Þjóðviljinn - 03.02.1983, Blaðsíða 10
• 10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. febrúar 1983
—MFA—
Nám í verkalýðsskólum
Genfarskólinn 1983
Árlegt námskeið norræna verkalýðsskólans í Genf
verður haldið næsta sumar á tímabilinu 21. maí - 2.
júlí.
Þátttakendur eru frá öllum Norðurlöndum. Skólinn
starfar í tengslum við þing Alþjóðavinnumálastofnun-
ina (ILO), sem haldið er á sama tíma. Nemendur
dvelja 1. viku skólatímans í Danmörku og síðan í
Sviss.
MFA greiðir þátttökugjald, en nemendur greiða ferð-
akostnað til og frá Danmörku. MFA á rétt á tveimur
námsplássum.
Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi gott vald á
dönsku, sænsku eða norsku. Enskukunnátta er æski-
leg.
Ætlast er til að þátttakendur séu virkir félagsmenn í
samtökum launafólks með reynslu í félagsmálastörf-
um og hafi áhuga á norrænni og alþjóðlegri samvinnu.
Manchesterskólinn 1983
MFA hefur fengið boð, þar sem tveimur íslendingum
er gefinn kostur á skólavist á námskeiði Manchester-
skólans, sem verður á tímabilinu 29. apríl - 22. júlí n.k.
Námskeiði Manchesterskólans er ætlaö að kynna fé-
lagsmönnum verkalýðssamtakanna í Danmörku,
Finnlandi, Noregi, íslandi og Svíþjóð, breskt samfé-
lag, félagsmál og stjórnmál í Bretlandi, breska verka-
lýðshreyfingu auk enskunáms.
Nokkur enskukunnátta er nauðsynleg.
Þátttakendur greiða sjálfir þátttökugjald og ferða-
kostnað.
Umsóknum um skólavist á Genfar-
skólann og Manchesterskólann ber að
skila til Skrifstofu MFA Grensásvegi 16,
108 Reykjavík fyrir 20. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar um þessa skóla eru veittar á skrif-
stofu MFA, sími 84233.
Menningar- og fræðslusamband alþýðu.
Árshátíð og
þorrablót ABR
Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík
verða haldin í Snorrabæ við Snorrabraut (Austurbæj-
arbíóhúsið), föstudaginn 4. febrúar. Húsið opnað
klukkan átta — borðhald hefst klukkan hálfníu.
Hljómsveitin Ásar leikur fyrir dansi til klukkan þrjú.
Sigurdór Stefán
Veislustjóri:
Sigurdór Sigurdórsson blaðamaöur á Þjóðviljanum
Dagskrá undir borðum:
Elgurinn vaðinn: Stefán Jónsson, alþingismaður.
Nokkrar forvaldar kersknisvísur
Lygasaga mánaðarins
Samkvæmisleikir milli atriða
Vegna húsrýmis kemst takmarkaður fjöldi gesta á
hátíðina.
Áhugafólki er bent á að panta miða sem fyrst að
Grettisgötu 3, sími 17500. Athugið að aðeins eru fáir
miðar eftir.
Aðgöngumiða verður helst að vitja á
skrifstofu ABR fyrir kl. 17 í dag.
fFrá Rauðsokka-
hreyfingunni
Miðstöð
Rauðsokkahreyfingarinnar
hvetur allar konur
sem hafa verið virkar í hreyfingunni á undanförnum
árum, að koma á fund fimmtudaginn 3. febrúar kl.
20.30 í Sóknarsalnum Freyjugötu 27.
Dagskrá:
1. Fjárhagsstaða hreyfingarinnar.
2. Uppgjör.
Miðstöð
1468% hækkanir á fjórum árum til almennings
Verðlagseftirlit
með Landsvirkjim
Iðnaðarráðherra leggur til eftirlit með verðlagningu
Ég hef lagt fram tillögu í ríkis-
stjórn að verðlagsákvarðanir
Landsvirkjunar verði háðar
verðlagseftirliti einsog verð á ann-
arri þjónustu, sagði Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra í
umræðu um verðlagshækkanir raf-
orku hjá Landsvirkjun á alþingi í
fyrradag.
Það var Ólafur Þ. Þórðarson sem
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár
vegna tíðra hækkana á raforku frá
Landsvirkjun að undanförnu.
Hjörleifur Guttormsson sagði
það rétt vera að á 3 árum með 29%
hækkuninni væri komin 600%
hækkun. Landsvirkjun hefði
boðað að hækkanir á þessu ári
væru í allt 125.9%. Og þá hefðu
orðið hækkanir sem nema 1468% á
fjórum árum. Þessar hækkanir
verði Landsvirkjun með því að hún
hefði markmið um hallalausan
rekstur og til að ná því markmiði
þyrfti svona ofboðslegar hækkanir.
Fyrirtækið hefði tekið erfið lán,
lán sem nema 341 miljón dollara,
þarfaf 65% í bandarískum doll-
urum.
Hækkun nú á
almenning meiri
en nemur verðinu
til Alusuisse
Verðið á kílówattstund til Alu-
suisse nemur 12 aurum, en til al-
menningsveitna er það 65.40
aurar. Hækkunin ein nú nemur
14.7 aurum eða tveimur og hálfum
eyri meira en verðið á kwst. til
álhringsins! Það er ósanngjarnt,
sagði Hjörleifur, að íslenskur al -
menningur skuli skattlagður til
að greiða niður tapið af raforku-
sölu Landsvirkjunar til Alusuisse.
ísal kaupir helming allrar raforku-
framleiðslu frá Landsvirkjun. Og
með þessu lagi greiðir almenningur
í landinu niður orkuna fyrir Isal.
Þetta er gert þrátt fyrir það að
hækkanir nemi 600% á þremur
árum.
Það er af þessum ástæðum, sagði
Hjörleifur, sem ég hef lagt til í
ríkisstjórninni að raforkuverð
verði hækkað einhliða til AIu-
suisse.
Þá gat ráðherrann þess, að hann
hefði einnig lagt til í ríkisstjórn að
verðlagning Landsvirkjunar verði
háð almennum verðlagsákvæðum,
lögum og reglum um eftirlit eins og
sjálfsagt væri. Væntanlegt væri
frumvarp þessa efnis innan
skamms.
Birgir Isleifur Gunnarsson vildi
ekki fallast á að almenningur væri
að greiða niður raforku fyrir ísal.
Guðmundur G. Þórarinsson tók
einnig þátt í þessari umræðu, sem
var frestað. - óg.
Um ráðunaut í öryggis- og varnarmálum
Miljónir manna
taka höndum saman
og mótmæla
vopnakapphlaupinu,
sagði Guðrún
Helgadóttir
- Ég vil einungis að sjálfsögðu
lýsa yfir andstöðu Alþýðubanda-
lagsins við þetta mál sagði Guðrún
Helgadóttir í fyrri ræðu sinni. Það
þarf ekki að segja neinum íslend-
ingi að við teljum okkur ekki þurfa
að leysa okkar mál með embætti
ráðunautar ríkisstjórnarinnar í
öryggis- og varnarmálum, sagði
Guðrún enn fremur.
Sagði Guðrún að það ætti að
þakka fyrir þann tilfinningahita
sem hefði rekið Alþýðubandalagið
áfram allar götur frá því að landið
missti sjálfstæði sitt að nýju.
Sagði Guðrún að það væri
ánægjuefni að talsmenn Sjálfstæð-
isflokksins viðurkenndu hernaðar-
legt mikilvægi íslands; það hefðu
þeir ekki alltaf gert.
Minnti hún á að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði afhent Bandaríkj-
mönnum \ frumkvæði í íslenskum
málefnum og léð land undan ís-
lenskri lögsögu. Sagði Guðrún að
við þessari tillögu væri ekki til
nema eitt svar, svar Alþýðubanda-
lagsins. Við þyrftum að losna við
bandaríska herinn af íslensku landi
og ganga úr Nató.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði
að hann hefði haldið að það væri
fagnaðarefni fyrir flokk sem kennir
sig við þjóðfrelsi, að hér væri lagt
til að íslenskir aðilar framselji ekki
í hendur öðrum að leggja mat á
öryggishagsmuni þjóðarinnar. Því
hefði verið lýst af skoðanabræðr-
urn Guðrúnar áður, að . eðlis-
breyting hefði orðið á umræðum
um þessi mál að undanförnu, þar
sem meira hefði verið byggt á upp-
lýsingum hvers konar. Óg því væri
stundum haldið fram, að þessar
nýjuupplýsingarognýja þekking
renni stoðum undir röksemdir her-
stöðvaandstæðinga.
Friðrik Sophusson sagðist ekki
hafa átt von á því, að á alþingi væri
til fulltrúi jafn gamalla viðhorfa í
þessu máli og Guðrún Helgadóttir.
Vitnaði hann síðan í ræður Ólafs
Ragnars Grímssonar um nauðsyn
þess að íslendingar öfluðu sér sjálf-
stætt upplýsinga og legðu mat á
þær. „Það er lágmarkskrafa að við
tökum afstöðu á grundvelli þekk-
ingar“, hafði Friðrik eftir Ólafi
Ragnari og kvað hann hafa þannig
undirstrikað þörfina fyrir því, að
íslendingum beri skylda til að
koma á sjálfstæðu stjórnvaldi, sem
byggir á íslenskri þekkingu til að
meta þessi mál.
Guðrún Helgadóttir sagðist ekk-
ert hafa minnst á þingflokk Al-
þýðubandalagsins í máli sínu, held-
ur hefði hún sagt Alþýðubandalag-
ið. Það vildi nefnilega svo tii, að
barátta íslenskra sósíalista, barátta
íslenskra hernámsandstæðinga,
hefði ekki bara farið fram í þing-
flokki Alþýðubandalagsins; heldur
taldi ég mig vera að tala fyrir munn
þúsunda manna úti í þjóðfélaginu,
sagði Guðrún. - Ég sagði ekkert
um þingflokk Alþýðubandalags-
ins. Ég hefði átt von á því, að fleiri
úr þeim hópi væru staddir hér inni.
Sagði Guðrún að hún þyrfti eng-
an sérfræðing í varnar- og örygg-
ismálum til að stórveldin jiiylji
ekki yfir henni áróðursplötur og
hún trúi þeim einsog nýju neti. Ég
er alveg fullfær um það ein og sjálf,
og svo er sem betur fer um miljónir
manna um allan heim, sem nú hafa
tekið völdin af stjórnmálamönnum
og ætla að reyna að fara að berjast
fyrir friði í heiminum af því að það
hefur ekkert breyst í umræðu um
þessi mál vegna tilkomu einhverrár
nýrrar þekkingar.
ítrekaði Guðrún, að ástæðulaust
væri að setja á bak hennar allan
þingflokk Alþýðubandalags-
manna. „Þetta er skoðun Alþýðu-
bandalagsmanna og fyrir hana
tala ég hér á alþingi".
Jón Baldvin Hannibalsson sagði
það vera tíðindi þegar þingmaður í
þingflokki Alþýðubandalagsins
lýsi því yfir að hann sé málsvari
Álþýðubandalagsmanna, en vilji á
engan hátt láta bendla þann mál-
flutning sin við tilvitnanir úr mál-
flutningi formanns þingflokks Al-
þýðubandalagsins, sem tilheyrði
þá öðrum stjórnmálaflokki sam-
kvæmt þessu.
EiSur Guðnason sagðist ekki
skilja hvernig hugsandi fólk gæti
haft á móti því að upplýsinga væri
aflað.
Svavar Gcstsson rakti sögu hern-
ámsins og hlut Sjálfstæðisflokksins
í því. Svo lengi sem Alþýðubanda-
lagið er Alþýðubandalag, þá mun
það berjast fyrir brottför banda-
ríska hersins. Þannig er það mál og
til þess verða menn að taka tillit í
íslenskum stjórnmálum.
Þá tóku til máls Birgir ísl. Gunn-
arsson, Eiður Guðnason, Svavar
Gestsson, Friðrik Sophusson,
Svavar Gcstsson og Aibcrt Guð-
mundsson, sem vildi frekar auka
samstarfið við vestrænar þjóðir en
draga úr því.
-óg