Þjóðviljinn - 15.02.1983, Page 7
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Sambands aimennra lífeyrissjóða,
SAL.
rétti hjóna í tvennt við skilnað þeg-
ar aðstæður eru eins og að framan
greinir".
s
Atak í gangi
Að lokum Hrafn, þið hjá Sam-
bandi lífeyrissjóða hafið haft ykkur
talsvert í frammi undanfarið ár
með útgáfu upplýsingarita. Hvað
veldur?
„Jú, það er alveg rétt að hjá okk-
ur hefur verið í gangi átak sem hef-
ur það að markmiði að kynna fé-
lögum sjóðanna rétt sinn og
skyldur. I marsmánuði á sl. ári gáf-
um við út lítinn bækling sem við
nefndum „Þekkir þú lífeyrisrétt
þinn“ og var hann prentaður í
50.000 eintökum. f júní það ár var
svo gefinn út annar ýtarlegri bæk-
lingur undir sama heiti og hann
prentaður í 6.600 eintökum.
Landssamband lífeyrissjóða og
SAL gaf svo út í haust bækling sem
var prentaður í 30.000 eintökum og
var nefndur: Lán úr lífeyrissjóðum -
hvað veistu um verðtryggð lán. Til-
gangurinn var að upplýsa lántak-
endur um þær breytingar sem orðið
hafa á lánskjörum hér á landi
undanfarin ár, þeas. verðtryggingu
lánanna. Okkar álit var að nokkurs
misskilnings og vanþekkingar gætti
á eðli þeirra lána sem lífeyris-
sjóðirnir hafa haft í boði og töldum
við að hin mikla eftirspurn eftir
lánum á síðustu árum stafaði að
nokkru leyti af þessari vanþekk-
ingu. Því væri ástæða til að bæta úr.
Hvað endurskoðun lífeyriskerf-
isins áhrærir vil ég taka það fram að
á vegum ýmissa hagsmunasam-
taka, s.s. ASÍ, VSÍ, Farmanna- og
fiskimannasambands fslands og
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna er unnið að nýskipan þessa
kerfis. Markmið þeirrar vinnu er
að samfelldu lífeyriskerfi sem
tekur til allra starfandi manna í
landinu verði sem fyrst komið á. Það
þarf að koma á jöfnuði milli allra
landsmanna í þessum efnum og ör-
yggið þarf að vera í sama mæli.
Auk þess starfs sem þessi sameigin-
lega nefnd er að vinna að er í gangi
vinna við samningu frumvarps um
starfsemi lífeyrissjóða og er stefnt
að því að leggja það frumvarp fram
í vor. Við ölum þá von í brjósti að
1. júní 1985 taki gildi nýskipan líf-
eyriskerfisins í landinu þar sem öllu
vinnandi fólki verði tryggður við-
unandi lífeyrir sem fylgi þróun
kaupgjalds á hverjum tíma. Það
eru brotalamir á núgildandi kerfi
sem þarf að sníða af en ég held að
vegna margvíslegra hagsmuna ein-
stakra sjóða sé ekki heppilegt að
stofna einn stóran lífeyrissjóð.
Hins vegar er sjálfsagt að stuðla að
fækkun lífeyrissjóðanna, enda
virðist þróunin stefna í þá átt, sem
betur fer.
Aðalatriðið í dag er hins vegar
að tryggja fjárhagslegan grundvöll
lífeyrissjóðanna, svo þeir séu færir
um að standa undir lífeyrisskuld-
bindingum í framtíðinni svo og að
samræma bótaákvæði sjóðanna.“
- v.
Þriðjudagur 15. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Sinfóníuhljómsveit íslands:
einleik í óbókonsert eftir Mozart.
Er þetta í fyrsta skipti sem Sigríður
leikur einleik með hljómsveitinni á
áskriftartónleikum, en hún býr í
Þýskalandi og starfar þar. Enn-
fremur verður flutt tónverkið
Friðarkall eftir Sigurð Garðarsson
og Pastoral-sinfónía Bethovens,.
Á sjöundu tónleikunum fá ís-
lenskir tónlistargestir að heyra tón-
verkið Choralis eftir Jón Nordal,
sem frumflutt var í Washington í
nóv. sl. og vakti mikla athygli. Ga-
briel Tacchino verður einleikari í
píanókonsert eftir Saint-Saéns og
tónleikunum lýkur með hinu sívin-
sæla Sheheresade eftir Rimsky-
Korsakoff.
Á síðustu áskriftartónleikunum
verður flutt 9. sinfónía Beetho-
vens, með aðstoð Söngsveitarinnar
Fílharmoníu, en síðar verður aug-
Atta áskriftar-
tónleikar framundan
Með tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands fímmtudaginn 17.
febr. nk. hcfst síðara missiri starfs-
árs hljómsveitarinnar, en alls held-
ur hún þá 8 tónleika og mun Jean-
Pierre Jacquillat stjórna fimm
þeirra.
Á fyrstu tónleikunum verða
Guðný Guðmundsdóttir konsert-
meistari og Nina G. Flyer selló-
leikari frá Israel einleikarar á kons-
ert fyrir fiðlu og selló eftir Brahms
og La Muse et le Poéte eftir Saint-
Saéns en auk þess verður leikin sin-
fónía nr. 25 eftir Mozart.
Á öðrum tónleikunum verður
flutt óperan Tosca eftir Puccini í
konsertformi með Sigelinde Ka-
hmann, Kristján Jóhannsson og
Robert Becker í einsöngshlutverk-
um og Söngsveitinni Fílharmoníu.
Þriðju tónleikunum mun P. P.
Pálsson stjórna, en þar verða flutt
verkin Snúningur eftir austurríska
tónskáldið Werner Schulze, en það
er tileinkað Sinfóníuhljóm-
sveitinni, sinfónía nr. 2 eftir Jean
Sibelius og trompetkonsert eftir
Haydn. Einleikari á þeim tón-
leikum verður Rolf Smedvig, ung-
ur, bandarískur trompetsnillingur
af norsk-íslenskum ættum, sem
lætur mikið að sér kveða í tónlistar-
heiminum vestan hafs.
Fjórðu tónleikarnir verða helg-
aðir enskri tónlist, með enskan
hljómsveitarstjóra og enskan ten-
órsöngvara. Hljómsveitarstjóri
verður Nicolas Braithwaite en
hann er sonur Warrick Braithwa-
ite, sem kom hingað fyrir unt það
bil 25 árum og stjórnaði konsert-
uppfærslu á II Trovatore eftir Ver-
di. Tenórsöngvarinn verður David
Rendall og verkin, sem flutt verða,
eru eftir Vaughan Williams,
Edward Elgar og Benjamin
Britten.
Á fimmtu tónleikunum verður
flutt sinfónía nr. 3 eftir Mendel-
sohn og Requiem eftir Gabriel
Fauré, með aðstoð Söngsveitarinn-
ar Fílharmoníu. Stjórnandi á þeim
tónleikum verður Guðmundur
Emilsson.
Á sjöttu tónleikunum verður
ungur íslenskur einleikari, Sigríður
Vilhjálmsdóttir, og mun hún leika
Tólftu hádegistónleikar Tón-
leikanefndar Háskólans verða
haldnir á morgun í Norræna húsinu
oghefjastþeirkl. 12.30. Ragnheið-
ur Guðmundsdóttir sópran syngur
einsöngslög við undirleik Guðrún-
ar Kristinsdóttur píanóleikara.
Á efnisskránni eru sönglög eftir
Edvard Grieg, Eyvind Alnæs,
Sverre Jordan og Pál ísólfsson.
Ragnheiður Guðmundsdóttir
söngkona stundaði nám hjá Maríu
Markan í fimm ár, innritaðist síðan
í Tónlistarskóla Kópavogs og lauk
þaðan burtfararprófi. Kennari
Ragnheiðar við Tónlistarskóla
Kópavogs var Elísabet Erlings-
dóttir. Framhaldsnám stundaði
Ragnheiður hjá Winifred Cecil óp-
lýst hverjir munu fara með ein-
söngshlutverkin.
Auk ofangreindra áskriftartón-
leika mun hljómsveitin standa fyrir
kammertónleikum, heimsækja
nágrannabyggðir og fara í tónleika-
ferð um Vesturland og Vestfirði
svo eitthvað sé nefnt, en alls munu
tónleikar hljómsveitarinnar á
þessu starfsári verða u.þ.b. 70
talsins.
Sala áskriftarskírteina fyrir síð-
asta missiri stendur yfir þessa daga
í skrifstofu hljómsveitarinnar að
Hverfisgötu 50, sími 22310.
-mhg
erusöngkonu í Nevy York. Þetta
eru aðrir tónleikar Ragnheiðar á
vegurn Tónleikanefndar Há-
skólans. Auk þess að koma frant
við ýmis tækifæri kennir Ragn-
heiður við Tónlistarskólana í Vog-
um og Ytri-Njarðvík.
Guðrún A. Kristinsdóttir píanó-
leikari stundaði nám við tónlistar-
skólann í Reykjavík. Einnig nam
hún við Konunglega tónlistar-
skólann í Kaupmannahöfn og í
Vínarborg hjá Bruno Seidelhofer.
Guðrún hefur haldið sjálfstæða
tónleika og verið einleikari með
sinfóníuhljómsveit íslands. Jafn-
framt hefur hún unnið með söngv-
urum og starfar nú við söngskólann
í Reykjavík.
Hádegistónleikar á morgun:
Ragnheiður Guðmunds-
dóttir sópran syngur
Kveöja frá Lionsfélögum
s
Asgeir Bjarnason
Fæddur 25. janúar 1924. — Dáinn 30. janúar 1983.
Það var sunnudaginn 30. janúar
sl. sem vinurokkarogfélagi Ásgeir
Bjarnason, verkstjóri, lést eftir
löng og erfið veikindi.
Það er alltaf sárt að sjá á bak
góðum vinum sínum yfir landa-
mæri lífs og dauða, enda þótt
stundum þýði það að loksins linni
þrautum og erfiðum veikindum í
þeim mannheimi sem við lifum í.
En þannig var því varið með Ásgeir
Bjarnason. Af mikilli hugprýði og
með bros á vör háði hann baráttuna
við veikindi sín, var alltaf samur og
hlýr á sinn hljóðláta hátt gagnvart
þeim sem í kringum hann voru.
Ásgeir var einn af stofnendum
Lionsklúbbsins Muninn í Kópa-
vogi og var þar starfandi og áhuga-
samur félagi allt til dánardags.
Hann hafði alla þá kosti til að
bera sem prýða mega góðan
Lionsfélaga. Hann var kærleiksrík-
ur, tillitssamur og kurteis, glaðvær
en starfsamur, áhugavekjandi og
traustur félagi og vinur sem
miðlaði og gaf öllum þeim sem í
kringum hann voru. í honum áttu
yngri klúbbféiagar góða fyrirmynd
og við allir trausta kjölfestu. Hverju
verki var vel borgið sem komið var í
hans hendur.
Nú er skarð fyrir skildi í Lions-
klúbbnum okkar. Við höfum mikið
misst og söknum hins hugljúfa og
hljóðláta manns. - En þakklæti og
hlýjar tilfinningar fylgja Ásgeiri
Bjarnasyni félaga okkar og vini nú
og ævinlega - og við eigum ljúfar
minningar um hann.
Fjölskyldu Ásgeirs, ættingjum
hans og vinum öllum sendum við
Lionsfélagarnir í Muninn innilegar
samúðarkveðjur og biðjum góðan
Guð að styðja þá og blessa í sorg
þeirra.
Vertu svo sæll Ásgeir Bjarnason
og góða ferð yfir í landið hinum
ntegin. Þú skilur eftir þig dýrmætar
minningar hjá okkur félögunum og
það verða fagnaðarfundir, þegar
við hittumst á ný í fyrirheitna
landinu handan lífs og dauða. Guð
blessi þig og minningu þína.
Stcfán Trjámann Tryggvason.