Þjóðviljinn - 12.03.1983, Side 24

Þjóðviljinn - 12.03.1983, Side 24
nisjtaft A«Í8 - '/'/•U..HYGÖ1.4 mi -ocia'.U 24 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 12. Hestar og vídeó — 13. mars 1983 Eitt er skemmtilegt við að búa í , Árbæjarhverfi. Þar er hófatak fyrir utan gluggann álíka algengtog bílhljóð. Hesthúsin í Selási eru skammt undan og þaðan fer mikill fjöldi reiðmanna um helgar og reyndar aðra daga líka og margir leggja leið sína um Árbæjarhverfi. Fjölbreytni er nauðsynleg í hverri borg og þó að hverfið sé einhæft í byggingum, að mestu leyti sviplausir kassar af ýmsum gerðum, er sumt sem vegur dálítið upp á móti. Eitt af því er hestamennskan og annað Elliðaárnar. Um síðustu helgi lagði ég upp í leiðangur með dóttur mína sem er bara fjögurra ára. Ég gekk á undan í frakkanum mínum og dró þotu sem á sat stelpan eins og prinsípissa. Þó að ég gengi á undan vildi hún stjórna ferðinni, en bæði vorum við ásátt um að heimsækja hesthúsin. Þegar þangað var komið var mikið um að vera. Krakkar, miðaldra fólk og öldungar voru að fara út að ríða og viðra hestana sína og hvarvetna var líf og fjör. Veðrið var milt og gott, dálítil rigning. Dóttir mín er sannkallað borgarbarn og dálítið smeyk við stórar skepnur, en þarna sýndi hún óvænt hugrekki. Hún fékkst til að klappa brúnum hesti á snoppuna. Eg gaf mig á tal við follorðin hjón sem voru eins og unglömb á vori að sinna hestunum sínum. Konan hafði fengið blóðtappa og var lömuð að hluta og átti erfitt um tal, en á bak skyldi hún, þó að þyrfti að hjálpa henni. Hún sagðist alveg vera búin að yfirvinna þessi veikindi sín. Hún á Blikfaxa sem þrisvar sinnum hefur unnið til gullverðlauna í tölti. Þau buðu okkur feðginum upp í litla kaffistofu í baðstofustíl yfir hlöðunni og síðan út í hesthúsið. Dóttir mín var uppnumin og horfði spennt á þau kemba gæðingunum sínum, beisla þá og spenna hnakkana. Henni var boðið að kemba sjálfri og jafnvel fara á bak, en það var of mikið fyrir hugrekki lítils borgarbarns. Þó dauðlangaði hana. Svo horfðum við á hjónin ríða hnakkakert í burt og vorum síðan lengið að dudda við hesthúsin. Þegar við komum heim fengum við pönnukökur og vorum bæði í sjöunda himni. Dýr eru mikilvæg borgarbörnum eins og öllum börnum, og ég tel að það ætti að vera stefna yfirvalda á Stór- Reykjavíkursvæðinu að halda búskap á vissum svæðum innan takmarka þess til þess að gera þau lífvænlegri til að búa á og auka fjölbreytnina. Þess vegna á ekki að amast við Gunnari á Laugarbóli og Stefni í Reykjaborg, heldur að hlaða undir þá. Þessir tveir eftirlegubændur í hjarta Reykjavíkur í Laugardalnum eru meira virði fyrir börnin í nágrenninu en hundrað leiktækjasalir og tíu þúsund vídeótæki. -Guðjón sunnudagskrossgátan Nr. 362 7 3 H- 5~ 2 ¥ 7 9— /0 77~ /z rs~ H /b n /í 1? u /5T /9 V 17 ZO I 1? 21 TV 2 5 2} Vt 2 3 U /2 22 /9 /3 S2 23 £ /8 Z /9 Zl 27 2o // /9 2 V /? zs 21 23 /9 * 2sr /7 22 V /2 V Zb / /7 2 r'Ys V 23 /0 )8 ry~' V U 8 V 2? ze // ¥ ) 19 )D 22 "V V 2<r / 6> n V Z<7 17 2ð J? 2 'V' <y é 25 /? 2/ 2i>~ 2 2? )f /* 2 V' V 2 //> )8 /8 V 7 2 2/ 3 b rf ) j/ )<7 13 V /3 É 9 'V' 2if // % rv V )9 /0 2/ lo /8 10 V 8 9 /9 1 2. (V) *J 3 8. /3 V 8 )9 /3 17 2 (Y V io 55 7 %ft J/ 23 /2 s 55 18 3 2 19 21 J7 AÁBD D E ÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUUVXYÝÞÆÖ Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á borg í Evrópu. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj- ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 362“. Skilafrest- ur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. u /5 /0 27- Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnr er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp, því með því eru gefnir stafir í allmörgur orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur aldrei a komið í stað á og öfugt. Verðlaunin Verðlaun fyrir krossgátu nr. 358 hlaut Margrét Helga- dóttir, Kötlufelli 3, Rvík. Þau eru bókin Max og He- lena eftir Simon Wiesenthal. Lausnarorðið var Sporð- dreki. Verðlaunin að þessu sinni er Lífið á jörðinni eftir David Attenborough sem Mál og menning gaf út.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.