Þjóðviljinn - 05.11.1982, Side 2
síðan
2 StDA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. nóvember 1982
Ekkert að hafa sagði kallinn...
Guttarnir stilltu sér upp á Eskifirði...
Lagað til
í Herdísar-
vík
Síðustu tvö sumur hefur mikið
verið unnið í Herdísarvíki til bóta
fyrir land og hús, að því er fram
kemur í grein eftir Pál Sigurðsson
í fréttabréfi Háskóla íslands.
Eins og menn flestir vita, þá
ánöfnuðu erfingjar Einars Bene-
diktssonar stórskálds, Háskóla
fslands eignir skáldsins í Herdís-
arvík í Selvogshreppi.
Húsið var mjög illa farið, en nú
hefur það algerlega verið endur-
nýjað. í stað bárujárns er komin
vönduð timburklæðning og tvö-
falt gler í glugga, og húsið er vist-
legt og glæsilegt á að líta.
Nokkrum nýjum myndum hef-
ur verið komið fyrir í húsinu,
þ.á m. merkum myndum af Ein-
ari Benediktssyni sem áður höfðu
eigi komið fyrir almenningssjón-
ir. Búið er að gera allt undirland
jarðarinnar í Herdfsarvík fjárhelt
eða um 20 km'
Húsið er nú notað sem orlofs-
bústaður Starfsfólks Háskólans.
Gætum
tungunnar
Sagt var: Jón rétti fram vinstri
hendina, þegar Páll lyfti hægri
hendi.
Rétt væri: Jón rétti fram vinstri
höndina, þegar Páll lyfti hægri
hendi.
r
Vísindi á Islandi
Fáguð
rúmfræði
í tvinnfallafræði af mörgum
breytistærðum þarf oft að athuga
jöfnukerfi sem gefin eru með fág-
uðum (þ.e. tvinn-diffranlegum)
föllum. Lausnamengi slíkra kerfa
kallast fáguð rúm, og þau eru
könnuð með rúmfræðilegum að-
ferðum. Áhersla er lögð á að
kanna hvernig lausnamengin
breytast ef jöfnurnar eru háðar
aukabreytistærðum (parametr-
um); þá er talað um bjaganir fág-
aðra rúma.
0
Gíró 59000
Otrúlegasti
öfgaáróður
...en konurnar litu ekki upp frá tunnunum.
Svipmyndir úr
...en á Fáskrúðsfirði var skipað upp tómum tunnum.
Þeir voru að umstafla fullum tunnum á Reyðarfirði
Jane Fonda og Tom Hayden
skotspónn afturhaldsaflanna
Þátturinn í sjónvarpinu fyrr í
haust um „The moral majority”
vakti verðskuldaða athygli, en
bessi hópur er ekki sá eini þar
vestra sem berst fyrir almennu
afturhaldi, afnámi mannréttinda,
kynþáttakúgun, ritskoðun og
kristilegri harðstjórn. Fjölda
margar hliðstæðar hreyfingar
hafa hafið baráttu sína og nú síð-
ast hreyfing sem berst fyrir kjarn-
orkuvopnum. íslendingar, sem
eru við nám vestra, komu með
þessa límmiða til okkar á rit-
stjórnina á dögunum, en þá fengu
þau afhenta á flugvellinum í San
Francisco í sumar. Eins og við
sjáum er hér verið að berjast m.a.
gegn Tom Hayden og öðrum
frjálslyndum frambjóðendum í
kosningunum í haust. „Fleygið
Jane Fonda í hvalina”, stendur
þarna meðal annars.
síldinni
Á hraðferð blaðamanns um
Austfirði á dögunum var stöðvað
við og við og skotið á mannlífið
eins og ljósmyndarar kalla slíka
vinnu. Þótt viðvaningur héldi
um myndavélina var árangurinn
furðulega góður, og hérna á síð-
unni ber fyrir augu nokkrar svip-
myndir úr daglegri önn á
Austfjörðum einn fagran
laugardag.
Skipstjórinn á Erlingi RE var
að leggja að bryggjunni í Nes-
kaupstað. Þetta var reknetabát-
ur, og það var haugabræla um
nóttina og ekkert að hafa sagði
„kallinn“.
A Eskifirði var hins vegar líf í
tuskunum. í söltunarstöðinni
Friðþjófi kepptust allir við að
ljúka dagsverkinu, því ljóst var
að ekkert yrði saltað daginn eftir.
Guttarnir gáfu sér tíma til að
brosa til blaðamanns meðan
hann hljóp um í söltunarstöðinni,
en kvenfólkið leit ekki upp frá
tunnunum, saltinu og síldinni.
Á Reyðarfirði var ekki verið
að salta, en nóg að gera samt.
Karlarnir voru að umstafla síldar-
tunnunum utandyra og fóru var-
lega með viðkvæma vöru.
Á Fáskrúðsfirði var líka heil-
mikið um að vera þótt síldveiðin
væri dræm. Söltunarliðið fór í
uppskipun á tómum tunnum sem
sjálfsagt eru flestar ef ekki allar
orðnar stútfullar af síld þegar
þetta er skrifað.
Myndir og texti - Ig.