Þjóðviljinn - 15.02.1983, Qupperneq 16
UODVIUINN
Þriðjudagur 15. febrúar 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag tii föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í stma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Olafur Ragnar Grímsson um vísitölufrumvarpið
Framsókn er mikið mál
- Athæfi Framsóknarflokksins
og offors við að troða þessari vísi-
töluskerðingu í gegn er slíkt, að
þeir brjóta allar þingvenjur og
hefðir, sagði Ólafur Ragnar
Grímsson þingflokksformaður AI-
þýðubandalagsins um ákafa Fram-
sóknarmanna við að koma vísitöl-
ufrumvarpi forsætisráðherra á
dagskrá þingsins í gær.
- Til að byrja með fór forsætis-
ráðherra fram á að fá að mæla fyrir
frumvarpinu kl. 18.00 (í gærkveldi)
sama dag og frumvarpið er lagt
fram. Þessu neitaði forseti neðri
deildar Sverrir Hermannsson enda
bráðabirgðalögin á dagskrá.
- Eftir hádegið var svo fundur
með forsetum og þingflokksfor-
mönnum, þar sem samþykkt var að
mælt yrði fyrir málínu kl. 13.00 (í
dag). Um þetta var fullt samkomu-
lag.
- Næst gerist það að Framsókn-
armennirnir Páll Pétursson og
Halldór Ásgrímsson krefjast þess
af forseta að málið verði tekið fyrir
um kvöldið þvert ofan í samþykktir
forseta þingsins og þingflokksfor-
manna. Þessu neitar Sverrir Her-
mannsson að sjálfsögðu.
- Þá gerist það næst, að Halldór
Ásgrfmsson boðar kl. 9.00 (í morg-
un) fund hj á fj árhags- og viðskipta-
nefnd neðri-deildar án þess að
mælt hafi verið fyrir frumvarpinu.
Slíkt hefur aldrei gerst áður í and-
stöðu við einn þingflokk. Þannig
eru Framsóknarmenn farnir að
fara offari gegn hefðum og þing-
venjum til þess að koma fram af-
greiðslu á frumvarpi sem felur í sér
vísitöluskerðingu, sagði Óiafur
Ragnar Grímsson að lokum. -óg
Síðustu fréttir: Laust fyrir
miðnætti afboðaði Halldór Ás-
grímsson fund fjárhags- og
viðskiptanefndar eftir harðorð
mótmæli Alþýðubandalagsins og
viðburðaríkan þingdag í gær. -óg
Miðstjórnir Abl. og Framsóknar:
Formennfengu umboð
Miðstjórnir Alþýðubandalagsins
og Framsóknarflokksins veittu
báðar formönnum sínum, þing-
flokki og framkvæmdastjórn um-
boð til þess að vinna áfram að sam-
komulagi í kjördæmamálinu á
fundum sínum nú um helgina.
I gær voru allar horfur á því að
stutt væri í samkomulag milli þing-
flokkanna um tillögur í frumvörp
að breytingum á stjórnarskrá og
kosningalögum. Meginlínur virð-
ast vera komnar í þær viðræður, en
innan flokka er þó enn tekist á um
nokkur atriði.
-ekh
Miðstjórn Alþýðusambands íslands:
Skorað á
Alþýðusamband íslands hcfur
fagnað því að sett hafa verið lög um
málefni aldraðra og einnig því að
frumvarp um málefni fatlaðra skuli
hafa verið lagt fram á Alþingi.
Skorar miðstjórn ASÍ jafnframt á
alþingismenn að tryggja framgang
málsins á yfirstandandi þingi með
því að samþykkja frumvarpið og
koma þessu mikilvæga hagsmuna-
máli í höfn.
Það var í tengslum við lausn
kjaradeilunnar á liðnu sumri sem
þingið
ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu
varðandi málefni fatlaðra. Þar hét
ríkisstjórnin því m.a. að lögð yrðu
fram frumvörp um málefni aldr-
aðra og fatlaðra og að hún mundi
beita sér fyrir því að bæði þessi
frumvörp yrðu gerð að lögum á
yfirstandandi þingi.
Lög um málefni aldraðra voru
samþykkt fyrir jól og nú hefur mið-
stjórn ASÍ sumsé þrýst á um að
frumvarpið um málefni fatlaðra fái
sömu meðferð. ~ V-
Miklar framkvæmdir
fyrirhugaðar á
Laugarnestanga:
„Atlagan
að grænu
svæðun-
um hafin
sagði Sigurður
Harðarson fulltrúi í
skipuíagsnefnd
„Það þarf enginn að velkjast í
vafa um það lcngur að atlaga í-
haldsins í Reykjavík að grænu
svæðunum er hafin af fullum
krafti“, sagði Sigurður Harðarson
fulltrúi Alþýðubandalagsins í
skipulagsnefnd í samtali við Þjóð-
viljann í gær. Nú liggur fyrir tillaga
í skipulagsnefnd um að leggja vegi
og bílastæði á Laugarnestanga, en
þar var fyrirhugað að yrði
útivistarsvæði Reykvíkinga.
Þá hefur verið samþykkt að
heimila byggð á grænu svæði á
horni Réttarholtsvegar og Soga-
vegar, austan við hús Ingvars Helg-
asonar hf. Þar skulu rísa skrifstofur
og fleira.
„Á fundi skipulagsnefndar í gær
stóð til að samþykkja lagningu veg-
ar að Sundahöfn, þvert yfir
útivistarsvæðið á Laugarnestanga,
vestan við sjálfan Laugarnes-
Sigurður Harðarson fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í skipulags-
nefnd: enginn treysti sér til að
styðja tillögu mína um að leitað
yrði umsagnar.
bæinn. Einnig er fyrirhugað að
heimila nýja aðkomu að væntan-
legu húsi Sláturfélagsins sunnan
við Sætún og leggja hluta af fyrir-
huguðu útivistarsvæði undir bíla-
stæði“, sagði Siguröur Harðarson
ennfremur.
Til stóð að samþykkja þessar
vegalagningar á Laugarnesi en Sig-
urður bað um frestun til að unnt
yrði að leita umsagnar Borgar-
skipulags og Umhverfismálaráðs
svo og að kynna fyrirhugaðar
breytingar fyrir íbúum í nærliggj-
andi byggð. Enginn annar fulltrúi í
Skipulagsnefnd treysti sér þó til að
styðja tillögu Sigurðar og sátu full-
trúar Kvennaframboðs og
Sjálfstæðisflokks hjá. Bókaði Sig-
urður að það vekti sérstaka athygli
að formaður skipulagsnefndar,
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, virtist
sérstaklega andvígur öllu samráði
og samvinnu við Umhverfismála-
ráð.
Togarar Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar eru byrjaðar að landa og hjólin því farin að snúast '& ný í Bæjarút-
gerðinni. Ljósm. Atli.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
Vinna hafin á ný!
„Það hefur lifnað yfir öllu hér og
auðvitað almenn ánægja hjá fólki
að vera komið til vinnu aftur. Þetta
hefur verið ansi dauft undanfarnar
vikur“, sagði Þorvarður Gunn-
laugsson verkstjóri hjá Bæjarút-
gerð Hafnarfjarðar í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Um helgina kom Bv. Maí af
veiðum og landaði í Bæjarút-
gerðinni 140 tonnum af ufsa og
karfa. Á morgun landar svo Bv.
Apríl.
Vinna hefur legið niðri í Bæjar-
útgerð Hafnarfjarðar frá því síðast
í desember eða í hálfan annan mán-
uð, en alls misstu um 150 manns
atvinnuna.
Allflestir starfsmenn voru
komnir til vinnu í gær.
-Ig-
Lagaboð án samkomulags:
Alvarleg áhrif á
st j órnarsamstarf
„Fundurmiðstjórnar Alþýðubándalagsinsl2.febrúar
1983 telur óhjákvæmilegt að einhliða ákvörðun ein-
stakra stjórnaraðila um flutning frumvarps um vísitöl-
umálið hljóti að hafa alvarleg áhrif á stjórnarsamstarf-
ið, vegna þess að ákvæði stjórnarsáttmálans kveða á um
annað. Flokkurinn hlýtur að meta slík vinnubrögð í
tengslum við framgang annarra mála í stjórnarsam-
starfínu og Alþingi á næstunni.“
Á þessa leið er komist að orði í
samþykkt miðstjórnar Alþýðu-
bandalagsins, sem gerð var ein-
róma á fundi miðstjórnarinnar sl.
laugardag. í samþykktinni segir
ennfremur:
„Miðstjórn Alþýðubandalagsins
mótmælir harðlega þeim tillögum
um breytingar á vísitölukerfinu,
sem nú liggja fyrir af hálfu annarra
aðila í ríkisstjórninni.
Miðstjórnin telur, að breyta beri
núverandi vísitölukerfi í samræmi
við neyslukönnun Hagstofunnar
frá 1979-80 og að gera verði ýmsar
breytingar á núverandi viðmiðun-
arkerfi, enda stuðli þær að því að
tryggja betur kaupmátt almennra
launa og þá ekki síst hinna lægstu
launa.
Fundurinn leggur áherslu á að
breytingar á vísitölukerfinu verða
hins vegar að eiga sér stað í beinum
tengslum við aðrar breytingar á
efnahagskerfinu. Alþýðubanda-
lagið er reiðubúið til samstarfs um
að tryggja nauðsynlegar breytingar
á stjórn efnahagslífsins og minnir í
því sambandi á ákvarðanir ríkis-
stjórnarinnarfrá sl. ári um verðlag-
skerfi sjávarútvegs og landbúnaðar
og tillögur Alþýðubandalagsins
varðandi sjóðakerfið, innflutnings-
verslunina og fleiri þætti efnahags-
mála. Því miður hafa ákvarðanir
ríkisstjórnarinnar frá sl. ári í þess-
um efnum ekki náð fram að ganga,
og þess vegna er fráleitt að mati
flokksins að slíta vísitölumálið út
úr samhengi, eins og tillögur eru nú
um innan ríkisstjórnarinnar.“