Þjóðviljinn - 10.11.1982, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur lO.nóvember 1982
Alþjóðasamband jafnaðarmanna
Deilt um af-
stöðuna til ísraels
Á fuudi Alþjóðasambands jafnaðarmanna, sem hald-
inn var í Basel í síðustu viku var samþykkt ályktun, þar
sem Bandaríkin voru hvött til að hætta allri hernaðar-
aðstoð við E1 Salvador jafnframt því sem tekið var
undir kröfu Farabundo Marti þjóðfrelsishreyfingarinn-
ar um samninga og pólitíska lausn deilumála í landinu.
Á fundinum voru mættir leið-
togar sósíalista- og jafnaðar-
mannaflokka víðsvegar úr heimin-
um. Meðal þeirra var Willy
Brandt, formaður Alþjóðasam-
bandsins, Shimon Peres, formaður
verkamannaflokksins í ísrael
(hann er jafnframt varaformaður
Alþjóðasambandsins), Mario So-
ares, fyrrverandi forsætisráðherra
Portúgals og Leopol Senghor, fyrr-
verandi forseti Senegal.
í sameiginlegri ályktun for-
■dæmdu flokksleiðtogarnir
„hervæðinguna í Mið-Ameríku og
áformin um hernaðaríhlutun gagn-
vart Nicaragua“, (en eins og Þjóð-
viljinn hefur einn íslenskra fjöl-
miðla skýrt frá þá hefur nýlega ver-
ið afhjúpuð leynileg áætlun Reag-
ans um hernaðaríhlutun í Nicararg-
ua frá Honduras).
I>á er stefna herstjórnarinnar í
Guatemala fordæmd, sem „tilraun
til kerfisbundinnar útrýmingar á
indíánum“ sem nú hefði tekið á sig
mynd „þjóðarmorðs".
Fundurinn lýsti einnig yfir
stuðningi við Sjálfstæðisflokk Pu-
erto Rico (PIP), sem stefnir að því
að efla sjálfstæði þessarar banda-
rísku hálfnýlendu, en PIP var ný-
lega veitt innganga í Alþjóðasam-
bandið.
Fundurinn lýsti einnig áhyggjum
vegna ástandsins í Póllandi og
Tyrklandi, en hins vegar tókst ekki
að ná samkomulagi í því máli sem
mest var rætt, en það var ástandið í
Mið-Austurlöndum.
Að vísu voru flokksleiðtogarnir
sammála um fordæmingu á fjölda-
morðunum í Beirut, en að sögn
Willy Brandt, sem stýrði fundin-
um, þá voru uppi ólík sjónarmið
um þörf ísraels fyrir öryggi og
hvernig tryggja skyldi hagsmuni
Palestínumanna í komandi friðar-
umleitunum.
Þær raddir höfðu heyrst fyrir
fundinn, að upp yrði borin tillaga
um brottvikningu ísraelska verka-
mannaflokksins úr Alþjóðasam-
bandinu vegna afstöðu hans til inn-
rásarinnar í Líbanon. Willy Brandt
sagði hins vegar á blaðamanna-
fundi eftir fundinn, að slík tillaga
hefði ekki komið fram. Auk ísra-
elska verkamannaflokksins (Map-
ai) á sósíalistaflokkur Israels
(Mapam) einnig sæti í Alþjóða-
sambandinu.
Brandt sagði að menn vonuðust
til þess að aðildarflokkar A1
þjóðasambandsins myndu ná að
móta sameiginlega stefnu um Mið-
austurlönd fyrir næsta fund, sem
haldinn verður í Sydney í Ástralíu í
apríl á næsta ári.
Afstaðan til Verkamannaflokks-
ins í ísrael hefur valdið klofningi
innan sambandsins, ekki síst eftir
að uppvíst hefiir orðið, að Simon
Peres, varaforseti sambandsins,
vissi fyrirfram um innrásaráform
Begins í Líbanon í sumar undir
kjörorðinu „Friður í Galíleu", og
lagði yfir þau blessun sína. Frétta-
skýrendur segja að tillaga um
brottvikningu ísraelska verka-
mannaflokksins verði aftur á dag-
skrá á aðalfundinum í apríl n.k.
ólg
Alþjóðleg vitnaleiðsla
um
innrásina í Líbanon
FKsasprengjur
og fosfóreldur
gegn óbreytt-
um líorgurum
Israelsmenn notuðu nýja gerð
bandarískra flísasprengja, sem
hafa áður óþekktan eyðileggingar-
mátt gegn óbreyttum borgurum í
að minnsta kosti 16 tilfellum á með-
an á innrásinni í Líbanon stóð.
Þetta kom fram í máli Franklin
Lamb, bandarísks sérfræðings í
vígbúnaðarlöggjöf og ráðgjafa við
bandaríska þingið er hann ávarp-
aði um síðustu helgi alþjóðaráð-
stefnu í Ósló um innrásina í Lí-
banon, þar sem fjöldi vitna hefur
verið kallaður saman.
Ráðstefnan er liður í starfi al-
þjóðlegu rannsóknarnefndarinnar
sem vinnur að því að kanna hvort
ísrael hafi með innrásinni brotið
gegn reglum Genfarsáttmálans um
stríð og meðhöndlun stríðsfanga.
Flísasprengjur eru gerðar úr
stóru íláti er hefur að geyma mik-
inn fjölda smásprengja, sem eru
hlaðnar með kraftmiklu sprengi-
efni. Þær sundrast í smáagnir sem
dreifast um umhverfið með meiri
hraða en byssukúla og valda þvílík-
um áverkum að eina leiðin til lækn-
ingar er að taka viðkomandi lík-
amspart af, þegar lækning er á ann-
að borð möguleg.
Bandarísk lög segja að
selja megi sprengjur þessar til
vinveittra landa sem hyggjast nota
þær „í lögmætri sjálfsvörn”, það er
að segja, þegar um innrás á eigið
landsvaeði er að ræða. Sérfræðing-
urinn sagði að sprengjur þessar
væru geymdar í öllum Nato-ríkjum
í Evrópu. Franklin Lamb, sem var í
Líbanon í ágúst og september,
sagði að hann hefði sönnun fyrir
því að notkun flísasprengja í Lí-
banon hefði átt sér stað og væri
það gróft brot á bandarískunt
lögum og Bandaríkjastjórn yrðu
nú að taka það til endurskoðunar,
hvort hún héldi áfram að selja ísra-
el vopn.
Þrír norskir læknar, sem störf-
uðu við sjúkrahús kirkjuráðsins í
Beirút, báru vitni um að ísraels-
menn hefðu sprengt loftvarnabyrgi
óbreyttra borgara og síðan varpað
á þau fosfórsprengjum, sem valda
nær ólæknanlegum brunasárum.
Tveir bandarískir blaðamenn af
gyðingaættum sem voru í Líbanon í
ágúst og september báru einnig
vitni. Annar þeirra, Ralph Schoen-
man, tók áður þátt í Russel-
réttarhöldunum vegna stríðsins í
Víetnam. Hann sagði:
- Innrásin var meðvituð tilraun
til þess að útrýma þjóðlegri tilvist
Palestínumanna í Líbanon. Byggð
óbreyttra borgara var bombaderuð
í slíkum mæli að líkja má við kjarn-
orkusprengjuna í Hiroshima.
Flóttamannabúðir og bæir hafa
kerfisbundið verið lagðir í rúst.
Með því að handtaka kerfisbundið
palestínska karlmenn á aldrinum
15-60 ára voru konur og börn skilin
eftir án verndar og fyrirvinnu.
Sjúkra- og heilsugæsla var löm-i
uð með því að handtaka 90% af
starfsmönnum palestínska Rauða
hálfmánans. Menningarstofnanir
Palestínumanna í Beirút voru
rændar skjölum og rannsóknar-
gögnum, og þannig reynt að afmá
þjóðlega arfleifð og menningarein-
kenni Palestínumanna og Líban-
on.“
Það er norræn rannsóknarnefnd
sem skipjleggur vitnaleiðslurnar í
Ósló.í henni eiga sæti lögfræðiptóf
essorarnir Ole Kaarup frá Dan-
mörku og Anders Brattholm frá
Noregi, Odd Bull, fyrrverandi
herforingi frá Noregi, K-J Láng
fyrrverandi dómsmálaráðherra í
Finnlandi, Ole Espersen fyrrver-
andi dómsmálaráðherra Danmerk-
ur, Allan Rosas lögfræðiprófessor
og Hans Göran Franck frá Svíþjóð.
Ráðstefnan mun gefa út sérstaka
vitnaskýrslu um málið.
- Umræðan um atvinnuleysis-
vandann er full að hræsni og tvö-
fcldni, sagði Anna Christiansen
prófessor í félagsvísindum frá
Lundi, er hún ávarpaði ráðstefnú
um atvinnuleysisvandann, sem
haldin var í Stavanger fyrir
skömmu.
Hin opinbera skoðun, að atvinn-
uleysið sé eins konar farsótt og að
eina leiðin fyrir manninn til að
framfleyta sér sé með því að stunda
launavinnu, því án hennar verði
menn óhamingjusamir og fái
ónytjungstilfinningu og leggist í fé-
lagslegt ábyrgðarleysi og fíkniefna-
neyslu, þessi skoðun er nú orðin
svo útbreidd af stjórnmála-
mönnum og fjölmiðlum, að það er
áiitið sjúklegt að hrófla við henni,
sagði Anna.
Ohamingjusamir atvinnuleysingjar eru nauðsynlegir til þess að við-
halda vinnugleði og aga meðal þeirra er þræla í launavinnunni, scgir
Anna Christiansen. Myndin er frá Bandaríkjunum, en þar er tala
atvinnulausra komin yfir 11 miljónir.
Um félagslegt hlut-
verk atvmnuleysingja
Lngu að síður stingur þessi skoð-
un í stúf við þá gömlu alþýðlegu
trú, að iaunavinna sé fyrst og
fremst skylda, eitthvað nauðsyn-
legt en vont, sem menn láta sig hafa
að ganga í gegnum til þess að
skrimta af. Það er ekki þar með
sagt að allir fyrirlíti starf sitt, en fáir
vinna einvörðungu „til þess að vera
í vinnu“.
Anna hélt þvHram, að í stað þess
að líta á vinr.una sem meðal, þá
væri farið að líta á hana sem mark
mið í sjálfu sér, án tillits til hvort
hún hefði framleiðslugildi sem slík.
Menn tala um að stöðva tækni-
þróunina til þess að halda uppi full-
ri atvinnu, sagði Anna, en þetta
stríðir gegn þeirri hugmynd að ný
tækni eigi að frelsa fólk undan ein-
hæfum og þungum störfum. Eng-
inn álasar þvottavélinni iengur
fyrir að hafa svipt húsmæður
atvinnu, sagði hún.
Mótsetningin á milii frítíma og
vinnu verður stöðugt greinilegri.
Að vísu hefur enginn haldið því
fram enn að orlofslögin ræni fólk
atvinnu, en hins vegar mega foreldr
ar ekki lengur hlaupa undir bagga'
á barnaheimilunum, því þá taka
þeir vinnu frá fóstrunum. Hús-
leigjendur mega ekki lengur mála
eða-veggfóðra íbúðir sínar, því þá
eru þeir að taka vinnu frá þeim í
veggfóðrara- og málarafélaginu
o.s.frv.
Okkur er sagt, að atvinnuleysingj-
arnir séu vansælt fólk sem þjóð-
félagið verði að hjálpa. En Ánna
bendir á að það er einmitt þjóð-
félagið sem framkallar þá ógæfutil-
finningu, sem hinum atvinnulausu
er eignuð með því að halda þeim
niðri efnahagslega og félagslega í
öryggisleysi.
Hvað myndi gerast ef þeir
atvinnulausu segðu, að þeir væru
hæstánægðir með sitt hlutskipti?
Þeir yrðu úthrópaðir sem andfé-
lagsleg afstyrmi, því atvinnu-
leysingjar eiga að vera óhamingju-
samir, annars eru þeir ekki tilbúnir
til að fara í vinnu og eiga því ekki
rétt á atvinnuleysisbótum.
Við skulum reyna að líta á
samfélagið út frá öðru sjónarhorni,
sagði Anna Christiansen. Við höf-
um þjóðfélag þar sem eru þrír hóp-
ar: einn vinnur meira en hann
eiginlega getur og hefur gott af,
öðrum er haldið í vinnu við
eitthvað, sem ekki hefur beint
notagildi eða tilgang á meðan
þriðja hópnum er haldið niðri í fé-
Sœnskur
prófessor í
féíagsvísindum
rœðst á hrœsni í
urnrœðum
um atvinnuleysi
lagslegu og efnahagslegu öryggis-
leysi við enga atvinnu.
Óskemmtileg
verkaskipting
Atvinnuleysið er engin farsótt,
heldur ákveðin aðferð við að
skipuleggja og deila því vinnu-
magni sem fyrir hendi er á milli
manna. Er til einhver skýring á,
hvers vegna það er einmitt gert á
þennan hátt?
Hugsanleg skýring væri þessi:
Launavinna er ekki bara fólgin í
framleiðslu, hún er jafnframt
mikilvægur þáttur í samfélagslegu
kerfi, sem felst m.a. í því að hinir
fullorðnu eyða bróðurpartinum af
tíma sínum undir fastmótuðu eftir-
liti á vinnustað.
Tækniþróunin hefur hins vegar
náð svo langt, að við hér á Vestur-
löndum getum framleitt það sem
við þurfum á mun skemmri tíma en
áður. Þessi tæknilega þróun erógn-
un við þá félagslegu uppbyggingu
og það formfasta eftirlit sem launa-
vinnan býður upp á. Þess vegna
keppast allir valdhafar við að reyna
að viðhalda launavinnunni, því
hún er forsenda fyrir því félagslega
eftirliti og þeim völdum, sem þeir
hafa á samfélaginu.
Frjáls og sjálfsprottin vinna, sem
einstaklingurinn skapar sjálfum sér
utan kerfisins er ógnun við launa-
vinnukerfið um leið og hún veitir
ánægju og fullnægju, sem launa-
vinna getur seint gefið.
Því verður það skiljanlegt, hvers
vegna samfélag okkar þarf á
„atvinnuleysi" að halda. Til þess að
hægt sé að viðhalda launavinnunni
og því félagslega kerfi sem henni
fylgir, þarf að gera það að forrétt-
indum að fá að hafa atvinnu. Fólk á
að vera glatt og þakklátt fyrir að fá
að hafa atvinnu. Forsenda fyrir því
að svo geti verið er hins vegar að til
séu einhverjir, sem.ekki hafí vinnu
og sé haldið niðri í félagslegu og
efnahagslegu öryggisleysi.
Atvinnuleysingjarnir eru því nauð-
synlegir til þess að viðhalda vinnu-
gleðinni og aganum þjá þrælum
launavinnunnar.
Próun og
vanþróun
Sjónarmið þau sem hér hafa ver-
ið reifuð, og sumum finnst ef til vill
sverja sig nokkuð í ætt við stjórn-
Ieysisstefnu, eiga trúlega fullan rétt
á sér í þróuðum iðnríkjum þar sem
sjálfvirkni og vélvæðing hefur orð-
ið svo almenn, að hún hefur í raun-
inni breytt afstöðu verkafólks til
framleiðslunnar: atvinnuleysið
verður ekki annað en viss tegund
verkaskiptingar.
En ef litið er til þróunarlanda
eins og t.d. Chile, þar sem um
þriðjungur vinnufærra manna býr
við atvinnuleysi og stór hluti
þjóðarinnar lifir á hungurmörk-
unum, þá horfirdæmi öðru vísi við.
Þá er atvinnuleysið ekki lengur
velferðarvandamál, heldur vanda-
inál er varðar líf og dauða og snert-
ir hina alþjóðlegu verkaskiptingu.
Forskot iðnríkjanna í tæknivæð-
ingu og markaðsmálum drepur í
fæðingu allar tilraunir þróunar-
ríkjanna til iðnþróunar á
samkeppnisgrundvelli. Niður-
greiðsla íðnríkjanna á ýmsum
landbúnaðarafurðunt heima fyrir
drepur á sama hátt niður
samkeppnishæfni þróunarríkjanna
í framieiðslu hráefna úr landbún-
aði. Þannig hefur sú atvinnubóta-
vinna, sem Efnahagsbandalag Evr-
ópu hefur til dæmis skapað með
stóraukinni framleiðslu á niður-
greiddum evrópskum sykri skapað
neyðarástand í ýmsum sykur-
ræktarlöndum hitabeltisins, þar
sem sykurræktin er af náttúrurini
hagkvæmust. Á sama hátt og sú
verkaskipting, sem atvinnuleysið á
Vesturlöndum felur í sér, kann að
vera tilkomin til þess að viðhalda
ákveðnu félagslegu kerfi má því
segja að hin alþjóðlega verka-
skipting sé tilkomin til þess að gera
hinar fátækari þjóðir fátækari og
háðari hinunt ríku og þróuðu.
- ólg endursagði og prjónaði við.
-ólg./DN