Þjóðviljinn - 26.01.1983, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 26. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Dæmi um
útreikning
samkvæmt
meðaltali
Á forsíðu blaðsins í dag er greint
frá því að samkomulag sé í sjónmáli
um svonefnda meðaltalsaðferð við
úthlutun þingsæta. Dæmi um þessa
aðferð gæti verið á þessa leið:
í kjördæmi X eru greidd 6000 at-
kvæði. í kjördæminu eru 6 þing-
menn. Deilt er með þingmannatöl-
unni 6 í heildaratkvæðatöluna.
Þannig verður meðaltal atkvæða á
at-
bakvið hvern þingmann 1000
kvæði í þessu kjördæmi.
Framboðslistarnir eru fjórir:
A-listi 900 atkv. 0.9 einn þing-
1000 atkv. 1.0 einn þing-
2300 atkv. 2.3 tveir þing-
1800 atkv. 1.8 tveir þing-
maður
B-listi
maður
D-listi
menn
G-listi
menn
Þá er byrjað á að deila þing-
mannsvísinum 1000 í atkvæðatölur
allra listanna. D-listi fengi 1. þing-
ntann, G-listi fengi annan þing-
mann, D-listi fengi þriðja þing-
mann og B-listi fengi fjórða þing-
mann. A-listi fengi fimmta þing-
manninn í þessu dæmi og G-listinn
sjötta þingmanninn.
-óg
í dag kl. 10 árdegis
Fundur sérfræðinga
um snjóflóðavarnir
„Það var skömmu eftir síðustu
áramót að félagsmáiaráðherra á-
kvað að kalla saman hóp sér-
fræðinga til að ræða snjóflóð og
snjóflóðavarnir og athuga hvort ekki
þurfi að samræma lög um þessi mál
og hugsanlega hvort setja þurfi
nýja heildarlöggjöf um þessi nátt-
úrufyrirbrigði. Þessi starfshópur
kemur einmitt til fyrsta fundar nú
kl. 10 í dag“, sagði Hallgrímur Dal-
berg ráðuneytisstjóri í samtali við
Þjóðviljann.
Það var skömmu fyrir síðustu jól
að Svavar Gestsson félagsmálaráð-
herra bað um skýrslu um snjóflóð,
snjóflóðahættu og varnir gegn
snjóflóðum og eru þar rakin af-
skipti félagsmálaráðuneytisins af
þessum málum. Allt síðan snjó-
flóðin féllu yfir Neskaupstað í des-
ember 1974 hafa verið í gangi rann-
sóknir á snjóflóðum á vegum
Rannsóknarráðs ríkisins.
Á fundinum í dag með ráðherra
munu m.a. koma fulltrúar frá
Rannsóknarráði, Veðurstofu ís-
lands, Viðlagatryggingu íslands,
Almannavörnum, Rannsóknar-
stofnun byggingariðnaðarins,
Sambandi íslenskra sveitarfélaga
og fleiri aðilum.
Leiðrétting:
Kvennaframboð
og sundstaðir
I frétt Þjóðviljans í dag er sagt
frá bókun fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins í íþróttaráði, þar sem hann
mótmælti hækkun á aðgangi að
sundstöðum borgarinnar. í frétt-
inni er sagt að hann hafi ekki fengið
stuðning fulltrúa V-listans. Vegna
þess vill Kvennaframboðið taka
fram eftirfarandi
Kvennaframboðið í Reykjavík á
engan fulltrúa í íþróttaráði, þar sit-
ur í minni hluta auk fulltrúa Abl.
framsóknarmaðurinn Sveinn Jóns-
son. Hann túlkar stefnu síns flokks
og einskis annars. Þegar samið var
um sameiginlegt framboð Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks og
Kvennaframboðs til nefnda borg-
arinnar fylgdi því engin málefna-
samstaða og því hafði V-listinn (þ.e.
Kvennaframboðið) ekkert um það
að segja sem gerðist í íþróttaráði.
Hins vegar flutti Kvennaframboð-
ið tillögu í borgarstjórn þegar
fjárhagsáætlun borgarinnar var til
umræðu, um að aðgangseyrir að
sundstöðum borgarinnar stæði
undir sama hlutfalli rekstrar og ár-
ið 1982, þ.e. hækkaði aðeins í hlut-
falli við verðbólgu. Alþýðubanda-
lagið sem stóð að bókun í íþrótta-
ráði flutti enga tillögu í borgar-
stjórn um aðgangseyri að sund-
stöðum.
í von um leiðréttingu.
f.h. Kvennaframboðsins
í Reykjavík.
Kristín Ástgeirsdóttir
er komiö út
Meðal efnis:
Viötal viö Stuömann
Grein um VIDEO
Grein um GODARD
og fl. og fl.
Fæst á næsta
blaðsölustað
Verö kr. 60
9. umferð skákmótsins í Wijk Aan Zee
Friðrik vann Seirawan
— teflir við Kortsnoj á morgun
Fciðrik Ólafsson náði sér vel á
strik á skákmótinu í Wijk Aan Zee
þegar hann vann bandaríska stór-
meistarann Yasser Seirawan í 9.
umferð mótsins sem tefld var í gær-
kvöldi. Tefldi Friðrik af mikilli
hörku og knúði Bandaríkjamann-
inn til uppgjafar í 37 leikjum. Önn-
ur úrslit í 9. umfcrð urðu þau, að
Browne vann Hulak, Kuligowski
vann Speelman og jafntefli gerðu
Anderson og Hort og Ree og Nunn.
Skák Van der Wicl og Kortsnoj fór í
bið og einnig skák Sheeren og
Riblis.
Þar sem úrslit 7. og 8. umferðar
féllu út úr blaðinu í gær vegna
mikilla þrengsla verða þau rakin
hér aftur. 7. umfcrð: Ree vann Hu-
lak, Van der Wiel vann Friðrik og
jafntefli varð í skákum Browne og
Horts, Kuligowski og Riblis, Spe-
elman og Nunn, Kortsnoj og She-
eren og Seirawan og Anderson.
8. umferð: Speelman vann Ree,
Anderson vann Kortsnoj, Van der
Wiel vann Seirawan og Nunn vann
Friðrik. Þess má geta að inflúens-
ufaraldur gengur nú yfir Holland,
svokölluð Hong-kong-inflúensa og
fékk snert af flensu þessari. Kom til
tals að skákurn hans í 7. og 8. um-
ferð yrði frestað, en ekkert varð úr.
Staðan eftir 9 umferðir er þessi:
I. Anderson 6V: v. 2. Nunn 57: v. 3.
Ribli 5 v.+ 1 biðskák. 4.-6. Frið-
rik, Hort og Browne 5 v. 7-.8.
Seirawan og Hulak 47: v. 9. Ree 4 v.
10. Van der Wiel 37: v + 1 biðskák.
II. Kuligowski 37: v. 12.-13. Kort-
snoj og Sheeren 3 v. + 1 biðskák.
14. Speelman 3 v.
Og þá er það glæsileg vinnings-
skák Friðriks:
Hvítt: Friðrik Ólafsson
Svart: Yasscr Seirawan
Tarrasch-vörn
1. Rf3 Rf6
2. c4 c5
3. Rc3 e6
4. e3 d5
5. d4 a6
6. dxc5 Bxc5
7. a3 0-0
8. b4 Ba7
9. Bb2 Rc6
10. Hcl De7
11. b5 axb5
12. Rxb5 Bb8
13. cxd5 Rxd5
14. Bd3 Rf6
15. Dc2 e5
16. Rd2 Ild8
17. Re4 Rg4
18. h3 Dh4
19. 0-0 Rh6
20. Rg3 Kh8
21. Hfdl Hf8
22. Be4! Be6
23. Bxc6 bxc6
24. Dxc6 Da4
25. Re4 Ha6
26. Db7 Da5
27. Bc3 Db6
28. Dxb6 Hxb6
29. Bb4 Hg8
30. Rbc3 Rf5
31. Rc5 Rh4
32. Rxe6 Hxe6
33. Hd7 Hg6
34. g3 f5
35. Rd5 Hg5
36. Be7 Rf3+
37. Kg2
8 6 fHf s
7 ■ B&a Mk
6 11 111 11 li
5 ■
4 ||p ÍÍP |gp
3 a ■ BftBÁ
2 H ■ A'é’ |
1 ■ m m m
abcdefgh
- og í þessari stöðu gafst Seirawan
upp.
10. umferð verður tefld í dag og
þá mætir Friðrik Kortsnoj og hefur
svart. _ hól.
<5 tÁ
OíðsrAt\
toet-é^
Athyglí þeírra lántakenda, sem inna áttu af hendí
ársgreíðslur af íbúðalánum sínum
í nóvember-mánuðí sl., skal vakín á því,
að 5% dráttarvextír leggjast á þær í mánuðí hverjum sem
líður án þess að þær séu greíddar.
Eru því samtals 15% dráttarvextír komnir
v á þær ársgreiðslur, sem verið hafa í
vanskilum frá því í nóvember-mánuði sl.,
og munu þeír hækka í samtals 20% hinn 2. febrúar nk.
Þá skal einnig vakin athygli
á því, að í febrúar-mánuði nk.
verða ársgreiðslur þær,
sem verið hafa í vanskilum frá því í nóvember 1982,
sendar fógeta til innheimtu.
Mun það leiða til enn aukins kostnaðar
íyrir lántakendur ef ekki verður að gert í tæka tíð.
Lántakendur eru því eindregið hvattir til að ínna af hendi
ársgreiðslur sínar hið allra fyrsta og láta það ekki
dragast lengur en orðið er.
^Húsnæðisstofnun ríkisins