Þjóðviljinn - 27.01.1983, Qupperneq 11
Fimmtudagur 27. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Litið á
neðri
deildir
Á þriðjudögum höfum við haft
fyrir venju í umfjöllun um ensku
knattspyrnuna og birta stöðu efstu
liða í 3. og 4. deild til að gera les-
endum kleift að fylgjast reglulega
með hvaða lið eru þar í toppbar-
áttu. Mörg þekkt félög leika í neðri
deildinni, sum þeirra hafa orðið
enskir meistarar eða bikarmeistar-
ar, önnur leikið lengri eða skemmri
tíma í 1. deild. Hér á eftir fer stað-
an í 3. og 4. deild eins og hún er í
dag og til gamans feitletrum við
þau lið sem leikið hafa í 1. deild.
3. deild:
Lincoln..........24 17 1 6 54-22 52
Cardiff...........25 15 4 6 45-34 49
Huddersfield......25 13 7 5 49-28 46
Portsmouth........25 14 4 7 40-30 46
Bristol R.........26 13 5 8 57-34 44
Oxford............24 12 7 5 42-26 43
Newport...........25 12 6 7 43-32 42
Wigan.............26 12 2 12 45-41 38
Brentford.........26 10 6 10 56-47 36
Southend..........25 10 5 10 37-32 35
Gillingham........26 9 7 10 31-30 34
Plymouth..........24 10 4 10 35-42 34
Orient............26 10 3 13 34-55 33
Bradford C........25 8 8 9 38-40 32
Exeter............27 7 10 10 47-60 31
Sheff.Utd.........23 8 6 9 28-29 30
Wrexham...........25 7 9 9 23-36 30
Bournemouth.......26 8 6 12 27-44 30
Chesterfield.....25 6 8 11 28-31 26
Doncaster.........26 6 8 12 40-51 26
Reading...........26 6 8 12 38-52 26
Walsall...........24 6 7 11 30-43 25
Preston N.E.......25 5 7 13 32-45 22
Millwall.........25 4 10 11 27-42 22
4. deild:
Hull City.........27 15 8 4 44-20 53
Bury..............27 15 7 5 47-22 52
Port Vale.........26 15 6 5 37-17 51
Wimbledon.........26 14 6 6 49-30 48
Scunthorpe........24 13 7 4 36-18 46
Swindon...........25 13 7 5 37-21 45_
Colchester... 27 13 6 8 41-31 45
Torquay...........25 11 5 9 37-36 38
York City.........24 9 8 7 44-33 35
Petersborough.....25 9 8 8 28-24 35
Chester...........27 10 5 12 32-30 35
Halifax...........25 9 7 9 37-35 34
Mansfield.........26 10 4 12 30-40 34
Stockport.........26 9 6 11 35-43 33
Aldershot.........25 8 8 9 31-42 32
Northampton.......25 7 10 8 36-39 31
Rochdale..........27 7 8 12 35-46 29
Blackpool.........25 8 6 11 30-37 28
Hartlepool........26 7 6 13 25-44 27
Tranmere..........26 7 4 15 30-46 25
Bristol City......27 4 11 12 29-48 23
Darlington........25 5 7 13 29-40 22
Crewe.............26 6 4 16 30-44 22
Hereford..........26 6 4 16 22-46 22
Þrjú lið komast uppúr 3.
deildinni en fjögur flytjast milii 3.
og 4. deildar. Fjögur neðstu liðin í
4. deild verða ávallt að sækja sér-
staklega um að fá að leika áfram í
deildinni. Þau missa þó sjaldan sæti
sín. Wigan er yngsta liðið í deilda-
keppninni, fékk inngöngu 1978 í
stað Southport. Wimbledon kom í
stað Workington 1977, Hereford í
stað Barrow 1972 og Cambridge,
sem nú leikur í 2. deild. fékk sæti
Bradford Park Avenue, sem
leystist upp fyrir nokkrum árum,
árið 1970.
-VS
/
■ ■ 5,1 Umsjón:
Viöir Sigurösson
Sætur sigur á Dönum í gærkvöldi:
Varði þrjú víti í
fyrri hálfleik
„Eftir lcikinn voru allir sam-
niála, íslcnskir sem danskir, um að
íslenska liðið hefði sýnt góðan leik
og sigrað verðskuldað. Þetta var
skemmtilegur leikur og gaman að
fylgjast með honum“, sagði Gunn-
ar Gunnarsson, annar fararstjóra
íslenska landsliðsins í handknatt-
leik þegar Þjóðviljinn ræddi við
hann í gærkvöldi. íslendingar unnu
sætan sigur á Dönum, 19:18, þegar
þjóðirnar mættust í Fredrikssund
við Kaupmannahöfn í gærkvöldi.
Þetta var fyrri leikur þjóðanna í
Norðurlandaferð landsliðsins, sá
síðari verður í Nýköping á Falstri í
kvöld.
Jafnræði var með liðunum í upp-
hafi en síðan tók ísland forystuna.
Danirnir áttuðu sig greinilega ekki
á Hans Guðmundssyni, hann gerði
mikinn usla í vörn þeirra og skoraði
fjögur af fyrstu átta mörkum ís-
lenska liðsins. fsland leiddi 11:8 í
hálfleik og komst í 12:8, Danir
minnkuðu muninn niður í tvö mörk
en aftur komst ísland fjórum yfir,
16:12 og 17:13. Þá átti liðið
möguleika á að ná fimm rnarka for-
skoti en það tókst ekki og talsvert
ráðleysi virtist koma í sóknar-
leikinn. Úr 18:15 breyttist staðan í
18:17 en Alfreð Gíslason skoraði
19. markið með þrumufleyg. Danir
fengu vítakast 12 sekúndum fyrir
leikslok og skoruðu, 19:18, en ís-
lensku strákarnir héldu knettinum
það sem eftir var leiktímans.
Markvarsla Einars Þorvarðar-
sonar var stórkostleg allan tímann
og varði hann m .a. þrjú vítaköst í
fyrri hálfleiknum. Þá var vörnin
fyrir framan hann geysisterk og
náði vel saman. Leikin var „flöt“
vörn allan tímann og gafst vel.
Sóknarleikurinn var rnjög góður í
fyrri hálfleik og þokkalegur í þeirn
síðari en liðið lék mjög „taktískt"
að sögn Gunnars. Hans var afar
atkvæðamikill og Alfreð sýndi
góðan leik. Danska vörnin kom
ekki eins vel út á móti skyttunum
og í leikjunum hér heima og það
notfærði Alfreð sér vel. „Keyrði"
betur inní vörnina en oftast áður.
Kristján Arason stóð fyrir sínu og
mataði félaga sinn, Þorgils Óttar
Mathiesen, vel á línusendingum
sem sá síðarnefndi kunni vel að
meta. Hornamennirnir, Bjarni
Guðmundsson, Guðmundur Guð-
mundsson og Ólafur Jónsson áttu
mjög erfitt uppdráttar þar sem
Danir „klipptu" á þá framarlega.
Hans var markahæstur með 6
rnörk, Alfreð og Þorgils Óttar
skoruðu 4 hvor, Kristján 2, Bjarni,
Ólafur og Sigurður Sveinsson eitt
hver.
- VS
Villa náði í stórbikarinn
Evrópumeistararnir í knatt-
spyrnu, Aston ViIIa frá Englandi,
tryggðu sér sigur í „Super-Cup“,
Stórbikarkeppni Evrópu, með því
að sigra Barcelona frá Spáni, sig-
urvgarana í Evrópukeppni bikar-
hafa, 3-0 á Villa Park í Birmingham
í gærkvöldi. Villa vann þar með
samanlagt 3-1 því Barcelona sigr-
aði í fyrri leiknum á Spáni, 1-0.
Lengi vel stefndi allt í marka-
laust jafntefli í gærkvöldi en ellefu
mínútum fyrir leikslok tókst Gary
Shaw að skora fyrir Villa, 1-0, og
jafna út forskot Spánverjanna.
Þannig var staðan að loknum venj-
ulegum leiktíma og því framlengt. I
fyrri hluta framlengingarinnar
skoraði Villa tvívegis, fyrst Gor-
don Cowans eftir níu mínútur, síð-
an skoski miðvörðurinn Ken
McNaught, mínútu fyrir hlé.
Ríflega 30.000 manns fylgdust
með leiknum. _yg
Atta drengir af Suður-
nesjum meðal Hollandsfara
Islenska drengjalandsliðið í
körfuknattleik er á förum til Hol-
lands þar sem það leikur fjóra
landsleiki við þarlenda jafnaldra
sína. Piltarnir eru fæddir árin 1966
og 1967 og er ferðin liður í undir-
búningi fyrir Evrópukeppnina sem
fram fer hér á landi 2.-4. apríl nk.
Ellefu drengir fara utan og vekur
þar mesta athygli að átta þeirra
koma frá Suðurnesjum, Keflavík,
Grindavík og Njarðvík.
Liðið er þannig skipað: Sævar
Guðbergsson, Matti Ó. Stefáns-
son, Sigurður Ingimundarson,
Skarphéðinn Héðinsson og
Guðjón Skúlason frá K'eflayík,
Sigurður Ingimundarson.
Hjálmar Hallgrímsson og Jóhann-
es K. Sveinsson, Grindavík,
Hreiðar Hreiðarsson, Njarðvík,
Karl Guðlaugsson, ÍR, Ómar
Scheving, KR,og Heimir Jónasson,
Val. Einn þessara drengja, Sigurð-
ur Ingimundarson, hefur þegar
fengið eldskírn sína í úrvals-
deildinni með Keflvíkingum. Hann
á ekki langt að sækja leiknina,
bróðir hans, Valur, er í hópi okkar
bestu körfuknattleiksmanna.
Þjálfarar liðsins eru Einar Bolla-
son og Torfi Magnússon en farar-
stjóri Kristinn Stefánsson. Fyrsti
leikurinn fer fram annað kvöld en
sá síðasti á mánudag.
Þróttarar
vilja gervigrasið
Á fundi í stjórn knattspyrnu-
deildar Þróttar 20. janúar 1983 var
gerð eftirfarandi samþykkt:
Stjórn knattspyrnudeildar Þrótt-
ar lýsir eindregnum stuðningi við
áform meirihluta borgarstjórnar
að hefja byggingu gervigrasvallar í
Laugardalnum á árinu 1983. Bygg-
ing þessi sýnir stórhug og á eftir að
efla knattspyrnuna hér í Reykjavík
urn ókomin ár.
Þá harmar stjórnin þá andstöðu
sem fram hefur komið við þetta
mál og telur það sýni vanþekkingu
og vanmat á störfum íþróttafélag-
anna í borginni og einnig virðingar-
leysi við það starf sem þar er unnið
í þágu þúsunda ungmenna borgar-
innar.
Alan Ball
aftur heím
Alan Ball, knattspyrnukappinn
kunni sem varð heimsmeistari með
Englendingum fyrir tæpum 17
árum, er kominn til Englands á ný
og farinn að leika í deildakeppn-
inni. Hann hefur gert samning við
3. deildarliðið Bristol Rovers og
leikur með það út kcppnistíma-
bilið.
Ball er 37 ára gamall og lék með
Southampton þar til skömmu fyrir
jól er hann lýsti yfir því að ferli
hans í ensku knattspyrnunni væri
lokið. Þá hélt hann til Hong Kong
og lék með Eastern en heimþráin
varofmikil. Ball.sem varumstutt-
an tíma framkvæmdastjóri og
leikmaður með Blackpool, hefur
hug á að taka við stjórn eða þjálfun
hjá einhverju deildaliðanna í Eng-
landi næsta vetur.
- VS
Miiller
slasaður
Peter Muller, svissneski brun-
kappinn sem hefur forystu i
heimsbikarkeppninni á skíðum,
féll og slasaðist á æfingu í ólympíu-
brautinni við júgóslavnesku borg-
ina Sarajevo í gær.
Muller fékk heilahristing og nef-
brotnaði er hann var á léttri æfingu
fyrir brunkeppni í heimsbikarnum
sem fram fer í Sarajevo í dag.
ÍS vann
Víkfng
ÍS vann léttan sigur á Víkingi
þegar félögin mættust í 1. deild
kvenna í blaki í fyrrakvöld.
Leiknum lauk 3-0, ÍS vann hrin-
urnar 15-5, 15-4 og 15-7. ÍS hefur
18 stig úr tíu leikjum en Þróttur 16
stig úr 8 leikjum, en þessi félög
berjast um íslandsmeistaratitilinn.
-VS
Sætur
sigur
Þórsara
B-lið KR í körfuknattleik hefur
verið Þórsurum frá Akureyri mikill
þyrnir í augum undanfarin ár.
Þessi tvö lið laðast hvort að öðru
þegar dregið er í bikarkeppni KKÍ
og svo var einnig nú. KR hefur
ávalit sigrað hingað til en í gær-
kvöldi unnu Þórsarar sætan sigur á
„gömlu refunum“ í Hagaskólanum,
og það öruggan, 98-77.
Einn leikur fer frarn í úrvals-
deildinni í kvöld. Efsta liðið, Val-
ur, leikur við það neðsta, ÍR, í
Hagskólanum kl. 20. Verður fróð-
legt að fylgjast með hvernig Pétri
Guðmundssyni gengur gegn sínum
gömlu félögum í Val.
-VS