Þjóðviljinn - 10.11.1982, Qupperneq 11
Miðvikudagur lO.nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN —tllÐA 11
málnidr'
m htningú
.máiníni
l*n&MÍtð
tnéfnftígl
*á/núrþ
ampton!
Southampton keypti öllum að
óvörum í gær fyrirliða enska
landsliðsins í heimsmeistara-
keppninni i knattspyrnu á Spáni,
Mick Mills, frá Ipswich. Til stóð
að Mills færi til Sunderland en
allt breyttist á síðustu stundu þeg-
ar betra boð kom frá suður-
ströndinni. Milis er 33 ára gamall
en Ipswich hafði ekki efni á að
leyfa honum að fá frjálsa sölu og
þakka honum þannig fyrir langt
og gott starf hjá fclaginu vegna
gífurlegra fjárhagserfiðleika sem
það er komið í. Allt bendir til að
verði einnig að selja Alan Brazil,
og þá líklega til Manchester Un-
ited.
Taylor til
Derby
Peter Taylor, sem kunnur er
fyrir samstarf sitt við Brian
Clough, tók við sem fram-
kvæmdastjóri hjá Derby County
á mánudag. „Það verður ein-
kennilegt að vinna án Clough en
boð Derby var of freistandi, þó
svo liðið sé nú á botni 2. deildar. I
mínum huga hefur þetta félag
alltaf verið sveipað töfraljóma,
áhangcndur þess eru stórkost-
legir og við eigum möguleika á að
fá góða aðsókn ef hlutirnir fara að
ganga betur”, sagði Taylor í sam-
tali við BBC í gær. Hann og
Clough gerðu Derby að enskum
meisturum fyrir tíu árum síðan.
-VS
Pétur
til ÍR
Mills fór
til South-
Komast
piltarnir
íslcnska unglingalandsliðið í
knattspyrnu leikur í kvöld síðari
leik sinn gegn Irum í Evrópu-
keppni unglingalandsliða og fer
hann fram í Dublin. Fyrri leikur-
inn í Reykjavík í síðasta mánuði
endaði með jafntefli, 1:1, og ír-
arnir standa því óneitanlega betur
að vígi en liðin þóttu afar áþekk
að styrkleika er þau mættust hér
heima.
í íslenska liðinu eru eftirtaldir
piltar: Markverðir: Friðrik Frið-
riksson, Fram, og Birkir Krist-
insson, ÍBV. Aðrir leikmenn:
Engilbert Jóhannesson, IS,
Guðni Bergsson, Val, Ingvar
Guðmundsson, Val, Jón Sveins-
son, Fram, Magnús Magnússon,
Breiðabliki, Stefán Pétursson,
KR, Hlynur Stefánsson, ÍBV,
Ólafur Þórðarson, ÍA, Pétur
Arnþórsson, Þrótti R, Sigurður
Jónsson, ÍA, Örn Valdimarsson,
Fylki, Halldór Áskelsson, Þór A,
Steindór Elísson, Breiðabliki, og
Stcingrímur Birgisson, KA.
Þjálfari liðsins er Haukur Haf-
steinsson.
- VS
Ný „Super”
deild í
Englandi?
Nokkur stóru félaganna í ensku
knattspyrnunni eru reiðubúin til
að draga sig útúr ensku deilda-
keppninni og stofna sína eigin úr-
valsdeild (Super-League)! Heyrst
hefur að af því gæti orðið strax
þegar yfirstandandi kcppnistíma-
bili lýkur í vor.
Þau ætla ekki að rjúfa sig út úr
knattspyrnusambandinu enska
(FA) og halda áfram að taka þátt í
bikarkeppni cn sleppa dcildabik-
arnum sem þau hafa takmark-
aðan áhuga á.
Ástæðan fyrir þessu er aðallega
sú að þessi félög telja of mikið að
leika 42 deildaleiki á keppnis-
tímabili auk bikarkeppna og Evr-
ópuleikja. Engin nöfn hafa verið
gefin upp en líklegt er að þarna
séu á ferðinni stórborgarfélög
eins og Liverpool, Everton,
Manchesterliðin, Arsenal, Tott-
enham og fleiri. Margir eru þó á
því, að þessi hugmynd falli fljót-
lega um sjálfa sig og benda á að
þarna verði ekki pláss fyrir þau
lið sem nú draga að sér sívaxandi
athygli svo sem Watford, Luton
og Stoke og þarna verði því ein-
faldlega ekki rjóminn af enskri
knattspyrnu.
- VS
Mick Mills
íþróttir
Umsjón:
Viöir Sigurðsson
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Framarar fóru á
kostum gegn IBK
Urvalsdeildin í körfuknattleik
er öll að færast í einn hnút
eftir stórsigur Framara á
nýliðum Keflvíkinga í
Hagaskólanum í gærkvöldi.
Keflvíkingar, Kanalausir,
lentu fljótlega undir í
leiknum, héldu þó í við
Framara lengi vel, en urðu að
gefa eftir í lokin og þola stórt
tap, 108-82. Fram lék afar vel
og hefðu þeir getað sýnt
annað eins í þremur fyrstu
leikjunum og þeirgerðu í
gærkvöldi væri staða þeirra í
deildinni önnur og betri nú.
Fram komst í 12-5 eftir fimm
mínútur ogsíðan í 26-17. Leikurinn
var afar hraður ef frá eru taldar
upphafsmínúturnar og mikið um
falleg tilþrif, einkum hjá bak-
vörðunum snjöllu í Fram, Viðari
Þorkelssyni og Val Brazy, en þeir
skoruðu fyrstu 14 stig liðsins. Á
tímabili í fyrri hálfleiknum munaði
16 stigum, 48-32, Fram í hag, en
ÍBK lagaði stöðuna í 52-40 fyrir
leikhlé.
Hraðinn og fjörið héldu áfram í
síðari hálfleiknum. Um hann
miðjan munaði 14 stigum, 75-61,
ÍBK var með í leiknum fram að
89-76 en þá skildu leiðir endanlega,
Keflvíkingar höfðu mikið keyrt á
sömu mönnunum og þreyta komin
í liðið undir lokin. Fram skoraði 10
stig á síðustu 55 sekúndunum enda
flestir úr byrjunarliði ÍBK farnir af
leikvelli og stórsigur því staðreynd,
108-72.
í heild lék Fram mjög vel en eng-
inn þó betur en Val Brazy. Hann
var nánast óstöðvandi, hittnin stór-
góð og sendingar fallegar. Viðar
Þorkelsson var í gífurlegum ham
framan af og skoraði öll sín 12 stig í
fyrri hluta fyrri hálfleiks, flest á
glæsilegan hátt og hann hefur ekki
verið lengi að koma sér í æfingu
■ IU .
SONY
Axel Nikulásson átti stórleik með
IBK gegn Fram í gærkvöldi.
eftir að knattspyrnutímabilinu
lauk. Hann var kominn með 4 vill-
ur þegar 6 mínútur voru til leikhlés.
Símon Ólafsson var lengi í gang en
sýndi siðan gamla takta undir körf-
unni og þeir Þorvaldur Geirsson og
Jóhannes Magnússon voru afar
drjúgir. Brazy skoraði 42 stig (4 á
síðustu 4 sekúndunum án víta-
skota!). Þorvaldur 18, Símon 16,
Jóhannes 12, Viðar 12, Hilmar
Guðlaugsson 4, Ómar Þráinsson 2
og Þorkell Andrésson tvö.
Án Tim Higgins eða annars
Kana skorti nýliðana úr Keflavík-
inni breidd. Hraðinn er mikill í leik
liðsins, enda voru menn orðnir út-
keyrðir undir lokin. Axel Nikulás-
son átti stórleik og er tvímælalaust
kominn í hóp okkar allra bestu
körfuknattleiksmanna. Þorsteinn
Bjarnason var gífurlega grimmur í
vörn og sókn og skoraði oft með
öflugum gegnumbrotum. Jón Kr.
Gíslason átti ágætan leik og Björn
V. Skúlason fór vaxandi eftir því
sem á leið og átti ágætar sendingar
sem aðrir ávöxtuðu. Axel skoraði
27 stig, um helming þeirra í fyrri
hluta, síðari hálfleiks, Jón Kr. 22,
Þorsteinn 21, Björn 5, Óskar Niku-
lásson 3, Hrannar Hólm 2 og Sig-
urður Ingimundarson tvö.
Jón Otti Ólafsson og Sigurður
Valur Halldórsson dæmdu ágæt-
lega, einkum eftir því sem á leið.
- VS
íslandsmcistarar Þróttar í blaki eru á leið í Evrópukeppni norður í Tromsö. Mynd:-eik.
Sjö Þróttarar á leið
norður á Fimunörk
Þróttur og Gunnar með sinn 200. leik
íslandsmeistarar Þróttar í karla-
flokki í blaki taka nú öðru sinni þátt
í Evrópukeppni og mæta norsku
meisturunum Tromsö. Báðir
leikirnir verða ytra og fara fram
um næstu helgi.
Þróttarar fara aðeins með 7 leik-
menn til Noregs, allt landsliðs-
menn, og verður því aðeins einn
skiptimaður. Norðmenn borga
helming fcrðakostnaðarins en það
sem eftir er greiða leikmenn úr
eigin vasa og nemur það nokkrum
þúsundum króna á ,Jijaft“.
Það merkilega við fyrri leik
Þróttar og Tromsö er að þar leika
íslandsmeistararnir sinn 200.
meiriháttar leik í sógu félagsins og
enn athyglisverðara er að þá leikur
Gunnar Árnason sinn 200. leik
fyrir Þrótt. Hann hefur sem sagt
leikið alla leiki liðsins frá upphafi!
Lið Tromsö er geysisterkt, er
nær eingöngu skipað landsliðs-
mönnum, og á fjóra leikmenn í sex
manna byrjunarliði norska lands-
liðsins. Þar af komu tveir frá
KFUM Osló í sumar og fyrir stuttu
lagði Tromsö að velli finnskt 1.
deildarlið og er það góður mæli-
kvarði a styrkleika liðsins því Finn-
ar bera höfuð og herðar yfir aðrar
Norðurlandaþjóðir í blakíþrótt-
inni. Það er því ólíklegt að Þróttar-
ar sæki gull (eða olíu?) í greipar
Norðmannanna en ferðin til
Tromsö, borgin er norður í Finn-
mörk og því ein sú allra norðlæg-.
asta í heimi, verður þeim áreiðan-
lega gagnleg og lærdómsrík.
- VS
Pétur Guðmundsson, lands-
liðsmaður í körfuknattleik og
atvinnumaður hjá Portland í
Bandaríkjunum, hefur gengið til
liðs við neðsta liðið I úrvals-
deildinni, IR. Pétur komst, eins
og kunnugt cr, ekki í 12 manna
hópinn hjá Portland á dögunum
og til stóð að félagið lánaði hann
til Ítalíu en ekkert varð síðan af
því. Pétur verður því hér heima í
vetur og lífgar örugglega mjög
upp á úrvaldscildina, enda heilir
2,17 m á hæð, og kemur ÍR-
ingum vafalítið að góðum notum,
en liðið hefur ekki hlotið stig í sex
fyrstu leikjum úrvalsdeildarinn-
ar.
- VS