Þjóðviljinn - 22.12.1982, Page 11

Þjóðviljinn - 22.12.1982, Page 11
Miðvikudagur 22. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Umsjón: Víðir Sigurðsson Strand sigraði Stenmark Svíinn ungi, Stig Strand, bar sig- urorð af granna sínum frá Tarneby í Svíþjóð, Ingemar Stenmark, í svigakeppni heimsbikarins á skíðum, á ítalíu í gær. Strand, sent var 4. í röðinni eftir fyrri um- ferðina, var 1.24 sekúndum á undan Stenmark. Phil Mahre frá Bandaríkjunum var í 3. sæti. vs Tómas og Ragnhildur hafa tekið forystuna Punktamót í borðtennis á vegum ' Arnarins var haldið í síðustu viku. Tómas Guðjónsson, KR sigraði í meistaraflokki karla cn Ragnhildur Sigurðardóttir, UMSB í meistara- flokki kvenna. Tómas lék til úrslita við nafna sinn Sölvason úr KR og vann 21- 13, 18-21,21-16. .Þriðji varð Hilm- ar Konráðsson. Víkingi. Tómas Guðjónsson hefur því 30 punkta, Tómas Sölvason 21, Hilmar og Jó- hannes Hauksson úr KR 7 punkta hvor. Ragnhildur sigraði Ástu Ur- bancic, Erninum, í úrslitaleik 21-17 og 21-17. Priðja varð Kristín Njáls- dóttir, UMSB. Ragnhildur hefur 9 punkta, Ásta 4, Kristín og Hafdís Ásgeirsdóttir, KR 2 punkta hvor. - VS. Ólafur Danivalsson, fyrrum leikmaður með Val og FH, hefur að undanförnu mætt á æfingar hjá 3. deildarliði ÍK í knattspyrnu. Lík- legt er að hann gangi til liðs við Kópavogsfélagið en hann hefur leikið með FH tvö síðustu árin. Dagbjartur Pálsson, FH og Óttar Armannsson, Þrótti Neskaupstað, hafa einnig æft með ÍK uppá síð- kastið með félagaskipti í huga. Þá er útvarps- og blakmaðurinn kunni, Samúel Örn Grlingsson, ný- ráðinn íþróttafréttaritari Tímans sem lék með Þór Þorlákshöln sl. sumar, einnig sterklega orðaður við Kópavogsliðið. - VS. HoUand sagðisex Hollcndingar styrktu stöðu sína í 6. riðli Evrópukeppni landsliða í knattspymu á sunnudag er þeir sigr- uðu Möltu 6-0 í Aachen í Vestur- Þýskalandi. Þetta taldist heima- leikur Möltu, sá síðari af tveimur sem þeir þurftu að leika utan síns heimalands vegna skrílsláta á leik gegn Pólverjum fyrir tæpum tveimur árum. Sá fyrri var gegn íslandi á Sikiley í sumar. Staðan í 6. riðli: Holland..............3 2 1 0 9-2 5 írland...............3 1116-53 Spánn................2 110 4-33 Malta................2 10 12-72 ísland...............4 0 1 3 2-6 1 Næst mætast Spánverjar og Hol- lendingar þann 16. febrúar 1983. - VS. Ingi með nýjan samning Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrr- um þjálfari íslenska landsliðsins í handknattlcik, hefur skrifað undir samning við vestur-þýska 1. dcildarliðið Kiel sem gildir til árs- ins 1985. Jóhann Ingi tók við liðinu í haust og hefur árangur þess undir hans stjórn vakið gífurlega athygli í Vestur-Þýskalandi. Ferð körfuknattleikslandsliðsins 21 árs og yngri til Bandaríkjanna: Rússar vekja athygli 17 ára piltur talinn með þeim bestu í heiminum Sovéska landsliðið í körfuknatt- leik hefur að undanförnu vcrið á keppnisferðalagi urn Bandaríkin og vakið gífurlega athygli. Það hefur leikið um 80 leiki gegn sterkum liðum og sigrað meira en helming þeirra. Evrópulið hafa staðið sig svo vel gegn atvinnumönnunum þar vestra, t.d. þegar Júgóslavar voru nýorðnir heimsmeistarar unnu þeir ekki leik í svipuðu ferða- lagi. Mesta athygli hefur þó beinst aö 17 ára gömlum pilti í sovéska liðinu seni er heil 7 fet á hæö og ótrúlega góður. Bandaríkjamenn fullyrða að hann sé þegar kominn í hóp 10 bestu körfuknattleiksmanna heimsins og slíkt lof er fáheyrt um 17 ára ungling. Sovétmenn hafa yngt rnikið upp liðið hjá sér og það þykir geysiöflugt eins og árangur þeirra í ferðinni ber með sér. - VS. Drengjaliðinu boð- ið til Hollands íslenska drengjalandsliðinu í körfuknattleik, sem tekur þátt í Evrópukeppninni hér á landi um páskana. hefur verið boöiö til 1 lol- lands í lok janúar. Þar mun það leika þrjá landsleiki við heima- menn. Miklar vonir eru bundnar við þenna aldurshóp, 14-15 ára, innan körfuknattleikshreyfingar- innar, og veröur fróðlegt að fylgj- ;ist með gengi hans í vetur. Bæði drengja- og unglingalands- liðið, 16-18 ára, æfa nú af fullum krafti. Unglingalandsliðið tekur sem kunnugt er þátt í Noröur- landamóti sem hefst þann 6. janúar i Árósum í Danmörku. - VS. Keegan vill leika tíl enda með Newcastle • Enski knattspyrnusnillingurinn, Kevin Keegan, sem meiddist í auga í síðastá mánuði er byrjaður að æfa á nýjan leik. Hann segist hafa full- an áhuga á að enda feril sinn hjá Newcastle er samningur hans við félagið rennur út í vor. Einn leikur var í ensku bikar- keppninni í fyrrakvöld. Plymoth vann Bristol Rovers 1-0 og mætir Walford á útivelli í 3. umferð. - VS Hans Krankl en kyrr Austurríska kanttspyrnufélagið Rapid Wien segir ekki rétt að Hans Krankl sé farinn frá félaginu til Barcelona á Spáni. Samingavið- ræður standi enn yfir. Barcelona vill fá Krankl í stað Diego Mara- dona sem þjáist af lifrasjúkdómi. VS Valur Ingimundarson frá Njarðvík kom mikið við sögu í ferð körfuknatt- leikslandsliðsins 21 árs og vngri til Bandaríkjanna. „Betra en að lelka tvo til þrjá landsleiki í Evrópu” „Þetta var skemmtileg ferð og mikið af henni að læra. Þarna var æft á hverjum degi og leiknir þrír leikir við háskólalið í Chicagg. Allir töpuðust með litlum mun og strákarnir stóðu sig vel. í framtíðinni stefnum við að því að halda við 21 árs landsliði og láta það hafa a.m.k. eitt verkefni á ári. Piitar sem eru gengnir upp úr unglingalandsliði fá þarna mikilvæga reynslu og bilið á milli þess og A-landsliðsins er brúað að nokkru leyti“, sagði Einar Bollason, þjálfari landsliðsins 21 árs og yngri í körfuknattleik sem kom heim úr keppnisför til Bandaríkjanna seint í fyrrakvöld þegar Þjóðviljinn ræddi við hann ígær. Fyrsta leiknuni í ferðinni töpuðu piltarnir naumlega, 70-73, en við sögðum frá honum í föstudagsblað- inu. Á laugardag var leikið við Rockford-háskóla, sem er meistari Chicago-deildarinnar fyrir minni háskóla. Rockford sigraði 91-82 og var það, aö sögn Einars, besti leikur íslenska liðsins í ferðinni. Valur Ingimundarson skoraði 23 stig, Pálmar Sigurðsson 18, Axel Nikulássón 16, Jón Kr. Gíslason 11 og Ólafur Rafnsson 6 en aðrir minna. Á sunnudag var svo leikið við Harper-háskóla sem er talinn eiga 13. besta skólalið Bandaríkjanna. Harper sigraði 74-70. Gylti Por- kelsson var meiddur og liðið því miðherjalaust en þá brá Torfi Magnússon fararstjóri sér í keppn- isbúning; gerði sér lítið fyrir og varð stigahæstur með 21 stig. Piltarnir fylgdust með æfingu hjá atvinnumannaliðinu Chicago Bulls og ræddu við teikmenn liösins. 'Fjórir íslensku piltanna, Jón Kr., Pálniar, Axel og Valur eru í A- landsliðshópnum og taldi Einar þá Fararstjórinn brá sér í keppnis búning í lokaleiknum og varð stigahæstur! hafa fengið mikilvæga reynslu i þessari ferð fyrir Polar Cup seni fram fer eftir áramótin. Þeir teldust ekki enn til burðarása A- landsliðsins en hefðu nú fengið að kynnast því betur hvernig væri að axla þá ábyrgð sem slíku fylgir. „Það var lærdómsríkt í alla staði aö t’ara þessa ferð", sagði Einar Bollason, „út úr henni fengum við mikiö meira en ef við hefðuni farið til meginlands Evrópu og leikið þar tvo þrjá landsleiki". - VS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.