Þjóðviljinn - 27.11.1982, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 27.11.1982, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 27.-28. nóvember 1982 dægurmál (sígiid?) umsjon Sif Jón Viðar Andrea Að gera t í buxurnar Jæja þá er plötuskriðan fyrir jólin komin af stað og pressurnar í Alfa keyrðar dag og nótt. Því miður verður ekki hægt að gera öllum þeim plötum skil sem koma út fyrir j ólin og verður j afn- vel að sleppa sumum sem eru allr- ar athygli verðar. En byrjum á....: Donald Fagen - The Nightfly. Beðið var eftir þessari plötu með töluverðri óþreyju en Fagen þessi var annar helmingur Steely Dan. Ekki verður það sagt um Fagen að hann leiti á nýjar slóðir því þessi plata er keimlík Steely Dan plötunum en vel er hún unnin. Þarna eru saman komnir margir af frægustu „session“ mönnum Bandaríkjanna í dag. Þessi plata er skyldueign fyrir alla gamla og trúfasta Steely Dan aðdáendur. Ultravox - Quartet. Nýja- brumið er horfið af „fúturisman- um“ og það sama má segja um þær hljómsveitir sem þar hafa verið í fylkingarbrjósti. Ultravox Adam Ant nauðgar gömlu Doors- lagi: Hello, I love you; og gerir þar með endanlega í buxurnar... hefur nú um langt skeið verið í fararbroddi ný-rómantíkurinnar og svo er að heyra sem þeir séu eitthvað að breyta til. Þessi plata er sennilega upphafið að ein- hverju meira því þeir gera tilraun til að brjótast undan ægivaldi „fúturismans“ með því að fá gamla Bítla-upptökustjórann George Martin til liðs við sig. Þessi tilraun gefur ágætan ávöxt og sennilegt að Ultravox verði enn um sinn í fylkingarbrjósti „fúturistanna“. Depeche Mode - A Broken Frame. Depeche Mode skaust upp á stjörnuhimininn með ógnar- hraða og voru það einkum lag- asmíðar Gene Vincet sem fleyttu þeim þangað. Eftir að hann hætti í hljómsveitinni og stofnaði dú- ettinn Yazoo hefur ferill hljóm- sveitarinnar legið niður á við. Þessi plata er þraut-leiðinleg og vantar allan sjarma sem fyrri plata hafði. Ekki kæmi mér á óvart þó þetta yrði seinasta afurð hljómsveitarinnar ’Og svo mikið er víst að ekki myndi ég sakna hennar. Adam Ant - Friend or Foe. Ekki ætlar gamli maurinn að skipta um ham. Þessi plata hans er ósköp lítið spennandi, hann heldur sig á svipuðum slóðum og áður og gerir enga tilraun til að breyta um tónlistarstefnu enda óþarfi þegar menn eru miljón- eintaka sölu menn. En verst við þessa plötu þykir mér að þar nauðgar hann gömlu Doors-lagi „Hello I Love You“ á hinn hroðalegasta hátt og þykir mér einsýnt að nú sé hann búinn að gera endanlega í buxurnar. JVS Egó: Rúnar á innfelldu myndinni, síðan Bubbi, Beggi og Maggi. Ljósm.-gel. Að sýna rmnnkosti í mynd með Egóinu er sú plata sem hvað flestir hafa beðið eftir. Eftir að hljómsveitin sló í gegn nú í vor hefur engin hljómsveit kom- ist með tærnar þar sem Egóið hef- ur hælana hvað varðar vinsældir. Breyttir tímar er söluhæsta plata ársins, alla vega veit ég ekki um neina plötu sem hefur selst í jafn mörgum eintökum. Eins og vel flestum er kunnugt þá urðu mannabreytingar í hljómsveitinni áður en í mynd var hljóðrituð. Rúnar Erlingsson leysti þá Þorleif af hólmi sem bassaleikari hljómsveitarinnar. Þrátt fyrir lítinn tíma til æfinga kemur Rúnar vel frá þessari plötu og er það mikill fengur fyrir Egó- ið að hann skuli vera kominn í hljómsveitina. Og óhætt að segja að Egóið hafi aldrei verið jafn vel mannað og nú. Tónlist hljómsveitarinnar er þyngri en á fyrri plötu hennar og kostar það töluverða yfirlegu að grípa hana til fullnustu. Á þessari plötu eru engin lög sem eru í lík- ingu við „Stóra stráka" eða „Móðir" og er ég feginn því. Það hefði fátt eitt verið þægilegra fyrir hljómsveitina en að semja lög til að fylgja í kjölfar þessara vinsælustu laga ársins. Ég lít á þetta sem merki um mannkosti hljómsveitarinnar að hún skuli ekki hafa gert það. Það er eitt sem ég get ekki sætt mig við á plötuni og það er þetta reggae-lag „Dancing with regg- ae“. Þetta var sniðug hugmynd fyrir þremur árum en í dag finnst mér hún útvötnuð og í engu sam- ræmi við tónlist hljómsveitar- innar. Eins og áður eru textar Bubba góðir og hafa þeir batnað til muna. Hann leggur meiri alúð að mér finnst í þá en áður, það eru meiri vangaveltur í gangi en áður, textarnir eru dýpri og ekki eins opinskáir og fyrr. Það kostar stundum þó nokkrar hugleiðing- ar að átta sig á því hvert hann er að fara og stundum bregður fyrir skemmtilegu myndmáli í text- unum: Jafnvel þótt himirminn dragi gluggatjöld sín frá, liggur dáleiðandi þokan glugga þínutn á. Himinninn brotnar í Ijóðum, nakið undur, kristaldýr í garðinum molnar. (Mescalín) I „Guðs útvalda þjóð“ tekur hann fyrir erjur ísraelsmanna og Palestínuaraba á þann hátt sem honum einum er lagið. / minningu miljóna gasdauðra manna, réttlœta morð á nýfœddu barni. Heiminum vilja sýna og sanna að þeir séu guðs útvaldi kjarni. , Textarnir á I mynd eru bestu textar Bubba hingað til en ég sakna þess að hann er hættur að semja eins mikið af beinskeyttum ádeilutextum og hann gerði. Ekki er hægt að kvarta yfir hljóðfæraleiknum á plötunni, hann er allur til fyrirmyndar. Beggi nýtur sín betur á þessari plötu en þeirri fyrri og Maggi og Rúnar eru alltaf jafn góðir. Söng- ur Bubba er góður en eilítið til- gerðarlegur á köflum. Þessi plata er spor fram á við og vonandi verður næsta spor stærra því ég er viss um að þeir sveinar eiga ýmislegt í pokahorninu. Eini gallinn við þessa plötu er þetta bölvaða reggae lag sem mér finnst hundleiðinlegt. I mynd er heilsteyptari plata en Breyttir tímar og í alla staði betri. JVS Góð tilraun Ekki verður annað sagt en fyrsta kvöld Músíktilrauna ’82 hafi farið vel fram. Að vísu voru þær hljómsveitir sem fram komu frekar lélegar en ég held að allir hafi skemmt sér vel og það er jú fyrir mestu. BARA-flokkurinn var gestur kvöldsins, þeir léku nokkur göm- ul lög og tvö eða þrjú ný. Það voru þessi nýju lög sem yljuðu mér um hjartaræturnar og verður fróðlegt að heyra næstu breið- skífu þeirra félaga en að sögn ætla þeir að hljóðrita hana nú um jól- in.Ejn snúum okkur að aðal- númerum kvöldsins. Sokkabandið frá ísafirði kom fram á eftir BARA-flokknum en Sokkabandið hefur sér það til frægðar unnið að vera önnur kvennarokkhljómsveitin á ís- landi. Ósköp fannst mér þær stöllur lélegar, en það er engin ástæða til að láta hugfallast, ekki voru Grýlurnar uppá marga fiska þegar þær komu fram í fyrsta sinn. Vébandið úr Keflavík kom fram á eftir Sokkabandinu. Þeir Bara-flokkurinn - í hyllingum. drengir léku sín lög af miklum krafti en þeir eiga dáldið langt í það að verða góðir. Sú hljómsveit sem kom mér mest á óvart var Svart/hvítur draumur úr Kópavogi. Tónlist þeirra fannst mér vera mjög framsækin og auðheyrt að þeir drengir fylgjast vel með því sem er að gerast. Og er ég sannfærður um það að með meiri ætingu eiga þeir eftir að ná langt. Reflex var tvímælalaust besta hljómsveit kvöldsins og auðheyranlegt að þeir hafa mun meiri æfingu að baki en hinar hljómsveitirnar. Það kom því engum á óvart að þeir skyldu komast í lokakeppnina en það fannst mér skrítið að Sokkaband- ið skyldi komast áfram. En sem betur fer hafa ekki allir sama smekkinn og það er jú það sem gerir þessa tilraun svo skemmti- lega að ekki er hægt að spá fyrir- fram. Stefán Jón Hafstein var kynnir kvöldsins og gerði hann góða lukku og átti mikinn þátt í að ná upp ágætri stemmningu. Svei mér þá ef maðurinn er ekki talari af guðs náð. Það voru um 150 manns sem mættu á þetta fyrsta kvöld sem fram fór með miklum sóma en húsið rúmar margfalt fleiri og því engin ástæða til þess að sitja heima. Sl. fimmtudag urðu stigahæst- ar Stratos og Meinvillingarnir. Fimmtud. 2. des. verður 3. Músiktilrauna-kvöldið, þá koma fram Signaltus, Dron, Medium, Útrás, Trúðurinn og Centaur. Heiðursgestur kvöldsins verður hljómsveitin Þeyr og kynnir Stef- án Jón.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.