Þjóðviljinn - 26.02.1983, Blaðsíða 30
30 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26. - 27. febrúar 1983
skák
Áskorenda-
einvígin
að hefjast
Síðasta Olympíuskákmót var
e.t.v. einna merkilegast fyrir þá
sök, að heimsmeistarinn Anatoly
Karpov sem um þessar mundir
tekur þátt í sterku skákmóti í Lin-
ares á Spáni var lítið í sviðsljós-
(Yfirleitt velur Karpov 3. - d5.
Hann veit þó sem er að gegn
drottningarpeðsbyrjunum er
vissara að hafa fleiri en eitt vopn
ef til einvígis við Kasparov kem-
ur. Þess vegna hefur hann í seinni
tíð gripið æ oftar til þeirrar byrj-
unar sem fleytti honum lang-
leiðina að heimsmeistaratign,
drottningarindversku vörninni.)
4. g3
(Eftirlætisafbrigði Kasparovs er
4. a3. Þannig tefldi Jan Timman
gegn Karpov fyrr í mótinu en
heimsmeistarinn stýrði svörtu
mönnunum af slíku öryggi að un-
un var á að horfa. Gheorghiu
áræðir ekki að herja á þær slóðir
aftur og leikur þeim leik sem í
eina tíð var sá vinsælasti í
stöðunni.)
4. .. Ba6
Anatoly Karpov á gangi þegar síðasta umferð Olympíuskák-
mótsins í Valetta á Möltu fór fram. Hann á enn hiklaust títkall
tilþessaðteljastbestiskákmaður heims. Ljósm.:-eik.
tilþessaðteljastbestiskákmaður heims. Ljósm
Karpov á góða möguleika
á að verja meistaratitilinn
Un»i«iT nrnnrni: t'tol Cnn. (T—í írnrroí'ti 1 a 11/11 r cuortf A RK7 1 Uv/>7 (T .J • A lrmmiim uorA olrlri 1/
inu; Harry Kasparov stal sen-
unni. Þó var það ekki fyrir sakir
lakari taflmennsku. Karpov hlaut
67i vinning af 8 mögulegum,
81,25% og Kasparov 871 vinning
af 11 mögulegum, 77,27%. Báðir
geta verið fullsæmdir af árangri
sínum, en það sem fyrst og fremst
gerði það að verkum að Karpov
féll svo í skuggann fyrir hinni
ungu stjörnu voru tilþrifin í
skákum Kasparovs. Hinar glæsi-
legu og glæfralegu skákir við
Kortsnoj, Alburt og Nunn.
Karpov tefldi á hinn bóginn ró-
lega og yfirvegað. Áður en hann
hóf aðgerðir tryggði hann sig í
bak og fyrir. Áhættuþátturinn í
taflmennsku hans var því sem
næst á núlli. Hann lenti að vísu í
miklum erfiðleikum í skák sinni
við Ljubojevic en einmitt í þeirri
skák kom aðalsmerki hans sem
skákmanns í ljós; hann hélt í
heiðri nokkrum grundallarat-
riðum, gætti þess að blæbrigði
stöðunnar raskaðist ekki og Lju-
bojevic sem var skiptamun yfir í
um 30 leiki varð að sætta sig við
skiptan hlut.
Hort og Portisch, þessir tveir af
sterkustu skákmönnum heims,
eru hreinlega orðnir skyldu
punktar hjá heimsmeistaranum.
Small frá Astralíu og Argentíum-
aðurinn Qinteros veittu heldur
ekki mikið viðnám. En sterkasti
skákmaður Rúmena, Florin
Gheorghiu tapar sjaldan á hvítt
og þá erum við komnir með allar
fimm vinningsskákir Karpovs.
Hér kemur þessi athyglisverða
vinningsskák. Það virðist ganga
göldrum næst hvernig Karpov
kreistir fram vinninginn úr afar
jafnteflislegri stöðu. Karpov
hafði betri kóng. Það dugði:
Olympíuskák-
mótið
í Luzern
12. umferð
Hvítt: Florin Gheorghiu (Rúm-
eníu)
Svart: Anatoly Karpov (Sovélríkj-
unum)
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rf3 b6
(Hvassasti leikur svarts. 4. Bb7
leiðir yfirleitt til tafljöfnunar.)
5. b3
(Aðrir möguleikar eru 5. Dc2, 5.
Db3, 5. Da4, 5. Rbd2 o.s.frv.)
5. .. Bb4+
6. Bd2 Be7
7. Bg2 c6
8. 0-0 d5
9. Re5 0-0
10. Bc3 Bb7
Helgi
Ólafsson
skrifar
11. Rd2 Ra6
(Á sama hátt tefldist skák Torre
og Karpovs á Tilburg-mótinu í
Hollandi á liðnu hausti.)
12. e3 c5
13. De2 Hac8
14. Hfdl Hc7
15. e4
(Þessi atlaga á miðborðinu gefur
hvítum ekkert í aðra hönd, en
með nákvæmri byrjunartafl-
mennsku var svartur búinn að
leysa öll sín vandamál. Þar sem
byrjuninni sleppir tekur miðtafl-
-,ið við. Og taflmennska Karpovs í
því miðtafli sem í hönd fer er í alla
staði hin athyglisverðasta.)
15. .. cxd4
16. Bxd4 dxc4
17. Rdxc4 Da8!
18. f3 Hfc8
19. Rd3 Rb8!
20. Rde5 Ba6
(Biskupsins er ekki lengur þörf á
löngu skáklínunni. Hér angrar
hann svartan á skálínunni a6 -
fl.)
21. Del Re8
(Karpov keppist við að raða
mönnunum upp í borð. Þetta hef-
ur þó allt sinn tilgang og alls ekki
meiningin að mennirnir hími upp
í borði alla sína tíð- Að þessu leyti
minnir Karpov dálítið á Steinitz
fyrsta löglega heimsmeistarann.
Hann hafði unun af því að endur-
skipuleggja lið sitt með aðstoð 1.
og 8. reitaraðanna.
22. Re3 Bc5
23. Bxc5 Hxc5
24. Rd7 Rxd7
25. Hxd7 H5c7
26. Hxc7 Hxc7
27. Hcl Dc8
28. Hxc7 Dxc7
29. Dd2 Dc5
30. Bfl Bxfl
31. Kxfl Kf8
32. Ke2 Ke7
(Gheorghiu hefur keppst við að
bjóða fram uppskipti á mönnum
og telur sig á þann hátt helst geta
vænst jafnteflis. Staðan jaðrar
við að vera í fullkomnu jafnvægi,
en þar sem staða svörtu drottn-
ingarinnar er örlítið hagstæðari
en þeirrar hvítu (og það er engin
tilviljun) getur svartur teflt til
vinnings. Enginn er betri að
vinna úr slíkum stöðum en Karp-
ov. Anderson kemst kannski
næst því, en hann skortir þó
þetta næma auga sem Karpov
hefur fyrir praktískum lausnum á
hverri stöðu samfara hreinum
ógnarhraða í taflmennsku. Tím-
inn spilar stóran þátt í úrvinnsl-
unni.)
33. Dc2 Dh5
34. Rfl Kd7
35. Dc3 f6
36. h4 Rd6
37. Kf2 Rb5
38. Dd3+ Ke7
39. Re3 Dc5
40. Dd2 a5!
(Biðskák. Á leiðinni hefur Ge-
horghiu jarmað nokkrum sinnum
á jafntefli, en án árangurs. Frum-
kvæði Karpovs er augljóst og
vinningsmöguleikarnir raun-
hæfir.)
41. Dd3 Rd4
42. Kg2 Rc6!
43. a4 Re5!
44. Dd2 Dd6!
(Karpov teflir óaðfinnanlega.
Hér býður hann fram drottning-
aruppskipti í krafti betri kóngs-
stöðu.)
45. Dc3 Dd3
46. Dxd3
(Hjá kaupum varð ekki komist
lengur.)
46. .. Rxd3
47. Rc4 Rcl
48. Rxb6 Rxb3
49. e5!?
(Svarti kóngurinn var á leið yfir á
drottningarvænginn og Gehorg-
hiu telur réttast að fórna peði til
að ná mótspili. Sennilega rétt á-
kvörðun en dugir ekki. Svartur
virðist alltaf vinna og kemur það
heim og saman við þá ágætu teór-
íu sem segir, að riddaraendatöfl-
um svipi mjög til peðsendatafla.
Væru riddararnir ekki á borðinu
væri vinningur sýnu auðveldari,
en aðferðin við að vinna í grund-
vallaratriðum sú hin sama.)
49. .. fxe5
50. Rc4 Kd7
51. Kf2 Kc6
52. Rxe5+ Kd5
53. Rd3 Rc5
54. Ke3 Rxa4
55. Rf4+ Ke5
56. Rd3+ Kd6
57. Kd4
(»Ég næ jafntefli. Kóngurinn
minn er það virkur", heyrðist Ge-
horghiu segja eftir að hafa leikið
þessum leik. Samkvæmt því
hlýtur það að hafa komið honum
á óvart að þurfa að gefast upp
aðeins sex leikjum síðar.)
57. .. Rb6!
58. Re5 h6!
59. Rf7 Ke7
60. Re5 a4
61. Kc3 Kd6
62. Rd3 Rd5+
63. Kb2 Re3
- Hvítur gafst upp. Á meðan
hvítur sækir að frelsingjanum á
a-línunni gæðir svartur sér á peð-
unum á kóngsvængnum.
Skákþing Hafnarfjarðar hefst
þriðjudaginn 1. mars kl. 20.
Verður raðað í A og B flokk eftir
Elo-stigunum, tefldar níu um-
ferðir á þriðjudögum og fimmtu-
dögum og hefst taflið kl. 20 hvert
kvöld. Tilkynna skal þátttöku í
síma 52174 og 51440.
Austur í Moskvu hefst á mánu-
daginn einvígi sem margan skák-
unnandann fýsir að fylgjast með,
þ.e. einvígi Kasparovs og Belja-
vískí. Þetta er fyrsta einvígið í
Áskorendakeppninni. Þjóðvilj-
inn mun að sjálfsögu gera sér far
um að fylgjast með keppni
þessari.
Kjötumbúðir:
Leysír
plastið
grisjuna
af
Grisjupokarnir hafa um langt
árabil, (ég vil ekki segja: svo lengi
sem elstu menn muna), þótt sjálf-
sagðar umbúðir um íslenskt kjöt.
Nú eru horfur á að annarskonar
umbúðir kunni að leysa grisjupok-
ana af hólmi. Eru það plastum-
búðir.
Pálmi Jónsson, landbúnaðarráð-
herra, hefur skýrt frá því, að yfir
standi athuganir á þessu máli. Ný-
sjálendingar, sú mikla kindakjöts-
þjóð, eru farnir að klæða sitt kjöt í
plastumbúðir. Þeir telja jafnframt
að tilraunir sýni að rýrnun verði
mun minni á kjöti, sem geymt er í
plasti en í grisju. Við kælingu og
frystingu í sláturhúsi tapist um 2%
af þunga kjötsins og síðan 0,7% á
mánuði hverjum sem kjötið er í
grisjupokunum. Þessi geymslu-
rýrnun hverfi að mestu séu plast-
umbúðir notaðar.
Hafi Nýsjálendingar rétt fyrir sér
með þessi 0,7% og væri öll íslenska
kindakjötsframleiðslan geymd í
plasti í stað grisju í 3,5 mánuði að
meðaltali þá skiluðu sér þar fast að
400 tonnum af kjöti, sem að verð-
mæti væri um 30 milj. kr. miðað við
núverandi heildsöluverð, sagði
landbúnaðarráðherra. Hér sýnist
því til nokkurs að vinna.
- mhg
Myndlistar-
menn lýsa
vanþóknun
á listamanna-
laununum
SÍM, stéttarfélag myndlista-
manna, hélt fund 17. febrúar ’83. Á
fundinum voru mættir fulltrúar frá
öllum félögum samtakanna, en þau
eru:
Félag íslenskra myndlista-
manna, Myndhöggvarafélag ís-
lands, Hagsmunafélag myndlista-
manna, íslensk grafik, Textilfé-
lagið, Leirlistafélagið.
Samþykkt var að senda eftirfar-
andi áskorun til menntamála-
ráðuneytisins:
Samtök íslenskra myndlista-
manna lýsa yfir vanþóknun sinni á
núverandi fyrirkomulagi á úthlut-
un listamannalauna, sem mynd-
listamenn telja löngu úrelt og úr sér
gengið og hafa margsinnis mót-
mælt.
SÍM fagnar því að úthlutunar-
nefnd lítur nú einnig svo á að gagn-
gerra breytinga sé þörf. Svokölluð
listamannalaun beri að leggja nið-
ur í núverandi mynd, enda um
lítinn stuðning og vafasaman heið-
ur að ræða fyrir þá er laun þessi
hljóta.
Stjórn SÍM skorar á hæstvirt
menntamálaráðuneyti að hafnar
verði viðræður við listamenn um
nýja skipan mála.
Endurskins
eru
EKKI SÍÐUR
fyrir
FULLORÐNA