Þjóðviljinn - 10.11.1982, Síða 16
DJÚÐVIUINN
Miðvikudagur lO.nóvember 1982
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til fóstudags. Utan þess
tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum
sínum: Ritstjórn 81382,81482og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257.
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663.
Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðámenn þar á vakt öll
kvöld.
Aðalsími Kvöídsími Helgarsími
81333 81348 afgreiðslu 81663
Umræður um hrakandi gæði fiskaflans á Fiskiþingi:
Hundruð mfljóna króna
fara í súglnn árlega
Fullyrða má að vegna hrakandi gæða fiskallans sem hér er dreginn á
land verði íslendingar fyrir hundruð miljóna króna tjóni ár hvert og að í
algjört óefni sé stcfnt með eftirlit með fiskmati, sérstaklega ferskfismati.
Þetta kom fram í umræðum á Fiskiþingi í gær um gæði fiskaflans.
Jónas Bjarnason hafði framsögu um þetta efni en hann situr m.a. í
Fiskmatsráði sem sjávarútvegsráðherra, Steingrímur Hermannsson
skipaði og hefur nýlega skilað fyrstu niðurstöðum úr rannsókn á fersk-
fiskmatinu. Hann sagði m.a. í sinni ræðu:
„Þótt efni skýrslunnar sé að nokkru leyti enn trúnaðarmál get ég þó
upplýst að ástand ferskfiskmats er því miður mjög slæmt. Matsniðurstöð-
ur eru það óáreiðanlegar að ekki er hægt að'byggja á þeim samanburð á
gæðum afla eftir stöðum, árstíðum, landshlutum o.fl.“.
Allmiklar umræður urðu á eftir ræðu Jónasar og voru menn sammála
um stórátak yrði að gera varðandi fiskmatið ef ekki ætti illa að fara. Á
Íiessu ári hefur verið óvenjumikið um að sendingar á fiskframleiðslu
slendinga á erlenda markaði, hafi verið sendar aftur heim til föður-
húsanna. Kenna menn m.a. slæmu mati á fisknum um.
Jónas Blöndal skrifar grein í síðasta Ægi, rit Fiskifélags íslands, þar sem
hann fullyrðir að á síðasta ári hafi tjón vegna hrakandi gæða hráefna
numið um 200 milljónum króna! Jónas Bjarnason fullyrti hins vegar í gær
á Fiskiþinginu að þessi tala sé sennilega mun hærri.
- v.
Sovétmenn langefstir:
Rafmagnað
andrúmsloft
í Luzern
Stundakennarar við Snælandsskóla í Kópavogi skýra mál sitt fyrir fréttamanni Þjóðviljans í gær, en þeir eru
í verkfalli til að mótmæla margsviknum óformlegum loforðum menntamálaráðuneytisins um að þeir fái
setningu við skólann. (Ljósm. cik—)
Stundakennarar
fóru í verkfall
Frá Ifelga Ólafssynl, fréttainanni þjóðviljans
í Sviss:
Það var rafmagnað andrúmsloft
í skáksalnum hér í Luzern þegar
10. umferðin hófst í dag. Sovét-
menn og Svisslcndingar tefldu
saman og á I. borði áttu að eigast
Garry Kasparov
Góð frammistaða
íslensku kvenna-
sveitarinnar:
í efstu
sætum
Frá Helga Ólafssyni, frétta-
manni Þjóðviljans í Sviss:
Það var góður dagur hjá ís-
lensku kvennasveitinni í gær
þegar hún sigraði Austurríki
3-0. Það voru Laugurnar;
Guðlaug, Sigurlaug og Áslaug
sem tefldu. Islenska sveitin er
komin með 17 1/2 vinning og
er komin í hóp efstu þjóða.
Líklega munu stúlkurnar tefla
á móti sovésku sveitinni í
næstu umferð á fimmtudag,
en þær sovésku eru langefstar
í kvennaflokki.
Guðlaug Þorsteinsdóttir
hefur teflt mjög vel það sem af
er mótinu, er komin með 5 1/
2 vinning úr 8 skákum og á
mikinn möguleika á að ná 1.
áfanga að alþjóðameistaratitli
kvenna. -Hól/-lg.
við þeir Kortsnoj og heimsmeistar-
inn Karpov.
Mikil eftirvænting ríkti í skák-
salnum en eins og margir áttu von á
mætti heimsmeistarinn ekki og
urðu margir óánægðir með þá ráð-
stöfun Sovétmanna. Þess í stað
settist skákstirnið Kasparov í sæti
heimsmeistarans og tefldi stórkost-
Iega skák viðKorstnoj. Þeirfyrrum
landar tókust ekki í hendur og virt-
ist vilji beggja. Fyrstu 19 leikirnir
tefldust nákvæmlega eins og í skák
Helga Ólafssonar og Alburts frá
Bandaríkjunum á síðasta
Reykjavíkurskákmótinu. í 20 leik
brá Kortsnoj út frá þeirri skák, sem
síðar varð honum að falli. Kaspar-
ov sigraði í stórkostlegri baráttu-
skák í rafmögnuðu andrúmslofti.
Sovétmenn sigruðu einnig í öðr-
um skákum sínum við Svisslend-
inga og eru nú langefstir á mótinu
með 30 vinninga af 40 mögulegum
eftir 10 umferðir.
íslenska karlasveitin tefldi í gær
við Grikki. Helgi gerði jafntefli við
Sthembris, en aðrar skákir fóru í
bið. Margeir er með skárri stöðu á
móti Shalhotas og eins er Jóhann
með skárri stöðu á móti Liverios,
en Ingi R. er með lakari stöðu á
móti Trikaloits.
Staða efstu sveita í karlaflokki
var þessi í gær:
1. Sovétrík. 30 vinningar
2. -3. Bandaríkin 25 (1) bið
2.-3. Júgóslavía. 25 (1) bið
4. Ungverjal. 24 (2) bið.
Hól/- Ig
Þegar börn í Snælandsskóla í
Kópavogi komu í skóiann í gær-
morgun, voru þau send heim aftur
með bréf frá kennurum skólans,
þar sem greint cr frá því að stunda-
kennarar skólans hafi lagt niður
vinnu, þar sem lausn á ráðningar-
málum þeirra hafi ekki fengist.
Þegar Þjóðviljinn leitaði frétta af
þessu máli hjá stundakennurum í
gær, kom í ljós, að þeir eru að mót-
mæla margsviknum óformlegum
loforðum menntamálaráðuneytis-
ins um að þeir fái setningu við
skólann eins og gert er ráð fyrir í
37. grein grunnskólalaganna. Lof-
orðin voru alltaf munnleg og þar af
leiðandi óformleg um að stunda-
kennararnir 5 fengju setningu í
hálft starf. Þetta loforð var fyrst
gefið í vor er leið. Þegar svo
kennsla hófst 1. sept. sl. kom í ljós
að ekki hafði verið staðið við þetta
loforð. Þar með hófst barátta
vegna svika
menntamálaráðu-
neytisins á óform-
legum loforðum
um setningu
við skólann
þeirra fyrir rétti sínum.
Öll réttindi stundakennara eru
mjög skert miðað við setta eða fast-
ráðna kennara. Ráðningatími er
breytilegur og kemur niður á
launum. Stundakennari vinnur sér
ekki rétt til orlofs, þeir fá ekki setu-
rétt í kennararáði, þeir fá ekki
styrki eins og aðrir kennarar o.fl.
Hinn 18. okt. sl. lögðu stunda-
kennarar við Snælandsskóla niður
:vinnu til að knýja á um málið og var
þeim þá lofað að málinu yrði kippt í
lag og hefur það loforð, óformlega
þó, verið ítrekað, en svikið jafn
óðum. Til að mynda var sagt fyrir
skömmu að lausn málsins væri í
sjónmáli og það ítrekað 5. nóv. en
síðdegis í fyrradag var hringt í
skólann frá ráðuneytinu og til-
kynnt að þessi lausn hefði brugðist.
Fastráðnir kennarar við skólann
hafa lýst yfir stuðningi sínum við
stundakennara og leggja einnig
niður vinnu. -S.dór
Síðustu fréttir:
A fundi sem var haldinn seint í
gær með skólanefnd Snælands-
skóla og fræðslustjóra Reykjaness-
umdæmis, Helga Jónassyni, lýsti
Helgi því yfir að hann teldi sig hafa
eygt iausn á málinu og væri niður-
stöðu að vænta á föstudag. Kennar-
ar hafa því aflýst verkfalli og hófu
störf í morgun.
Efnahagspakki Olofs Palme:
..Sióðasósíalisminn i” í framkvæmd?
77 O Frá Jakobi S. Jónssyni fréttaritara í Stokkhólmi: Sænska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka hlutafjárskatt um 20% á næsta ári, og á tekjuaukning þessi að renna til AP-sjóðsins, sem er 10 ára gömul rikisstofnun, er fæst við kaup á hlutabréfum i því skyni að efla iðnað og atvinnu. Aætlað er að skattahækkunin færi ríkissjóði allt að cinum miljarði s.kr., sqm þannig verður aftur ráðstafað til að ella sænskt atvinnulíf. Tilkynnt var um ráðstafanir þessar s.l. mánudag og vöktu þær þegar mikla reiði í herbúðum atvinnurekenda, iðnaðarsambandinu og sam- tökum hlutafjáreigenda. Stjórnarandstaðan sagði að með þessu væri . stigið fyrsta skrefið í átt til sjóðasósíalismans, sem mikið var deilt urn í kosningabaráttunni í haust. Kjell-Olof Feldt fjármálaráðherra sagði í viðtali við Dagens Nyheter á þriðjudag, að ráðstöfunum þessum væri ætlað að skapa frið um væntanlega santninga aðila vinnumarkaðarins og styrkja stöðu sænsks iðnaðar gagnvart erlendri samkeppni. Viðbrögðin við þessari tilkynningu stjórnarinnar í sænsku kauphöll- inni urðu óvænt jákvæð, og hlutafé traustra útflutningsfyrirtækja eins og t.d. Volvo hækkuðu í verði þegar á mánudaginn.