Þjóðviljinn - 27.11.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 27.11.1982, Blaðsíða 11
PJOÐVHM F//A/T Helgín 27.-28. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Ef þú vilt eignast nýjan, betri og breyttan bíl þá kemur þú með þann gamla og við látum þig hafanýjan Fiat 127 í staðinn. _ .. , Komdu og kynntu þér kjörin. rl//l cf S3S113I StðíÓ Egill Vilhjálmsson hf. Smiðjuvegi 4 Kóp. Sími 77200 Sími 77720 Ertu ennþá á þeim gamla? Hér er þá eitthvað nýtt fyrir ÞIG 127 Special Eiturlyfjamál í íslenskri skáldsögu Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. hefur sent frá sér skáldsöguna „Heitur snjór“ eftir Viktor Arnar Ingólfsson og er það önnur skáld- saga höfundarins. I bókinni fæst Viktor Arnar við mál sem segja má að brenni heitt á mörgum um þessar mundir - eitur- lyfjavandamálið, en heitur snjór er einmitt það fíkniefni kallað sem nú stendur mest ógn af, þ.e. heróínið. Saga Viktors Arnar fjallar um ósköp venjuleg ungmenni í Reykjavík nútímans - ungmenni frá venjulegum heimilum sem búa einnig við aðstæður sem eru síst verri en gengur og gerist. Hún fjall- ar einnig um mennina á bak við tjöldin sem telja að tilgangurinn helgi meðalið þegar þeir afla sér auðs og hika ekki við að stíga yfir hvern sem er á leið sinni. Bókin fjallar um það hvernig ungmennin villast inn í hulduheim fíkniefn- anna, meira af tilviljun en ásetn- ingi, og hvernig fíkniefnin ná tökum smátt og smátt. DEIGÍ25 LAUFABRAUÐ Bakarí Fridriks Haraldssonar sf Kársnesbraut 96, Kópavogi 9 413 01 Jólin nálgast! Laufabrauðiö komið Gerið pantanir sem fyrst Vestmannaeyjar Þjóðviljinn óskar eftir umboðsmanni í Vest- mannaeyjum. Upplýsingar gefur Jóhanna Njálsdóttir, sími 1177 Könnunarsaga veraldar Bókaklúbbur Arnar og Örlygs hf. hefur nú gefið út bókina Könn- unarsaga veraldar eftir breska rit- höfundinn og ferðagarpinn Eric Newby, en inngang bókarinnar rit- ar Sir Vivian Fuchs. Þýðingu bókarinnar annaðist Kjartan Jón- asson sagnfræðinemi og blaðamað- ur. Könnunarsaga veraldar er mikið ritverk. Bókin er tæpar 300 blaðsíður í stóru broti og er hún prýdd fjölda mynda, bæði lit- mynda, svart-hvítra mynda og korta. Eric Newby er ferðaritstjóri dagblaðsins Observer og hefur einnig ritstýrt hinum þekkta „Time Off“ bókaflokki og ritað fjölmarg- ar bækur um sagnfræði og land- könnun. í Könnunarsögu veraldar er saga frumherjanna í landaleit ítarlega rakin og raunar fjallað um land- könnun fram til okkar daga og fyrstu skref mannsins í sókn sinni til annarra hnatta. I bókinni er greint frá ævintýrum landkönnuðanna, mannraunum þeirra og svaðilförum og ófyrir- leitni og miskunnarleysi í sam- skiptum við þá þjóðflokka er byggðu löndin sem þeir komu til og fjallað er ítarlega um þau menning- arlegu og efnalegu umskipti er urðu við fund ókunnra landa. Sœnsk verðlauna skáldsaga Almenna bókafélagið hcfur sent frá sér Samúels bók eftir sænska höfundinn Sven Delblanc. Þýðandi hennar er Sigrún Astríður Eiríks- dóttir. Samúels bók hlaut bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs 1982. Hún er kynnt þannig á bókarkáp- unni „Sven Delblanc fjallar hér um sína eigin ætt, afa sinn og fjöl- skyldu hans. Afinn er prentlærður maður og dreymdi stóra drauma sem allir tórtímdust í svartnætti fá- tæktar og sænskri þröngsýni alda- mótaáranna. En sagan fjallar einn- ig um ástúð og samheldni fjöl- VEROLAUNABÓH NORDURLANOARÁÐS 1982 SVEN DELBLANC skyldu sem reynir að bjóða byrginn þjáningum, fordómum og neyð.“

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.