Þjóðviljinn - 12.03.1983, Síða 30
3tt SÍÐA. - ÞJÓÐVIL'JINN. Helgin 12. - 13. mars 1983
3Ö 4ra mann
fjölskyfda
getur f/ogió
**• Luxemborg,
°9 ferðast
otakmarkad um E\
• bílaleigubíl
• tvaer vikur
fyrir aðeins
24.604 krónur?
Reynir Eyjólfsson lyfjafræðingur:
Kvöldvorrósarolfa:
Er hún svarið
menni nea^sj úkdómum?
ivar
krabbameini með notkun olíunnar
^rabban®
- sjá nánar
ábls. 24-25
Fráleit
„Það á ekki að ljúga svona í
fólk“, sagði Reynir Eyjólfsson, lyfj-
afræðingur um olíuna, en hann hef-
ur m.a. starfað við LyQaeftirlit
rikisins og sérhæft sig í grasalyfjum
eða svokölluðum náttúrulækning-
alyijum. „Skrum af þessu tagi gct-
ur haft sorglegar afleiðingar“,
sagði Reynir. „Fólk, sem er t.d.
með alvarlegan hjartasúkdóm eða
krabbamein vill cðlilega trúa því að
til sé 1yf sem læknar það, og von-
brigðin verða gífurleg“.
Reynir sagði að fjölómettaðar
fitusýrur hefðu vissulega þýðingu
fyrir líkamsstarfsemi manna og
dýra. Hins vegar væri fráleitt að
halda því fram að þær væru lyf gegn
þeim sjúkdómum sem nefndir eru í
fréttum DV. „Þetta er ágætisolía,
rétt eins og sólblónraolían sem við
notum við smjörlíkisgerð og flutt
hefur verið inn í belgjum, - en að
hún hafi þessa eiginleika alla er
lýsing
ekkert annað en skrum og della“,
sagði hann.
Gamma-línoleumsýran hefur
ekki verið notuð í Iyfjagerð og
sagði Reynir að ástæðan væri sú að
ekki hefði verið hægt að sýna fram
á að hún gagnaði sem lækning á
neinum sjúkdómi. „Gamma-
linoleumsýran gengur vissulega inn
í myndun prostaglandíns sem for-
efni, en það skeður ekki af sjálfu
sér, heldur þarf miklu fleira að
koma til, m.a. önnur efnasambönd
og virkt ensímkerfi," sagði hann.
„Ef þarna væri um virkt efni að
ræða, væri lyfjaiðnaðurinn búinn
að grípa það, enda er nóg af sjúk-
dómunum því miður, og lækninga-
lyf gegn þeim sem nefndir hafa ver-
ið í sambandi við þessa olíu, eru
ekki á hverju strái“, sagði Reynir
ennfremur. „Það hafa verið gerðar
ýtarlegar rannsóknir á fjölómett-
uðum fitusýrum og færustu vís-
indamenn hafa kastað sér yfir það
verkefni, m.a. í sambandi við
hjarta- og æðasjúkdóma. Niður-
stöður eru allar á einn veg, - þarna
eru fjölmargir þættir og samspil
þeirra að verki, m.a. almennar lífs-
venjur mataræði og stress.“
Reynir þekkir náttúrulækninga-
hreyfinguna allvel en hann lagði
m.a. stund á efnafræði náttúruefna
í 6 ár eftir að hann lauk kandidats-
prófi í lyfjafræði. Hann sagði að oft
gengi fram af sér þegar fullyrðingar
af þessu tagi kæmu fram. Olían er
áreiðanlega ágæt sem fæða og fit-
ugjafi en það er óravegur milli þess
að eitthert efni sé skaðlaust og
jafnvel hollt og þess, að það sé
lækningalyf“, sagði hann að
lokum. - AI
Friðarmál:_____________
Hvað
koma þau
mér við?
í dag gangast Menningar- og
friðarsamtök kvenna fyrir opnum
fundi í Norræna húsinu klukkan
14. Fundur þessi er haldinn í tilefni
af Alþjóðabaráttudegi kvenna, 8.
mars. Fundurinn ber yfirskriftina
„Friðarmál - hvað koma þau mér
við?“
Ræðumenn á fundinum eru séra
Agnes Sigurðardóttir æskulýðsfull-
trúi Þjóðkirkjunnar og Arna Krist-
ín Einarsdóttir 14 ára nemandi í
Æfinga- og tilraunadeild Kennara-
háskóla íslands. Jóhanna Þórhalls-
dóttir syngur nokkur lög við gítar-
undirleik Einars Einarssonar. Les-
in verða upp ljóð eftir Jóhannes úr
Kötlum og Hjört Pálsson.
Hart barist í auglýsingaheiminum:
Kærumál risið vegna
auglýsinga Flugleiða
Tvær auglýsingar Fluglciða í
Morgunblaðinu hafa vakið snögg
viðbrögð keppinautanna. Hefur
auglýsingastofa Ólafs Stephens-
en, sem sér um gerð auglýsinga
fyrir Flugleiðir, verið kærð fyrir
siðanefnd Sambands auglýsinga-
stofa. Sá sem kærir er auglýsinga-
stofan Gylmir en hún annast
auglýsingar fyrir Farskip og telur
stofan að í auglýsingu Flugleiða
hafi verið gerður ósanngjarn og
villandi samanburður á fargjöld-
um Farskips og Flugleiða.
Þegár Þjóðviljinn hafði
samband við JHall Baídursson
einn nefndarmanna í siðanefnd
Sambands auglýsingastofa-, kvað
hann nefndina enn á fundi en úr-
skurður henftar lægi fyrir eftir
helgi. Samkvæmt upplýsingum
sem Þjóðviljinn hefur undir
höndum mun álit nefndarinnar
liggja fyrir um að títtnefndar
auglýsingar Flugleiða séu ekki í
anda þeirra reglna sem auglýsing-
astofur hafa sett sér.
„Við kærðum stofu Ólafs Step-
hensen vegna þess að okkur
finnst að gerður sé mjög villandi
og ósanngjarn samanburður á
fargjöldum fyrirtækjanna, en slík
vinnubrögð eru að sjálfsögðu
klárt brot á siðareglum okkar
samtaka", sagði Bjarni Grímsson
hjá Gylmi. „Hins vegar er greini-
legt að spennan er mikil á ferð-
amannamarkaðnum núna og ég
held að þessar auglýsingar Flug-
leiða, sem stofa Olafs Stephen-
sen hannar, séu fyrst og fremst
taugaveiklunarviðbrögð. Menn-
irnir hafa einfaldlega farið á
taugum vegna hræðslu um að
auglýsingar okkar yrðu til þess að
taka farþega frá Flugleiðum",
sagði Bjarni hjá Gylmi. , ;
„Ég var fyrst að heyra þetta í
dag að við hefðum verið kærðir
fyrir siðanefndinni. Ætli við bíð-
um ekkf eftir úrskurðí hennar og
skýrum svo okkár mál þegar þar
að kemur. Hins vegar lék prent-
villupúkinn okkur grátt í þessum
auglýsingum, og það ber að
harma en hann kemur víða við, sá
púki“, sagði Ólafur Stephensen
auglýsingateiknari í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Önnur auglýsing Flugleiða
vakti einnig viðbrögð. Þar var
sagt að ferðamenn á eigin bíl um
Evrópu gætu ekki verið vissir um
að efri kúplingsdælan í SAAB 99
væri til á lager í Frakklandi! SA-
AB umboðið Töggur hf. svaraði
með annarri auglýsingu í Morg-
unblaðinu daginn eftir þar sem
fullyrt er að það sé rugl sem í
auglýsingu Flugleiða standi. Var-
ahlutaþjónusta SAAB sé þvert á
móti hin taustasta í allri Evrópu
og að menn geti áhyggjulaust far-
ið með SAAB-inn sinn í ferðalag
um álfuna.
„Okkur fannst ekki úr vegi að
óska umsagnar siðanefndar Sam-
bands auglýsingastofa á þessari
augjýsingu þar semeinn af okkar
viðskiptamönnum kemur við
sögu“, sagði Halldór Guðmunds-
son framkvæmdastjóri Auglýs-
ingastqfunnar hf., sem sér um
gerð auglýsinga fyrir SAAB um-
boðið Tögg. „Það kann að vera,
að þetta séu merki um harðnandi
samkeppni en þessi tónn sem
þarna var er alveg nýr og vægast
sagt óvenjulégur, því það er af-
skaplega fátítt að einstakar vörur
undir nafni séu nefndar með
þessum hætti í auglýsingum",
sagði Halldór Guðmundsson hjá
Auglýsingastofunni. - v.
Auglýsingastríð hefur geisað á síðum Morgunblaðsins undanfama daga
Gífurleg sala kvöldvorrósarolíu:
Lyf sem læknar
allt og alla?
Allra meina bót? Olía úr kvöldrósinni er m.a. seld í Náttúrulækningabúð-
inni þar sem þessi mynd var tekin.
Sala á belgjum, sem í er olía úr
fræjum kvöldrósarinnar (Evening
Primrose), hefur tekið gífurlegan
kipp í þessari viku, eftir að Dag-
blaðið Vísir birti stóra forsíðufrétt
þess efnis að olían væri allra meina
bót. Var salan þó ærin fyrir og
munu íslendingar nú vera þriðju
stærstu neytendur þessara bclgja á
Norðurlöndum.
Belgirnir eru ýmist 250 eða 500
milligramma stórir og má taka allt
að sex á degi hverjum. Verðið er
nokkuð misjafnt eftir pakkningum
og framleiðendum en hver belgur
kostar frá 1 krónu og 50 upp í 5
krónur. Þeir eru seldir í Náttúru-
lækningafélagsbúðinni og í nokkr-
um öðrum verslunum í Reykjavík
en innflytjandi er Marteinn Skaft-
fells og fyrirtæki hans, Elmaro hf.
Olían er pressuð úr fræjum
kvöldrósarinnar og í henni eru jurt-
aolíur, m.a. um 8-9% af fágætri
fjölómettaðri fitusýru, sem nefnist
gamma-linoleumsýra. Það er þessi
fitusýra sem að mati framleiðenda
seljenda og fjölmargra neytenda er
undralyf við öllum hugsanlegum
kvillum sem herja á hinn vestræna
heim. Meðal sjúkdóma sem olían
er talin bæta og lækna má nefna
gigt, liðagigt, háan blóðþrýsting,
kransæðasjúkdóma og blóðtappa,
taugabilun, geðsýki y(m.a. geð-
klofa), heila- og mænusigg, psori-
asis, exem, ofnæmi, offitu,
drykkjusýki, timburmenn og
fleira.
Lækningamátturinn er rakinn til
þess að úr gammalinoleumsýru
myndar líkaminn prostaglandin,
efni sem gegna svipuðu hlutverki
og hormónar. Telja fylgjendur
þessarar kenningar að ýmsa þá
sjúkdóma, sem taldir eru upp hér
að framan, megi rekja til ójafnvæg-
is í myndun prostaglandina, en
þessi efnaflokkur er nú mjög til
rannsóknar og m.a. voru Nóbels-
verðlaunin í læknisfræði s.l. ár veitt
vegna rannsókna á þeim.
En hvað segja fræðimenn um
þessar kenningar? Ólafur Ólafsson
landlæknir sagðist ekki kannast við
að þessi olía væri talin til lækninga-
lyfja. Hins vegar væri embættið
með þetta mál í athugun nú. Reynir
Eyjólfsson, lyfjafræðingur, sem
hefur sérhæft sig í grasalyfjum taldi
að hér væri um óhóflegar og grófar
ýkj ur að ræða, eins og fram kemur í
viðtali við hann.
-ÁI