Þjóðviljinn - 18.03.1983, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 18.03.1983, Qupperneq 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. mars 1983 Auga sem rœður óleystar gátur stjörnugeimsins IRAS heitir nýr bandarískur gervihnöttur sem gengur fyrir sólarorku, er nú kominn á loft og ertalinn geta sýnt okkur geiminn í nýju Ijósi. En IRAS er þeirrar náttúru aö geta „séð“ útrautt Ijós eöa hitabylgjur, nema útgeislun sem er utan viö skynjunarmöguleika mannsins. Jaf nvel kaldir hlutir gefa f rá sér nokkrun hita og því getur IRAS „séð“ geimfyrirbæri sem annars verða ekki skráð. Þetta er líkan af IRAS, sem getur tekið eftir rafmagnsperu sem kveikt væri á í 6000 miljón kílpmetra fjarlægð. Fram til þessa hafa rannsóknir af þessu tagi verið miklum annmörk- um háðar. Vegna þess að rakinn í andrúmslofti jarðar tekur til sín mestallt útrautt ljós hafa stjörnu- fræðingar reynt að gera athuganir sínar með aðstoð loftbelgja sem sendir eru hátt á loft, eða eld- flauga, eða fara sjálfir á loft í sér- staklega útbúnum flugvélum. En IRAS er þannig gerður að hægt er með öllu að sneiða hjá truflandi áhrifum andrúmsloftsins. Furðulegt næmi Til þess að koma í veg fyrir að eiginn hiti og svo geimhiti trufli at- huganir á uppruna innrauðra geisla úr miklum fjarska, verða hin næmu tæki gervihnattarins að vera í geysiköldu ástandi. Því er tækjum þessum komið fyrir í einskonar hit- abrúsa, sem fylltur er samþjöpp- uðu helíum í vökvaformi, sem heldur öllu saman í kulda sem er fjórum gráðum fyrir neðan há- marksfrost (mínus 459 á Fahren- heit). Tækin eru svo næm, að þau gætu tekið eftir lítilli rafmagns- peru, sem kviknaði á reikistjörn- unni Plútó í 6000 miljón kílómetra fjarlægð. Nákvæm stýring Þetta mikla næmi hefur sínar hættulegu hliðar. Ef svo vildi til, að tækin litu sem snöggvast í sólina eða á jörðina þá gæti fjarsjáin brunnið. Jafnvel sterkt endurkast af birtu mánans eða stórrar reiki- stjörnu eins og Júpíters gæti eyði- lagt rannsóknirnar. Sér til verndar hefur IRAS því vel fágaðan sól- arskjöld gullhúðaðan. En besta trygging gervihnattar þessa fyrir óhöppum er nákvæm stýring hans. IRAS fer kringum jörðina á 103 mínútum í 560 mflna hæð og eftir braut sem liggur frá heimskauti til heimskauts. Með þessu móti er hnettinum haldið nokkurnveginn á þeirri línu á yfirborði hnattarins þar sem dagur og nótt mætast. Á þeirri braut er jafnan hægt að snúa fjarsjánni um 90 gráður frá sólu, en samt veiða í sólarrafhlöður orku til að reka gervihnöttinn. Útbúnaðurinn er bandarískur og hollenskur, og upplýsingar frá IR- AS eru teknar niður á Englandi. Mikilsverðar spurningar Gert er ráð fyrir að IRAS geti staðsett um miljón himnaflykki áður en helíumforði hans gengur til þurrðar. Með tækjum hans er hægt að fylgjast með ungum köldum stjörnum sem nú eru faldar á bak við slæður smáagna sem loka fyrir venjulegt ljós. Gervihnötturinn mun einnig kanna gamlar stjörnur sem eru að syngja sitt síðasta vers. Nær okkar heimkynnum getur IR- AS kannski komið sínu auga á reikistjörnuna X sem marga grunar að leynist einhversstaðar handan við Plútó. Auga hnattarins getur einnig hjálpað til að ganga úr skugga um það hve vetrarbraut okkar er stór og fundið nýjar vetrarbrautir og kvasara. Með því að finna nýjar uppsprettur orku getur IRAS einn- ig hjálpað til að leysa þá spurningu sem stærst er í stjarnfræðinni: hvort geimurinn muni halda áfram að þenjast út í það óendanlega eða hrynja saman undir miskunnar- lausri streitu eigin þyngdarafls. (Byggt á Time). »> Hœttan sem felst í þessum hugtakaruglingi er sú að óprúttnir stjórnmálamenn geta skákað í skjóli hans og komist til valda og áhrifa án þess nokkur viti í rauninni fyrir hvað þeir standa. Er pólitíkin ópólitísk? í Kastljósi fyrir réttri viku var Sigurveig Jónsdóttir fréttamaður að spyrja þrjá þingfréttaritara álits á störfum Alþingis í vetur. Eftir að fréttamaður Morgun- blaðsins hafði lýst þeirri stefnu síns blaðs að gæta hlutleysis í frá- sögnum frá Alþingi, sneri Sigur- veig sér að Oddi á Tímanum og spurði hann hvort því væri eins farið á hans blaði, hvort þing- fréttirnar væru „ópólitískar" þar eins og á Mogganum. Eins og gefur að skilja kom nokkuð kúnstugur svipur á Odd og hann svaraði eitthvað á þá leið að þingfréttir yrðu seint taldar ópólitískar. Þetta verður vart talið ofmælt hjá Oddi. Hins vegar er þessi notkun Sigurveigar á orðinu ó- pólitískur æði útbreidd. Hún endurspeglar þá almennu hug- takabrenglun sem einkennir ís- lenska þjóðmálaumræðu. Ég ætla að nefna annað dæmi. Fyrir allnokkru birti Helgarpóst- urinn viðtal við Björn Þórhalls- son varaforseta ASÍ og áhrifa- mann í Sjáifstæðisflokknum. í viðtalinu lét Björn m.a. þau orð falla að hann gætti þess í störfum sínum innan verkalýðshreyfing- arinnar að láta pólitíkina ekki þvælast fyrir sér. Hvað í ósköpunum átti maður- inn við? Er það ekki lengur póli- tík að starfa í fremstu röð verka- lýðshreyfingarinnar? Og á staða Björns innan Sjálfstæðisflokksins engan þátt í að lyfta honum í stól varaforseta ASÍ? Eftir að hafa velt þessu fyrir mér nokkra hríð komst ég að þeirri niðurstöðu að það sem Björn ætti við væri að hann gætti þess að láta flokkspólitík ekki hafa áhrif á störf sín að faglegum stefnumiðum verkalýðshreyfing- arinnar. Ég hef ekki trú á því að varaforseti einhverra fjölmenn- ustu og áhrifamestu samtaka landsins sé svo skyni skroppinn að halda að starfsemi ASÍ sé ekki pólitísk. Pytturinn sem þau detta bæði í, Björn og Sigurveig, er sá að rugla saman hugtökunum pólitískur og flokkspólitískur. Á þessu tvénnu er sem betur fer ennþá nokkur munur. Ég segi sem betur fer því ef munurinn væri enginn væri harla lítið svigrúm fyrir okkur pólitísku munaðarleysingjana. Einokun flokkanna fjögurra á pólitískum umsvifum er að vísu allt of mikil, en vald þeirra er þó enn ekki nógu mikið til að þeir geti stimplað alltpólitíkóviðkom- andi sem þeir hafa ekki puttana í. Ég og fleiri munaðarleysingjar erum þeirrar skoðunar að pólitík sé miklu víðtækara hugtak en svo að það rúmist í stefnuskrám ís- lensku stjórnmálaflokkanna. Svo dæmi sé tekið eru ekki ýkja mörg ár síðan sumir flokkanna fóru að ræða fjölskyldupólitík. Varla hafa málefni fjölskyldunnar verið ópólitísk frá því í árdaga og þang- að til krötum og frömmurum hugkvæmdist að móta stefnu í þeim. Ég er á þvf að allt umhverfi mannsins sé pólitískt í þeim skiln- ingi að þótt í umræðum sé hægt að aðgreina hina ýmsu þætti þess þá eru þeir svo samþættir í veru- leikanum að vonlaust er að tína úr þá sem engin áhrif hafa á líf fólks og kjör, ef þeir skyldu vera til. Þess vegna er pólitík víðara hugtak en svo að það rúmist innan veggja fjögurra misþröng- sýnna flokka, ekki einu sinni Bandalag jafnaðarmanna spann- ar allt hugtakið í málefnagrund- velli sínum sem einna helst minnir á vörulista póstverslunar. En þessi ruglingur með hug- takið pólitík er því miður ekkert einsdæmi í íslenskri stjórnmála- umræðu. Flest hugtök sem þar fjúka um sali eru svo illa skil- greind og notuð af þvílíkri óná- kvæmni að öll umræða verður marklaus. Sama hugtakið hefur gerólíka merkingu eftir því hver notar þau. Ég þykist t.d. vita að Hannes Hólmsteinn og Ragnar Stefánsson leggja þó nokkuð ó- líkan skilning í hugtökin „frelsi" og „kommúnismi", svo dæmi sé tekið. Að þessu leyti erum við íslend- ingar mun verr á vegi staddir en aðrir evrópubúar. í öðrum evróp- uríkjum hefur t.d. hugtakið „li- beral“ mjög ákveðna sögulega merkingu í stjórnmálaumræðu. Það varð til á uppgangstímum kapítalismans og merkti þá stefnu að vilja aflétta öllum hömlum á frelsi markaðarins. Þetta hugtak var lengi vel þýtt með orðinu „frjálslyndur" en á leiðinni yfir hafið breyttist merk- ing þess og komið til íslands þýddi það svona almennt að vilja ekki vera vondur við náungann, að vera heldur á móti því að leggja umtalsverðar hömlur á frelsi fólks. Nú hefur „liberalisminn" skotið upp kollinum á nýjan leik, en svo er Hannesi og félögum fyrir að þakka að nú heitir hann „frjálshyggja". En stefnan verð- ur ekkert fallegri við nafn- breytinguna. Hættan sem felst í þessum hugtakaruglingi er sú að óprúttn- ir stjórnmálamenn og framagos- ar geta skákað í skjóli hans og komist til valda og áhrifa án þess að nokkur viti í raun fyrir hvað þeir standa. Um þetta eru mý- mörg dæmi í íslenskri pólitík, bæði gömul og ný. Þar fyrir utan veldur ruglingur- inn þeim sem reyna að útskýra íslenska pólitík fyrir útlendingum ómældum höfuðverk. Ég ætla ekki að reyna að lýsa svipnum sem kom á franska blaðamann- inn þegar ég þýddi fyrir hann nafnið á Samtökum frjálslyndra og vinstri manna. Á hans máli voru „frjálslyndi" (sem ég þýddi í anda þess tíma með orðinu „li- beral“) og „vinstri" ósættanlegar andstæður. Og ekki batnaði á- standið þegar ég sagði honum að Samtökin segðust aðhyllast jafn- aðarstefnuna. Þröstur Haraldsson er blaðamað- ur, m.a. verið á Þjóðviljanum, Helgarpóstinum, ritstýrt Norður- landi, Sæmundi og víðar komið við sögu skráningar á almennum tíðindum og útleggingum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.