Þjóðviljinn - 15.02.1983, Síða 15

Þjóðviljinn - 15.02.1983, Síða 15
Þriðjudagur 15. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 RUV <9 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun- orð: Séra Bjarni Sigurðsson lektor talar. 9.05 Morgunstund barnanna: „Barna- heimilið" eftir Rögnu Steinunni Eyjólfs- dóttur Dagný Kristjánsdóttir les (7). 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 „Man ég það sem iöngu leið“ Ragn- heiður Viggósdóttir sér um þáttinn. 11.00 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja 11.15 Skipulag, stjórnun og þjónusta al- mannatryggingakerfisins; síðari þáttur Umsjónarmaður: Önundur Björnsson. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Þriðjudagssyrpa - Páll Þor- steinsson og Þorgeir Ástvaldsson. 14.30 „Vegurinn að brúnni“ eftir Stefán Jónsson Þórhallur Sigurðsson les (2). 15.00 Miðdegistónleikar Leonid Kogan og hljómsveit Tónlistarháskólans í París leika Fiðlukonsert í D-dúr op. 35 eftir Pjotr Tsjaíkovský; Constantin Silvestri stj ■ 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.20 Lagið mitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. • 17.00 „SPÚTNIK“. Sitthvað úr heimi vís- indanna Dr. Þór Jakobsson sér um þáttinn. 17.20 Sjóndeildarhingurinn Umsjónar- maður: Ólafur Torfason (RÚVAK.) 19.45 Tilkynningar. Tónleikar. 20.00 Kvöidtónleikar a. Julian Bream leikur á gítar verk eftir Johann Sebasti- an Bach, Maurice Ravel, Frederico Moreno Torroba og Isaac Albéniz. b. Elly Ameling syngur lög ur Mörike- ljóðabókinni eftir Hugo Wolf. Dalton Baldwin leikur á píanó. c. Gidon Krem- er og Andrej G.awrilow leika Fiðlusón- ötu op. 134eftir Dmitri Sjostakovitsj. d. Yara Bernette leikur á píanó Prelúdfur op. 32 eftir Sergej Rakhmaninoff. 21.45 Útvarpssagan: „Sonur himins og jarðar“ eftir Káre Holt Sigurður Gunn- arsson les þýðingu sína (18). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Lestur Passíusálma (14), 22.40 Áttu barn? 2. þáttur um uppeldismál í umsjá Andrésar Ragnarssonar. 23.20 Spor frá Gautaborg Adolf H. Emils- son sendir þátt frá Svíþjóð. RUV Hví ekki að framleiða vörurnar sjálf? Signý Kjartansdóttir skrifar frá Spáni: Þann 19. janúar 1983 varð ég þess heiðurs aðnjótandi að fá að skoða alþjóðlega textíl- sýningu í Valentía hér á Spáni. Sýningin var annars aðeins opin sterkum kapítalistum því þarna var til sýnis og sölu framleiðsla þeirra mörgu verksmiðja á þessu sviði, sem virðist mala gull í hinum iðnvædda heimi. Framleiðsl- an var margbreytileg, enda framleiðendur með ólíka markaði í huga. Spánverjar framleiða t.d. aðallega fyrir Arabaþjóðirn- ar, rúmteppi og gardínur, sem falla vel að smekk olíukóng- anna. Þeirra á millum fóru fram mikil viðskipti. Frakkar og ftalir höfðu á boðstólum efni í skærum litum og pastel- litum í takt við þá tísku, sem ríkir nú í Norður-Evrópu. ís- lendingar voru ekki með bás. Þarna voru líka til sýnis og sölu vélarnar, sem notaðar eru við framleiðsluna og það hafði mikil áhrif á mig að sjá hvernig þessar vefnaður- knipl- og saumamaskínur unnu, tölvustýrðar auðvitað. - Já, mikils er mannsheilinn megnugur. Hvernig stendur annars á því að íslenskir kapítalistar fjárfesta ekki í álíka vélum, sem bæði gætu skapað atvinnu' og gjaldeyri? Þeir, sem eiga peninga heima á fslandi, virð- ast nær eingöngu sjá hag sinn í því, að kaupa fullunnar vörur frá útlöndum. Síðan ávaxta þeir fé sitt með því að selja vörurnar á uppsprengdu verði í búðum sínum. íslenskt, vinnandi fólk þarf að vinna mikla yfirvinnu til þess að geta keypta allan innflutninginn og staðið undir verslunarbákn- inu. - Er gróðanum af versl- uninni eytt í nokkuð annað en einbýlishús og tvöfaldan bíl- skúr? Væri ekki nær að eyða þess- um gróða í að koma á fót framleiðslu í landinu sjálfu, framleiða t.d. okkar eigin handklæði, rúmföt og viska- stykki svo eitthvað sé nefnt af því, sem við notum á hverjum degi? Þó sleppi ég því hér, sem er e.t.v. flóknara, svo sem útvörp, klukkur og þess háttar. - Eða kunna Islend- ingar e.t.v. ekki annað en veiða fisk og prjóna lopa- vörur? Annars væri ekki verra að þetta yrði verkefni ríkis- kapítalismanns, - finna hvar fjármagnið liggur (hjá Aröb- um?) og framleiða vörur við þeirra hæfi svo peningarnir streymi heim til íslands. Aukin framleiðsla, samfara minni innflutningi, er auðvit- að eina svarið við viðskipta- hallanum við útlönd, sem fs- lendingar hafa svo lengi glímt við. Með von um að íslendingar verði með á næstu textílsýn- ingu hér og ósk um efnahags- legt sjálfstæði íslensku þjóð- arinnar í framtíðinni, læt ég þessu skrifi lokið. Þetta er pabbi - Svona er mamma Teygjuleikur Teygjubútur var teygður svo að lengd hans fjór- faldaðist og þá voru klipptir lócmaf teygjunni. Síðan var slakað á teygjunni aftur og þá mældist hún vera 3/4 af upphaflegri lengd sinni. Reiknaðu nú út hve langur teygjubúturinn var upphaflega. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Sögur úr Snæfjöllum. Barnamynd frá Tékkóslóvakíu. Þýðandi Jón Gunn- arsson. Sögumaður Þórhallur Sigurðs- son. 20.40 Á skíðum Fyrsti þáttur. Skíðakenn- sla í þremur þáttum sem gerðir voru í Kerlingafjöllum í fyrrasumar. í fyrsta þætti er fjallað um útbúnað og undir- stöðuatriði fyrir byrjendur á svig- skíðum. Þorgeir D. Hjaltason, skíðak- ennari, annaðist gerð þáttanna en leiðbeinandi ásamt honurn er Guð- mundur Jakobsson. Annar þáttur verður á dagskrá Sjónvarpsins miðviku- daginn 23. febrúar kl. 19.00. 21.05 ÚtlegðFimmti þáttur. GingoldÞýsk- ur framhaldsþáttur í sjö þáttum. 22.05 Kjarabót láglaunamanna - kaupauki hátekjumanna? Umræðuþáttur í beinni útsendingu um láglaunabæturnar en þær verða næst greiddar 1. mars næstkom- andi. Umsjónarmenn: Erna Indriða- dóttir og Rafn Jónsson. 23.10 Dagskrárlok. Erfitt að ná í augnlækna Lesandi hringdi og kvartaði mjög undan erfiðleikum á þvi að ná sambandi við augn- lækna. - Það er nú þannig ástatt með mína sjón, sagði viðmæl andi okkar, - að ég hefi um nokkurt skeið talið mig hafa brýna þörf á því að ná til augnlæknis. En að því virðist ekki auðhlaupið. Ég er nú bú- inn að reyna það á annan mánuð en árangurslaust til þessa. Ég hefi að sjálfsögðu hringt á auglýstum símaviðtal- stímum en síminn hjá. augnlæknum virðist alltaf vera á tali. Auðvitað eru augnlæknar fáir, alltof fáir, en þörfin fyrir þá mikil. Ég efast því ekki um, að þeir séu önnum kafnir. En hér getur verið mikið í húfi fyrir sjúklinginn. Símaviðtals tíminner yfirleittstuttur, 1-2 Bréf til Barnahornsins Myndirnar hennar Lilju Unufelli 9, 8.2.’83 Ágæta barnahorn! Lilja Eggertsdóttir Unufelli 9, Reykjavík send- ir þér nokkrar myndir. Hún hefur mjög gaman af barnahorninu og skoðar vel myndirnar. Hún er 5 ára. Lilja segir að svörtu myndirnar séu pabbi og mamma. En Lilja hefur meira gaman af að teikna með litum. Vonumst eftir ýmsu skemmtilegu. Lifið vel. Fyrir hönd Lilju, Hólmfríður Gísladóttir. Svar frá barnahorninu: Kæru Lilja og Hólmfríður! Því miður getum við ekki prentað myndirnar hennar Lilju í lit, en vonandi koma þær skemmti- lega út samt. klst. á dag og hjá sumum ekki lengja hann eitthvað? Það ætti alla virka daga vikunar. Sjá að auðvelda fólki að ná tali af augnlæknar sér ekki fært að þeim. y VI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.