Þjóðviljinn - 12.03.1983, Page 17

Þjóðviljinn - 12.03.1983, Page 17
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 12. - 13. mars 1983 Helgin 12. - 13. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 „Það var óheppilegt að missa pólitíkina í skipulagsmálin á þann hátt sem gerðist í vor. Pólitík og skipuiag eru að vísu óaðskiljanleg, en í skipulagsmálunum er æskilegast að ná fram heildarstefnu, sem samstaða getur orðið um - óháð stjórnarstöðu. Hættan á upphlaupum er alltaf fyrir hendi, þegar markmiðin eru ólík. Eina leiðin, sem ég tel fleyta okkur framhjá patent-lausnum stjórnmálanna, er aukið samband milli hönnuða og notenda.“ Þannig mælti Geirharður Þorsteinsson, arkitekt, er ég hitti hann að máli í vinnustofu hans að Skólavörðustíg 19 í Reykjavík. Éger hingað komin til þess að fræðast um skipulag Reykjavíkurborgar- þessarar borgleysu sem Geirharður kallar, og ég hlýt að vera sammála. Breiðholtið - mistök eða mannleg byggð ? Arkitektum hefur sennilega verið kennt um flest það sem aflaga hefur þótt fara í Breiðholtinu; þaðerillaskipulagt, segir fólk, lítt manneskjulegt, fólki hrúgað saman eins og síld í tunnu og þarna elst næsta vandamálakynslóð upp við harðneskjulegt ogframandi umhverfi og fúla leiki í byggð, sem ekkert hefur uppá að bjóða. Segir fólk. Reyndar er í þessu sambandi fróðlegt að rifja upp sögur, sem hafa verið í gangi um aðrarbyggðirí Reykjavík. Þannigminnist ég þess t .d. að sömu orð hafi verið látin falla í eina tíð um smáíbúðahverfið, það hverfi byggðist upp við svipaðar aðstæður og Breiðholtið. Árið 1949 byrjaði Reykjavíkurborg að byggja 212 íbúðir við Bústaðaveg, sem síðan voru seldar einstaklingum, og 1951 var úthlutað 112 lóðum undirsmáhús í Réttarholtinu. Þá voru húsnæðisvandræði gífurleg í Reykjavík og meiningin með þessum íbúðabyggingum, og fleirum, var sú m.a. að útrýma braggabyggðinni. Sett voru ströngskilyrði fyrir úthlutun, bæði íbúða og lóða - fólk mátti ekki eiga færri en 3 börn, varð að búa við vondar húsnæðisaðstæður og fleira. Þarna var semsé hrúgað saman efnalitlu barnafólki. Það segir mér fólk, sem nú er komið á virðulegan fertugsaldurogólst upp í Réttarholtinu, að börnin þar hefðu verið álitin óalandi og óferjandi hvar sem þau komu og hverfið fengið á sig leiðinlegan stimpil. Nú þykir þetta virðulegt hverfi og prísarnir fyrir hús og íbúðir hreint ekki þeir lægstu íbænum. Égspyr Geirharð: Er Brciðholtið mistök - eða þarf sagan alltaf að endurtaka sig? „Samlíkingin við Réttarholtið er ágæt,“ svarar Geirharður, „hún sýnir hvað sagan er endurtekin í margvíslegu samhengi. Þetta dæmi styður þá skoðun, að hverfi, þar sem íbúðir rísa hraðar en tilheyrandi þjónustustarfsemi, eru e.t.v. að meirihluta byggð barnmörgum fjölskyldum, hættirtil að þurfa að þola bæði ósanngjarnar og órökstuddar ofanígjafir fólks sem telur sig búa betur. Ég hygg að viðhorf manna til Breiðholtsins séu að breytast, a. m. k. bendir verðlag íbúða þar til þess. Það má gjarnan koma fram, að íbúar Breiðholtshverfannasýndu oftast mun jákvæðari viðbrögð við ýmsu er þeim var boðið uppá þar, heldur en þeir sem stóðu álengdar. Mérþykir.sennilegt að Breiðholtið eigi eftir að sækja sig enn með ýmsum mjög viðráðanlegum umbótum í samgöngum og umhverfi, einkum finnst mér að fjölbýlishúsaeigendur mættu vera djarftækari til listamanna þegar þeir mála húsin sín.“ Byggðin fullnægi þörfum íbúanna Nú þekki ég einna best tii í Breiðholti I, sem er að mínum dómi mjög vel skipulagt Rœtt við Geirharð Þorsteinsson, arkitekt: Lágmarkskrafan er mannbætandi umhverli Annars bjóðum við heim menningarlegri lágkúru Geirharður skipulagði þetta skemmtilega svæði í Hólahverfi í Breiðholti III. Þarna er stórt útivistarsvæði afgirt af stórum en misháum blokkum og leikir barnanna eru vel varðir allri bílaumferð og öðrum hættum. Geirharður segist þó sakna fleiri og skemmtilegri leiktækja á svæðinu og betri útfærslu á blokkunum. En hvað um það - svona á að búa að barnafólki og hann Kristján Orri kann svo sannarlega vel við sig þarna. (Ljósm. -Atli). „Skólavörðustígurinn er skemmtilegasta gatan í bænum“, segir Geirharður Þorsteinsson, arkitekt, sem hér stendur á horni Skólavörðustígs og Týsgötu. Þarna hafa sprottið upp margar skemmti legar búðir á síðustu árum, sem setja sérkennilegan svip á götulífið. - (Ljósm - Atli). hverfí með tilliti til barna og þjónustu verslana. Eru hin hverfin tvö eins vel skipulögð? „Ég vil ekki dæma um það núna; þessi hverfi eru skipulögð útfrá örlítið ólíkum hugmyndum um hvernig byggð fullnægi best þörfum íbúanna. Breiðholt I byggðist fyrst. Þar er þrennskonar byggð - blokkir, raðhús og einbýlishús, nokkuð mikið aðgreind, og síðan safngatan (aðalgatan) umhverfis. Þar var mikil áhersla lögð á verndun miðjunnar í blokkahverfinu fyrir urnferð og innrýmum blokkannasnúið þangað. Þetta þykir mér vera sá hluti skipulags, sem best hefur heppnast. Ég sakna þess hinsvegar að raðhúsin skuli ekki hafa náðst inn í þetta ágæta samhengi. Breiðholt III var byggt næst. Þar var lögð eitthvað meiri áhersla á útsýni og blöndun ólíkra byggða og mikil áhersla lögð á aðgreiningu gangandi og akandi untferðar. Ennfremur var blokkabyggðin nýtt til þess að girða svæðið af, ef svo má segj a, eða gera það læsilegt, eins og einnig er sagt stundum. Breiðholt II byggðist síðast. Þar eru enn nokkuð aðrar hugmyndir á ferðinni. Það verður að koma í ljós hvernig fólk þrífstþarna.“ Strætisvagnar ogskipulag Þið sem skipulögðuð Breiðholtið - hugsuðuð þið ekkert út frá strætisvagnasamgöngum? Nú þjóna þessari 25 þúsund manna byggð aðeins 4 strætisvagnar, þar af 2 á aðeins hálftíma fresti. Tengsl milli Breiðholts II og III eru engin, þannig að fólk úr Seljahverfinu neyðist eiginlega til þess að sækja sundlaugar og skóla niður í bæ þótt þessir hlutir séu svo að segja í hlaðvarpanum. „Við reiknuðum vissulega með strætisvögnum frá byrjun. Ein af ástæðunum fyrir hringjunum þremur, sem safngötur Breiðholts III mynda, var sú að þá taldi stjórn SVR einungis hringakstur koma til greina. Síðar breyttust kenningar um þessa hluti og SVR-menn töldu heppilegra að aka að endastöðvum og sörnu leiðtil baka. Þá gengum við lengst af út frá því að innan Breiðholtshverfannayrði starfrækt hringleið, sem tengdist miðbæjarvögnununt íMjóddinni, er tryggði samgöngur á milli og innan hverfanna. Þetta dæmi má nota til að benda á nauðsyn þess að strætisvagnakerfi megi ekki skipuleggja með markaðssjónarmiðið eitt að leiðarljósi. Það er ekki arðbært fyrir SVR að halda uppi ferðum innan hverfanna og því sinna þeir einungis flutningum að og frá. Þetta dregur úr nýtingu þeirra mannvirkja (skóla, verslana og heilbrigðisþjónustu) sem þegar eru til á svæðinu og nýtast ekki til fulls þau þægindi, sem íbúar gætu haft af þessu þéttbýli sent þarna er. Þarna fara beinir, útreiknaðir hagsmunir einnar stofnunar (S VR) og óbeinir hagsmunir borgarinnar og íbúanna ekki saman. Núna er þrönga sjónarmiðinu leyft að ráða, en það má laga þetta enn og ég vona að það verði gert. Strætisvagnaþjónusta þarf að vera hluti af heildarskipulagi borgarinnar. þannig getur hún orðið til stuðnings þeim hugmyndum sem skipulagt er út frá.“ Laugavegurinn göngugata - þétting byggðar „ Almenningssamgöngur eru nauðsynlegar fyrir úthverfin, en þær geta einnig gegnt afgerandi hlutverki í miðbæjum. Gott dæmi um þetta er miðbæjarsvæðið, sem myndast hefur meðfram Laugavegi og er að vaxa inn með Suðurlandsbraut inn undir Skeifu. Með sérhæfðum almenningsvögnum fyrirþessa línu mætti auka þjónustugildi hennar til mikilla muna. Helst þyrftu ferðir að vera á fimm mínútna fresti og mun auðveldara að komast inn og út og viðkomustaðir margfalt fleiri. Með þannig umbótum gætu Laugavegur og Suðurlandsbraut frá Lækjartorgi að Sjá nœstu síðu Umferðamiðstöð í Vatnsmýrinni Umferðamiðstöð í Sogamýri Zt* O'uZy? Viðskiptaás Laugavegur— Suðurlandsbraut L \ ixrjmmmmmm í v.*.: •• ií \ L-aJl QS ■á^rr^-ór'7/ // llisL J

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.