Þjóðviljinn - 22.12.1982, Síða 5
Miðvikudagur 22. desember 1982 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 5
Helgi Eiríksson, rafvirkjameistari hefur opnað nýja rafmagnsvöruverslun
að Síðumúla 21, og nefnist verslunin Ljósafl. Verslunin er gegnt Friðrik
Bertelsen og í henni verða á boðstólum Ijós, lampar og hvers konar
ratlagnaefni. - Helgi Eiríksson í verslun sinni.
Stofnun Árna Magnússonar gefur út:
Bókin um kvennaframboðin:
Ekki á vegum
Kvennaframboðs!
Vegna bókar sem nýlega kom út
á vegum Arnar og Örlygs hf. eftir
Guðmund Sæmundsson um
Kvennaframboðin í Reykjavík og á
Akureyri, hefur Kvennaframboðið
í Reykjavík sent frá sér yfirlýsingu
þar sem tekið er fram að umrædd
bók sé samtökunum algerlega
óviðkomandi. í bréfi til bókaútgáf-
unnar segir:
„Kvennaframboðið í Reykjavík
vill hér nreð staðfesta það sem fram
kom í samtali undirritaðra við full-
trúa útgáfunnar 30. sept. s.l.: Bók
Guðnrundar Sæmundssonar um
Kvennaframboðin senr koma rnun
út hjá útgáfu yðar á næstunni, er
Kvennaframboðinu í Reykjavík
gjörsamlega óviðkomandi og á
engan hátt unnin í samvinnu við
það."
-v.
Landbúnaðarráðherra skipar tvær
Landbúnaðarráðherra hefur ný-
lega skipað tvær nefndir, sem ætlað
er að ljalla um ákveðin mál er
snerta landbúnaðinn.
1 annarri nefndinni eiga þeir sæti
Bjarni Bragi Jónsson. hagfræðing-
ur, formaður, Ingi Tryggvason,
formaður Stéttasambands bænda,
Jón Ólafsson, bóndi Eystra-
Geldingaholti, Sigurður Líndal.
bóndi Lækjamóti og Sigurður Sig-
urðsson, bóndi Brúnastöðum.
Nefndinni er ætlað að kanna fjár-
hagslega afkontu bænda og athuga,
nreð hliðsjón af árferðisáföllum,
sem landbúnaðurinn hefur orðið
fyrir, hvort greina megi misjafna
afkomu hjá bændurn milli lands-
væða og hvort munur sé á afkomu
bænda eftir því hvaða búgrein þeir
stunda.
Hina nefndina skipa þeir Egill
Bjarnason, ráðunautur, formaður
Árni Jónsson, erindreki, (en
varamaður hans er Þorvaldur Þór-
arinsson bóndi á Þóroddsstöðum)
og Magnús Sigurðsson, bóndi á
Gilsbakka. Skal nefndin athuga
möguleika á svæðisbundnum frarn
leiðslutakmörkunum í nautgripa-
og sauðfjárrækt er komi að hluta
eða að fullu í stað hins einstaklings-
bundna kvótakerfis, sem nú gildir.
Nefndinni er og ætlað að gera sanr
anburð á kostum og göllum, sem
hugsanlegir eru við þessi kerfi
hvort fyrir sig. Samhliða starfi
nefndarinnar er stefnt að því að
vinna nánar úr gögnum þeirn, sem
fyrir liggja hjá Búnaðarfélagi ís-
lands um búrekstrarhæfni ein-
stakra jarða. -mhg
Hljómplata sem gleöur
Dreifing: Steinar hf.
Útgáfan
SKÁLHOLJ Ss"927
Jólasálmarnir, sem ALLIR kunna á einni hljómplötu, — í trábærum
flutningi 3ja kóra og ellefu hljóöfæraleikara.
Platan sem kemur öllum í hátíðarskap.
Fæst á útsölustöðum um land allt.
REIÐI
GUÐS
eftir hinn þekkta
spennusagnahöfund
James Graham!
Hverjir eru
Emmet Keogh
ungi byssumaðurinn
og Oliver van Horn,
presturinn
með vélbyssuna?
Gátu þeir neitað
þegar
Bonilla höfuðsmaður
sagði við þá:
„Finnið og drepið
Tómas de la Palta
eða þið verðið
leiddir fyrir
aftökusveitina“?
Flateyjarútgáfan
S 37494
Um uppruna
Sverris sögu
Stofnun Árna Magnússonar hef-
ur nýlega gefið út bók um sögu
Sverris konungs Sigurðarsonar (d.
1202). Höfundur bókarinnar er Lár-
us H. Blöndal fyrrum borgarskjala
vörður. Bókin heitir Um upp-
runa Sverris sögu og er ávöxtur
margra ára rannsókna og liefur
höfundur áður birt nokkurn hlutu
ritgerðar sinnar í afmælisriti Sig-
urðar Nordals 1951. Sverris saga er
í flokki elstu konungasagna og hún
hefur verið sanrin á nreðan þeir at-
burðir sem þar segir frá voru enn i
fersku minni. Samkvænrt formála
sögunnar var heimildarmaðúr unr
upphaf sögunnar Sverrir konungur
sjálfur, en sá senr ritaði var Karl
Jónsson ábóti í Þingeyraklaustri
:(d. 1213). En þess er og getið þar
hð fléiri samtíðarnrenn hafi sagt
frá. Höfuðhandrit sögunnar eru
fjögur og er eitt þeirra Flateyjar-
bók, sem hefur fornrálann í sér-
stakri j>erð. Ummæli fomrála í þess-
um tveim gerðunr eru að sumu leyti
óljós og hafa orðið fræðimönnunr
drjúgt unrræðuefni frá því sagan
konr fyrst út á prenti árið 1813. Allt
þetta efni hefur Lárus tekið til
rækilegrar endurskoðunar og gerir
hér grein fyrir röksemdum sínunr
og niöurstöðunr um ýnrsa þætti
sögunnar. Bókin er nreð nafnaskrá
og ensku ágripi sanrtals 220
blaðsíður.