Þjóðviljinn - 27.11.1982, Síða 3
Helgin 27.-28. nóvember 1982 ÞJÓÐVI^JINN — SÍÐA 3
shráaraaW
Vaskleg
framganga kvenna og ungs fólks á
nýafstöðnum flokksráðsfundi Al-
þýðubandalagsins, sem varð til
þess að ýmsir þungavigtarmenn
féllu úr miðstjórn, hefur vakið
mikla athygli. Einhver taldi sig
hafa heyrt Kjartan Ólafsson, rit-
stóra og varaformann Alþýðu-
bandalagsins, segja morguninn
eftir talninguna að nú væri heima-
varnarliðið fallið og fátt eftir nema
börn og konur. Sigurdór Sigur-
dórsson blaðamaður orti þá þetta í
orðastað Kjartans:
Liðið allt er fallið frá,
finnst ei nokkur sonur,
eftir standa okkur hjá,
aðeins börn og konur.
Ekki vildu konur á ritstjórn
Þjóðviljans láta þessu ósvarað og
orti þá Þórunn Sigurðardóttir
blaðamaður:
Tefldu þeir við tvítug fljóð,
töldu veginn kláran.
Enginn kappinn eftir stóð,
allir grétu sáran.
S
I
umræðunum um vantraust á ríkis-
stjórnina sl. þriðjudag hélt Egill á
Seljavöllum „eldræðu“ mikla.
Honum var mikið niðri fyrir þegar
hann gat þess ósóma, sem væri
ríkisstjórninni að kenna að sauðum
á Vestfjörðum hefði fækkað um
15%. Þegar Seljavallabóndinn
hafði þetta mælt heyrðist Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra segja
heldur mæðulega: En þeim hefur
ekkert fækkað á Alþingi. -
Einhverra
hluta vegna hefur ekki náðst upp
nein stemning í sambandi við próf-
kjör íhaldsins í Reykjavík og eru
sumir forystumenn flokksins
orðnir hræddir um að upp komi
eitthvert „slys“. Sumir þeirra sem
þátt taka í prófkjörinu, einkum
þingmenn, eru orðnir hræddir um
eigið skinn og þá er gripið til allra-
ráða. Eitt er það að margir þeirra
hafa hringt í ritstjóra Þjóðviljans
og beðið um að Þjóðviljinn skrifaði
illa um þá til að fá fram samúð og
um leið auglýsingu. Gamla mál-
tækið að illt umtal sé betra en ekk-
ert, er greinilega í fullu gildi.
Það
vakti athygli, þegar greidd voru at-
|kvæði um vantrauststillögu krata á
ríkisstjórnina, að Jósef nokkur
Þorgeirsson þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins af Akranesi sagði hátt
og snjallt: Já. Sumir segja að þetta
hafi verið jómfrúrræða- hans á
þingi eftir fjögurra ára setu og ekki
seinna vænna að hann láti til sín
heyra.
Stöðugt
berast fregnir af framboðshug-
leiðingum úr hinum og þessimvátt-
um. Þær síðustu herma að stofnað
hafi verið Atthagabandalagið og
muni það bjóða fram í alþingis-
kosningum. Helstu stefnumál þess
eru svohljóðandi: 1) Tryggja lands-
byggðinni áframhaldandi áhrif á
Alþingi, en þau munu rýrna mjög
við breytingar á atkvæðamagni, 2)
Sporna gegn linnulausum áróðri
Stór-Reykjavíkur á foreldra og
frændur sem landsbyggðina byggja
3) Efla tengsl Stór-Reykjavíkur við
landsbyggðina með reglulegum
heimsóknum til ættingja úti á
landi. Stefnt skal að því að allur
ferðakostnaður verði greiddur úr
ríkissjóði, 4) Lögleiða sumardvöl
barna úr Reykjavík í sveitum
ilandsins og tryggja þannig afkomu
bænda. Niðurgreiðslur vegna
sumarkostnaðar verði í hlutfalli við
niðurgreiðslur á lambakjöti og 5)
Að þjóðsöngur hinna ýmsu sveita
og bæjarfélaga lúti sömu lögum og
rétti og þjóðsöngur landsins.
Framboð
Átthagabandalagsins er algjörlega
Þeyr: Slógu í gegn í Danmörku - Sigtryggur lengst til hægri í aftari röð í spegiinum (Ijósm-gel).
eitthvað inn í þeirra raðir. Karvel
Pálmason óttast þetta mjög, hygg-
ur jafnvel á sérframboð sem mót-
leik en hann hefur haft það að reglu
innan Alþýðuflokksins að vera á
móti Sighvati Björgvinssyni í öllum
málum. Sighvatur skipaði fyrsta
sætið hjá krötum í síðustu kosning-
um en Karvel var í öðru sæti.
íslenskar
rokkgrúbbur eru farnar að gera
tíðreist til útlanda upp á síðkastið
og þannig hefur t.d. hljómsveitin
Þeyr spilað í Kaupmannahöfn í
þessum mánuði. í nýlegu blaði af
Information er gagnrýni um þá fé-
laga og fá þeir ákaflega lofsamlega
dóma. Hljómsveitin spilaði í Mus-
ikcafén og segir gagnrýnandinn að
hún hafi strax kveðið niður alla
fordóma um að hún væri dreifbýlis-
leg þó að hún væri frá íslandi. Sér-
staklega er hann hrifinn af Sig-
tryggi trommuleikara.
þverpólitískt og er fyrirhugaður
stofnfundur í næstu viku. Ostað-
festar fregnir herma að eftirtaldir
menn séu meðal helstu forkólfa
þess: Árni Johnsen frá Vestmanna-
eyjum, Einar Karl Haraldsson frá
Akureyri, Jónas Jónsson frá Ysta-
felli og Ólafur Ragnarsson frá
Siglufirði.
Prófkjörsmál
eru nú í brennidepli. Búist er við að
mikil orrahríð verði í prófkjöri hjá
Sjálfstæðisflokknum í Norðurlandi
eystra. Þar er m.a. í framboði
Björn Dagbjartsson fiskifræðing-
ur, fyrrv. aðstoðarmaður Kjartans
Jóhannssonar í sjávarútvegsráðu-
neytinu. Jón Sólnes á Akureyri og
hans menn hyggja nú á hefndir
gagnvart Halldóri Blöndal og hafa
söðlað yfir á Björn og er reiknað
með að það muni fleyta honum
langt, jafnvel upp í efsta sæti, því
að Sólnesklíkan er ákaflega öflug.
Þess má svo til gamans geta að Páll
Dagbjartsson, bróðir Björns, er í
framboði fyrir Sjalfstæðisflokkinn í
Norðurlandi vestra, en þar er
Eyjólfur Konráð 'Jónsson talinn
standa heldur höllum fæti fyrir
Pálma-mönnum. Páll er skóla-
stjóri í Varmahlíð í Skagafirði.
Flokkur
Vilmundar Gylfasonar hyggur á
framboð í sem flestum kjördæmum
og þó að ekki sé búist við að hann
fái mörg atkvæði er hætt við að
hann geti gert ýmsum skráveifu.
Þannig mun Helgi Már Arthúrs-
son, samritstjóri Vilmundar í Nýju
landi, sællar minningar, verða í
efsta sæti á Vestfjörðum og óttast
kratar þar að hann geti höggvið
segir myndlistargagnrýnandi In-
formation nýlega frá Biennalen í
París en þar sýna þrír íslendingar,
þeir Steingrímur Eyfjörð Krist-
mundsson, Magnús V. Guðlaugs-
son og Kristinn G. Harðarson og
telur hann verk þeirra með því
markverðasta sem þar er að finna.
Getur hann þess að þeir séu greini-
lega undir sterkum áhrifum frá Dit-
er Rot og Fluxus-hópnum og að
maður geti fengið þá hugmynd að
Reykjavík sé ein af stærstu borgum
í heirni, full af málurum.
Rússagull
fer víða og kemur kannski nokkuð
við sögu í prófkjörum helgarinnar.
Bessí Jóhannsdóttir segir í viðtali
við Helgarpóstinn að höfuðstöðvar
hennar í prófkjörsbaráttunni séu
hjá Bifreiðum og Landbúnaðarvél-
um, sem flytur inn rússnesk tól og
tæki.
Svona eru vegir hagsmunanna
órannsakanlegir og vel lukkaður
innflutningur frá Sovét getur greitt
fyrir framboðsaðstöðu í Sjálfstæð-
isflokknum.
Góð tíðindi fyrir Garðbæinga,:
Iðnaðaroankinn
nvttiJtibúí
Nýtt bankaútibú er tekiö til starfa í hjarta
Garðabæjar - á mótum Bæjarbrautar
og Vífilstaöavegar. Meö viöskiptum við
IÐNAÐARBANKANN geta Garöbæingar
nú stytt sér leiö í banka, - sparað sér
bannig fé og fyrirhöfn. Viðskipti viö
iÐNAÐARBANKANN treysta líka undir-
stööur atvinnulífsins í kaupstaðnum.
Öll almenn bankaþjónusta - án þess að
þurfa að þíða: Ávöxtun sparifjár og
ráðgjöf um þestu kostina. Ávísana- og
hlaupareikningar, útlán, innheimturog
IB-lánin vinsælu sem við aðlögum sífellt
kröfum tímans,
Garðhæingar - velkomnir í ykkar banka.
útibúið er opið alla virka daga frá
9.15-16.00 og auk þess á
fimmtudögum kl. 17.00-18.00
Iðnaðarbankinn
Garðabæ, sími: 46800