Þjóðviljinn - 21.01.1983, Síða 11

Þjóðviljinn - 21.01.1983, Síða 11
Föstudagur 21. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Withe slapp við bann Peter Withe, hinn kunni mið- herji Evrópumeistaranna í knatt- spyrnu, Aston Villa, verður ekki í leikbanni þegar félag hans mætir Juventus frá Italíu í 8-liða úrslitum Evrópukcppni meistaraliða ■ mars, eins og óttast var. Withe var bókaður þegar Villa lék við Penarol frá Uruguay í úrs- litaleik um titilinn „besta knatt- spyrnufélag heims'' í desember og talið var að UEFA, knattspyrnu- samband Evrópu, gæti dæmt hann í leikbann í Evrópukeppni vegna þess. UEFA hefur hins vegar til- kynnt Tony Barton framkvæmda- stjóra Villa að leikurinn gegn Pen- arol hafi ekki verið á þeirra vegum og því skipti bókunin ekki máli. Enda veitir Villa ekki af að vera með sitt sterkasta lið gegn stjörn- um prýddu liði Juventus sem þykir sigurstranglegt í Evrópukeppninni að þessu sinni., - VS Yflrburðir KR-stúlkna KR-stúlkurnar stefna nú hrað- byri að sigri í l.deild kvenna í körfuknattleik og hafa þær tal- sverða yfirburði í deildinni. í fyrra- kvöld unnu þær öruggan sigur á ÍS, 60—31. Á þriðjudagkvöldiðsigruðu Haukar Njarðvík 49-41 í Njarðvík en Njarðvíkurstúlkurnar unnu aftur á móti ÍS í síðustu viku 58-44. Staðan í l.deild kvenna: KR..................8 8 0 522-304 16 ÍR.................7 4 3 311-298 8 Njarðvik............8 4 4 318-408 8 Haukar..............8 2 6 338-399 4 ÍS..................9 2 7 373-453 4 -vs Valur á toppnum Valur og ÍR gerðu jafntefli, 12- 12, í þýðingarmiklum leik í l.deild kvenna á þriðjudagskvöldið. Vals- stúlkurnar eru áfram í efsta sætinu en fjögur lið eru enn með í barátt- unni um íslandsmeistaratitilinn. Staðan er nú þannig: Valur............10 7 2 1 158-122 16 ÍR..............10 7 1 2 165-133 15 Fram............. 9 6 1 2 128-105 13 FH............... 8 5 2 1 132-99 12 Víkingur......... 9 3 1 5 108-126 7 KR.............. 8 2 0 6 91-103 4 Haukar........... 8 0 1 7 88-137 1 ÞórAk........... 6 0 0 6 80-124 0 ÍS lagði Haukana Staðan í 1. deild karla í körfu- knattleik er orðin afar tvísýn eftir sigur IS á Haukum, 71-70, í gær- kvöld . Þrjú lið berjast um sigur- inn, þessi tvö lið ásarnt Þór, og gott forskot Hauka er horfið eftir tvo tapleiki í röð fyrir kcppinautum þeirra. Þeir hafa 18 stig úr 11 leikjum, Þór 14 stig úr 9 leikjum og IS 12 stig úr níu leikjum. Leikurinn í gærkvöld var jafn og spennandi allan tímann. Haukar leiddu 39-37 í hálfleik en 13 sek- úndum fyrir leikslok skoraði Gísli Gíslason 71. stig ÍS úr vítaskoti. Guðmundur Jóhannsson skoraði 23 stig fyrir ÍS, Pat Bock 22 og Gísli 15. Hálfdán Markússon skoraði 20 stig fyrir Hauka, Pálmar Sigurðs- son Í8, Jón H. Garðarsson 12, Ólafur Rafnsson og Dakarsta Webster 10 stig hvor. - VS íþróttir Umsjón: Víöir Sigurðsson Dakarsta Webster, Haukamaðurinn hávaxni, einbeittur á svip í leiknum gegn ÍS í 1. deildinni í körfuknatt- leik í gærkvöld . Sjá neðar á síðunni. Mynd: - eik. Þorbiörn með til Hollands Hilmar Björnsson landsliðsþjálf- ari í handknattleik tilkynnti í gær- kvöld hvaða leikmenn færu með liðinu til þátttöku í B-keppninni sem hefst í Hollandi 25. febrúar. Þeir eru eftirtaldir: Markverðir: Einar Þorvarðar- son, Val, Kristján Sigmundsson, Víkingi, og Brynjar Kvaran, Stjörnunni. Aðrir leikmenn: Þorgils Óttar Mathiesen, Kristján Arason og Hans Guðmundsson, FH, Jóhann- es Stefánsson og Alfreð Gíslason, KR, Guðmundur Guðmundsson og Ólafur Jónsson, Víkingi, Sig- uröur Sveinsson og Bjarni Guð- mundsson, Nettelstedt, Þorbjörn Jensson og Steindór Gunnarsson, Val, og Páll Ólafsson, Þrótti. Þorbergur Aðalsteinsson, Vík- ingi, verður 16. leikmaðurinn verði hann búinn að ná sér af meiðslun- um. - VS. ,Ekkf ósigrandí þó þeir séu góðir’ „Valsmenn eru ekki ósigrandi þó þeir séu góðir. Nú eiguin við möguleika sem við þurfum að nýta“, sagði ,4>amla“ kempan í Njarðvíkurliðinu, Gunnar Þor- varðarson, eftir að hann og félagar hans höfðu sigrað Val, efsta lið úr- valsdcildarinnar í körfuknattleik, í hörkuspennandi leik í Njarðvík í gærkvöld , 65-63. „Þetta var ekki okkar dagur, það gekk ekkert upp“, sagði Torfi Magnússon fyrir- liði Vals og þessi sigur Njarðvík- inga hleypir mikilli spcnnu í deildina. Valsmcnn hafa nú tapað þremur leikjum, Keflvíkingar ljór- um og Njarðvíkingar fimm þcgar síðari hluti mótsins er nýhafinn. Leikurinn var hraður, spennandi og skemmtilegur þó enginn sér- stakur gæðastimpill kæmist fyrir á honum. Strax í upphafi var ljóst að um hörkuleik yrði að ræða, það var mikið um mistök en baráttan var gífurleg svo stundum lá við slags- málum. Ríkharður Hrafnkelsson Valsmaður fór yfir markið 7 rnínút- um fyrir leikslok, þá var honum vísað út úr húsinu fyrir að slá Inga Gunnarsson liðsstjóra Njarðvík- inga. Njarðvíkingar leiddu í hálfleik 34-31, Valsmenn náðu yfirhönd- inni um miðjan síðari hálfleik en með góðurn kafla komust heima- ntenn í 59-50. Þegar fimm mínútur voru eftir stóð 65-55 fyrir Njarðvík en allan þann tíma sem eftir var skoraði liðið ekki eitt einasta stig og tapaði knettinum hvað eftir annað á klaufalegan hátt. „Við vo- rum búnir að æfa að halda knettin- um í svona stöðu en rnenn bara gleymdu því að þeir verða að reyna köffuskot innan 30 sekúndna", sagði Hilntar Hafsteinsson þjálfari Njarðvíkinga eftir leikinn. Vals- menn reyndust lítið niinni kláufar og þeini vannst ekki tími til að jafna þótt litlu munaði í lokin. Árni Lárusson átti stórgóðan leik í liði Njarðvíkinga og þá voru Gunnar, Valur Ingimundarson og Bill Kottermann góðir. Valur skoraði 20 stig, Bill 17, Gunnar 12, Árni 6, Ingimar 6 og Sturla 4. Tim Dwyer var bestur í daufu Valsliði, sérstaklga gekk hann vasklega framí að hirða varnar- fráköst. Ungur mennirnir Tómas I lolton og Leifur Gústafsson kom- ust ágætlega frá sínu en aðrir voru nokkuð frá því besta. Dwyer skoraði 23 stig, Ríkharður 10, Torfi 10, KristjanS, Jón4,Tómas4 og Leifur 4. _ gsm. Liverpool öruggir! Englandsmeistarar Liverpool ættu að vera svo gott sem öruggir með sæti í úrslitalcik ensku deilda/ injólkurbikarsins í knattspyrnu þriðja árið í röð. Þegar dregið var til undanúrslitanna í gær lcntu þeir gegn Burnley sem er á botni 2. dcildar en sló Tottenham svo óvænt út í fyrrakvöld. Hinn leikurinn í undanúrslit- unurn verður á milli risanna frægu, Manchester United og Arsenal. Leikið verður heima og heiman með viku millibili uni rniðbik febrúar. - VS. Garrincha Knattspyrnúsnillingurinn Garr- incha, heimsmeistari með Brasilíu- mönnum 1958 og 1962, lést í Rio de Janero í gær. Hann féH og höf- uðkúpubrotnaði og andaðist á sjúkrahúsi. Garrincha var 49 ára gamall og talinn í hópi bestu knatt- spyrnumanna heims á sínum tíma og samvinna hans við landa sína Vava og Pele var rómuð um víða veröld. - VS. Markmaðurinnfórí sóknina og skoraði síðasta markið! KR-ingar styrktu stöðu sína í keppninni um efsta sæti l.deildar karla í handknattleik í gærkvöld er þeir sigruðu Framara 26-19 í Laugardalshöllinni. KR var betri aðilinn allan tímann og hafði ráð Framara algerlega í hendi sér. Staðan í hálfleik var 13-8 KR í hag og munurinn jókst smám saman, varð mestur átta mörk, 22-14, og það var Jens Einarsson inarkvörð- ur KR sem rak endahnútinn á þennan sigur liðsins; hann brá sér í sóknina á lokasekúndunum og skoraði 26. markið með skoti rétt utan punktalínu. Það var Ijóst strax í upphafi að róðurinn yrði sérlega þungur fyrir Fram. Tveir þeirra bestu manna, Gunnar Gunnarsson og Hannes Leifsson,meiddir, og við slíkum skakkaföllum má liðið ekki. Hann- es haltrar um á hækjum en góðar fréttir eru þó að Gunnar virðist vera að ná sér, a.m.k. var hann í leikslok farinn að hita upp fyrir leik með 1. flokki. Egill Jóhannesson var í aðalhlut- verki hjá Fram lengi vel ásamt Sig- urði Þórarinssyni markverði seni varði stórvel, einkurn í fyrri hálf- leik. Þegar dofna fór yfir þeim fé- lögum seig á ógæfuhliðina hjá Frarn, helst að Erlendur Davíðsson og Hermann Björnsson ættu góða spretti, en vörnin var slök og sókn- arleikurinn einhæfur. Það er þó ekki öll nótt úti hjá Fram en það verður erfitt að vinna upp forskot Þróttar og Vals þegar að úrslita- keppninni kemur. Egill skoraði 7/1 mörk, Hermann 3, Erlendur 3, Brynjar Stefánsson 2, Jón Árni Rúnarsson, Agnar Sigurðsson, Hinrik Ólafsson og Dagur Jónas- son eitt hver. Lið KR virkaði nokkuð heilsteypt í sókn og vörn og mark- verðirnir Gísli Felix Bjarnason og Jens Einarsson vörðu eins og berserkir. Bræðurnir Gunnar og Alfreð Gíslasynir voru í aðalhlut- verkum í sóknarleiknum og þá var Guðmundur Albertsson frískur. Anders Dahl Nielsen var í gæslu Staðan: Staðan í 1. deild karla í hand- knattlcik fyrir síðustu umferð for- keppninnar: Víkingur..........13 8 3 2 282-260 19 KR................13 9 0 4 318-242 18 FH............... 13 9 0 4 348-289 18 Stjarnan......... 13 7 1 5 261-259 15 Valur............13 6 1 6 270-251 13 Þróttur..........13 5 2 6 264-272 12 Fram.............13 4 1 8 278-303 9 ÍR............... 13 0 0 13 227-372 0 Lokaumferðin um helgina: Laugardagur: Laugardalshöll - Þróttur-Valur kl. 14. Sunnudagur: Hafnarfjörður - FH-Fram kl. 14. Stjarnan-ÍR kl. 16.15. Laugardals- höll: - Víkingur-KR kl. 20. allan leikinn en laumaði inn góðuni sendingum og mörkum. KR þarf að sigra Víking á sunnudagskvöld- ið til að eiga möguleika á efsta sæt- inu; það verður erfiður róður en Vesturbæjarliðið ætti þó að eiga þar þokkalega möguleika. Gunnar var markahæstur, skoraði 9 mörk, Alfreð 6, Guðmundur 4, Anders 2, Jóhannes Stefánsson 2, Stefán Halldórsson 2 og Jens Einarsson eitt. Árni Sverrisson og Stefán Arn- aldsson dæmdu ágætlega framan af en náðu ekki að halda því striki sínu. -VS Þrótíarar koma helm Nýliðarnir í 1 .deild karla í knatt- spyrnu, Þróttarar úr Reykjavík, hafa fengið liðsauka þar sem tveir fyrrverandi leikmenn hjá félaginu hafa snúið heim á ný. Þeir eru Þorvaldur 1. Þorvaldsson og rnark- vörðurinn Ólafur Ólafsson en þeir hafa verið í herbúðum Valsmanna undanfarið. Á móti kemur að Þróttarar hafa misst Ágúst Hauks- son sem leikur í Noregi næsta sum- ar. -VS Fyrstu leikir i Helvetia Cup í dag í dag lcikur íslcnska landsliðið í badminton sinn fyrsta leik í Helvet- ia Cup, B-keppni Evrópulandsliða, sem frain fer í Bascl í Sviss um helg- ina. Leikir liðsins í kcppninni verða líklega fimm talsins og það á góða möguleika á að leika um 5.-8. sæt- ið, en það yrði betri árangur en nokkru sinni fyrr í Evrópukeppni. island er í riðli með Austur— Þjóðverjuni og Möltubúum og sig- urvegarinn leikur um 1.-4. sætið. Reiknað er með Austur-Þjóðverj- um mjög sterkum en þeir eiga á mjög góðum einstaklingum að skipa. Möltubúar hafa verið slakir undanfarin ár og ættu ekki að verða mikil fyrirstaða. Undan- keppnin fer t'ram í dag en úrslita- keppnin á morgun og sunnudag.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.