Þjóðviljinn - 26.01.1983, Síða 16
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382,81482og81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgrciðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími aigreiðslu 81663
Vigdís hjá Listasmiðjunni
StarfshópurListasmiðjunnarágeödeildBorgar- meðfylgjandi mynd tekin er forseti íslands frú
spítalanshefursettuppsýninguíNýlistasafninu. Vigdís Finnbogadóttir heimsótti sýninguna á
A sýningu sýna 7 einstaklingar verk sín. Var dögunum. (ljósm. Atli)
Vegaskemmdir
um allt land
Varla hægt að gera við vegi nema til bráðabirgða
mÚÐVSUlNN
Miðvikudagur 26. janúar 1983
Skákþing Reykja-
víkur eftir
sjö umferðir:
Elvar
hefur
unnið
allar
sínar
skákir
Elvar Guðmundsson er nú á
góðri leið með að stinga aðra kepp-
endur af á Skákþingi Reykjavíkur
sem nú stendur yfir í féiagsheimiii
Taflfclags Reykjavíkur að
Grensásvegi. Að loknum 7 um-
ferðum hefur hann unnið allar
skákir sínar þ.á.m. gegn hættuleg-
asta keppinaut sínum Hauki Ang-
antýssyni.
Haukur Angantýsson og Dan
Hansson hafa hlotið 6 vinninga og
eru í 2. - 3. sæti.
Mikla athygli vekur frammistaða
Guðlaugar Þorsteinsdóttur sem er í
4. - 9. sæti með 5'A vinning. 572
vinning hafa einnig hlotið Sveinn
Kristinsson, Óskar Bjarnason,
Hrannar Jónsson og Þröstur Ein-
arsson.
8. umferð verður tefld í kvöld og
þá mætir Elvar Guðmundsson Dan
Hansson. -hól.
Elvar Guðmundsson - 7 vinningar
af 7 mögulegum!
Um allt land hafa orðið miklar
vegaskemmdir og alls ekki full-
kannaðar enn, og það sem verra er
að snjóað hefur víða í dag, þar sem
skemmdir hafa orðið, þannig að
erfitt getur orðið að sjá hvörf og
skörð í vegi, sagði Hjörleifur Ólafs-
son, hjá vegacftirliti Vegagerðar-
innar í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Hjörleifur sagði að á tveimur
stöðum hefðu orðið verulegar veg-
askemmdir í vatnsveðrinu um helg-
ina, fyrir austan Hellu á Rang-
árvöllum og hjá brúnni yfir Bjarna-
dálsá í Norðurárdal. Á þessum
tveimur stöðum hefðu orðið hvað
mestar skemmdir, en smáskörð,
skemmdir á ræsum og hvörf í vegi
væru um allt land. Þá hefði víða
runnið úr vegaköntum og mætti
segja að flestir vegir væru afar var-
hugaverðir yfirferðar um þessar
mundir.
Ekki er hægt að framkvæma
fullnaðarviðgerð á mörgum stöð-
um fyrr en í sumar; yrði að láta
bráðabirgðaviðgerð duga þangað
til.
Þá sagði Hjörleifur ennfremur
að víða hefði vatn komist niður á
klaka í vegum og myndað holrúm,
og gæti yfirborðið því brostið hve-
nær sem er. Þetta gæti verið hættu-
legt ökumönnum og farþegum bif-
reiða ef ógætilega er farið. Viðgerð
vega hefst um leið og vatn hefur
sjatnað, en þó dregið hafi nokkuð
úr flóðunum er fjarri því að vatn sé
allsstaðar farið af vegum.
-S.dór
Iceland
Seafood Ltd:
Tvöföld sala
á 2 árum
Fisksölufyrirtæki Sambands-
manna í Bretlandi, Iceland Seafood
Ltd., seldi á sl. ári 5.590 lestir af
frystum sjávarafurðum fyrir .rúm-
lega 6 milj. sterlingspunda, að sögn
Benedikts Sveinssonar, framkvstj.
Verðmætaaukningin var 69 af
hundraði og magnaukningin um 30
af hundraði frá árinu áður.
Hærra hlutfall seldist af verð-
mætum fisktegundum en fyrr.
Rækjusalan fjórfaldaðist og sala á
frystum botnfiskafurðum jókst
mun meira en sala á frystri síld.
Fyrirtækið tók til starfa á árs-
byrjun 1981. Á þessum tveimur
árum hefur sala frystra sjávar-
afurða á sölusvæði þess gert meira
en að tvöfaldast, baéði að magni og
verðmæti. -Um 90% af sölunni eru
bundin Bretlandseyjum, en 10%
fara til ríkja á meginlandi Evrópu,
einkum Frakklands.
-mhg
Prófkjör krata
á Sudurlandi
Steingrimur
tók 2. sætið
Prófkjör Alþýðuflokksins í
Suðurlandskjördæmi fór fram um
helgina. Ekki var kosið um 1. sæti
listans þar sem Magnús H. Magn-
ússon var sjálfkjörinn, en baráttan
stóð um 2. sæti listans.
Hlutskarpastur í þeirri rimmu
varð Steingrímur Ingvarsson, sem
hlaut 412 atkvæði. Næstir komu
þeir Guðlaugur Tryggvi Karlsson
með 252 atkvæði og Hreinn Er-
lendsson með 143 atkvæði. Auðir
seðlar voru 11, en ógildir 2. Sam-
tals tóku 820 manns þátt í prófkjör-
inu, en Alþýðuflokkurinn fékk við
síðustu alþingiskosningar 14-1500
atkvæði.
-v.
Af hverju ekki flóð í Elliðaánum nú?
Jörðin ekki
gaddfreðin
en það er forsenda þess að yfirborðsrennsli
geti myndast á lindáasvæðum
Margir hafa velt því fyrir sér hér á Reykjavíkursvæðinu hvers
vegna ekki hafi orðið flóð í Elliðaánum í þeim gífurlegu leysingum
sem hafa verið undanfarna daga. Fyrir tæpu ári urðu einmitt ein
mestu flóð í Elliðaám sem orðið hafa eftir mikla hláku um nokk-
urra daga skeið. Við spurðum Sigurjón Rist vatnamælingamann,
sem er allra manna fróðastur um vatnsflóð, hverjn þetta sætti.
„Skýringin er einfaldlega sú, að
jörö þarf að vera gaddfreðin á
svæði lindaáa til þess að yfir-
borðsrennsli myndist. í fyrra höfðu
verið mikil frost í desember og jan-
úar og jörð var því freðin þegar
leysingar og rigningar urðu í byrjun
febrúar með þeim afleiðingum að
eitt stærsta flóð sem um getur varð í
Elliðaánum. Nú hins vegar hafði
snjóað á þíða jörð og hún var því
nægjanlega gljúp til að taka við öllu
vatnsmagninu", sagði Sigurjón.
En hvað þá með flóðin í Ölfusá
og Hvítá í Borgarfirði? Hvað olli
þeim?
Sigurjón svarar því: „Bæði voru
þetta hálendisflóð, þ.e. vatns-
magnið kom ofan af hálendinu
eftir þíðu og rigningar þar. Hvað
flóðin í Ölfusá varðar, þá tel ég að
Árnesingar megi teljast heppnir að
ekki var krapastífla í ánni, því ann-
ars hefði getað farið ver. Að vísu
var nokkur hindrun á svonefndri
Gljá vegna íss og klaka, en það olli
Sigurjón Rist
ekki teljandi vandræðum. Einnig
hefur þíðan á láglendi, t.d. í Brúar-
ársveit, stuðlað að örri hjöðnun
vatnsflaumsins. .
Flóðin í Hvítá í Borgarfirði stafa
einnig af miklu vatnsmagni sem
kemur ofan af hálendinu, en þar
skiptir freri í jörðu minna máli
heldur en t.d. hér á Elliðaár-
svæðinu. Borgarfjörðurinn er
meira dragársvæði, en berggrunn-
urinn er þar gljúpur og hleypir
vatninu vel í gegnum sig“, sagði
Sigurjón Rist vatnamælingamaður
íð lokum.
Eggert Haukdal alþingismaður:
V onbrigði
en maður verður
að una niðurstöðu
prófkjörs
Því er ekki að leyna, að niður-
staða prófkjörsins olli mér miklum
vonbrigðum, ég bjóst við mínum
hlut betri en raun varð , sagði Egg-
ert Haukdal alþingismaður í sam-
tali við Þjóðviljann í gær. Eggert
lenti í 3ja sæti prófkjörs íhaldsins á
Suðurlandi urn helgina.
Aðspurður hvort hann hyggði
ekki á sérframboð nú, eins og við
síðustu Alþingiskosningar, þegar
hann neitaði að una því að vera
settur í 3. sæti listans, sagði Eggert
að málið horfði öðruvísi við nú.
Fyrir síðustu kosningar var ekki
urn prófkjör að ræða og því vildum
við ekki una og því buðum við
fram. Nú var prófkjör viðhaft og þá
verður maður að una niður-
stöðunni, þótt maður sé óánægður,
sagði Eggert og tók fram, að sér-
framboð af sinni hálfu væri ekki
inní myndinni. Að öðru leyti vildi
hann sem minnst um sérframboð
tala.
Eggert Haukdal
Úrslit prófkjörs íhaldsins í
Suðurlandi varð sem hér segir: f 1.
sæti er Þorsteinn Pálsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins, í 2. sæti Árni John-
sen úr Vestmannaeyjum, í 3. sæti
Eggert Haukdal og í 4. sæti Siggeir
Björnsson, bóndi.
-S.dór
-v.