Þjóðviljinn - 15.02.1983, Side 14

Þjóðviljinn - 15.02.1983, Side 14
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 15. febrúar 1983 Dr. Sigurður Þórarinsson fyrirlestrana lífi. Fyrirlestrar Sig- urðar fjölluðu ekki einungis um jarðfræði, heldur fléttaði hann þar inn í frásögnum af siðum og menn- ingu hinna ýmsu þjóða sem jarð- kúluna byggja, s.s. Eskimóum, Indíánum, Sjerpum, Japönum og svona mætti lengi telja. Stutt var í glettnina og var hún ekki síður á eigin kostnað en annarra. Auðgi ímyndunaraflsins var alveg ótrú- leg. Einu sinni sem oftar vorum við „stödd“ með Sigurði uppi við Grímsvötn, þar sem hann lýsti á listilegan hátt, hvernig sigketillinn yfir Grímsvötnum myndast við Skeiðarárhlaup. „Og hugsið ykkur svo, þegar sigið hefst“, sagði hann, „hvernig jökulhellan dettur allt í einu niður um nokkra tugi metra í senn. Mig hefur alltaf langað til að sitja á jökulhellunni, meðan hún sígur. Það hlýtur að vera stórkost- legt. Hún tekur allt í einu að síga, „púms“, og svo aftur, „púms“, og maður fær flugferð á ný“. í anda fylgdumst við hugfangin með þess- ari flugferð, þar sem Sigurður sat á miðri hellunni og hélt báðum höndum um rauðu skotthúfuna sína. Jarðfræðinám byggist ekki síður á ferðalögum en bóknámi, því sjón er sögu ríkari. Á vorin fóru fyrsta árs jarð- og landfræðinemar ávallt í einnar viku námsferð með Sigurði um Suðurland. Þar hlutu menn sína eldskírn. Þessi ferð er ógleym- anleg, því Sigurður bjó yfir ótrú- legri þekkingu á landi og landshátt- um, hvort sem um var að ræða hæð á fjalli. nafn á bæ eða ábúanda, að ekki sé minnst á þjóðlegan fróð- leik. Hversu oft hafði Hekla gosiö? Varþetta „landnámslagið“? Hvers vegna verða Skeiðarárhiaup eða hvernig er umhorfs á Mýrdalssandi í Kötlugosi? Það var sama um hvað var spurt, Sigurður hafði ávallt svar á reiðum höndum, en þótt fræðin sætu í fyrirrúmi, var oft slegið á léttari strengi. Mikið var sungið og voru kvæði eftir Sigurð j afnan vin - sælust. Sigurður söng gjarnanmeð, sérstaklega ef sungin voru kvæði eins og „Ennþá geymist það mér í minni, María, María...“, eða „Land veit ég langt og mjótt..." Þegar textarnir sem við kunnum höfðu verið marg endurteknir og ekkert sérstakt bar fyrir í lands- laginu, tók Sigurður til sinna ráða. Hann kenndi okkur viðlag, en gerðist sjálfur forsöngvari og þá heilu kvæðin, sem jafnvel urðu til á staðnum. Sigurður skildi eftir sig mikið safn greina. Einn mikilvægasti þátturinn í skrifum hans er hvernig hann tengdi saman sögu lands og lýðs. Greinarnar eru flestar skrif- aðar á alþýðumáli, þar munu því leikir jafnt sem lærðir eiga Mímis- brunn að bergja á. Síðasta árið var mönnum ljóst að mjög hafði dregið af Sigurði. Ljós- ið ljómaði ekki eins skært og áður, en vinnugleðin virtist samt óþrjót- andi og stöðugt brá fyrir þeim neista glettni og gamansemi, sem einkenndu Sigurð jafnan. Leiðina frá vöggu til grafar göng- um við öll, þó með misjöfnum hætti. Hvert okkar skilur eftir sig spor, sumir þó dýpri en aðrir. Við sem vorum nemar og svo lánsöm að kynnast Sigurði og njóta handleiðslu hans þökkum innilega liðnar samverustundir, bæði í leik og starfi. Fjölskyldu Sigurðar sendum við heilshugarsamúðarkveðjur. Minn- ingarnar lifa. „En orðstír deyr aldregi, hveim sér góðan getur". Jarð- og landfræðinemar við Háskóla Islands. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðjudaginn 15. fe- brúar kl. 15:00. Inga Þórarinsson Snjólaug Sigurðardóttir Friðleifur Jóhannsson Sven Þ. Sigurðsson Mary Sigurðsson Auglýsing frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur um stöðv- uii á orkuafhendingu vegna vanskila. Þeir viðskiptamenn Rafmagnsveitu og Hita- veitu Reykjavíkur sem skulda gjaldfallna ork- ureikninga eru alvarlega minntir á að gera skil hið fyrsta. Frá og með þriðjudeginum 15. febrúar má búast við fyrirvaralausri stöðvun orkuafhendingar hjá þeim sem eru í van- skilum á orkuveitusvæði Rafmagnsveitu og Hitaveitu Reykjavíkur. Þar sem ekki verður komist að mælum verður orkuafhending um heimtaug rofin. RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR Skjásýn sf. Myndbanda- og tækjaleiga, Hólm- garði 34, sími 34666. Einungis VHS í þokkalegu úrvali. Blaðberi óskast í Hafnarfjörð, Kinnahverfi. DlOOVIUINN Umboðsmaður s. 53703. ^ ÞJÓÐLEIKHÚSIfl Lína langsokkur i dag kl. 17. Uppselt laugardag kl. 15. Jómfrú Ragnheiður föstudag kl. 20 laugardag kl. 20. Litla sviðiö: Súkkulaði handa Silju í kvöld kl. 20.30. Uppselt miövikudag kl. 20.30 fimmtudag kl. 20.30. Miðasala 13.15-20. Sími 1-1200. Jói aukasýning í kvöld kl. 20.30. Salka Valka miðvikudag kl. 20.30 laugardag kl. 20:30. Fáar sýningar eftir. Skilnaður fimmtudag kl. 20.30 sunnudag kl. 20.30. Forsetaheimsóknin föstudag kl. 20.30 Miðasala í Iðnó kl. 14-20.30, sími 16620. NEMERDA LEIKHUSIÐ UilKUSTARSKOU ISIANDS LINDARBÆ Símí 21971 Sjúk æska 8. sýn. þriðjudag kl. 20.30 9. sýn. fimmtuddg kl. 20.30 10. sýn. föstudag kl. 20.30. Miðasala opin alla daga kl. 17-19 og sýningardagana til kl. 20.30. IILi ilili ------- " ÍSLENSKA OPERAN föstudag kl. 20 laugardag kl. 20 sunnudag kl. 20. Næst síðasta sýningarhelgi. Miðasala opin milli kl. 15 og 20 daglega, sími 11475. A-salur Dularfullur fjársjóður Islenskur texti Spennandi ný kvikmynd með Terence Hill og Bud Spencer. Þeir lenda enn á ný í hinum ótrúlegustu ævintýrum og nú á eyjunni Bongó Bongó, en þar er falinn dularfullur fjársjóður. Leikstjóri: Sergio Corbucci. Sýnd kl. 5, 7.05, 9 og 11.05 LAUGARÁS Simsvari I 32075 — E.T. - Mynd þessi hefur slegið öll aðsóknarmet í Bandaríkjunum fyrr og síðar. Mynd fyrir alla fjölskylduna. Aðalhlutverk: Henry Thomas sem Elli- ott. Leikstjóri: Steven spielberg. Hljóm- list: John Williams. Myndin er tekin upp og sýnd í DOLBY STEREO Hækkað verð. Sýnd kl. 5, 7.10 og 9 ÐSími 19000 Leikfang dauðans Hörkuspennandi ensk-bandarísk lit- mynd, um njósnir og undirferli, með GENE HACKMAN - CANDICE BERG- EN - RICHARD WIDMARK Leikstjóri: STANLEY KRAMER (slenskur texti - Bönnuð innan 12 ára Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 Sweeney 2 Hörkuspennandi litmynd, um hinar harö- svíruðu sérsveitir Scotland Yard, með John Thaw og Dennis Waterman. Islenskur texti. Bönnuð börnum innan 14 ára. Sýnd kl. 3.05, 5.05,7.05,9.05 og 11.05. Late Show Spennandi og lífleg Panavision-iitmynd, um röskan miöaldra einkaspæjara, með ART CARNEY - LILY TOMLIN Leikstjóri: ROBERT BENTON Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10, 11.10. Etum Raoul Bráðskemmtileg bandarísk gamanmynd í litum. Blaðaummæli: „Ein af bestu gaman- myndum ársins" - „Frábær- Mary Wor- onov og Paul Bartel fara á kostum sem gamanleikarar" - „Sú besta sem sést hefur í langan tírna". MARY WORONOV - PAUL BARTEL Islenskur texti Sýndkl.3.15, 5.15, 9.15 og 11.15. Blóðbönd Sýnd kl. 7.15 Með allt á hreinu ..undirritaður var mun léttstígari, er hann kom út af myndinni, en þegar hann fór inní bíóhúsið". Sýnd kl. 5 og7 Sankti Helena Hörkuspennandi og hrikaleg mynd um eitt mesta eldfjall sögunnar. Byggð á sannsögulegum atburðum þegar gosið varð 1980. Myndin er í Dolby Stereo. Leikstjóri: Ernest Pintoff. Aðalhlutverk: Art Garney, David Huffman, Cassie Yates. Sýnd kl. 9. B-salur Snargeggjað Heimsfræg ný amerísk gamanmynd með Gene Wilder og Richard Pryor, sýnd kl. 5 og 9 Allt á fullu með Cheech og Chong Bráðskemmtileg ný amerísk grínmynd. Sýnd kl. 7 og 11.05. TÓNABÍÓ Simi 31182 The Party Þegar meistarar grínmyndanna Blake Edwards og Peter Sellers koma saman, er útkoman ætíð úrvalsgaman- mynd eins og myndirnar um Bleika Par- dusinn sanna. - I þessari mynd er hinn óviðjafnanlegi Peter Sellers aftur kom- inn í hlutverk hrakfallabálksins, en í þetta skipti ekki sem Clouseau leynilögreglu- foringi, heldur sem indverski stórleikar- inn (?) Hrundi, sem skilur leiksvið banda- rískra kvikmyndavera eftir í rjúkandi rúst með klaufaskap sínum. Sellers svikur engan! Leikstjóri: Blake Edwards Aðalhlutverk: Peter Sellers og Claudine Longet. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Melissa Gilbert (Lára í „Húsiö á slétt- unni") sem Helen Keller í: Kraftaverkið Bráðskemmtileg og ógleymanleg, ný, bandarísk stórmynd byggð á hluta af ævisögu Helen Keller. Aðalhlutverkið er stórkostlega vel leikið af hinni vinsælu leikkonu Melissu Gil- bert, sem þekkt er úr „Húsinu á slétt- unni" I hlutverki Láru. MYND, SEM ALLIR HAFAÁNÆGJU AF AÐ SJÁ. Isl, texti. Sýnd kl. 5 og 9. Ný, mjög sérstæð og magnþrungin skemmti- og ádeilukvikmynd frá M.G.M., sem þyggð er á textum og tónlist af plöt- unni „Pink Floyd -The Wall“. I fyrra var platan „Pink Floyd - The Wall“ metsöl- uplata. f ár er það kvikmyndin „Pink Floyd - The Wall“, ein af tíu best sóttu myndum ársins, og gengur ennþá víða fyrir fullu húsi. Að sjálfsögðu er myndin tekin í Dolby stereo og sýnd í Doiby stereo. Leikstjóri: Alan Parker Tónlist: Roger Waters og II. Aðalhlutverk: Bob Geidof. önnuð börnum. ækkað verð. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. iími 7 89 00 ,, Sálur 1: Gauragangur á ströndinni Létt og fjörug grlnmynd um hressa krakka sem skvetta aldeilis úr klaufunum eftir orófin í skólanum og stunda strand- lífið á fullu. Hvaða krakkar kannast ekki við fjörið á sólarströndunum. Aðalhlutv.: KIM LANKFORD, JAMES DAUGHTON, STEPHEN OLIVER. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur 2 Fjórir vinir Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.10. Salur 3 Meistarinn (A Force of One) Meistarinn er ný spennumynd með hin- um frábæra Chuck Norris. Hann kemur nú í hringinn og sýnir enn hvað í honum býr. Norris fer á kostum í þessari mynd. Aðalhlutverk: Chuck Norris, Jennifer O’Neill, Ron O’Neal. Sýnd kl. 5 - 7 - 9 - og 11. Bönnuð börnum innan 14 ára. Salur 4 Flóttinn Sýnd kl. 5 Sá sigrar sem þorir Sýnd kl. 7.30 og 10. Salur 5 Being there Sýnd kl. 9. (12. sýningarmánuöur)

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.