Þjóðviljinn - 10.11.1982, Blaðsíða 3
Miðvikudagur lO.nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Vinnuvernd-
arráðstefna
Viðfangsefni vinnuverndar,
framkvæmd hennar og þjóðfélags-
legt gildi hennar eru umræðuefni á
ráðstefnu sem hefst á morgun á
Hótel Loftleiðum og hefur verið
undirbúin af starfshópi frá ASI,
BSRB, VSÍ og VMSS og Vinnueft-
irlitinu. Tveim Dönum hefur verið
boðið til ráðstefnunnar, þeim Mog-
ens Falk, skrifstofustjóra danska
Vinnuveitendasambandsins og
Jörgen Eilikofer fulltrúa í danska
Alþýðusambandinu.
Ráðstefnan hefst kl. 9 í fyrramál-
ið með ávarpi Svavars Gestssonar
félagsmálaráðherra, og stendur
hún í tvo daga. í fyrirlestrum verð-
ur fjallað um vinnuslys, atvinnu-
sjúkdóma, hávaðamengun, hættu-
leg efni, hönnun vinnustaða og
tækniþróun. Fimm fyrirlestrar
verða fluttir um framkvæmdahlið
vinnuverndar, um löggjöf, skipu-
lag, greiningu áhættuþátta, fræðslu
og heilsuvernd. Fyrirlesarar eru
Garðar Halldórsson deildartækni-
fræðingur, dr. Vilhjálmur Rafns-
son yfirlæknir, Einar Sindrason
yfirlæknir, dr. Pétur Reimarsson
deildarverkfræðingur, Helgi G.
Póröarson verkfræðingur, Jón H.
Magnússon verkfræðingur. Örn
Bjarnason forstjóri, Eyjólfur Sæm-
undsson forstjóri og hinir dönsku
gestir.
Sjónarmið aðila vinnumarkað-
arins verða og kynnt og flytja ávörp
í því sambandi Asmundur Stefáns-
son forseti ASÍ, Þórarinn V. Þórar-
^insson lögfræðingur VSÍ, Kristján
Thorlacius formaður BSRB, Þor-
steinn Geirsson skrifstofustjóri
fj ármálaráðuneytisins og Júlíus Kr.
Valdimarsson framkvæmdastjóri
VMSS. Fulltrúar þingflokka flytja
einnig ávörp.
Samhliða ráðstefnunni verður
efnt til sýningar nokkurra fyrir-
tækja sem hafa á boðstólum vinnu-
verndarbúnað og leiðbeiningar-
aðila á sviði vinnuverndar. Skráðir
þátttakendur eru tæp tvö hundruð
víðsvegar að af landinu. -ekh
um fnð og
Friðar- og afvopnunarmál
munu verða til umræðu á
ráðstefnu sem haldin verður um
næstu helgi og þar munu nokkrir
framsögumenn ræða m.a. um
vígbúnaðaruppbygginguna í N-
Atlantshafi, kjarnorkuvopnalaus
svæði, friðarhreyfingar og ís-
lenskt frumkvæði í friðar og af-
vopnunarmálum. A blaðamanna-
fundi sem efnt var til í gær kom
fram að hópur áhugafólks um
þessi mál stendur fyrir þessari
ráðstefnu og það hafí verið starfs-
hópur stúdenta við Háskóla ís-
lands sem átti upptökin að
stofnun þessa áhugahóps á s.l.
vctri.
í frétt frá áhugahópnum segir
að nú um þessar mundir sé ís-
lensk friðarhreyfing að taka á sig
mynd og að baráttan fyrir friði og
afvopnun hafi öðlast nýjar víddir.
Bent er á að námsmenn, kirkjan,
kvennahreyfingin og ýmis stjórn-
málasamtök hafi tekið að beina
sjónum sínum og kröftum að
þessari baráttu. Umræðan sé þó
enn í mótun, fjölmargar spurn-
ingar gangi manna í millum um
friðar og afvopnunarmál. Verður
afvopnun
reynt að svara þessum spurning-
um á ráðstefnunni sem haldin
verður n.k. laugardag í Kristals-
sal Hótels Loftleiða og hefst kl.
9.30.
Á ráðstefnunni mun Gunnar
Gunnarsson starfsmaður Örygg-
ismálanefndar Alþingis ræða víg-
búnaðaruppbygginguna í N-
Atlantshafi og stöðu íslands.
Guðmundur Georgsson læknir
mun fjalla um kjarnorkuvopna-
laus svæði. Kristín Ástgeirsdóttir
sagnfræðingur hefur framsögu
um friðarhreyfingar og að lokum
mun Gunnlaugur Stefánsson
guðfræðingur ræða um íslenskt
frumkvæði í friðar og afvopnun-
armálum. Síðan munu myndaðir
umræðuhópar um þessa mála-
þætti þar sem ráðstefnugestir
ræða áfram málin fram eftir degi.
Ráðstefnan er opin öllum sem
áhuga hafa á þessum málefnum
og henni er að sögn undirbún-
ingshópsins ætlað að verða vett-
vangur skoðanaskipta þeirra
fjölmörgu sem vilja láta friðar- og
afvopnunarmál til sín taka.
-v.
....
Frá blaðamannafundi sem hópur áhugafólks um friðar- og afvopnunarmál iGóhannsdóttir, Guðmundur Georgsson, Pétur Matthiasson og Kristín Ást-
stóð fyrir í gær. Talið frá vinstri eru þau Olína Þorvarðardóttir, Helga | geirsdóttir. Ljósm. eik.
Efnir til ráðstefnu
Gunnar
Eggertsson
75 ára
Sjötíu og fimm ára er í dag,
Gunnar Eggertsson, fyrrverandi
tollvörður. Gunnar er fæddur að
Vestri-Leirárgörðum í Leirársveit,
sonur Eggerts Gíslasonar og Ben-
óníu Jónsdóttur, sem þar bjuggu.
Gunnar hefur um langt árabil verið
öflugur liðsmaður í baráttusveit ís-
lenskra sósíalista og herstöðvaand-
stæðinga.
Gunnar og kona hans Þrúður
Guðmundsdóttir munu taka á móti
gestum að heimili þeirra, Þing-
hólsbraut 65, Kópavogi, eftir kl. 17
í dag.
Fiskkaupmenn í Fleetwood bjóða:
Lækkun á hafnar-
og löndunargjöldum
Undanfarna daga hafa dvalið
hér á landi tlskkaupmenn frá
Fleetwood í Englandi, ásamt
forráðamönnum fyrirtækis þar í
landi, sem tekið hafa að sér að
hefja fisksölumarkaðinn þar í
borg aftur til vegs og virðingar.
Þeir hafa átt viðræður við for-
ráðamenn LÍÚ um að íslenskir tog-
arar og önnur fiskiskip sem sigla
með afla til Englands komi til
Fleetwood og selji afla sinn þar.
Til að liðka fyrir þessum við-
skiptum, bjóða þeir lækkun lönd-
auk þess að
tryggja ákveðið
lágmarksverð
á fiski
unargjalda og hafnargjalda og
einnig að tryggja ákveðið lág-
marksverð fyrir aflann. Sem
kunnugt er hefur ekki fyrr verið
um slíka lágmarkstryggingu að
ræða, á fiskmörkuðum í Eng-
landi.
Talsmenn þessara fiskkaup-
manna voru afar bjartsýnir á að
íslensk fiskiskip kæmu í fram-
tíðinni til Fleetwood, eftir að sá
bær getur nú boðið lægri
löndunar- og hafnargjöld en Hull
og Grimsby, sem verið hafa aða!
sölustaðir íslensku skipanna.
- S.dór
Ógnaröld ríklr í Afghanistan
segir afghanskur útlagi, sem er hér í boði Vöku og stúdentaráðs
í dag ríkir ógnaröld í Afghanistan, þar sem um 600
þúsund manns hafa fallið eða verið teknir af lífi síðan
Sovétríkin gerðu innrás í landið, 4,2 miljónir manna
flúið yfir til Pakistan og íran og 3-4 miljónir flúið heimili
sín innan lands af 17 miljónum íbúa, sagði Mohammed
Akbar Saifi, hagfræðingur og fyrrverandi atvinnurek-
andi frá Afghanistan á blaðamannafundi í gær.
Saifi er hér í boði Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúdenta og
mun hafa framsögu á fundi, sem
stúdentaráð Háskólans gengst
fyrir á laugardaginn kemur kl.
13.00 í Félagsstofnun stúdenta.
- Hin pólitísku markmið So-
vétmanna með innrásinni voru
ekki fyrst og fremst að styðja við
fallvalta stjórn kommúnista-
flokksins, heldur voru það land-
vinningar, sagði Saifi, og því til
sönnunar sagði hann að Sovét-
menn hefðu komið upp herstöð
nálægt Kabul, þar sem sett hafa
verið upp SS-20 flugskeyti, sem
varla eru ætluð gegn afghönsku
andspyrnuhreyfingunni.
Afghanska andspyrnuhreyf-
ingin skiptist í marga smærri hópa
og einingar, sem hafa að sam-
eiginlegum bakgrunni íslamska
trú og þjóðlega hefð, sagði Saifi,
en afghanskir útlagar hafa sam-
einast undir einum hatti í samtök-
unum OSULA, sem hafa aðal-
miðstöð sína í Bonn.
Fjögurra ára hetjuleg and-
spyrna vopnlausrar þjóðar gegn
hinni tröllvöxnu sovésku
stríðsvél er fullrar virðingar verð,
sagði Saifi, en Sovétmenn hafa
nú aukið herstyrk sinn í Afghan-
istan úr 80-90 þúsundum í 120
þúsund hermenn. Þeir notast við
þyrlur í baráttunni við skæruliða,
auk þess sem skriðdrekar eru
mikið notaðir.
í kvikmynd, sem Saifi hafði
ineðferðis og sýnd verður á
laugardaginn, mátti sjá hvar so-
véskir hermenn eltu uppi illa
búna skæruliða í fjöllum Áfghan-
istan eins og um dýraveiðar væri
að ræða. Þá voru einnig sýndar í
myndinni hryllilegar limlestingar
á fólki, sem orðið hafði fyrir eld-
sprengjum og öðrum vopnum So-
vétmanna.
- Það mun taka þúsund ár að
breyta hugarfari afghönsku þjóð-
arinnar, sagði Saifi, og því er So-
vétmönnum fyrir bestu að draga
sig skilyrðislaust til baka, því
andspyrnan mun halda áfram þar
til sjálfstæði og frelsi þjóðarinnar
hefur verið tryggt.
-ólg.