Þjóðviljinn - 10.12.1982, Síða 12

Þjóðviljinn - 10.12.1982, Síða 12
\Z StÐA — Bókablað Þjóðviljans verki í lífi og starfi sveitafólks. Hér áður fyrr fluttu þeir mjólkina frá bændum til mjólkurbúa eins og enn þann dag í dag en þeir gerðu meira; þeir útréttuðu fyrir bændur, keyptu fyrir þá áburð, mat og jafn- vel tvinna og saumnálar fyrir hús- freyjurnar. Stundum þurftu þeir að borga víxla og þannig voru þeir í senn sendlar og bjargvættir bænd- anna. Þeir börðust áfram í hríð og ófærð og lögðu nótt við dag til að koma varningi sínum í áfangastað. í bókinni er sagt frá bernskuárum Kaupfélags Árnesinga og Mjólkur- bús Flóamanna og er bókin sér- stætt framlag til sunnlenskrar sagnaritunar, hún fjallar um ein- stakt tímabil í atvinnusögu þjóðar- innar. Mikill fjöldi ljósmynda prýðir bókina og henni fylgir ítar- leg nafnaskrá. Verð kr. 617.50. Bókaforlag Odds Björnssonar ÍSLENSKIR SAGNAÞÆTTIR íslenskir sagnaþættir l.bindi Þættir þeir er hér birtast eru valdir með það fyrir augum að allir fái til aflestrar eitthvað við sitt hæfi. Þátt- unum er það sameiginlegt að vera skemmtilegir og höfða til allra þeirra er unna þjóðlegum fróðleik. I þessu bindi Islenskra sagnaþátta eru m.a. þessir þættir Sagnaþættir 5 frásagnir - Náttúru- hamfarir 4 frásagnir - Einkennileg- ir menn 7 frásagnir - Sagnir af Tyrkjaráninu 1627 - Sagnir af úti- legumönnum 3 frásagnir - Þjóð- sagnaþættir með 17 sögum. Verð kr. 398,90. Hildur. HANNES PÉTURSSON MISSKIPT ER MANNA HEIMILDAÞÆTTIR I Misskipt er manna láni Misskipt er manna láni hefur að geyma fimm heimildaþætti eftir Hannes Pétursson, einn listfeng- asta höfund samtímans. Allir fjalla um fólk sem bjó í Skagafirði á síð- ustu öld og fram á þessa. Tveir þættir sem varða Bólu-Hjálmar. Hver var móðir hans? Hér er svipt burt þeirri hulu sem yfir henni hef- ur verið og kemur þá nokkuð ó- vænt í ljosl Misskipt er manna láni er vönduð bók í hvívetna, byggð á traustum heimildum og.farið um þær höndum af íþrótt hins listfenga höfundar. Verð kr. 448.30. löunn. LANI Landið og landnáma Landið og landnáma nefnist tveggja binda ritverk eftir dr. Harald Matt- híasson á Laugarvatni. Bækurnar eru í fagurlega skreyttum kassa. Alls eru þær rúmlega 600 blaðsíð- ur, auk 13 stórra korta er sýna fjölda landsnámsjarða. Ernst Bachmann myndskreytir bækurnar og sækir hann fyrirmyndir sínar í frásagnir Landnámu. Viðfangsefni bókarinnar er staðfræði Land- námabókar, samanburður á texta Landnámu og landinu sjálfu. Höf- undur ferðaðist skipulega um land- ið í fjögur sumur til þess að ljúka verkinu, en í raun var hann búinn að vinna að þessu verki í fjölmörg ár. Fullvíst má telja að héðan í frá verði aldrei svo til Landnáma eða hún notuð að ekki verði samhliða stuðst við þessa bók. Verð kr. 1.198.00 Örn og Örlygur FrrmffwafAustutÍami 2. bíncii Geymdar stundir Ármann Halldórsson Frásagnir af Austurlandi Þessi bók er annað bindi frá- sagnaþátta af Austurlandi, sögu- svið að mestu milli Langaness og Lónsheiðar. Elstu atburðir sem fjallað er um, gerðust á söguöld, aðrir á 18., 19. og 20. öld. Iþessu bindi eru 22 þættir eftir jafnmarga höfunda og einn eftir þrjá. Einn höfundanna er færeyskur en hinir íslenskir, flestir Austfirðingar. Á síðastliðnu ári kom út fyrsta bindi þessa safnrits. Ármann Hall- dórsson hefur valið og búið til prentunar. Það er trygging fyrir góðu vali og vönduðu vinnubrögð- um. Verð kr. 345,80. Víkurútgáfan mjTsygj mmm riMíil G!lS GUÐMUNDSSON Frá ystu nesjum III Gils Guðmundsson Lokabindi þessa fróðlega og skemmtilega safns vestfirskra þátta. Hér eru m.a. þættir um Ög- urbændur, Bændur í Önundarfirði, Ætt Guðmundar á Selabóli, Goða- foss-strandið 1916 og björgunaraf- rek Látramanna, Útveg Arnfirð- inga á ofanverðri 19. öld, Sighvat Borgfirðing og löng ritgerð höf- undar um Ólaf Þ. Kristjánsson. Fyrri bindi ritsins eru enn fáanleg. Verð kr. 444.60. Skuggsjá. LANDID Þirr ÍSLAND Landið þitt ísland Landið þitt, ísland, þriðja bindi, L-R, eftir Þorstein Jósefsson og Steindór Steindórsson . með sér- stökum Reykjavíkurkafla eftir Pál Líndal. Þetta bindi er nokkru stærra en hin fyrri, eða 340 bls. í því eru alls 295 litmyndir af ýmsu tagi, margar frá fyrri öldum og sumar hafa aldrei áður birst á prenti. Eins og flestum er kunnugt er ritverkið byggt upp í stafrófsröð. Kaflinn um Reykjavík er einnig byggður upp í stafrófsröð. Fyrsta uppsláttarorðið er Aðalstræti en það síðasta Öskjuhlíð. Höfundur Reykjavíkur-kaflans, Páll Líndal, er af mörgum sem til þekkja talinn fróðastur núlifandi manna um sögu Reykjavíkur. Uppbygging og framsetning Reykjavíkurkaflans er með þeim hætti að telja verður til algerra nýmæla. Verð kr. 1.298.00 Örn og Örlygur Þjóðsögur og þættir II Einar Guðmundsson Einar Guðmundsson kennari er einn afkastamesti síðari tíma manna við söfnun og varðveizlu þjóðlegs fróðleiks. í þessu safni hans eru sögur, ævintýri og kveð- skapur hvaðanæva að af landinu. Einar er orðhagur vel og hefur frá- bært vald á íslensku máli og er auk þess ágætlega snjall sögumaður. Þetta safn hans er góður viðauki við þjóðsögur og þætti annarra safna og mun mörgum aufúsugest- ur. Verð kr. 444.60. Skuggsjá. Ljóöabœkur Svartur hestur í myrkrinu Nína Björk Árnadóttir í fimmtu ljóðabók Nínu Bjarkar eru bæði myrk ljóð um innri reynslu og opin ljóð um ytri atvik, og skáldið sem talar bæði fyrir sína hönd og annarra. Almennt verð kr. 185.25. Félags- verð kr. 157.45. Ferðin til sólar ' Hjördís Einarsdóttir: Ferðin til sólar er fyrsta ljóðabók Hjördísar Einarsdóttur. í bókinni eru 27 órímuð ljóð og fjalla þau um viðbrögð höfundar við að flytjast úr borginni í sveit. Ferðin til sólar er 41 bls. Kápu- teikningu gerði Lísbet Sveinsdóttir bókin er sett og prentuð í Vfldngs- prenti og bundin hjá Bókfelli hf. Verð kr. 185.25. Bráðum kemur betri tfð... Halldór Laxness: í tilefni af áttræðisafmæli Hall-, dórs Laxness 23 april sl. gaf Helga- fell út viðhafnarútgáfu af úrvali ljóða hans. Bókin Bráðum kemur betri tíð... hefur að geyma 25 Ijóð, sem Kristján Karlsson valdi og Ragnheiður Jónsdóttir myndlist- armaður gerði grafíkmyndir við ljóðin. Bókin er litgreind og prentuð í prentsmiðjunni Grafík og bundin í Bókfelli. Bókin er 79 bls. Verð kr. 580.45 PRIGOIA ÍSAK HARDARSON Þriggja orða nafn Verðlaunabók Almenna bókafél- agsins í bókmenntasamkeppni sem útgáfan efndi til á 25 ára afmæli sínu. ísak Harðarson fæddist í Reykjavík hinn 11. ágúst 1956 kl. 12.52 e.h. Hann er að heiman. Þriggja orða nafn. Fyrsta bók hins unga höfundar. Sérstæð ljóð, djúp og þróttmikil. Alvöruþrungin leit ungs manns að tilgangi. Glæsilegt byrjandaverk upprennandi skálds. Verð kr. 296.40 BRAGI SIGURJÓNSSON Sunnan Kald- baks Höfundur: Bragi Sigurjónsson Áttunda ljóðabók eins ástsæl- asta skálds Norðlendinga. Ljóðin geyma eftirminnilega túlkun á mörgum eilífðarmálum mannlífs og skáldskapar. Einnig eru nokkr- ar þýðingar erlendra ljóða í bókinni. Verð kr. 272.00 Mál og menning Helgafell Helgafell Almenna bókafélagið Skjaldborg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.