Þjóðviljinn - 15.02.1983, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN
„Best að hafa það á
hreinu að við
samþykkjum ekki
að launafólk verði
svipt verðbótum í
mars, eins og
frumvarpið gerir
ráð fyrir“, segir
Svavar Gestsson.
Sjá 3
febrúar 1983
þriðjudagur
35. tölublað
48. árgangur
Forsætisráðherra leggur fram vísitölufrumvarp
Atlaga að stj ómarsamstarfinu
Alþýðubandalagið vísar á bug afnámi vísitölubóta 1 mars
Samkvæmt frumvarpi því sem
forsætisráðherra lagði fram á þingi
í gær er gert ráð fyrir að engar
vísitölubætur verði greiddar í
marsmánuði og næsta verðbóta-
tímabil hefjist ekki fyrr en 1. apríl.
Svavar Gestsson formaður Alþýðu-
bandalagsins lýsir yfir því í viðtali
við blaðið að Abl. samþykki ekki
að launafólk verði svipt verðbótum
á laun í mars, og miðstjórn flokks-
ins segir í ályktun að tillögur for-
sætisráðherra muni hafa alvar-
legar afleiðingar fyrir stjórnarsam-
starfið.
Svavar Gestsson segir að Al-
þýðubandalagið vilji taka upp ný-
jan vísitölugrundvöll og gera
breytingar á viðmiðunarkerfi
launa. Hins vegar hafi ætíð verið
um það rætt að gera slíkt í tengslum
við heildarendurskoðun á
verðmyndunarkerfinu í þjóðfé-
laginu og heildarráðstafanir í efna-
hagsmálum, og án þess að efna til
sérstakrar kiaraskerðingar.
Af hálfu Framsóknarmanna og
Sjálfstæðismanna í ríkisstjórn er
ofurþungi lagður á að þrýsta frum-
varpinu gegnum þingið til þess að
hægt sé að afnema verðbætur 1.
mars. Forsætisráðherra hefur ósk-
að eftir því að fá að mæla fyrir því
kl. 13 í dag, og Halldór Asgrímsson
formaður fjárhags- og viðskiptan-
efndar efri deildar boðaði í gær
fund kl. 10 í dag um málið án þess
að mælt hafi verið fyrir því á þingi.
óg./ekh.
Norðurlandskjördæmi eystra:
Steingrímnr
í fyrsta sætið
Svanfríður Jónasdóttir varð
í 2. sæti í forvali Alþýðubandalagsins
Steingrímur J. Sigfússon
jarðfræðingur varð í 1. sæti í síðari
6
Hver eru réttindi
fólks til
lífeyrisgreiðslna?
Hrafn Magnússon
framk væmdastj óri
Almennra
lífeyrissjóða svarar.
8
Fjallaðerum
brottvikningu Ariel
Sharons og stöðuna
í Líbanon á erlendu
síðunni.
umferð forvals Alþýðubandalags-
ins í Norðurlandskjördæmi eystra.
og Svanfríður Jónasdóttir bæjar-
fulltrúi á Dalvík í öðru sæti.
Að sögn Páls Hlöðverssonar for-
manns kjörnefndar féllu atkvæði
þannig:
1. Steingrímur J. Sigfússon
jarðfræðingur, Rvík. 131 í 1. sæti
og 238 alls.
2. Svanfríður Jónasdóttir bæjar-
fulltrúi, Dalvík 121 í 1. og2. en 207
alls.
3. Helgi Guðmundsson trésmiður,
Akureyri 117 í 1. til 3. en 142 alls.
4. Soffía Guðmundsdóttir tónlist-
arkennari, Akureyri 147 atkvæði í
1. til 4.
5. Kristján Ásgeirsson útgerðar-
stjóri, Húsavík 123.
6. Dagný Marinósdóttir húsfrú,
Sauðanesi á Langanesi 122.
7. Erlingur Sigurðsson kennari,
Akureyri 83 atkvæði.
8. Eysteinn
Arnarvatni í
kvæði.
Sigurðsson, bóndi
Mývatnssveit 74 at-
Utan dagskrár í gærkvöldi:
V ísitölufnimyarpið
st j ómarfrumv arp?
Svavar Gestsson mótmælir þeirri túlkun
„Þar með er þetta stjórnarfrum-
varp“, sagði Sverrir Hermannsson
forseti neðri deildar alþingis í gær
við fyrirspurn frá Matthíasi Á.
Mathiescn um hvort vísitölufrum-
varp forsætisráðherra skoðaðist
sem stjórnarfrumvarp. Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra
sagði annars vegar að hann hefði
engu við úrskurð forseta deildar-
innar að bæta, en hins vegar sagði
forsætisráðherra að þetta frum-
varp væri ekki ríkisstjórnarfrum-
varp í þeim skilningi að öll ríkis-
stjórnin standi að því. Guðrún
Helgadóttir óskaði eftir því að
þinghlé væri gefið fyrir þingflokks-
fundi en þeirri ósk hafnaði forseti
deildarinnar. Svavar Gestsson
sagði að þetta sérkennilega frum-
varp væri auðvitað ekki stjórnar-
fruinvarp heldur frumvarp forsæt-
isráðherra.
-óg
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins:
Afstaðan tekin til gaum-
gæfilegrar athugunar
- Ef hæstvirtur forsætisráð-
herra tclur að hann geti komist af
án stuðnings Alþýðubandalagsins
við að flytja „stjórnarfrumvörp“,
verður það ekki skilið á annan veg
en þann að hann geti cinnig komist
af án stuðnings Alþýðubandalags-
ins um fleiri mál. - Verður það
tekið til gaumgæfilegrar athugunar
næstu daga, sagði Svavar Gestsson
í niðurlagi ræðu sinnar um þann
forsetaúrskurð að vísitölufrum-
varpið teldist vera stjórnarfrum-
varp. Svavar sagði annars í ræðu
sinni:
- Herra forseti. Nú háttar svo til
meö þá Sjálfstæðismenn sem
styðja ríkisstjórnina að þeir eru all-
ir ráðherrar. Vilji þeir koma mál-
um á framfæri við hæstvirt Alþingi
eiga þeir þess vegna ekki kost á því
að leita til almennra þingmanna
um málafylgju, heldur verða þeir
að taka málin upp sjálfir. Af þess-
um ástæðum er það væntanlega,
sem hæstvirtur forsætisráðherra
hefur kosið að bera hér fram frum-
varp sem er auðvitað ekki stjórn-
arfrumvarp, heldur frumvarp frá
forsætisráðherra.
Þetta frumvarp er flutt þrátt fyrir
harða andstöðu Alþýðubandalags-
ins og af þeim ástæðum hefur Al-
þýðubandalagið mótmælt þeim
fundi fjárhags- og viðskiptanefn-
dar neðrideildar sem haldinn verð-
ur í fyrramálið til þess að fjalla um
þetta sérkennilega frumvarp og
mun Alþýðubandalagið ekki taka
þátt í þeim fundi, sem þannig er til
boðað.
Það er ljóst, herra forseti, að ef
Bráðabirgðalögin 1 neðri deild:
Lokaafgreiðsla í dag
Stjórnarandstaða Sjálfstæðisflokksins sat hjá við
aðra umræðu í gærkvöldi!
Bráðabirgöalög ríkisstjórnar-
innar frá því í sumar fóru í gegnum
aðra umræðu í neðri deild alþingis í
gærkveldi. Tók frumvarpið á sig
nokkrar litilsháttar breytingar
áður en það var afgreitt til þriðju
umræðu sem verður væntanlega í
dag.
Þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins Ólafur G. Einarsson lýsti
því yfir í upphafi umræðna að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði ákveðið að
sitja hjá við afgreiðslu bráða-
birgðalaganna. Við þá yfirlýsingu
hló þingheimur. Nokkrir þing-
menn gerðu grein fyrir atkvæði
sínu.
Þeir Karvel Pálmason og Árni
Gunnarsson lýstu yfir andstöðu Al-
þýðuflokksins við lögin og greiddu
atkvæði gegn því. Þá gerði Guðrún
Hclgadóttir sérstaklega grein fyrir
atkvæði sínu - en sú greinargerð
tengdist umræðu utan dagskrár um
vísitölufrumvarp forsætisráðherra
einsog segir frá annars staðar.
-óg
hæstvirtur forsætisráðherra telur,
að hann geti komist af án stuðnings
Alþýðubandalagsins við að flytja
stjórnarfrumvörp, verður það ekki
skilið á annan veg en þann, að hann
geti einnig komist af án stuðnings
Alþýðubandalagsins um fleiri mál.
Verður það tekið til gaumgæfi-
legrar athugunar næstu daga.-
-óg
Guðrún Helgadóttir:
Samstarfið
mér óvið-
komandi
héðan í frá
- Eftir að umræðu um vísitölu-
frumvarp forsætisráðherra utan
dagskrár lauk í gærkveldi var þeg-
ar gcngið til atkvæðagreiðslu um
bráðabirgðalögin. Guðrún Helga-
dóttir gerði þá grein fyrir atkvæði
sínu með eftirfarandi hætti:
- Herra forseti. Vegna þeirra
ódrengilegu vinnubragða og frek-
legu árásar á kjör launafólks í
landinu, sem hæstvirtur forsætis-
ráðherra hefur í dag viðhaft þrátt
fyrir mótmæli þingflokks Alþýðu-
bandalagsins, vil ég upplýsa hæst-
virta deild, að allt samstarf í núver-
andi ríkisstjórn er mér óviðkom-
andi héðan í frá. Ég vil hins vegar
taka það fram, að ég stend við það,
sem ég hef áður sagt. Ég tel óráð og
óvit að fella þau bráðabirgðalög
sem hér liggja fyrir og mun því
standa við fyrri orð mín og segi
já. - -óg