Þjóðviljinn - 15.02.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 15.02.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 15. febrúar 1983 Þeir vísu sögðu Ástarbréf skrifar maður þannig, að í fyrstu veit maður ekki hvað maður ætlar að skrifa og í lokin man maður ekki hvað maður skrifaði. Rousseau Kvikmyndablaðið komið út Nýtt tölublað er komið út af Kvikmyndablaðinu og er það fe- brúar - mars hefti, jafnframt því að vera 2, tölublað sem kemur út á vegum nýrra eigenda blaðsins. í þessu tbl. er m.a. viðtal við Snorra Þórisson kvikmyndatök- umann. Erlendur Sveinsson skrifar um Bíó-Petersen, íslensk- ur kvikmyndaannáll 1982 er í blaðinu auk ýmissa fastra liða. Kvikmyndablaðið fæst á flest- um bóka og blaðsölum og er verð þess í lausasölu 60 kr. en í ársá- skrift kr. 300. Gætum tungunnar Sagt var: Hann sagði að horfur séu góðar. Oftast færi betur: Hann sagði að horfur væru góðar. Hins vegar: Hann segir að horfur séu góðar. Skák Karpov aö tafli — 95. I ársbyrjun 1974 settist Anatoly Karpov aö tafli gegn landa sínum Lev Polugajev- skí. Þetta var fyrsta einvigið i Áskorenda- keppninni en stuttu síðar hófust hin þrjú. I Puerto Rico mættust Spasskí og Robert Byrne og þar var Spasskí spáð auðveldum sigri. Petrosjan og Portich tefldu á Mallorca og renndu menn blint í sjóinn með getgátur um úrslit. Portisch hafði fyrir einvígið unnið Petrosjan fjórum sinnum og aldrei tapað, en hafa verður i huga að innbyrðis úrslit i fyrri skákum hafa lítið að segja þegar út í einvígi er komið, sbr. einvígi Fischers og Spasskís í Reykjavík. Fjórða einvígið var viðureign Kortsnoj og brasiliska undra- barnsins Henrique Mecking. Sagt er að Karpov hafi ekki litið á Polu sem mikla hindrun, hann ku aðeins hafa óttast einn skákmann, Spasskí. Þegareinvígiö byrjaði þann 4ða janúar ( Tchaikovskíhöllinni í Moskvu var Polugajevskí búinn að undir- búa sig í fjóra mánuði og mætti til leiks með vopnabúrið fullt af góðum hugmyndum. 11. skák fekk hann örlitið betri stööu, en Karp- ov varðist af öryggi: abcdefgh 26. .. Hf5! 27. Rd5 Dd6 28. Rxb6 Dxb6 29. De2 Dd6 30. h3 Hcf8 31. Kg1 Ba4 32. Hd2 Bd7 - og hér sömdu keppendur um jafntefli. Slátrarinn frá Lyon snýr aftur: Barbie var á kafi í eiturly fj abransanum Þeim fer nú senniiega að fækka málunum á borð við það sem ný- lega kom upp er þýski Gestapo foringinn Klaus Barbie var fram- seldur af Bolivíustjórn til Frakka. Barbie, sem í Bolivíu skrifaði sig Klaus Altmann, var afar um- svifamikill í eiturlyfjabransanum í Bolivíu. Þó yfirlýst stefna stjórn- valda sé á þá leið að uppræta skuli ræktun á kókaíni, þá hefur reyndin orðið allt önnur og út- flutningur á kókaíni er ein helsta Útflutningsvara frá Bolivíu. Það- an fara flotar flugvéla f viku hverri í átt til Bandaríkjanna þar sem Miami í Florida er helsti viðkom- ustaðurinn. Þó sérþjálfuð lög- regla nái umfangsmiklu magni af eiturefnunum er það alltaf miklu meira sem nær inn fyrir landa- mærin. Segja má að efnahags-, kerfið í Bólivíu sé samdauna þessum innflutningi þó breyttir stjórnarhættir hafi haft einhverja breytingu í för með sér. Framsal Barbies ætti að gefa vísbendingu um það. Þó hafði franska stjórnin haft vitneskju um veru Barbies í Bolivíu fyrir meira en áratug, en fjölmargar kröfur á hendur stjórninni komu fyrir lítið. Bar- bie hafði komið sér vel fyrir í Bol- ivíu. Hann var ráðinn öryggis- ráðgjafi hæstráðanda í hernum, Hugo Banzer, í slíkri stöðu hafði hann alla þræði í hendi sér. Her- inn undir forystu Barbies skipu- lagði flutninga með kókaín til Bandaríkjanna, hann kom Adolf Meinke, lét lífið í rúss- i neskri rúllettu. í hópinn slógust! tveir nýfasistar frá Ítalíu og þeir fjórmenningar stofnuðu grúppu sem þeir kölluðu „Astvini' dauðans". Slóð myrkraverka, auk eiturlyfjasmygls, átti þessi grúppa, en það sem fyrst og fremst leiddi til handtöku Barbi- es var eftirgrennslan „nasista- veiðarans" Serge Klarsfeld sem komst í tæri við einn fjórmenn- inganna, Pierluigi Pagliai þar sem hann lá banaleguna eftir skotbar- daga. Stjórnarskiptin höfðu úrslitaáhrif Þegar Hernan Siles Zuazo komst til valda eftir hið ótrúlega- lýðræðislegar kosningar breyttust stjórnarhættir mjög. Herinn reyndi allt sem hugsast gat til að blanda sér í stjórnmál- aátökin í landinu, en Zuazo hélt velli. Þá var Hugo Banzer fyrrum forseti og yfirmaður hersins, var settur út í kuldann og hringurinn þrengdist um Barbie. Boð frá stjórn Bolivíu til þeirrar frönsku um að stjórnin væri tilbúin að framselja Barbie kom mörgum á óvart. Barbié hafði með eiturlyfj- abraski sínu reynt fyrir sér í tin- viðskipum og einmitt vanskil og margháttuð svik Barbies í þeim viðskiptum urðu til þess að hann var handtekinn. - hól. (Byggt á The Sunday Times) Klaus Barbie/Altmann: Hefur líf þúsunda gyðinga á samviskunni. „skipulagi“ á dreifingu og út- flutning, reði hiðurlögum smá- bænda sem ræktuðu kókaín og þjálfaði sérstaka deild innan hersins til að vernda samgöngu- æðar og skipuleggja fangelsanir á hættulegum aðilum. Til liðs við sig fékk hann gamlan skúrk, Jo- achim Fiebelkar, hórmangara sem flúði frá Paraquay eftir að félagi hans, fyrrum SS-foringi, Nýir hjúkrunarfræöingar Hinn 18. desember sl. brautskráðust 24 nýir I Þorbjörg Jónsdóttir skólastjóri, Aldís Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingar frá Hjúkrunarskóla íslands. | kennari, Sigríður H. Einarsdóttir, Þóra Hjartar- 1. röð: Bryndís Þorvaldsdóttir, Hólmfríður dóttir, Anna Lilja Harðardóttir, Marta B. Mar- Traustadóttir, Súsanna V. Davíðsdóttir, Þórunn einsdóttir. Sævarsdóttir, Áslaug Svavarsdóttir, Jóhanna Vil- 3. röð: Asdís B. Káradóttir, Ragna Gústafsdóttir, hjálmsdóttir, Gyða Þorgeirsdóttir. Þórdís Eiríksdóttir, Þóranna Tryggvadóttir, Ingi- 2. röð: Sigrún Sigurðardóttir, Ragna Dóra Ragn- björg Fjölnisdóttir, Þórhildur Pálsdóttir, Erla Lind arsdóttir, Ingibjörg Friðbertsdóttir, Kristín Páls- Þorvaldsdóttir, Ágústa Frímannsdóttir, Helena Á. dóttir kennari, Sigríður Jóhannsdóttir yfirkennari, Bjarman, Guðný Bergvinsdóttir. „Burt með sprengjur sem brenna svörð ” Þýska verðlaunalagið „Ein bisschen Frieden“ sem ómaði oft á dag eftir sönglagakeppni sjónvarps- stöðva í fyrra hefur nú fengið íslenskan texta. Hann er eftir Jónbjörgu Eyjólfsdóttur á Eiðum, en hún sendi hann til friðarhóps kvenna fyrir skömmu. Textinn er þannig: Vinur minn, hvar sem í heimi þú er, heyrðu mitt ákall og liðsinntu mér. Reynum að upprœta angur og kvöl, afnema stríðsins böl. Stöndum við saman og störfum sem eitt stefnunni ef til vill getum við breytt. Smíðum úr vopnunum verkfœri þörf, verum í huga djörf. Burt með hrœðslu sem byrgð er inni, burt með hatrið úr veröldinni, burt með sprengjur sem brenna svörð. Biddu með mér um frið á jörð. Burt með hungur og burt með sorgir, burt með deilur og hrundar borgir, burt með sprengjur sem brenna svörð. Biddu með mér um fríð á jörð. Berúm upp allsstaðar bœnina' umfrið, bœnina stærstu sem nú þekkjum við, bœnina einu, sem bjargað nú fœr barninu frá í gœr. Bun með hrœðslu sem byrgð er inni, burt með hatrið úr veröldinni, burt með sprengjur sem brenna svörð. Biddu með mér um frið á jörð. Frið á jörð, já frið á jörð, frið á jörð, já frið á jörð. Vídeótröll og kirkjan „Á valdi vídeótrölla“ heitir grein sem séra Bernharður Guð- mundsson ritar í nýjasta hefti Víðförla, málgagns kirkjunnar. Þar sem vídeóin eru nú mjög í brennidepli þykir okkur ekki úr vegi að birta brot úr innleggi sr. Bernharðs, sem að okkar mati er mjög þarft: „Gróðaarmar fjölþjóðlegra fyrirtækja myndbandatröll- anna ná nú hindrunarlítið inn í viðkvæma sálarkima margra ís- lenskra barna, eitra þar tilfinn- ingalíf og umhverfa eðlilegum viðhorfum og gildismati. Sem endranær eru það sem minnst mega, sem munu mest tapa, börnin úr vanmegna fjöl- skyldum sem ekki auðnast að verja þau eða vernda fyrir skaðlegum áhrifum. Þessi börn eru beinlínis í tröllahöndum - má ekki vænta þess að þau ær- ist, eins og gerðist í þjóðsögun- um? Þjóðfélagið hefur reynt að koma hér til liðs með lagaset'n- j ingu um aðra fjölmiðla. Það er' nauðsynlegt að sett verði lög um útlán myndbanda með of- beldisefni eða klámi, og al- menningur verði vakinn til um- hugsunar um þau skaðlegu á- hrif sem slíkt myndefni veldur. Umhyggja fyrir velferð barna hlýtur að sitja í fyrirrúmi fyrir gróðasjónarmiðum, jafnvel þótt þau séu undir gróðasjón- armiðum, jafnvel þótt þau séu undir yfirvarpi prentfrelsis og jafnvel listar. Hlýtur ekki kirkjan í boðun sinni um frið, um samhjálp, um virðingu fyrir mannlífinu, að benda á þetta vandamál við bæjardyrnar, og berjast fyrir því að frelsa börnin úr valdi ví- deótrölla?" „Hví skiptir kirkjan sér ekki af kjörum verkafólks?” heitir grein, sem Bjarnfríður Leósdóttir skrifar í nýjasta hefti Víðförla, málgagns kirkjunnar. Þar segir Bjarnfríður m.a.: „Ég hef það eftir öldruðum presti sem lét þau orð falla að það gæti verið að kirkja og kristindómur væri ekki það sama. Hefur kirkjan þá ein- hversstaðar orðið viðskila við sitt fólk, ekki látið sig varða hin ytri kjör alþýðunnar, orðið valdhöfum að bráð? Alla vega virðist vanta þann trúnað sem þarf að vera, til þess að alþýða manna treysti kirkj- unni tii þess að verja sinn málstað. Hver maður, og ekki síst prestar, verða með lífi sínu og starfi að lifa hugsjónir sínar og trú sína. Annars er ekkert mark á þeim tekið... Á vegum alkirkjuráðsins kom hingað til lands sl. haust þriggja manna hópur. í þessum hópi var þýsk kona sem í heimalandi sínu hafði starfað lengi að preststörfum í verka- lýðshreyfingunni. Meðal ann- ars fór hún að skoða frystihús og þótti starfsaðstaða kvenna svona og svona, og hún hafði orð á því að það væri ekki sann- færandi að prédika guðsorð yfir bakveikri verkakonu ef kirkjan gerði ekkert til þess að bæta aðstöðu hennar og hún bætti því við að ekki ætti hún svo styrka rödd á málþingum þjóðanna.“

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.