Þjóðviljinn - 27.11.1982, Blaðsíða 18
18 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 27.-28. nóvember 1982
bridge
Bridgesyrpa
Stefán Guðjohnsen, einn okkar
kunnasti bridgesérfræðingur, er
þessa dagana að kynna nýtt tæki frá
Hollandi, sem ku svipa til „autobri-
dge“ (sjálfvirkt bridgespil), en vera
mun fullkomnara. Apparat þetta
mun vera matað af fjölda spila frá
ýmsum þekktum stórmótum seinni
ára víða að, þ.á.m. Stórmóti B.R.
á íslandi um árið (Möller-Werdelin
mótið, að þáttinn minnir).
Bridgeáhugafólk ætti að vera
vakandi fyrir þessu máli næstu dag-
ana, því jólin eru jú reyndar á næst-
unni. Nánar síðar.
Jóni Baldurssyni og Val Sig-
urðssyni var boðið um daginn til
Austfjarða til þátttöku í Austur-
landsmótinu í tvímenning. Þeir
sigruðu mótið með yfirburðum
unnu raunar allar sínar setur, utan
eina, á móti ungu austfirsku pari.
Það par spilaði eins konar útgáfu af
„passkerfinu“, og má segja að
skrattinn hafi hitt þar ömmu sína,
því það voru einmitt Jón Baldurs-
son og Sverrir Armannsson sem
hófu þetta kerfi til „vegs og
virðingar" hér á landi. (Raunar
spiluðu Cecil Haraldsson og Guð-
laugur Magnússon pass-kerfi,
Sorry, Sorry (Sorri, Sorri), fyrir
mörgum árum en það er önnur
saga).
En semsagt, Nonni og Valli fóru
flatt fyrir þessu eina pari, og verður
að segjast, að ef Austfirðingar ætla
að fara að klekkja á mönnum í
framtíðinni með því að passa á
sterku spilin, geta þeir passað sig...
Hin sagan um passkerfi á við um
þá Cecil og Guðlaug þegar þeir
tóku þátt í tvímenningskeppni
B.R. þegar breska landsliðið sótti
okkur heim (var það ekki 1972?).
Einsog gengur, þá mættu þeir fé-
lagar einu gestaparinu snemma
móts, og venjan er að spyrja um
hvaða sagnakerfi menn nota, áður
en leikur hefst. Cecil svaraði:
Sorri, Sorri.
Þá spurði sá enski á ný hvaða
kerfi þeir notuðu, á rólegan og
skiljanlegan hátt.
Cecil svaraði samviskusamlega á
ný: Sorri, Sorri.
Þá stóðst sá enski ekki mátið og
sagði: I beg your pardon. I’m ask-
ing about your system?
Og Cecil svaraði enn á ný: And
I’m answering you.
Málið var, að kerfið hjá þeim
Ccil og Guðlaugi var pass-kerfi,
kennt við Finnann Sorri. Almennt
er talið að með þessum brandara
hafi þeir Cecil og Guðlaugur unnið
sér ódauðlegan sess í íslenskri bri-
dgesögu, fyrir utan að vera taldir
fyrstir til að spila passkerfi hér á
landi í keppni.
Spilarar eru minntir á meistara-
stigaskráningu Bridgesambands-
ins. Um áramótin verður gefin út
ný skrá fyrir landið í heild, og áríð-
andi er að allir séu rétt skráðir, til
að marktækt sé.
Hvimleiður fylgikvilli skráning-
ar, sem byggist á eigin bókhaldi, er
ætíð sá, að einhver er svo „klár“ í
þessu, áð hann „þarf“ ekki að vera
með hinum aulunum, sem liggja
yfir hverjum miða, bláum sem gul-
um. Þessum hugsunarhætti þarf að
breyta. Taki þeir til sín sem eiga.
Gamall kunningi Þjóðviljales-
enda mun birtast enn á ný í jólam-
ánuði. Er þar átt við hinn síunga
(rúmh.ga áttræðan) Snorra
Sturiuson.
Á síðasta ári tók hann sér fóstur-
son, Júlíus, vegna makkersörðug-
leika, og flakkaði víða milli félaga.
Ekki er örgrannt um að Snorri hafi
brugðið sér milli landsteina þetta
árið. Framhaldið kemur í ljós í des-
ember.
í dag hefst Opna Hótel Akrane-
smótið. Spilað er í dag og á morg-
un, og eru 36 pör skráð til leiks.
Stórglæsileg peningaverðlaun eru
veitt efstu pörum, eða kr. 10.000
pr. par. fyrir 1. sætið, 7.000. kr. par
fyrir 2. sætið og 3.000 kr. par fyrir
3. sætið. Auk þessa er spilað um
silfurmeistarastig. Flest pör lands-
ins eru meðal þátttakenda, þar á
meðal Valur stórmeistari Sigurðs-
son sem sigrað hefur þetta mót sl. 2
ár. Að þessu sinni er Sigurður
Sverrisson makker hans, en hvort
það dugir fyrir Valla...
Man einhver eftir frægustu sagn-
seríu á íslandi? Hún átti sér stað í
Reykjanesmóti í Skiphól (sem þá
hét) fyrir nokkrum árum. Engin
voru þá sagnboxin til meldinga, svo
menn melduðu munnlega. Fjórir
menn tóku sér sæti við eitt borðið
Umsjón
Ólafur
Lárusson
og sagnir gengu þannig: Sæll, ha?
Dobl, pass.
Ekki fara sögur af lokaárangri...
Sveit Sœvars
með vinnings-
stöðu
Eftir 12 umferðir í aðalsveita-
keppni Bridgefélags Reykjavíkur,
hefur sveit Sævars Þorbjarnar-
sonar mjög góða vinningsstöðu. Er
í efsta sæti, og á leik til góða.
Staða efstu sveita er þessi:
Sveit Sævars Þorbjörnssonar 184
stig og 1 leik óspil.
Sveit JónsHjaltasonar 181 stig.
Sveit Þórarins Sigþórssonar
174 stig.
Sveit Karls Sigurhjartarsonar
163 stig.
Sveit Olafs Lárussonar 149 stig.
Sveit Aðalsteins Jörgensen
138 stig.
Sveit Kristjáns Blöndal 120 stig.
Keppni verður framhaldið nk.
miðvikudag og eigast þá m.a. við
sveitir Sævars-Aðalsteins og Jóns
Hj.-Þórarins.
Sveit Runólfs
sigraði
Efstu skorir í síðasta kvöldi
hraðsveitakeppni Bridgefélags
Kópavogs fengu eftirtaldar sveitir:
Runólfur Pálsson 503
Kristján Blöndal 488
Ármann J. Lárusson 475
Og sigurvegari varð sveit Run-
ólfs Pálssonar, en með honum
voru: Hrólfur Hjaltason, Jónas P.
Erlingsson, Sigurður Vilhjálmsson
og Sturla Geirsson. Röð efstu
sveita:
Runólfur Pálsson 2323
Gísli Torfason 2302
Ármann J. Lárusson 2243
Jón Þorvarðarson 2192
Meðalskor 2160.
Spilaáætlun til vors 1983
2.-16. 12. ’82 Jólabutler. Tví-
menningur 3 kvöld.
6.1. ’83 Tvímenningur 1 kvöld.
13.1-17/24.2. ’83 Aðalsveita-
keppni BK. 6-7 kvöld.
3.3. -31..3 Barómeter, Tví-
menningskeppni. 5 kvöld.
7.4. -21. 4. „Board on a match"
Sveitakeppni 3. kvöld.
28. 4.-12.5. Óráðstafað. 3 kvöld.
Spilað er á fimmtudögum í Þing-
hóli v/Hamraborg Kóðavogi og
hefst keppni kl. 20.00 Keppnis-
stjóri Vigfús Pálsson.
Frá TBK
Hraðsveitakeppni félagsins lauk
með sigri sveitar Gests Jónssonar. í
2. sæti hafnaði svo sveit Auðuns
Guðmundssonar.
Næsta fimmtudag hefst 2 kvölda
tvímenningskeppni. Þátttaka öll-
um opin. Spilað er í Domus Medica
og hefst keppni kl. 19.30.
Frá Bridgefélagi
Breiðholts
Sl. þriðjudag lauk 2 kvölda
hraðsveitarkeppni með sigri
sveitar Rafns Kristjánssonar, sem
hlaut 950 stig. Með honum voru:
Þorsteinn Kristjánsson, Björn
Björnsson og Sigurbjörn Ár-
mannsson. Næstu sveitir voru:
2. sveit Baldurs Bjartmarss. 882,
3. sveit Leifs Karlssonar 880,
4. sveit Kjartans Kristóferss.
870.
Meðalskor 864 stig.
Á þriðjudaginn kemur hefst svo
Barómeter-tvímenningskeppni fé-
lagsins. Allir velkomnir. Spila-
mennska hefst kl 19.30. og spilað
er í húsi Kjöts og Fisks v/
Seljabraut. Keppnisstjóri verður
Hermann Lárusson.
Frá Bridgefélagi
Sauðárkróks
Úrslit í tvímenningi 10. nó-
vember:
A-riðill:
stig
1. Garðar Guðjónss.-
Páll Hjálmarss. 126
2. Ólafur Ásgrímss.-
Sverrir Einarss. 120
3. Ingibjörg Ágústsd.-
Stefán Skarphéðinss. 119
4. Einar Svanss.-
Skúli Jónsson 118
B-riðiIl:
1. Bjarki Tryggvason,-
Gunnar Þórðarson 125
2.-3. Hjördís Þorgeirsd.-
Steinunn Oddsd. 120
2.-3. Haukur Haraldss,-
Erla Guðjónsd. 120
4. Broddi Þorsteinss,-
Agnar Kristinss. 111
Laugardaginn 13. nóv. var hald-
ið Kristjánsmót félagsins. Spilaður
var Barómeter-tvímenningur með
þátttakendum frá Sauðárkróki,
Siglufirði, Fljótum og Hvamms-
tanga þrátt íýrir óhagstætt veður.
Alls spiluðu 20 pör og keppnis-
stjóri var Kristján Blöndal, sem
mótið er kennt við.
Úrslit: stig
1. Valtýr Jónasson-
Viðar Jónsson, Siglufirði 104
2. Reynir Pálsson-
Stefán Benediktss., Rjótum
96
3. Páll Hjálmarsson-
Garðar Guðjónsson, Sauðárk-
róki 93
4. Gunnar Guðjónss.-
Gestur Þorsteinss., Sauðár-
króki 80
5. Hinrik Aðalsteinss.-
Haraldur Árnason, Sigluf. 66
6. Bjarki Tryggvason-
Gunnar Þórðarson,
Sauðárkróki 43
7. Árni Rögnvaldsson-
Jón Jónass., Sauðárkróki 34
8. Jón Kort Ólafsson-
Guðlaug Márusd., Fljótum 33
Frá Bridgedeild
Breiðfirðinga
Eftir 10 umferðir í aðalsveita-
keppni deildarinnar, er staða efstu
sveita þessi:
Hans Nielsen 162
Elís R. Helgason 148
Kristín Þórðardóttir 142
Óskar Þ. Þráinsson 131
Gróa Guðnadóttir 117
Ingibjörg Halldórsdóttir 116
Sigurjón Helgason 112
Magnús Halldórsson 106
Keppni verður framhaldið næsta
fimmtudag.
Umboðsmenn Happdrættis Þjóðviljans 1982
REYKJANES. NORÐURLAND EYSTRA.
Mosfellssveit: Magnús Lárusson Markholti 24 s. 66121 Ólafsfjörður: Björn Þór Ólafsson Hlíðarvegi 61 s. 96-62270
Kópavogur: Hafsteinn Eggertsson Furugrund 42 s. 41341 Dalvík: Hjörleifur Jóhannsson Stórhólsvegi 3 s. 96-1237
Garðabær: Þóra Runólfsdóttir Aratúni 12 s. 42683 Akureyri: Haraldur Bogason Norðurgötu 36 s. 96-24079
Hafnarfjörður: Hallgrímur Hróðmarsson Holtsgötu 18 s. 51734 Hrísey: Guðjón Björnsson Sólvallagötu 3 s: 96-61739
Seltjarnarnes: Hafsteinn Einarsson Bergi S. 13589 Húsavík: Snær Karlsson Uppsalav. 29 s. 96-41397
Keflavík: Sigurður Brynjólfss. Garðavegi 8 s. 92-1523 Mývatnssveit: Þorgrímur Starri Garði S. 96-44111
Njarðvikur: Sigmar Ingason Þórustíg 10 s. 92-1786 Raufarhöfn: Angantýr Einarsson Aðalbraut 33 s. 96-51125
Gerðar: Sigurður Hallmarsson Heiðarbraut 1 s. 92-7042 Þórshöfn: Dagný Marínósdóttir Sauðanesi S. 96-81111
Grindavík: Helga Enoksdóttir Heiðarhrauni 20 S. 92-8172
Sandgerði: Elsa Kristjánsdóttir Holtsgötu 4 s. 92-7680
AUSTURLAND.
VESTURLAND. Neskaupstaður: Alþýðubandalagið Egilsbraut 11 S. 97-7571
Akranes: Gunnlaugur Haraldsson Brekkubraut 1 S. 93-2304 Vopnafjörður: Gunnar Sigmarsson Miðbraut 19 s. 97-3126
Borgarnes: Sigurður Guðbrandsson Borgarbraut 43 s. 93-7122 Egilsstaðir: Kristinn Árnason Dynskógum 1 s. 97-1286
Hellissandur Svanbjörn Stefánsson Munaðarhól 14 s. 93-6688 Seyðisfjörður: Hermann Guðmundsson Múlavegi 29 s. 97-2397
Ólafsvík: Rúnar Benjamínsson Túnbrekku 1 S. 93-6395 Reyðarfjörður: Ingibjörg Þórðard. Grímsstöðum s. 97-4149
Grundarfjörður: Matthildur Guðmundsd. Grundargötu 26 S. 93-8715 Eskifjörður: Þorbjörg Eiríksd. Strandgötu 15 s. 97-6494
Stykkishólmur: Ómar Jóhannsson Lágholti 7 s. 93-8327 Fáskrúðsfjörður: Magnús Stefánsson Hlíðargötu 30 s. 97-5211
Búðardalur: Gísli Gunnlaugsson Sólvöllum S. 93-4142 Stöðvarfjörður: Ingimar Jónsson Túngötu 3 S. 97-5894
Djúpivogur: Eysteinn Guðjónsson Hlíðarhúsi s. 97-8873
VESTFIRÐIR. Breiðdalsvík: Snjólfur Gíslason Steinborg s. 97-5626
Patreksfjörður: Bolli Ólafsson Sigtúni 4 S. 94-1433 Höfn: Benedikt Þorsteinsson Ránarslóð 6 S. 97-8243
Bíldudalur: Halldór Jónsson Lönguhlíð 22 s. 94-2212
Þingeyri: Davíð Kristjánsson Aðalstræti 39 S. 94-8117
Flateyri: Guðvarður Kjartansson Ránargötu 8 s. 94-7653 SUÐURLAND.
Suðureyri: Þóra Þórðardóttir Aðalgötu 31 s. 94-6167 Vestmannaeyjar: Edda Tegeder Hrauntúni 35 s. 98-1864
ísafjörður: Áslaug Jóhannsdóttir Grundargötu 2 s. 94-4331 Hveragerði: Magnús Agústsson Heiðarbrún 67 s. 99-4579
Bolungarvík: Kristinn Gunnarsson Vitastíg 21 s, 94-7437 Selfoss: Iðunn Gísladóttir Vallholti 18 S. 99-1689
Hólmavík: Hörður Ásgeirsson Skólabraut 18 S. 95-3123 Þorlákshöfn: Þorsteinn Sigvaldason Reykjabraut 5 S. 99-3745
Eyrarbakki: Auður Hjálmarsdóttir Háeyrarv. 30 s. 99-3388
NORÐURLAND VESTRA. Stokkseyri: Margrét Frímannsdóttir Eyjaseli 7 S. 99-3244
Hvammstangi: Örn Guðjónsson Hvammst.br. 23 S. 95-1467 Vík í Mýrdal: Vigfús Þ. Guðmundsson Mánabraut 12 S. 99-7232
Blönduós: Sturla Þórðarson Hlíðarbraut 24 S. 95-4357 Hella: Guðmundur Albertsson Geitasandi 3 S. 99-5909
Skagaströnd: Eðvarð Hallgrímsson Fellsbraut 1 s. 95-4685
Sauðárkrókur: Halldóra Helgadóttir Freyjugötu 5 s. 95-5654
Siglufjörður: Kolbeinn Friðbjarnars. Hvanneyr.br. 2 s. 96-71271
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Alþýðubandalagsins, Grettisgötu 3 símar: 17500 og 17504.