Þjóðviljinn - 12.03.1983, Qupperneq 28
28 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 12. - 13. mars 1983
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Landbúnaðarráðstefna á Akureyri
Alþýðubandalagið heldur landbúnaðarráðstefnu á Akureyri, dagana 18. -
20. mars.
Þátttakendur eru beðnir að láta vita af sér í síma 17500.
Blaðamennskunámskeið
í Keflavík
Alþýðubandalagið í Keflavík gengst fyrir blaðamennskunámskeiði fyrri
hluta marsmánaðar. Hefst það laugardaginn 12. mars kl. 10 árdegis og
seinni hluti þess verður fimmtudaginn 17. mars og hefst kl. 20.00. -
Leiðbeinendur verða Vilborg Harðardóttir og Jón Asgeir Sigurðsson. -
Þátttökugjald er kr. 200.-. - Námskeiðið er öllum opið en menn eru
beðnir um að tilkynna þátttöku sem fyrst því fjöldi þátttakenda verður
takmarkaður. - Skráning fer fram hjá Jóhanni Geirdal (s. 1054), Ásgeiri
Árnasyni (s. 2349).
Ritnefnd og stjórn
Alþýðubandalagið á Akranesi
í hvað fara útsvörin?
Almennur fundur í Rein, sunnudaginn 13. márs kl. 14.
Fundarefni: Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar og stofnana hans fyrír
árið 1983.
Gestir fundarins: Dani'el Árnason, bæjartæknifræðingur, Elís Pór Sig-
urðsson, æskulýðsfulltrúi, Guðbjartur Hannesson, skólastjóri, Guðgeir
Ingvarsson, félagsmálastjóri, Grímur Bjarndal, skólastjóri, Ingimundur
Sigurpálsson, bæjarstjóri og Oddgeir Þór Árnason, garðyrkiustjóri.
1. Framsögu hefur Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri.
2. Almennar umræður - gestir fundarins svara fyrirspurnum um starf-
semi og fjárhag stofnana bæjarins.
Fundarstjóri: Engilbert Guðmundsson, bæjarfulltrúi.
Bæjarbúar fjölmennið í Rein og komið skoðunum ykkar á starfsemi og
rekstri bæjarins á framfæri.
Kaffi og meðlæti á boðstólum. - Bæjarmálaráð Alþýðubandalagsins.
Alþýðubandalagið á Egilsstöðum
Fundur í hreppsmálaráði að Lagarási 8 kl. 20.30 mánudaginn 14. mars.
Dagskrá: 1. Húsnæðismál, Framsögu hefur Þorsteinn Gunnarsson. 2.
Umræður, 3. Önnur mál. Kaffi á könnunni. Allir velkomnir. - Stjórn
hreppsmálaráðs.
Kjördæmisráð AB á Vestfjörðum
Fundur verður haldinn í kjördæmaráði Alþýðubandalagsins á Vest'
fjörðum á ísafirði laugardaginn 12. mars nk. Fundurinn hefst kl. 10
árdegis. Dagskrá: 1. Skipan framboðslista til næstu alþingiskosnmga, 2.
Kjördæmamálið, 3. Önnur mál. Stjórnin.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði heldur bæjarmálaráðsfund, mánudaginn
14. mars kl. 20.30 í Skálanum (Strandgötu 41).
Félagar eru hvattir til að mæta á fundinum. - Stjórnin
Alþýðubandalagið á Akureyri
Opið hús á laugardag
Opið hús verðuríLárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 laugardaginn 12. marskl.
15- .
1. Ávörp flytja: Steingrímur Sigfússon og Svanfríður Jónasdóttir, efstu
menn á lista AB í Norðurlandi-eystra.
2. Flokks- og félagsstarf Alþýðubandalagsins: Málshefjandi Soffía Guð-
mundsdóttir, formaður ABA.
3. Undirbúningur kosninga: Heimir Ingimarsson, kosningastjóri.
Kaffiveitingar.
Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti. Nýir félagar eru sérstaklega
hvattir til að koma í opna húsið á laugardaginn kemur.
Stjórnin _____________________
Alþýðubandalagsfélagar
Greiðið félagsgjöldin
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík minnir þá sem enn skulda gjald-
fallin félagsgjöld á útsenda gíróseðla. Stöndum í skilum með félagsgjöldin
og eflum þannig starf félagsins. - Stjórn ABR
Alþýðubandalagið í Reykjavík -
Félagsfundur
Stjórn. Alþýðubandalagsins í
Reykjavík boðar til félagsfundar,
þriðjudaginn 15. mars kl. 20.30 í
Hreyfilshúsinu á horni Grensás-
vegar og Miklubrautar.
Dagskrá:
1. Tillaga fulltrúaráðs um fram-
boðslista vegna komandi al-
þingiskosiiinga,
2. íslensk leið - ekki leiftursókn,
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins
Svavar
Félagar fjölmennið!
Stjórn ABR
Bann við
togveiðum
út af
Vestfjörðum
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að banna veiðar með botn-
vörpu og flotvörpu á svæði út af
Vestfjörðum frá 1. aprfl til 10. júní.
Ákvörðun þessi er tekin, þar
sem undanfarin ár hefur mikið
magn af grálúðu verið veitt af þessu
svæði í apríl og maí, en á þeim tíma
er grálúðan nýhrygnd og horuð og
því mjög lélegt hráefni.
A
UTBOÐ
Tilboð óskast í gerð götu og lagnir í Mar-
bakkabraut, safngötu og húsagötu í Kópa-
vogi. L = 266m. Verkinu skal lokið 1. júlí n.k.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings Fannborg 2, gegn 500 kr. skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað
mánudaginn 21. mars kl. 11 fyrir hádegi, að
viðstöddum bjóðendum.
Bæjarverkfræðingur.
Lagerinn
Smiðjuvegi 54 Kópavogi
Lægstu
prísar
í bænum.
Ef þú kvartar undan auraleysi
þá er þér ekki stætt á öðru
en að koma á lagerinn.
Ótrúlegt úrval af
nýjum ódýrum vörum
STOR
GLÆSI-í
LEG
ASKRIFENDA
GETRAUN!
mars 1983 um
DAIHATSU
CHAR
1983
að verðmæti
,kr. 169.150.
Nú er
að vera með
Aðeins skuldlausir áskrifendur geta tekiö þátt í getrauninni.
Getraunaseðlarnir birtast í laugardagsblöðunum
1&
Síðumúla 15, Reykjavík
minnei
63 (m