
taldi það eitt af verkefnum sam-
taka blindra að sporna gegn slíkri
þróun.
Nokkrir ráðstefnugestir á fundi með fréttamönnum. Frá vinstri: Halldór Rafnar, formaður Blindrafélags-
ins, Ingemar Ebers, Svíþjóð, Arvo Karvinen, Finnlandi, Ásgerður Ólafsdóttir, blindraráðgjafi, Óskar
Guðnason, starfsmaður ráðstefnunnar, Gunnar Haugsveen, Noregi og Karen Marie Pedersen, Danmörku.
Ljósm. -eik.
greiðsluverslunum mættu sjóndöp-
rum margar hindranir; gangar milli
vöruhlaða væru þröngir, lýsingin
lítil, verðmerkingar ógreinilegar
og vörurnar í háum hlöðum, sem
auðvelt væri að velta um koll af
slysni. Einnig benti hann á að
ómögulegt væri að læra á slíkar
verslanir, því að vörurnar væru
(eglulega fluttar á milli deilda og
staða þannig að ómögulegt væri að
ganga beint að einföldustu hlutum,
- þar sem eitt sinn voru sokkar,
væru nú þvottaefni o.s.frv.
\
Aukin útbreiðsla sjálfsafgreiðslu
á veitingahúsum skapar sömu
vandamál fyrir sjónskerta, svo og
sjálfsalar af ýmsu tagi. Pá benti Te-
uvo Ruponen á að víða eru nú
komin í notkun afgreiðslukerfi, þar
sem menn taka númeraðan miða
og bíða afgreiðslu en oft eru núm-
erin ekki kölluð upp, heldur aðeins
sýnd á þar til gerðri töflu. Blindir
og sjónskertir hagnast lítt á slíkum
hagræðingum. Hlutverk blindrafé-
laga að mati hans er að hafa áhrif á
þessa þróun samfélagsins, þannig
að þarfir sjónskertra séu ljósar og
lausnir fundnar í samræmi við þær.
Á ráðstefnunni var einnig kosin
nefnd til að kynna sér ráðstefnu-
staðinn, Hótel Loftleiðir og ná-
grenni hans kosti og galla fyrir
sjónskerta. -ÁI