Þjóðviljinn - 10.11.1982, Qupperneq 1
MOWIUINN
Gífurlegttjón hlýst
afþví hvernig nú er
staðið að fiskmati í
landinu að áliti
margra þeirra er
Fiskiþingsitja
Sjá 16.
nóvember 1982
miðvikudagur
254. tölublað
47. árgangur
Gunnar Thoroddsen ekki með í prófkjöri Sj álfstæðisflokksins:
Gunnar Thoroddsen
Þýðir ekki að é
se hættur pólitíl
sagði forsætisráðherra í gær
Margir eru að velta því fyrir séi' hvort sú ákvörðun Gunnars Thorodd-
sen, forsætisráðherra, að senda ekki inn framboðstilkynningu til próf-
kjörs í Sjálfstæðisfiokknum, eins og allir hinir þingmenn hans í Reykjavík,
þýði það að hann ætli að draga sig í hlé.
- Nei, sú ákvörðun mín að senda ekki inn framboðstilkynningu til
prófkjörsins, þýðir ekki að ég sé hættur í pólitík. En eins og málin standa í
dag, get ég ekkert frekar tjáð mig um málið, sagði Gunnar Thoroddsen í
gær, þegar Þjóðviljinn spurði hann um þetta mál.
Þjóðviljinn hefur það eftir öruggum heimildum, að forsætisráðherra sé
mjög óánægður með hinar nýju prófkjörsreglur flokksins, sem loka próf-
kjörinu fyrir óflokksbundnu fólki, líkt og Albert Guðmundsson var í vor
er leið fyrir borgarstjórnarkosningar.
Þá hefur blaðið það einnig eftir mjög öruggum heimildum, að fjöldi
Sjálfstæðismanna vilji að Gunnar fari fram í næstu þingkosningum með
sérlista í nafni Sjálfstæðisflokksins, sem myndi þá nefnast DD listi.
Hins ber svo að geta, að kjörnefnd flokksins í Reykjavík getur boðið
Gunnari að vera með í prófkjörinu, þótt hann hafi ekki sent inn framboðs-
tilkynningu. Eins getur fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
breytt listanum að vild, hvernig sem prófkjörið fer. Vilji ráðandi menn í
Sjálfstæðisflokknum, leitast við að eflasamheldnina í flokknum, eiga þeir
þess að sjálfsögðu kost að bjóða Gunnari Thoroddsen öruggt sæti á
listanum í komandi kosningum. -S.dór
Búið að tryggja 48 atkvæði
í fyrstu umferð forsetakjörs:_
Friðrik er
nær öruggur
um endurkjör
9/11 - Frá Helga Ólafssyni, fréttamanni Þjóð-
viljans í Sviss:
Friðrik Ólafsson
Fulltrúar Íslands á FIDE þinginu
sem sett verður hér í Luzern á
morgun fimmtudag eru öruggir um
að Friðrik Ólafsson muni hljóta
minnst 48 atkvæði í 1. umferð
kosninganna um forseta FIDE.
Alls hafa 110 fulltrúar rétt til að
greiða atkvæði og er alveg tryggt að
Friðrik mun komast áfram í 2. um-
ferð kosninganna, og hann hefur
mjög góða stöðu í þeim kosning-
um. Staða Koszic er talin vonlaus
og þótt Sovétmenn komi líklegast
til með að styðja Campomanes í
kosningunum, er staða Friðriks
mjög góð og hann jafnvel öruggur
um að hljóta endurkosningu að
sögn stuðningsmanna.
Fulltrúar Friðriks áttu viðræður
við fulltrúa Sovétmanna á FIDE
þinginu síðdegis í gær og var strax
ljóst að þeir eru harðir í horn að
taka og ekki „eftirgefanlegir" eins
og komist var að orði.
Hól/-lg
í gær fiutti fyrsti vistmaðurinn inn á hina nýju hjúkrunardeild Hrafnistu-
hcimilisins í Hafnarfirði, Rannveig Vigfúsdóttir. Rannveig er 84 ára göm-
ul, ekkja eftir Sigurjón Einarsson, fyrrverandi skipstjóra í Hafnarfirði og
fyrsta forstöðumanns Hrafnistu í Reykjavík. - Rannveig Vigfúsdóttir
hefur lagt drjúga hönd að líknar- og slysavarnarmálum um dagana. Með
henni á myndinni er sonur hennar Einar. - Mynd -eik.
Lífríkisrannsókn er
hafin í Geldinganesi
vegna hugsanlegrar
staðsetningar álvers
þar og bráðlega
hefjast þar
vcðurfarslegar at-
huganir.
Nýja
heilsugæslustöðin á
Patreksfirði er allt
of stór og dýr í
rekstri fyrir okkur,
segir Bolli Ólafsson
í viðtali við Þjóðvilj-
ann.
Bráðabirgðalögin verða
lögð fram nú næstu daga
Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar' um
ráðstafanfr í efnahagsmálum vcrða lögð
fram á Alþingi nú næstu daga, sagði Svavar
Gestsson, félagsmálaráðherra, þegar Þjöð-
viljinn innti hann eftir því í gær, hvort ekki
mætti vænta umfjöllunar um bráðabirgða-
lögin á Alþingi áður en iangt um liði.
í gær var haldinn viðræöufundur ráðherra-
nefndar ríkisstjórnarinnar og formanns
Alþýðuflokksins og fór hann fram í vinsam-
legu andrúmslofti að sögn Svavars, en hann
á sæti I viðræðunefndinni.
Kjartan Jóhannsson kynnti þarna „skil-
yrði“ Alþýðuflokksins fyrir áframhaldandi
þátttöku í þessum viðræðum. Meðal þeírra
var að bráðabirgðalögin yrðu lögð fram hið
fyrsta, en það hafði ríkisstjórnin áður á-
kveðíð, svo ekki sætti þetta tíðindum. Ann-
að skilyrði Alþýðuflokksins fól aðeins í sér
almenna hvatningu til stjórnarskrárnefndar
um að hraða störfum og hið þriðja var að
kosningar færu fram eigi seinna en I apríl á
næsta ári.
Svavar Gestsson sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær, að ákveðið helði verið að
hittast aftur eftir næstu helgi og ræða þá
málin áfram.
í_gær var einnig haldinn fundur formanna
allra stjórnmálaflokkanna fjögurra, og var
þar fjallað um hið svokallaða kjördæm-
amál.