Þjóðviljinn - 12.03.1983, Síða 25

Þjóðviljinn - 12.03.1983, Síða 25
Helgin 12. - 13. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 25 bridge________ íslandsmótið að hefjast Mótanefnd Bridgesambandsins hefur dregið í riðla undankeppni íslandsmóts í sveitakeppni 1983. Þeir eru þannig skipaðir: A-riðill 1. Sigtryggur Sigurðsson R.vík 2. Sigurður Vilhjálmsson R.nes 3. Jón Hjaltason R.vík 4. Páll Pálsson N.land eystra 5. Þórður Elíasson V.land 6. Bernharður Guðmundsson R.vík B-riðill 1. Aðalsteinn Jörgcnsen R.vík 2. Gunnar Þórðarson S.land 3. Þórarinn Sigþórsson R.vík 4. Gestur Jónsson R.vík 5. Oddur Hjaltason R.vík 6. Eyjólfur Magnússon N.land vestra C-riðill 1. Ármann J. Lárusson R.nes 2. Gunnar Jóhannesson V.firðir 3. Karl Sigurhjartarson R.vík 4. Jón Þ. Björnsson V.land 5. Leif Österby S.land 6. Ólafur Lárusson R.vík D-riðill 1. Egill Guðjohnsen R.vík 2. Aðalsteinn Jónsson A.land 3. Sævar Þorbjörnsson R.vík 4. Bragi Hauksson R.vík 5. Ásgrímur Sigurbjörnsson N.land v. 6. Jón Stefánsson N.land eystra Undankeppni íslandsmótsins verður haldin á Hótel Loftleiðum dagana 18.-20. mars næstkomandi. Fyrsta umferð hefst klukkan 20.00 á föstudagskvöld, önnur umferð kl. 13.30 á laugardag, 3. umferð kl. 20.00 á laugardag, 4. umferð kl. 13.30 á sunnudag og 5. umferð kl. 20.00 á sunnudag. Úrslit íslandsmótsins verða spil- uð um páskana og hefjast kl. 13.30 á skírdag, 31. mars. Síðan verða spilaðar 2 umferðir á dag nema ein umferð, sú síðasta, á páskadag. Stjórn Bridgesambandsins hefur ákveðið að í úrslitunum verði spil- uð sömu spil í öllum leikjum. Keppendur fá síðan afrit af spilun- um og skorblöðunum úr öllum leikjum. Vegna þess kostnaðar- auka sem þetta hefur í för með sér getur svo farið að innheimt verði aukagjald af þeim sveitum sem koma til með að spila í úrslitunum. Stjórn Bridgesambandsins hefur skipað landsliðsnefnd sem mun velja landslið íslands í bridge árið 1983. í henni eru: Guðmundur Sv. Hermannsson, Guðmundur Pét- ursson, Jakob R. Möller og Kristó- fer Magnússon. Að vestan Undankeppni fyrir íslandsmót í sveitakeppni fór fram á ísafirði dagana 3.-6. mars. 6 sveitir mættu til leiks, 5 frá ísa- firði og 1 frá Þingeyri. Spilaðir voru 32 spila leikir, allir v/alla. All mikil spenna ríkti þegar síðasta umferð hófst. í*á var staða 3 efstu: Sveit Gunnars Jóh. 66 stig, sveit Guð- laugar Jónsd., 57 stig og sveit Arn- ars G., 47 stig. Sveitir Gunnars og Arnars áttu að mætast í síðustu um- ferð, og þótti tvísýnt um úrslit. sveit Guðlaugar spilaði við Þor- stein Geirs, sem ekki hafði haft meðbyr á mótinu og var sveit Guð- laugar talin líkleg með yfirburða- sigur. Er dró að lokum síðustu um- ferðar jókst spennan, enda spilar Kristján Haraldsson framkv.stjóri Orkubús Vestfjarða í sveit Arnars Geirs og studdi hann dyggilega til sigurs. I hálfleik hafði þó sveit Gunnars 10 stig yfir. Þegar liðs- menn Arnars og Gunnars slíðruðu sverðin höfðu aðrar sveitir lokið leikjum sínum og kom í ljós, að sveit Guðlaugar hafði sigrað sinn leik með 17-3. Varð því sveit Gunnars að ná a.m.k. í 9 stig (imp- stig) til þess að sigra Vestfjarða- mótið. Fljótlega kom í ljós að menn Arnars höfðu verið býsna drjúgir að hala inn stig, þannig að í fyrstu 10 spilum seinm hálfleiks náðu þeir í 50 Ebl stig á meðan sveit Gunnars fékk ekkert stig og var nú sveit Arnars komin með 40 stiga forskot. En þá snerist gæfu- hjólið á sveif, til sveitar Gunnars og í þeim spilum er eftir lifðu hálf- leiks náði sveit Gunnars sér í 41 stig og þarmeð 10-10 í vinningsstig. Gunnars-menn stóðu því með pálmann í höndum sér, sem sigur- vegarar í mótinu. Úrslit í Vestfjarðamótinu í sveitakeppni (undankeppni fyrir íslandsmót 1983) urðu þessi: stig 1. sv. Gunnars Jóhanness. Þing. 76 2. sv. Guðlaugar Jónsd. ísaf. 74 3. sv. Arnars G. Hinrikss. ísaf. 57 4. sv. Páls Áskelss. ísaf. 51 5. sv. Þorsteins Geirss. ísaf. 20 6. sv. Hafsteins Sigurðss. Isaf. 15 Sveit Gunnars skipuðu auk hans: Sæmundur Jóhannesson, Vignir Garðarsson og Guðmundur Friðgeir Magnússon. 1 sveit frá Vestfjörðum á rétt til þátttöku í íslandsmótinu. (Frá Guðmundi Friðgeir, Þingeyri). Umsjón Ólafur Lárusson Frá Bridge- sambandi Vesturlands Helgina 26. og 27. febrúar s.l. fór fram að Hótel Borgarnesi Vest- urlandsmót í sveitarkeppni. Mótið var jafnframt úrtökumót fyrir undankeppni íslandsmótsins. Sex sveitir spiluðu í mótinu og komust tvær efstu í undankeppnina. Vesturlandsmeistarar urðu sveit Þórðar Elíassonar frá Akranesi, sem hlaut 86 stig af 100 mögu- legum. Auk Þórðar spiluðu í sveitinni Karl Alfreðsson, Guðjón Guðmundsson og Ólafur Gr. Ólafsson. stig 2. sv. Jóns Þ. Björnss. B.nes 64 3. sv. Þorvalds Pálmas. Borg.f. 50 4. sv.Borgf. Blanda B.nes+B.fj. 26 5. -6. sv. Arnar Einarss. Borgarf. 19 5.-6. sv. Eggerts Sig.sonar Stykkish. 19 Vesturlandsmót í tvímenningi verður haldið í Stykkishólmi helg- ina 9.-10. apríl n.k. Frá Bridgeklúbb Akraness Nú er nýlokið Akranesmóti í tví- menning. Spilaður var barómeter og var Andrés Ólafsson keppnis- stjóri. Efstu pör urðu sem hér segir: stig 1. Eiríkur Jónsson Alfreð Viktorsson 310 2. Guðjón Guðmundsson Ólafur Gr. Ólafsson 291 3. Oliver Kristófersson Þórir Lcifsson 270 4. Karl Alfreðsson Þórður Elíasson 219 5. Skúli Ketilsson Vigfús Sigurðsson 203 Nú stendur yfir síðasta keppni vetrarins en það er Akranesmót í sveitarkeppni og taka 10 sveitir þátt í mótinu. Frá Bridgefélagi Hafnarfjarðar Eftir fyrstu fjórar umferðirnar í Barómetertvímenningi félagsins er staða efstu para eftirfarandi: 1. sæti Kristófer Magnússon B -Guðbrandur Sigurbergss. 56 2. sæti Kristján Haukss. -Ingvar Ingvarss. 44 3.sæti Aðalsteinn Jörgens. -Stefán Pálss. 41 4.sæti Ólafur Gíslason -Sig. Aðalsteinss. 36 5.sæti Ragnar Magnúss. -Rúnar Magnúss. 35 ó.sæti Friðrik Guðmundss. -Ægir Magnúss. 35 Næstu umferdir verða spilaðar n.k. mánudagskvöld 14.02. í í- þróttah úsinu og hefst spilamennsk- an stundvíslega kl. 19.30. Frá Bridgefélagi Suðurnesja Lokið er 4 kvölda tvímenning, 26 pör tóku þátt sem er góð sókn suður með sjó. Úrslit urðu sem hér segir: 1. Arnþór Ragnarss. og Sigurhans Sigurhanss. 270 2. Gunnar Sigurjónss. og Haraldur Brynjólfss. 226 3. Karl Hermannss. og Magnús Torfas. 172 4. Jóhann Benediktss. og Sigurður Albertss. 97 5. Gísli Isleifss. og Hafsteinn Hafsteinss. 63 6. Gunnar Guðbjörnss. og Þórður Kristjánss. 57 Næsta keppni er meistaramót sem hefst á mánudag. Þá er Bridge aðdáendum bent á æfingatímann í Framsóknarhúsinu á fimmtudags- kvöldum kl. 20. Frá Brjdgefélagi Reykjavíkur Síðastliðinn þriðjudag hófst þriggja kvölda board a match keppni með þátttöku 14 sveita. Að loknum 4 umferðum er staða efstu sveita þessi: stig Jón Hjaltason 40 Þórarinn Sigþórsson 39 Sævar Þorbjörnsson 39 Páll Valdimarsson 39 Þórir Sigurðsson 37 Aðalsteinn Jörgensen 34 Bragi Hauksson 33 Næstu umferðir verða spilaðar n.k. miðvikudag í Domus Medica kl. 19:30 stundvíslega. Frá T.B.K. Nú er aðalsveitakeppni félagsins lokið með glæsilegum sigri sveitar Bernharðs Guðmundssonar sem tryggði sé sigur fyrir síðustu um- ferðina. Næsta keppni félagsins verður barometer (4 kvöld) og hefst hún fimmtudaginn 17. mars n.k. í Domus Medica kl. 19.30 stundvís- lega. Keppnisstjóri er Agnar Jörg- enson. Frá Bridgedeild Barðstrendinga- félagsins Staða 11 efstu para eftir 13 um- ferðir í Barómeterkeppni fél- agsins. 1. Ragnar Þorsteinss. stig -Helgi Einarsson 2. Hannes Ingibergss. 143 —Jónína Halldórsd. 3. Viðar Guðmundss. 136 -Pétur Sigurðsson 4. Ragnar Björnsson 87 -Þórarinn Árnas. 5. Stcfán Ólafsson 69 -Valdimar Elíass. 6. Sigurður Isakss. 67 -Edda Thorlacíus 7. Þorsteinn Þorsteinss. 52 -Sveinbjörn Axelss. 8. Ingólfur Lillendahl 37 -Kristján Lillendahl 9. Hermann Tómasson 36 -Ásgeir Stefánss. 10. Hermann Samúelsson 36 -Ari Vilbergsson. 11. Sigurleifur Guðjónss. 25 -Þorsteinn Erlingss. 25 Árshátíð Sjálfsbjargar í Reykjavík og nágrenni Árshátíð félagsins verður haldin laugar- daginn 19. mars í Artúni Vagnhöfða 11. Mat- ur, skemmtiatriði og dans. Borða- og miðapantanir á skrifstofunni Há- túni 12 sími 17868 fyrir föstudaginn 18. mars. Þroskaþjálfi óskast í stöðu aðstoðarforstöðumanns á Sól- heimum í Grímsnesi. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf, sendist forstöðumanni fyrir 15. apríl n.k. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 99-6433. □IeIeIeIeIeIbIbIbIbIeIcIbISbIeIeIcíeIQJ 0J ÍDl ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra ra la ra ra ra ra la la ai 0i 0j 0i 0j 0i 0j 0i rgi A Grensásdeild, aðstoðardeildarastjóra og hjúkrun- J=i arfræðinga í fulla vinnu, hlutavinnu og á næturvaktir. 0J 0J !H BORGARSPÍTALINN LAUSAR STÖDUR HJÚKRUNARFRÆÐINGAR í Hafnarbúðir, full vinna og hlutavinna. Á Sótthreinsunardeild, dagvinna. 0J Á Hjúkrunar- og endurhæfingardeild í Heilsuvern- darstöð við Barónsstíg, full vinna og hlutavinna. J=| Á Gjörgæsludeild, full vinna og hlutavinna. jjjjj Á Skurðlækningadeild, A-5 og A-3, næturvaktir. qjj Á Skurðdeild (skurðstofur). 01 Á nýja öldrunarlækningadeild í B-álmu (B-6). 01 Sérstök athygli er vakin á því að Borgarspítalinn [3j býður hjúkrunarfræðingum, sem ekki hafa verið í [Dj starfi undanfarin ár upp á 3ja vikna starfsþjálfun. nj Laun verða greidd á starfsþjálfunartíma. qjj 01 SJÚKRALIÐAR 0J Á Hjúkrunar- og endurhæfingardeild í Heilsu- 0J verndarstöð við Barónsstíg. 01 Á Hvítabandið. 01 A Grensásdeild. 0J A nýja oldrunarlæknmgadeild i B-almu. (B-6). jgj Einnig vantar hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til 0J sumarafleysinga á spítalann. Umsóknir ásamt upp-0J lýsingum um nám og störf sendist hjúkrunarforstjóra. 0J 01 Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrunar- forstjóra í síma 81200. L* 01 0J 01 01 BORGARSPÍTALINN ö 81-200 eI eIeIeIeIeIeIeIeIeIeIeIeIeIeIeIeIeIeIe] e! ^ íbúðarhúsalóð Tilboð óskast í húseignina Hlíðarvegur 41 í Kópavogi og byggingarrétt á lóðinni. Lóðin er 922 m2 að flatarmáli og byggja má á henni einbýlishús allt að 170 m2 að grunnfleti. Rífa skal núverandi hús á lóðinni og skal allur kostnaður, sem af því verður, innifalinn í til- boðinu. Nánari skilmálar verða afhentir á skrifstofu bæjarverkfræðingsins, Fannborg 2 Kópavogi. Tilboðum skal skila á skrifstofu bæjarverk- fræðings í lokuðu umslagi, merkt „Tilboð Hlíðarvegur11 fyrir kl. 12 þriðjudaginn 22. mars n.k. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Bæjarverkfræðingur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.