Þjóðviljinn - 26.02.1983, Blaðsíða 29
Helgin 26. - 27. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 29
sjónvarp ~ ~~
um. Það býr enginn lengur á býl-
inu, en húsið er samt mjög sjaldan
tómt. Þarna er venjulega fullt af
forvitnum ferðamönnum.
Hér bjuggu Laura Ingalls Wilder
og eiginmaður hennar, Almanzo.
Hér skrifaði Laura bækur sínar um
Húsið á sléttunni, en hina fyrstu
skrifaði hún 65 ára að aldri. Sög-
urnar eru hálfgildings ævisögur -
bakgrunnurinn er að nokkru sann-
ur þótt auðvitað sé fært í stílinn eins
og í öllum sögum. Laura, Almanzo
og dóttir þeirra, Rose, bjuggu á
bóndabýlinu, sem lýst er hér að of-
an, frá árinu 1894. Og nú hefur
semsé verið komið upp minjasafni
á bóndabýlinu og reynt að halda
því sem mest í upprunalegu formi.
sjónvarp
laugardagur
16.00 íþróttir Umsjónarmaöur Bjarni Fel-
ixson.
18.00 Hildur Sjötti þáttur dönskukennsl-
unnar.
18.25 Steini og Olli. Verðir laganna Skop-
myndasyrpa með Stan Laurei og Oliver
Hardy.
18.45 Enska knattspyrnan
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Þriggjamannavist (Tom, Dick and
Harriet) Nýr flokkur Fyrsti þáttur.
Breskurgamanmyndaflokkur í sex þátt-
um. Aöalhlutverk: Lionel Jeffries, Ian
Ogilvy og Bridgit Forsyth. Eftir 40 ár
fær Tómas Maddison langþráða lausnaf
klafa hjónabandsins. Hann sest aö hjá
syni sínum og tengdadóttur til að eyöa
þar áhyggjulausri eili, ungu hjónunum
til mestu skapraunar.
21.00 Frá liðnum dögum Minningar frá
fyrstu dögum Sjónvarpsins. Kynnir er
21.45 Tomas Ledin (The Human Touch)
Dægurlagaþáttur meö sænska söngvar-
anum Tomas Ledin og hljómsveit,
ásamt Agnethu úr Abba.
22.10 Bréflð (The Letter) Ný bandarísk
sjónvarpsmynd gerö eftir samnefndri
smásögu Somerset Maughams. Leik-
stjóri John Erman. Aðalhlutverk: Lee
Remick, Jack Thompson, Ronald Pick-
up, Ian McShane og Christopher Caze-
nove. Myndin gerist í Malasíu meöan
landið var bresk nýienda. Par heyröi
Maugham sögu þessa sjálfur. Eiginkona
virts borgara veröur elskhuga sínum aö
bana. Konan ber viö sjálfsvörn en leyni-
legt bréf ril elskhugans veröur til aö
flækja ináiið.
sunnudagur
16.00 Sunnudagshugvekja
16.10 Húsið á sléttunni. Ævintýrahúsið
Bandarískur framhaldsfíokkur. Þýö-
andi Óskar Ingimarsson.
17.00 Listbyltingin mikla Sjöundi þáttur.
Robert Hughes fjallar um áhrif stór-
borgarlífsins á listir og afsprengi þess.
popplistina. Pýöandi Hrafnhildur
Schram. Þulur Þorsteinn Helgason.
18.00 Stundin okkar Umsjónarmaöur
Bryndís Schram. Upptöku stjórnar Viö-
ar Víkingsson.
18.55 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
20.50 Glugginn Þáttur um listir, menning-
armál ög fleira. Umsjónarmaöur
Sveinbjörn I. Baldvinsson.
21.30 Landið okkar. Gljúfrin miklu í
norðri - Síðari hluti í skjóli kletta og
kynjamynda Jökulsá á Fjöllúm er fylgt
frá Hólmatungu niður í Kelduhverfi.
Leiö hennar liggur um íystigaró trölls-
legra hamramynda og undramikils
gróöurs. Umsjónarmaöur og þulur
Björn Rúriksson. Upptöku stjórnaði
Maríanna Friöjónsdóttir.
21.55 Kvöldstund með Agöthu Christie 7.
Edward Rohinson verður að manni Aö-
alhlutverk Nicholas Farrell og Cherie
Lunghi. Ástar- og ævintýrasaga um ung-
an mann sem hlýtur stóra vinninginn í
verölaunasamkeppni. Þýöandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
22.45 Albanía Fyrri hluti. Land tvíhöfða
arnarins. Finnsk heimildarmynd. Litast
er um í þessu einangraða ríki á Balkan-
skaga og brugöið upp mynd af lífi fólks-
ins og landshögum. Þýöandi Trausti Jú-
líusson. (Nordvision - Finnska sjón-
varpið)
23.20 Dagskrárlok.
mánudagur
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og veður
20.35 Tommi og Jenni
20.40 íþróttir
21.15 Já, ráðherra 4. Persónunjósnir
Breskur gamanmyndaþáttur. Þýöandi
Guöni Kolbeinsson.
21.45 Sonur nágranna þíns (Din nabos
son) Leikin. dönsk heimildarmynd frá
1981 tekin í Grikklandi. L.eikstjórn:
Erik Flindt Pedersen og Erik' Stephen-
sen, sem einnigsömdu handrit í samráöi
viö Mika Haritou-Fatouros, Panos Sak^
elleriadas og Gorm Wagner. Myndin
segir frá atburðum, sem geröust í Cirikk-
landi á dögutn herforingjastjórnarinnar
1967-1974, en leitar jafnframt svara viö
því, hvers vegna menn fást til aö beita
samborgara sína grimmd og ofbeldi.
Þýöandi Jón Gunnarsson.
22.55 Dagskrárlok
-og þaö af slíkum eldmóöi, aö þeir
skilja ekkert í gjörðum sínum nú.
Amnesty International hefur
velt þessari spurningu mikið fyrir
sérgegnum árin. Gríski sálfræðing-
urinn, Mika Fatouros, tók þessi
mál sérstaklega fyrir eftir fall her-
foringjastjórnarinnar 1974. Hún
tók ótal viðtöl við fórnarlömb,
böðla og aðra sem málið viðkom,
og skýrslur hennar mynda uppi-
stöðuna í þættinum, sem við sjáum
á mánudaginn.
Það skal undirstrikað, að mynd-
in lýsir ekki Grikklandi, þótt hún
taki fyrir ákveðið tímabil í sögu
Grikklands. Markmið myndarinn-
ar er að sýna fram á, að þessir
skelfilegu atburðir hefðu allt eins
getað gerst í Danmörku, Svíþjóð -
eða þá bara á íslandi - og að slfkir
atburðir gerast á degi hverjum ein-
hvers staðar á jarðarkringlunni.
ast
Fyrirmyndin að
Húsinu á sléttunni
„Nei, sérðu. Þarna er orgelið
hennar Mary! Og þarna er eldhús-
ið! Byggðu þau húsið virkilega
sjálf?“
Spurningar þessar og athuga-
semdir má heyra daglega í gömlu
bóndabýli um 200 mílur suðaustur
af borginni Kansas í Bandaríkjun-
Hluti býlisins hefur að geyma
persónulega muni dótturinnar,
Rose Wilder Lane, eins og hún hét
þegar hún varð uppkomin. Rose
varð mjög fræg blaðakona og skrif-
aði margar frægar skáldsögur. Frá-
sagnargáfuna hefur hún haft frá
móður sinni, Lauru.
Sjónvarpsþættirnir um Húsið á
sléttunni hafa alls staðar átt mikl-
um vinsældum að fagna þar sem
þeir hafa verið sýndir. Og ekki er
verra að vita að sögurnar eru ekki
tóm ímyndun og að húsið, sem allt
spinnst nú um, er til og það geta
menn heimsótt ef þeir eiga leið um
þjóðveg U.S. 60 í Mansfield í
Bandaríkjunum.
ast
Sjónvarp á mánudag:
Hvað fær menn
til að pynta aðra
Sonur nágranna þíns heitir
leikin, dönsk heimildarmynd, sem
sjónvarpið sýnir mánudaginn 28.
febrúar. Hún var tekin í Grikk-,
landi árið 1981 og greinir frá at-
burðum, sem gerðust þar á dögum
herforingjastjórnarinnar 1967-
1974, en leitar jafnframt svara við
uiTarp
laugardagur
7.00 Vcöurfregnir. Fctlir. Bæn. Tón-
leikar. Þulur vclur og kynnir.
7.25 Leikflmi.
8.50 Leikfimi
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónlcikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Lóa Guðjóns-
dóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10
Veöurfregnir).
11.20 Hrímgrund - tJtvarp barnanna.
12.20 Fréttir. 12.45 Vcöurfregnir. Til-
kvnningar. Helgarvaktin. Umsjónar-
mcnn: Arnþrúður Karlsdóttir og Hró-
bjartur Jónatansson.
15.10 í dægurlandi Svavar Gcsts rifjar upp
tónlist áranna 1930-60.
16.20 Þá, nú og á næstunni Fjallað um
sitthvaö af því sem er á boöstólum til
afþreyingar fyrir börn og unglinga.
Stjórnandi: Hildur Hermóösdóttir.
16.40 íslenskt mál Jón Hilmar Jónsson sér
um þáttinn.
17.0Ö Hljómspegill Stefán Jónsson,
Grænumýri í Skagafirði, velur og kynnir
sígilda tónlist (RUVAK).
18.00 „Laxveiðidráp í Kjósinni**
Steingrímur Sigurösson segir frá.
19.35 Á tali Umsjón: Helga Thorberg og
Edda Björgvinsdóttir.
20.00 Harmonikuþáttur Umsjón: Sigurður
Alfonsson.
20.30 Kvöldvaka a. „Sagan af Loðinbarða**
Rafnhildur Björk Eiríksdóttir les ævin-
týrasögnúr þjóðsagnabók Sigurðar Nor-
dal. b. „Áf heimaslóðum** Jóhannes
Benjamínsson les Ijóð úr bók sinni
„Héöan og þaöan“. c. „Gömul kynni“
Þórður Tómasson safnvörður rifjar
umm kynni sín af ýmsum samferða-
mönnum. d. „Landsýn** Sigríöur Schi-
öth les kvæði - Hannesar Hafstein og
Árnesingakórinn í Reykjavík syngur
„Ur ú'tsæ rísa íslands fjöll“, lag Páls ís-
ólfssonar viö ljóö eftir Davíö Stefáns-
son. e. „Gunnarsslagur** Þorsteinn frá
Hamri flytur frásöguþátt meö ljóðaí-
vafi.
21.30 Hljómplöturabb Þorsteins Hannes-
sonar Fluttur veröur síöari hluti laga-
flokksins „Vetrarferöin** eftir Franz
Schubert. Flytjendur: Gerard Húschog
Hans Udo Múller.
22.40 „Um vináttu** eftir Cicero Kjartan
Ragnars byrjar lestur þýðingar sinnar.
23.05 Laugardagssyrpa - Páll Þorsteinsson
og Þorgeir Ástvaldsson.
sunnudagur
8.00 Morgunandtakt. Séra Róbert Jack
prófastur, Tjörn á Vatnsnesi, flytur ritn-
ingarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Morguntónleikar a) Konsertsinfónía
í D-dúr eftir Carl Ditters von Ditters-
dorf. Stephen Singles og Rodney Slat-
ford leika meö St. Martin-in-the-Fields
hljómsveitinni; Neville Marrinerstj. b)
Orgelkonsert í C-dúr eftir Joseph Ha-
ydn. Janos Sebestyén og Ungverska
ríkishljómsveitin leika; Sandor Margitt-
ay stj. c) Messa í As-dúr nr. 5 eftir Franz
Schubert. Maria Stader, Marga Höf-
fgen, Ernst Haefliger og Hermann
Uhde syngja meö Dómkórnum í Reg-
ensburg og Sinfóníuhljómsveit útvarps-
ins í Múnchen; Georg Ratzinger stj.
10.25 Oft má saltkjöt liggja Endurtekinn
þáttur Jörundar og Ladda frá s.l.
fimmtudagskvöldi.
11.00 Messa í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
(Hljóör. 20. þ.m.) Prestur: Séra Þor-
valdur Karl Helgason. Organleikari:
Helgi Bragason. Hádegistónleikar.
13.10 Frá liðinni viku Umsjónarmaöur:
Páll Heiðar Jónsson.
14.15 B-Heimsmeistarakeppnin í hand-
knattleik. ísland - Sviss. Hermann
Gunnarsson lýsir frá Vlissingen í Hol-
landi.
Jóna Hrönn Bolladóttir.
15.00 Richard Wagner-II. þáttur „Hvergi
á jörðu neitt svo veglegt gat“ Umsjón:
Háraldur G. Blöndal. í þættinum er vik-
ið aö „Wesendonk-ljóðum“ og óperun-
um „Lohengrin** og „Tristan og Isold“.
16.20 Stjórnarskrármálið Hannes H. Giss-
urarson flytur seinna "sunnudagserindi
sitt.
17.00 Frá tónleikum Kammersveitar
Reykjavíkur í Gamla Bíói 10. jan. s.l. a)
Kainmersinfónía nr. 9 fyrir 15 hljóöfæri
eftir Arnold Schönberg. b) Danse prel-
udes fyrir 9 hljóöfæri eftir Witold Lut-
oslawski. c) „La Création du Monde“
eftir Darius Milhaud.
17.40 „Djúpt ristir gleðin** Brot úr Ijóð-
sögu eftir Márta Tikkanen. Kristín
Bjarnadóttir les þýöingu sína.
18.00 Það var og... Umsjón: Þráinn Bert-
elsson.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.25 Veistu svarið? - Spurningaþáttur út-
varpsins á sunnudagskvöldi Stjórnandi:
Guðmundur Heiöar Frímannsson..
Dómari: Gísli Jónsson, menntaskóla-
kennari. Til aðstoðar: Þórey Aðal-
steinsdóttir (RÚVAK)
20.00 Sunnudagsstúdíóið - Útvarp unga
fólksins Guörún Birgisdóttir stjórnar.
20.45 Gömul tónlist Snorri Örn Snorrason
kynnir.
21.30 Kynni mín af Kína Ragnar Baldurs-
son segir frá.
22.05 Tónleikar.
22.35 „Um vináttu4* eftir Cicero Kjartan
Ragnars les þýöingu sína (2)
23.00 Kvöldstrengir Umsjón: HildaTorfa-
dóttir, Laugum í Reykjadal (RÚVAK)
mánudagur_____________________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Séra
Sigurður Helgi Guðmundsson flytur
(a.v.d.v.) Gull í mund -Stefán Jón Haf-
stein - Sigríður Árnadóttir - Hildur
Eiríksdóttir. 7.25 Leikfimi. Umsjón:
Jónína Benediktsdóttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Vefurinn
hennar Karlottu“ cftir E.B. White
Ragnar Þorsteinsson þýddi. Geirlaug
Þorvaldsdóttir les (7)
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Landbúnaðarmál Umsjónarmaður:
Óttar Geirsson
,11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum
árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
11.30 Lystauki Þáttur um lífið og tilveruna
í umsjá Hermanns Arasonar (RÚVAK)
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
Mánudagssyrpa - Olafur Þórðarson.
14.30 „Vegurinn að brúnni** eftir Stefán
Jónsson Þórhallur Sigurösson les (11)
15.00 Miðdegistónleikar. Heinz Holliger,
Maurice Bourge, Klaus Thunemann,
Lucio Buccarella og Christiane Jaccott-
et leika Sónötu nr. 1 í F-dúr fyrir tvö
óbó, fagott, kontrabassa ogsembal eftir
Jan Dismas Zelenka/Salvatore Accardo
stjórnar og leikur með Ensku kammer-
sveitinni Fiðlukonsert í G-dúr eftir Jos-
eph Haydn.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.20 íslensk tónlist. Björn ólafsson, Jón
Sen, Ingvar Jónasson og Einar Vigfús-
son leika Strengjakvartett nr. 2 eftir
Leif Þórarinsson / Guðný Guðmunds-
dóttir og Sinfóníuhljómsveit íslands
leika „Strúktúr 11“, fiðlukonsert eftir
Herbert H. Ágústsson; Jean-Pierre
Jacquillat stj.
17.00 Við - Þáttur um fjölskyldumál Um-
sjón: Helga Ágústsdóttir.
17.40 Hildur - Dönskukennsla 6. kafli -
„Mad og drikke4*; fyrri hluti.
17.55 Skákþáttur Umsjón: Jón Þ. Þór
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir Dagskrá kvöldsins.
19.35 Daglegt mál. Árni Böðvarsson flytur
þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn Baldvin Þ.
Kristjánsson talar.
20.00 Nýjustu popplögin.
20.15 B-Heimsmeistarakeppnin. ísland -
Belgía. Hermann Gunnarsson lýsir frá
Gemert í Hollandi.
'21.00 Kvöldtónleikar. a) Forleikur nr. 1 í
e-moll eftir Thomas Arne „The Aca-
demy of Ancient Music“-hljómsveitin
leikur; Christopher Hogwood stj. b) Pí-
anókonsert í B-dúr eftir Fransesco Man-
fredini. Felicja Blumental og Mozarte-
um-hljómsveitin í Salzburg leika; M.
Inoue stj.
21.40 Útvarpssagan: „Sonur himins og
jarðar“ eftir Káre Holt Sigurður Gunn-
arsson les þýðingu sína (23) Lestur Pass-
íusálma (25). Lesari: Kristinn Hallsson.
22.40 í grænum Edensgarði. Þáttur um
Kenya í tali og tónum. Umsjón: Ásta R.
Jóhannesdóttir. Lesari með umsjónar-
manni: Einar Örn Stefánsson.
því, hvers vegna menn fást til að
beita samborgara sína grimmd og
ofbeldi.
f myndinni er blandað saman
leiknum og dokúmentarískum sen-
um. Aðalpersónan er fyrrverandi
böðull-Michalis Petrouer. Óvenj-
ulegt er, að maður með sömu fortíð
að baki og Michalis taki fulla
ábyrgð á verkum sínum og rísi að
auki upp opinberlega og útskýri
hvers vegna hann pyntaði fólk og
hversu langt hann var í raun reiðu-
búinn að ganga á þeirri braut.
Myndin snýst að mestu um at-
burði, sem gerðust í yfirheyrslum
herlögreglunnar í Aþenu vorið
1972. f aðalstöðvar herlögreglunn-
ar voru færðir pólittskir fangar,
þeirra á meðal Stathis Panagoulis,
Konstantinos Alavanos, Anastasi-
os Minis og Spyros Moustaklis, en
þeir segja frá reynslu sinni í mynd-
inni.
Verðirnir í bækistöð herlögregl-
unnar voru ungir að árum og voru
að taka út sína herþjónustu. Yfir-
mennirnir tóku fólk í yfirheyrslu,
en verðirnir áttu að sjá um, að
„játning" fengist fram. Það voru
því hinir ungu verðir, sem beittu
pyntingunum. Reynt er að leita
svara við því, hvernig hægt var að
fá unga menn, sem ekki höfðu
neinn sérstakan hugmyndagrund-
völl að baki, til að taka þátt í þessu