Þjóðviljinn - 18.05.1983, Síða 5
Miðvikudagur 18. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Punktakerfið fellt niður:
Gamli klíkuskapurinn
heldur innreið sína!
Nýjar reglur um gatnagerðargjöld
Á morgun verða til umræðu í
borgarstjórn nýjar reglur um
lóðaúthlutun og gatnagerðargjöld.
Er ætlun borgarstjórnarmeirihlut-
ans að fella úr gildi reglur um
lóðaúthlutun samkvæmt punkta-
kerfinu annars vegar og hins vegar
að setja nýjar reglur um innheimtu
gatnagerðargjalda þannig að þeir
sem fá lóðir á næsta og þarnæsta ári
verði látnir greiða inn á þær strax.
Sigurjón Pétursson, borgarráðs-
maður Alþýðubandalagsins sagði í
gær að nú ætlaði Sjálfstæðisflokk-
urinn að taka aftur upp gömlu
aðferðina við lóðaúthlutun þar sem
pólitískir fuiltrúar veldu þá sem
náðar nytu hverju sinni. Þá sagði
hann að stórfelld lántaka borgar-
innar hjá væntanlegum húsbyggj-
endum ársins 1984 og 1985 væri
engu betri en aðrar lántökur og
myndu koma illa við húsbyggjend-
ur. -ÁI
Athugasemd vegna viðtals um
smáfiskadráp
Engir annmarkar
Guðni Þorsteinsson fiski-
fræðingur hefur óskað eftir að
koma á framfæri leiðréttingum
vegna viðtals við hann í blaðinu í
gær um smáfiskadráp.
„Þaö er fullyrt að möskvastærðar-
tilraunir Hafrannsóknarstofnunar í
vetur með net á legg í poka hafi
ekki tekist vel og að ýmsir ann-
markar hafi skotið upp kollinum.
Hvorug fullyrðingin er rétt. I viðta-
linu við blaðamann sem fór fram
fyrir alllöngu, sagði ég, að til-
raunirnar hefðu ekki verið nægi-
lega marktækar vegna lítils afla en
niðurstöðurnar hefðu þó lofað
góðu. Engir annmarkar komu fram
í tilraununum en hins vegar benti
ég á ýmsa örðugleika, sem e.t.v.
yrðu því samfara að nota net á legg
í poka.
Verst kann ég þó við fyrirsögn-
ina á greininni: „Breytingar á
veiðarfærum hafa ekki gengið vel
til þessa.“ Hvort sem hér er átt við
íslenska veiðarfæragerð almennt
eða einungis þann þátt sem sker sig
úr um smáfiskadráp þá mótmæli ég
þessari fullyrðingu og er tilbúinn
að færa rök fyrir mínum skoðunum
hvenær sem er.
Virðingarfyllst,
Guðni Þorsteinsson.“
Ályktun launamálaráðs BHM
Vísitöhiskerðing ekki
ráð gegn verðbólgunni
Vegna umræðna um cfnahags-
mál og aðgerðir í þeim á næstu
mánuðum vill Launamálaráð ríkis-
starfsmanna innan BHM taka
undir öll meginatriði í ályktun ASÍ
og BSRB frá 10. þ.m. Einkum
tekur ráðið undir þann hluta álykt-
unarinnar þar sem áhersla er lögð á
virka atvinnuuppbyggingu til þess
að mæta þeim vanda sem við blasir,
án þess að til atvinnuleysis komi.
í því sambandi leggur ráðið sér-
staka áherslu á að fjármagni verði í
auknum mæli beint til þeirra
atvinnugreina sem líklegar eru til
að styrkja efnahagslífið næstu ár.
Hætta verður óarðbærum fjár-
magnsfyrirgreiðslum til atvinnu-
fyrirtækja. Greina verður milli
efnahagslegra og félagslegra fors-
endna þegar teknar eru ákvarðanir
um fjárfestingar og framkvæmdir.
í umræðum um vísitölubindingu
launa hafa einatt komið fram hug-
myndir um að breyta vísitölubót-
urn í þá átt að þær verði föst krónu-
tala í stað prósentuhækkunar. Með
verðtryggingu launa er einungis
verið að tryggja þann kaupmátt
sem samið er um í kjarasamning-
um. Ráðið varar því við breyting-
um á því kerfi sem raska um-
sömdum launahlutföllum og mis-
muna launþegum.
Endurteknar vísitöluskerðingar
á undanförnum árum hafa reynst
haldlitlar í baráttu gegn verðbólg-
unni og telur ráðið því einsýnt, að
nauðsynlegt sé að leita annarra
leiða, ef koma á verðbólgu niður í
svipað stig og í nágrannalöndum
okkar.
Launamálaráð ríkisstarfsmanna
innan BHM telur mjög brýnt, að
fulltrúar stjórnmálaflokkanna hafi
raunverulegt samráð við aðila
vinnumarkaðarins við mótun efna-
hagsstefnu þannig að sem víðtæk-
ust samstaða náist um nauðsyn-
legar og raunhæfar aðgerðir til þess
að leysa þann vanda sem við blasir í
efnahags- og atvinnulífi þjóðarinn-
ar.
Skóli Ásdísar Jónsdóttur:
Tíunda starfsárið
Nú í vor lýkur skóli Asu Jóns-
dóttur sínu tíunda starfsári og á því
afmælisári vill skólinn koma á
framfæri þakklæti til allra þeirra
sem hafa lagt hönd á plóginn.
Frá því 1981 hefur skólinn starf-
að í nýbyggingu við Völvufell 11, í
Breiðholti III en var áður í Keilu-
felli. I vetur voru í skólanum tvær
bekkjardeildir undir leiðsögn
tveggja kennara. Þrjú hundruð fer-
metra húsnæði skólans er í eigu
Ríkisins og Reykjavíkurborgar.
Framfarafélag Breiðholts III beitti
sér mjög fyrir því að korna skólan-
um í fast húsnæði fyrir um tíu
árum.
Markmið skólans er að bæta úr
þöi f skóla fyrir börn á forskólaaldri
(5-6 ára) í samræmi við lög um
grunnskóla og leita að heppilegunt
leiðum í kennslu fyrir byrjendur.
Innritun barna (fæddra 1977 og
1978) fyrir næsta skólaár fer fram í
skólanum alla virka daga kl. 8-10
f.h. og kl. 13-15 e.h. til 21. maí n.k.
Sérstök áhersla er lögð á einstakl-
ingskennslu og fjölbreytta fönd-
urkennslu. Skólinn tekur við börn-
um úr öllum hverfum og upplýsing-
cir eru veittar í síma 72477.'
Grace
Jones
á Islandi!
Diskó-rokk söngkonan fræga
Grace Jones er væntanleg til Is-
lands á föstudagsmorgun og mun
syngja hcr tvö kvöld: á föstudags-
kvöld í Sigtúni, á laugárdagskvöld í
Safari.
Grace Jones er gífurlega eftir-
sóttur skemmtikraftur en kvað
ekki troða upp nema þegar og þar
sem henni líkar. Þessi uppákoma
hennar hér á íslandi mun verða
hennar önnur og þriðja á þessu
sumri.
Forsala miða er hafin í Fálkan-
um, hljómplötuverslununum á
Laugavegi og Suðurlandsbraut, og
kostar miðinn 380 krónur.
-A
A
ia&j
Sundnámskeið
fyrir 6 ára börn (fædd 1976) hefst í sundlaug
Kópavogs mánudaginn 30. maí.
Innritun verður þriðjudaginn 24. maí milli kl.
13 og 15.
Sundlaug Kópavogs
sími 41299.
LAUSAR STOÐUR
' Nokkrar kennarastöður við Menntaskólann að Laugarvatni eru
lausar til umsóknar. Um er að ræða eftirtaldar kennslugreinar:
Efnafræði, frönsku, dönsku og íslensk fræði. Æskilegt er að um-
sækjandi geti kennt fleiri greinar en eina. í íslenskum fræðum er um
að ræða starf til eins árs.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík,
fyrir 10. júní n.k. - Umsóknareyðublöð fást í ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
13. maí 1983.
LAUSAR STOÐUR
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja i Keflavík eru lausar til umsóknar
nokkrar kennarastöður. Um er að ræða eftirtaldar kennslugreinar:
íslensku, erlend mál, stærðfræði, eðlisfræði og sérgreinar í tré-
iðnabraut. Varðandi síðastnefnda startið skal tekið fram að krafist
er meistararéttinda í iðngreininni.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík,
fyrir 10. júní n.k. - Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
13. maí 1983.
Með varúð a
skal ^ um vegi,
landsins
fara.
1FERÐAR
Friöarvaka
um hvítasunnu
Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins boðar til
mikilla aðgerða um Hvíta-
sunnuna.
Það er: Hópferð á Snæfells-
nes. Gist verður í félags-
heimilinu Skildi í Helga-
fellssveit. Þar verða
rædd friðar- og afvopnun-
armál og höfð uppi ýmis
skemmtan á kvöidvökum.
Frá félagsheimilinu verður
farið í skoðunarferðir á fal-
lega staði á nesinu undir
leiðsögn heimamanna.
Dagskrá (í gróf-
um dráttum)
Laugardagur 21. maí
kl. 9.00 Brottför frá flokks-
miðstöð Alþýðubandalags-
ins Hverfisgötu 105.
- 13.00 Komið að Skildi
- 14.00 Skoðunarferð
- 19.00 Kvöldverður
m
Of/
- 21.00 Friðarvaka, spjall
um friðar og afvopnunar-
mál. Glens og gaman.
Sunnudagur 22. maí
kl. 12.00 Hádegisfriður
- 14.00 Skoðunarferð
- 20.00 Kvöldverður
- 22.00 Kvöldvaka undir
beru lofti ef veður leyfir
Mánudagur 23. maf
kl. 13.00 Tiltekt og brottför
- 17.00 Komið til Reykja-
r< víkur
Tvær heitar máltíðir eru
innifaldar (laugardags- og
sunnudagskvöld) en annan
mat verður hver og einn að
hafa með sér. Fyrir utan
svefnpokann væri æskilegt
að fólk hefði með sér litla
dýnu. Og svo er að sjálf-
sögðu góða skapið alltaf
með í förum.
Verð er áætlað u.þ.b. kr.
600.
Allir ungir og hressir sósíal-
istar eru eindregið hvattir til
að koma með og tilkynna
þátttöku í síma 17500 í síð-
asta lagi á miðvikudags-
kvöld þann 18. maí.
Sjáumst hress og kát.
Undirbúningshópur