Þjóðviljinn - 10.12.1982, Blaðsíða 4
’ 4 SIÐA — Bókablað Þjóðviljans
Strengja-
brúður
Jón Óttar Ragnarsson
Strengjabrúður er fyrsta skáldsaga
höfundar. Á yfirborðinu er þetta
spennandi saga um ameríska
óperusöngkonu og hverju hún
fórnar fyrir frama sinn og frægð. í
reyndinni er þetta ekki síður saga
um umhverfið og hvernig það mót-
ar okkur. Þetta er saga um metnað
og samkeppni vísindamanna um
Nóbelsverðlaun; um framhjáhald,
skilnað og þá félagslegu upplausn
sem einkennir okkar tíma. Kápu
gerði Pétur Halldórsson. Setning,
umbrot og prentun Víkingsprent
hf. Bókband Bókfell hf. Bókin er
151 bls. Verð kr. 395.20.
vsw< 11»
un rttu i «aan«.m ctf tvvMt*
Höggormur
í paradís
er sagan af ævintýralegum ferli Ró-
berts Maitslands. Hann er ástands-
barn, fær snemma á sig það orð að
vera vondur strákur og sveitar-
skelfir í Flóanum. Hann fæst við
margt en flest endar það með
ósköpum. Hann lifir fyrir líðandi
síund, á í mörgum ástarævintýrum
og lendir oft í útistöðum, tekst
raunar stumjum að skjóta löggæsl-
unni ref fyrír rass. Róbert Maits-
land dregur ekkert undan. Verð
kr. 348.00.
Idunn
Skógar-
kofinn
eftir nýja skáldsagnahöfundinn
Vigfús Björnsson
Höfundur leiðir þessa sögu frá firr-
ing nútímans inn í þá veröld, sem
hann telur eftirsóknaverða.
Um Skógarkofa Vigfúsar leikur
dulúð og rammíslenskir vindar.
Þetta er mikil saga sem snerta mun,
strengi í brjóstum margra.
Verð kr. 321.-
Skjaldborg
Hallæris-
planið
æðisleg saga fyrir börn og full-
orðna, tekin beint út úr nútíman-
um. Páll Pálsson þekkir sitt fólk,
krakkana á Hallærisplaninu, og
bregður upp lifandi og raunsannri
mynd af lífi þeirra, tali og hegðun.
Frásögnin er hröð og sannfærandi,
og hér gerist margt, það er drukkið
og duflað, leikið á liðið og látið sig
dreyma og sendar geggjaðar stuð-
kveðjur. Hallærisplanið er bók um
börn og fullorðna. Verð kr. 248.00
Iðunn
Kona vita-
varðarins
Aðalheiður Karlsdóttir frá Garði:
Fjórða bók Aðalheiðar, viðburða-
rík og spennandi og tvímælalaust
hennar besta bók. Segir frá
norsk-íslenskri stúlku sem verður
fyrir ýmislegri óvæntri lífsreynslu.
Verð kr. 321.00.
Skjaldborg
Helgafell
Þýddar skáldsögur
Flugsveit 507
David Beaty
Æsispennandi saga úr síðari heims-
styrjöldinni um viðureign breskrar
flugsveitar og áhafnar þýska skips-
ins Groningen.
Verð kr. 321,-
Skjaldborg.
FRÁSÖGN IIM
MARGBOÐAÐ
Frásögn um
margboðað
morð
eftir Gabriel Garcia Marquez
Þetta er nýjasta saga Nóbelsskálds-
ins frá Kólumbíu, eins mesta sagna-
meistara sem nú er uppi. Þetta er
einstæð glæpasaga. Við fáum að
fylgjast með aðdraganda morðsins,
en samt heldur höfundur spennunni
allt til loka. - Brúðkaup var haldið í
þorpinu, en brúðkaupsnóttina sjálfa
var brúðinni skilað heim í föðurgarð
af því að hún reyndit ekki hrein
mey. Heiður fjölskyldunnar hafði
verið flekkaður - og tveim tímum
seinna er Santíago Nasar dauður.
Verð kr. 297.65.
Iðunn.
Afl vort
og æra
Afl vort og æra eftir Nordahl Grieg
er magnað leikrit um norska sjó-
menn í stríði og ógleymanleg lýsing
á hinni svokölluðu „jobbetid",
gróðrabrallstímabili Norðmanna,
sem var svo hrikalegt og siðlaust að
tæpast mun unnt að ýkja það í
skáldsögu. Norsk saga geymir eng-
in dæmi um jafn ruddalega auglýs-
ingu ríkisdæmis á sama tíma og
þorri þjóðarinnar bjó við þröngan
kost og færði þær fórnir, að á fjórða
þúsund norskir sjómenn fórust í
styrjaldarátökum á höfum heims-
ins. Ekkert leikrit á Norðurlöndum
á þessari öld hefur valdið öðru eins
fjaðrafoki. Nordahl Grieg barðist
með Bandamönnum í síðari heims-
styrjöldinni. Flugvél hans var skot-
in niður í loftárás á Berlín á jóla-
föstunni 1943. Hann var41 ársþeg-
ar hann féll. Grieg tók ungur ást-
fóstri við ísland - og hér á landi
voru síðustu ljóð hans, Frihetan,
frumútgefin, í sama mánuði og
hann féll. „Afl vort og æra“, þetta
magnaða verk, er þannig uppbyggt
að lesa má það sem spennandi
skáldsögu. Bókin er gefin út í að-
eins 3000 eintökum. Jóhannes
Helgi hefur íslenskað bókina. Hún
kostar í bandi 360 krónur og í kilju
290,-
Arnartak,
BARHARA ,
^artland
Ástin blómstrar á
öllum aldursskeiöum
Ástin blómstrar
á öllum
aldursskeiðum
Barbara Cartland
Eftir lát konu sinnar segir Malcolm
Worthington skilið við starf sitt í
utanríkisþjónustunni og fer til
Miðjarðarhafsins í þeim tilgangi að
gleyma fortíðinni og hefja nýtt líf.
Þar verða tvær konur á vegi hans og
þær eru ólíkar eins og dagurinn og
nóttin. Elísabet er fínleg, lífsglöð
og óeigingjörn og kennir honum að
elska á ný. Marcia er há og grönn,
fögur og fönguleg, en Malcolm
metur hana einskis. En þegar
Marcia er að því komin að hverfa
að fullu úr lífi hans, ske óvæntir
atburðir, sem Malcolm hafði ekki
séð fyrir...
Verð kr. 298,85.
Skuggsjá.
Rúmið
brennur!
Faith McNulty
Ekki skáldsaga í venjulegum skiln-
ingi heldur heimildasaga, umskrif-
uð frásögn konu sem grípur til ör-
þrifaráða eftir langvarandi þján-
ingar í hjónabandi. Elísabet Gunn-
arsdóttir þýddi.
Almennt verð kr. 370.50.
Félagsverð kr. 314.95.
Mál og menning.
■ Wt£5<l
vlO -Qsm&Sív,
systurnar
Skuggsjá
Við systurnar
Theresa Charles
Althea er fögur, alvörugefin og
mjög gáfuð og stjórnar yngri systur
sinni, full afbrýðisemi og öfundar.
Rósamunda er lífsglöð og
skemmtileg, aðlaðandi og kæru-
laus, en full af mannlegri hlýju.
Adrían er aðstoðarprestur föður
þeirra og þær eru báðar ástfangnar
af honum. Hann kvænist Altheu.
Cecil er frændi Adríans, glæsilegur
og sjálfsöruggur. Hann kvænist
Rósamundu.
Þessar systur voru mjög ólíkar, en
áttu þó svo margt sameiginlegt í
fari sínu, að mennirnir, sem urðu á
vegi þeirra hrifust af þeim báðum.
Verð kr. 298,90.
Skuggsjá.
Rírek
Shcrloch fjolmcii 1
Heildarútgáfa
af
Ævintýrum
Sherlock
Holmes
Ein þekktasta sögupersóna bók-