Þjóðviljinn - 26.02.1983, Blaðsíða 25

Þjóðviljinn - 26.02.1983, Blaðsíða 25
Helgin 26. - 27. febrúar 1983'ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 25 bridgc____________________ Meistarastig Bridgesambandsins Þórarinn enn efstur Komin er út skrá yfir meistara- stig á íslandi, 1983. Þar eru skráð stig frá 27 félögum innan Bridge- sambandsins, alls 530 nöfn. Efstu menn á landinu í dag eru: Þórarinn Sigþórsson BR 569 Ásmundur Pálsson BR 546 Örn Arnþórsson BR 530 Guðlaugur R. Jóhannsson BR 527 Valur Sigurðsson BR 431 Jón Baldursson BR 411 Hörður Arnþórsson BR 399 Sigurður Sverrisson BR 398 Stefán Guðjohnsen BR 393 Sævar Þorbjörnsson BR 369 Hjalti Elíasson BR 359 Guðmundur Pétursson BR 331 Guðmundur Sv. Hermannsson BR 330 Guðmundur Páll Arnarson BR 329 Óli Már Guðmundsson BR 325 Þorlákur Jónsson BR 262 Sverrir Ármannsson BR 256 Skúli Einarsson BR 224 Þórir Sigurðsson BR 223 Þorgeir P. Eyjólfsson BR 221 Egill Guðjohnsen BR 207 Sigtryggur Sigurðsson BR 205 Ólafur Lárusson BR 203 Jakob R. Möller BR 201 Gestur Jónsson TBK 200 Jón Hjaltason BR 193 Hermann Lárusson BR 189 Björn Eystcinsson BH 167 Símon Símonarsson BR 166 Ármann J. Lárusson BK 162 Þetta eru 30 stigahæstu spilarar landsins þessa dagana. Nánar verð- ur farið í saumana á skránni í næstu þáttum. Reykjanesmótið í dag lýkur Reykjanesmótinu í sveitakeppni, sem jafnframt er undankeppni fyrir íslandsmót. Aðeins 7 sveitir taka þátt í mótinu. Spilað er í íþróttahúsinu Hafnar- firði. Eftir 5 umferðir var staða efstu sveita þessi: 1. sveit Ármanns J. Lárussonar 66 stig 2. sveit Sigurðar Vilhjálmssonar 61 stig 3. sveit Friðþjófs Einarssonar 60 stig 4. sveit Aðalsteins Jörgensen 55 stig. Spilamennska hefst kl. 13.00. Afmælismót Bridgefélags Borgarfjarðar Um næstu helgi fer fram að Logalandi í Borgarfirði, afmælis- mót Bridgefélags Borgarfjarðar, í tilefni 25 ára afmælis félagsins. Stefnt er að þátttöku 36-40 para. í boði eru peningaverðlaun fyrir 3 efstu sætin. Mótið verður allt spil- að á laugardeginum 5. mars. Ef einhverjir hafa áhuga á að vera með (ef enn er laust pláss) ættu þeir að hafa samband við Þorvald Pálm- ason eða Eirík Bjarnason þar vestra. Frá Bridgedeild Skagfirðinga Fyrirhugað var að spila við Suðurnesjamenn sl. þriðjudag, en af því gat ekki orðið. Ástæðan var víst sú að tvær efstu sveitirnar voru „uppteknar“ við að spila við offisé- rana á Vellinum. Þar er líklega komin skýringin á þátttökuleysi sveita frá Suðurnesjum í Reykja- nesmótið. Þar mætti heldur ekki nein sveit frá þeim fornu köppum, sem hér áður fyrr gerðu garðinn frægan. Þess í stað var því slegið upp Monrad-sveitakeppni með 8 spil- um í leik. Alls voru spilaðir 4 leikir. 10 sveitir tóku þátt í keppninnf og urðu úrslit þau að sveit Björns Her- mannssonar sigraði. Með honum voru: Lárus Hermannss., Ólafur Láruss., og Rúnar Lárusson. 1. sveit Björns Hermannssonar 58 stig 2. sveit Baldurs Ásgeirssonar 54 stig 3. sveit Hjálmars Pálssonar 46 stig. Áætlað er að spila nk. þriðjudag, við Suðurnesjamenn. Umsjón Ólafur Lárusson Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Nú er aðeins eitt kvöld eftir í aðaltvímenningskeppni félagsins. Greinilegt er, að núverandi félags- meistarar þeir Jón Ásbjörnsson og Símon Símonarson hafa fullan hug á að halda titlinum, en þeir skor- uðu látlaust s.l. miðvikudag og eru nú langefstir. Staðan á toppnum er annars þessi: Jón Ásbjörnsson - Símon Símonarsson 415 Sigurður Sverrisson - Valur Sigurðsson 306 Aðalsteinn Jörgensen - Stefán Pálsson 296 Hermann Lárusson - Ólafur Lárusson 266 Guðiaugur R. Jóhannsson - Örn Arnþórsson 253 Guðmundur Sveinsson - Þorgeir Eyjólfsson 247 Ásmundur Pálsson - Karl Sigurhjartarson 246 Guðmundur P. Arnarson - Þórarinn Sigþórsson 244 Stefán Guðjohnsen - Sigtryggur Sigurðsson 238 Jón Baldursson - Sævar Þorbjörnsson 225 Hjalti Elíasson - Jakob R. Möller 223 Síðustu 6 umferðirnar verða spil- aðar n.k. miðvikudag í Domus Me- dica kl. 19:30 stundvíslega. Næsta keppni félagsins er board a match sveitakeppni, sem stendur í þrjú kvöld. Keppt er um Stefáns- bikarinn, sem Valur Fannar gull- smiður gaf. Keppnin hefst þriðju- daginn 8. mars (ath. breyttan spila- dag) og eru þeir sem hyggja á þátt- töku beðnir að skrá sig sem fyrst hjá einhverjum stjórnarmanni eða á spilakvöldinu næsta miðvikudag. Frá Bridgefélagi Suðurnesja Aðalfundur Bridgefélags Suðurnesja var haldinn fyrir skömmu. Þar var kjörinn nýr for- maður Gísli Torfason. Einu móti er lokið hjá félaginu JGP mótinu sigurvegari varð sveit Jóhannesar Sigurðssonar eftir jafna og harða keppni við sveit Einars Júlíussonar. Nú stendur yfir 4 kvölda barómeter keppni og eftir 2 kvöld og 52 spil er röðin þannig. 1. Arnór Ragnarsson og Sigurhans Sig- urhansson 183 stig, 2. Karl Hermannsson og Magnús Torfason 126 stig, 3. Haraldur Brynjólfsson og Gunnar Sigurjónsson 84 stig, 4. Gísli ísleifsson og Hafsteinn Haf- steinsson 70 stig, 5. Guðmundur Sigurjónsson og Snorri Geirdal 48 stig, 6. Arnar Arnbjörnsson og Marel Sig- urðsson 47 stig, Spilað er á Stapa á mánudögum, æfingar á fimmtudögum í Fram- sóknarhúsinu. Bridgedeild Barðstrendinga- félagsins Mánudaginn 21. febrúar lauk aðalsveitakeppni félagsins með þátttöku 13 sveita. Úrslit urðu þau að sveit Ragnars Þorsteinssonar sigraði en auk hans spiluðu Þórar- inn Árnason, Ragnar Björnsson og Helgi Einarsson. Staða 8 efstu sveita var: 1. Ragnar Þorsteinsson 188 stig 2. Einar Flygering 175. st. 3. Sigurður Kristjáns. 155 st. 4. Viðar Guðmundsson 153 st. 5. Hermann Ólafsson 148 st. 6. Sigurður Isaksson 146 st. 7. Þórir Bjarnason 134 st. 8. Þorsteinn Þorsteins. 125 st. Frá Bridgefélagi Breiðholts Nú er lokið fyrsta kvöldinu af þremur í Butler-tvímennings- keppni félagsins. Alls taka 20 pör þátt í keppninni og er spilað í tveimur riðlum. Eftir 1. kvöldið er staða efstu para þessi: A-riðill: Tómas Sigurjónsson - Jóhannes Sigmundsson Þorvaldur Jónsson 47 - Jósep Karlsson Árni Björnsson 42 - Tryggvi Tryggvason 39 B-riðill: Sigurbjörn Ármannsson - Sigurður Ásmundason 48 Þórarinn Árnason _ - Gunnlaugur Guðjónsson Ágúst Björgvinsson 44 - Ingimar Jónsson 34 BORGARSPITALINN LAUSAR STÖÐUR Hjúkrunarfræðinga, aðstoðardeildarstjóra á A-5 skurðlækningadeild og á E-6 hjartasjúkdómadeild. Lausar stöður hjúkrunarfræðinga við ýmsar deildir spítalans. Vinnutími eftir samkomulagi. Hjúkrunarfræðinga vantar til sumarafleysinga. Sjúkraliða vantar til sumarafleysinga. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og störf, sendist til hjúkrunarforstjóra. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrunar- forstjóra, sími 81200. Sjúkraþjálfarar Sjúkraþjálfarar óskast til afleysinga á Borgarspítalann n.k. sumar. 50% staða sjúkraþjálfara á hjúkrunardeildinni í Hvíta- bandi er einnig laus til umsóknar nú þegar. Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir yfirsjúkra- þjálfari í síma 81200. Forstöðumaður tölvudeildar Borgarspítalinn óskar að ráða verkfræðing eða tölv- unarfræðing í stöðu forstöðumanns tölvudeildar. Hér er um að ræða mjög fjölbreytt en krefjandi starf við stjórnun og skipulagningu tölvuþjónustu í spítalanum. Starfið krefst þess að viðkomandi sýni frumkvæði og búi yfir góðum samstarfs- og samskiptahæfileikum. Reynsla í FORTRAN-forritun er nauðsynleg. Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu í hönnun og/eða forritun sívinnslukerfa. Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um menntun og starfsreynslu skulu sendar framkvæmdastjóra Borgarspítalans fyrir 20. mars n.k. Upplýsingar um starfið veita framkvæmdastjóri og for- stöðumaður tölvudeildar. Reykjavík, 25. febrúar 1983. Borgarspítalinn Félagsmálastofnun Kópavogs Fóstrur óskast til starfa á eftirtöldum dagvist- arheimilum: 1. Leikskólann Kópahvol. Upplýsingar gefur forstööumaöur í síma 40120. 2. Dagheimilið Furugrund. Upplýsingar gef- ur forstöðumaður í síma 41124. 3. Dagheimilið Kópastein. Upplýsingar gef- ur forstöðumaður í síma 41565. 4. Skóladagheimilið Dalbrekku 2. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 41750. Dagvistarfulltrúi sími 41570. Félagsmálastofnun Kópavogs. BMW Nýrogenn fullkomnari 316-3181- 320Í-323Í Bl LASYNING © Sýnum laugardag og sunnudag frá kl. 1—6 KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 Kynnum BMW: -315, -316, -318i, -320i, - 323i, -518, og -520i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.