Þjóðviljinn - 18.05.1983, Síða 9
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 18. maí 1983
Hið
sívinsœla
Borgar-
bókasafn
Reykjavkur
sextíu ára
Hún Embla Einarsdóttir varð sjö
ára 15. maí síðastliðinn. Hún segist
vera mjög iðin við að sækja sér
bækur á bókasafnið og situr þar oft
dagsstund við að skoða bækur.
(Ljósm. Atli).
ii ».i,i|í-,BWI»„.iiirii
...............v
Alltaf
aukast
útlánin
Borgarbókasafn Reykjavíkurer
orðiðsextíu ára.
Afmælisdagurinn var þann 19.
apríl síðastliðinn. Á þessu
afmælisári bar það helst til
tíðinda að niðurskurður og aftur
niðurskurður mun einkenna
starf safnsins á næstunni.
Viö höfum gert þessum niður-
skuröi skil hér í blaöinu, en sem
dæmi má nefna að fé til bókakaupa
hækkaöi um aöeins 20 prósent frá
fyrra ári og mun féð nú nær uppur-
ið. Þá munu útibúin við Sólheima
og Bústaöi þurfa aö loka í sumar
vegna þess að te skortir til aö ráöa
fólk til sumarafleysinga.
En nóg um það. Nú skal tekið til
viö aö tína fram góöu hlutina hjá
Borgarbókasafni Reykjavíkur, og
Notendur bókasafnanna eru á öllum aldriog hér er ein af eldri kynslóðinni,
Sigurlaug Svanlaugsdóttir, að velja sér bækur. (Ljósm. - eik - )
Útibú Borgarbókasafns að Sólheimum á líka afmæli á þessu ári og þá tvítugsafmæli. Hér sést meirihluti starfsfólksins á því safni - ávallt reiðubú-
ið að finna handa okkur bækur. Talið frá vinstri: Herdís Helgadóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Ragnhildur Gísladóttir og Hanna Sigurbjörnsdóttir.
(Ljósm. — eik — )
þeir eru vissulega margir. Eitt af
þessum góðu hlutum eru útibúin,
sem þjóna hinum ýmsu hverfum
borgarinnar með góðum bóka-
kosti. Það eru Sólheimasafn og
Bústaðasafn, sem áður voru nefnd,
og útibúið við Hofsvallagötu 16.
Áætlað er að útibú komi í nýju
menningarmiðstöðina við Gerðu-
berg í Breiðholti III, en á tímum
niðurskurðar er Ijóst að opnum
þess útibús mun dragast í nokkur
ár. Til þess að hægt sé að opna
útibúið þurfa að vera tiltækar amk
40 þúsund bækur en nú hafa verið
keypt aðeins 8 þúsund bindi.
Breiðhyltingar verða að láta sér
nægja bókabílinn sem kemur í
hverfin tvo daga í viku, stutt í senn.
Bílarnir geta hins vegar veitt afar
takmarkaða þjónustu, eins og gef-
ur að skilja, og því nær þjónusta
Borgarbókasafnsins lítið til íbú-
anna í Breiðholti.
Stjórn Borgarbókasafns Reykja-
víkur hefur látið prenta afmælisrit í
tilefni sextugsafmælisins. Þar er
m.a. að finna fróðlegar tölur um
útlán af Borgarbókasafni Reykja-
víkur árin 1923-1979 og jafnframt
fylgir yfirlit um útlán pr. íbúa í
Reykjavík. í afmælisritinu segir,
að þess beri að geta, að í seinni tíð
gerist æ algengara að lánþegar séu
búsettir í öðrum sveitarfélögum en
njóti þjónustu safnsins. Eru það þá
bæði námsmenn utan af lands-
byggðinni sem eru við nám í
Reykjavík og einnig íbúar ná-
grannasveitarfélaganna.
En útlánin á umræddu tímabili
voru sem hér segir - undirrituð hef-
ur bætt inní tölum fyrir árin 1980-
1982:
Ár Útlán Bindi pr. íbúa
1923 25.497 1,2
1933 77.255 2,5
1943 137.359 3,1
1954 152.800 2,5
1963 3,8
1972 865.337 10,3
1979 962.335 11,7
1980 958.748 11,5
1981 966.628 11,4
1982 893.542 10,4
Rétt er að taka fram að árið 1982
var Sólheimasafn lokað um nokk-
urn tíma vegna breytinga og einnig
voru bókabílar oft á tíðum verk-
lausir vegna bilana, en þeir gerast
aldraðir og úr sér gengnir. Slíkar
breytingar á þjónustunni eru
fljótar að koma niður á útlánatöl-
unni.
Miðvikudagur 18. inaí 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
1 afmælisritinu er bent á, að
aukning hefur verið jöfn og þétt í
útlánum og ekkert virðist bíta á
bókaáhuga fslendinga: Ríkisút-
varpið kom til sögunnar árið 1930,
en útlán jukust tlest ár þar á eftir.
Sjónvarpið kom til sögunnar árið
1966. Næstu ár þar á eftir benti
ekkert til þess að tilkoma sjónvarps
hefði afgerandi áhrif á útlán. Með
tilkomu kapalkerfa og myndbanda-
tækja hérlendis hafa vaknað hug-
leiðingar um áhrif þeirra á lestur
landsmanna, en útlánatölur benda
til þess. að bókin haldi velli í sam-
keppninni um afþreyingu.
„Það er helst að merkja minnk-
un á útlánum í þeim tilfellum að
það fer að vanta fleiri útlánsstaði,"
segir í afmælisritinu (bls. 24). „Sú
er staðan unt þessar mundir. Bóka-
bílar geta til dæmis ekki veitt þá
þjónustu sem fólk vill njóta... þeg-
ar útibú safnsins við Gerðuberg
verður opnað, má vænta gífurleg-
arar aukningar útlána. Þangað
kemur fólk sem hefur verið svelt
varðandi bókasafnsþjónustu og á-
reiðanlega er hungur þess eftir
henni orðið mikið og það mun á-
reiðanlega kunna að meta þá ágætu
aðstöðu sem Borgarbókasafn kem-
ur til með að geta veitt í Gerðu-
bergi.“,
Húsnæðismálin hafa alla tíð ver-
ið vandamál í starfsemi Borgar-
bókasafns. Aðalsafnið fékk við
stofnun húsnæði á Skólavörðustíg
3. Ekki leið á löngu þar til húsrým-
ið reyndist allt of lítið og 1928 flutti
safnið í leiguhúsnæði að Ingólfs-
træti 12.
Leiguhúsnæðið að Ingólfsstræti
bauð ekki upp á neina stækkunar-
möguleika og því var gripið til þess
bragðs að opna útibú annars staðar
í bænum. Opnuð var barnalesstofa
í Austurbæjarskólanum og árið
1934 var Útibú I opnað og var það
til að byrja með í húsi Franska spít-
alans á Lindargötu, en árið 1973
flutti útibúið í kjallara Bústaða-
kirkju eftir hrakninga nokkra um
bæinn.
Útibú II var opnað í íbúðarhús-
næði að Hofsvallagötu 16 árið 1936
og hefur verið að Hofsvallagötunni
æ síðan. Þangað hefur sama fólkið
sótt áratugum saman og eru margir
notendanna komnir á efri ár.
Bókakosturinn er ekki mikill, því
plássið setur starfseminni þröngar
skorður.
Útibú III var opnað árið 1948 í
húsnæði við Langholtsveg en sama
ár flutti það í Efstasund og var þar
til húsa þar til Sólheimasafnsbygg-
ingunni var lokið. Þangað flutti úti-
búið ári 1963 og telst safnið eiga
tuttugu ára afmæli á þessu ári,. ,
Sólheimasafnið er eina húsið í
eigu Borgarbókasafns sem teiknað
er og byggt sérstaklega með þarfir
safnsins í huga. Húsið býr yfir ýms-
um stórum kostum og má í því sam-
bandi nefna að fatlaðir geta nýtt
sér þjónustu þess til fullnustu.
Gallarnir eru hins vegar þó nokkrir
og kannski kemur mest á óvart, að
þótt þetta húsnæði sé byggt sem
bókasafn er ekki betur gengið frá
málum sem svo, að gluggar eru
nánast allan hringinn kringuni hús-
ið og því er veggrými fyrir hillur
mjög takmarkað!
Forstöðumenn Borgarbókasafns
hafa verið fjórir á þessum sextíu
ára starfstíma. Sigurgeir Friðriks-
son var fyrsti bókavörðurinn og
gegndi hann því starfi til dauðadags
10. maí 1943. Lára Pálsdóttir tók
að sér að sinna starfi bókavarðar
þar til nýr bókavörður var ráðinn
og tók Snorri Hjartarson við því í
ársbyrjun 1943 og gegndi því til
1966 en lét þá af störfum vegna
heilsubrests. Eiríkur Hreinn Finn-
bogason var borgarbókavörður frá
árinu 1966 til ársins 1975 en þá tók
Elfa Björk Gunnarsdóttir við
starfinu.
Borgarbókasafni var sett sérstök
stjórn árið 1977, en bæjarráð og
borgarráð höfðu stjórn safnsins
með hendi á tímabilinu 1932-1977.
Núverandi formaður (forkona)
bókasafnsnefndar er Elín Pálma-
dóttir en auk hennar sitja í nefnd-
inni Bessý Jóhannsdóttir, Anna
Arnbjarnardóttir, Guðrún Helga-
dóttir og Kristín Ástgeirsdóttir.
Það eru því konur sem nú hafa yfir-
umsjón með starfsemi Borgar-
bókasafns Reykjavíkur. ast
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins:
Æskulýðsfylking Alþýðubanda-
lagsins efnir til friðarvöku um hvít-
asunnuhclgina. Hópur ungmenna
mun leggja upplrá flokksmiðstöð
Alþýðuhandalagsins kl. 9 á laugar-
dagsmorgun og með viðkomu á
Akranesi, þar sem bætt verður við
þátttakendum í hópinn, verður
haldið í Stykkishólm þar sem fé-
lagshcimilið Skjöldur mun hýsa
fcrðalanga.
Hópferðir af þessu tagi hafa ver-
ið ómissandi þáttur í félagsstarfi
ungra sósíalista og má minna á
hvítasunnuferð sem farin var í
Þórsmörk í fyrra og þótti takast
með afbrigðum vel, svo ekki sé
meira sagt. U ndanfarnar vikur hef-
ur verið unnið ötullega að undir-
búningi ferðarinnar og tveir úr
Ólafur Ástgeirsson og Guðbjörg Sigurðardóttir hafa unnið að undirbún-
ingi friðarvökunnar. — Ljósm.: -eik.
Friðarvaka víð
rætur Snæfellsjökuls
verður haldin um hvítasunnuhelgina
undirbúningsnefndinni, þau
Ólafur Ástgeirsson og Guðbjörg
Sigurðardóttir, gerðu sér ferð uppá
Þjóðvilja og útlistuðu dagskrá
friðarvökunnar. Um friðarvökuna
hafði Ólafur m.a. þetta að segja:
„Svona í grófum dráttum verður
dagskráin þannig samansett að á
laugardagsmorguninn kl. 9 verður
lagt upp frá nýju flokksmiðstöðinni
við Hverfisgötu. Þaðan verður
haldið í rútu í Stykkishólm með
viðkomu á Akranesi þar sem þátt-
takendur þaðan bætast í hópinn.
Við áætlum að koma í Hólminn um
eitt leytið á laugardag og eftir að
menn hafa komið sér fyrir í Skildi
verður farið í skoðunarferð um
Snæfellsnes," sagði Ólafur.
„Að loknum kvöldverði á laugar-
dagskvöldið hefst hin eiginlega
friðarvaka. Fróðir menn munu þar
ræða' um heimsmálin, ræða við-
horfin í friðar- og afvopnunarmál-
um. Kvöldvaka með tilfallandi
skemmtiatriðum er svo síðasti dag-
skrárliður laugardagsins, en á
sunnudegi verður haldinn fundur
sem ber yfirskriftina „Hádegis-
friður", einskonar spjallfundur
með því sem menn fá sér að borða.
Við munum svo fara í ýtarlega
skoðunarferð að loknum hádegis-
verðarfundi, en um kvöldið verður
dagskráin með svipuðu sniði.og
kvöldið áður. Um hádegisbilið á
mánudeginum verður lagt heim á
leið,“ sagði Ólafur.
Guðbjörg vildi taka það sérstak-
lega fram að nauðsynlegt er fyrir
væntanlega þátttakendur að hafa
með sér skjólgóðan fatnað, svefn-
poka með dýnu og nesti. Innifaldar
í ferðinni verða tvær heitar máltíðir
en þess á milli verða menn að kíkja
í sína eigin körfu. Starfsmenn
flokksmiðstöðvarinnar taka niður
þátttökutilkynningar en kostnaður
er 600 krónur, sem innifelur gist-
ingu, ferðir, skoðunarferðir og
tvær heitar máltíðir. -hól.
Styrkir Alþýðubankans afhentir. Frá vinstri eru: Sigurður Þorsteinsson skólastj. þjálfunarskóla ríkisins,
Birgir Guðmundsson fornr. Foreldra og vinafélags Kópavogshælis, Stefán M. Gunnarsson bankastjóri,
Bjarni Jakobsson varaform. bankaráðs Alþýðubankans, Óskar Guðnason framkv.stj. Blindrafélagsins og
Halldór Rafnar formaður Blindrafélagsins.
Aðalfundur Alþýðubankans
Arðurinn fer
til liknarmála
Aðalfundur Alþýðubankans h.f.
var haldinn 30. apríl s.l. Formaður
bankaráðs, Benedikt Davíðsson
flutti skýrslu bankaráðs. Auk
fjölmargra atriða sem hann kom
inná í ræðu sinni lagði hann mikla
áherslu á nauðsyn þess að færa út
starfsvettvang bankans. Benedikt
skýrði frá undirbúningi þess að
opna útibú á Akureyri, en þar er að
hefjast bygging sameiginlegs
skrifstofu- og félagsmálahúss
verkalýðsfélaganna á Akureyri og
er Alþýðubankinn þar aðili að.
Stefán M. Gunnarsson, banka-
stjóri, lagði fram og skýrði reikn-
inga bankans fyrir árið 1982. í ræðu
hans kom fram að árið 1982 hefði
verið erfitt ár fyrir bankann eins og
almennt efnahagslíf í landinu.
Aðal erfiðleikar bankans hefðu
komið fram í slæmri lausafjár-
stöðu, gagnvart Seðlabankanum,
meginhluta ársins. Útlánaeftir-
spurn hafi verið þung allt árið, en
innlánsaukning varð allt önnur en
undanfarin ár, alvarlegast aUöllu
voru þó vanskil lána, sem endur-
speglaði glöggt erfitt fjárhagsá-
stand almennings og fyrirtækja.
Á árinu 1982 jukust rekstrar-
tekjur bankans, um kr. 47.5 millj.
króna f.f. ári eða 109,9% rekstrar-
gjöld, að meðtöldum afskriftum
utan skatta til ríkissjóðs, jukust í
heild um 45,9 millj. króna eða
109,0%. Skattar til ríkissjóðs skv.
lögum nr. 65/1982 nam kr. 1.301
þús.
Rekstrarhagnaður ársins 1982
varð kr. 1.551 þús. Útlán jukust
um 71.5% frá fyrra ári, eða 63,6
millj. króna. Hlutfallsleg hækkun
varð lang rnest í verðtryggðum út-
lánum, eða um 186,4%. Innláns-
aukning nam 57,3% eða 83,8 millj.
króna. Verðtryggð innlán jukust
um 203% meðan almenn innlán
jukust um 32.5%.
Aðalfundurinn samþykkti til-
lögur um eftirfarandi:
1. 65% hækkun hlutafjár með út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa, verð-
ur þá hlutafé bankans kr. 11.220
_ þús.
2. Ráðstöfun tekjuafgangs:
Til styrktar sundlaugarbyg-
gingar við Kópavogshæli kr. 75
þús.
Til styrktar byggingar sjón-
stöðvar Blindrafélags íslands
kr. 75 þús.
3. Til varasjóðs bankans kr.
883.727,94.
Fundurinn leit svo á, að með
samþykkt framantaldra gjafa, væri
verið að ráðstafa arði hluthafa í
þágu mjög nauðsynlegra og góðra
málefna og væri því vel varið.
Þá samþykkti fundurinn að
bjóða út nýtt hlutafé að fjárhæð 2
milljónir króna, ennfremur voru
samþykktar nauðsynlegar
breytingar .á samþykktum bankans
og ný heildar reglugerð.
í bankaráð næsta kjörtímabil
voru endurkosin: Benedikt Da-
víðsson, Bjarni Jakobsson, Hall-
dór Björnsson, Teitur Jensson,
Þórunn Valdimarsdóttir og til vara
Jón Ágústsson, Sverrir Garðars-
son, Sigurgestur Guðjónsson,
Auður Guðbrandsdóttir og Guð-
mundur Hallvarðsson. Endur-
skoðendur voru endurkjörnir:
Böðvar Pétursson, Magnús Geirs-
son og Gunnar R. Magnússon,
lögg. endurskoðandi.
/
Alyktun
Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja
um kjaramál:
Varar við
einhliða
aðför að
lífskjörum
Aðalfundur Verkalýðsfélags
Vcstmannaeyja haldinn 15. maí
gerir svufellda ályktun um kjar-
amál:
Um þessar mundir glymur dög-
um oftar í eyrum almennings hve
efnahagur þjóðarinnar sé bágbor-
inn og að landsmenn lifi um efni
frani. Að vanda tefja landsfeðurnir
sig hafa fundið sökudólginn, sem
að þeirra mati er ís)f?»skt launafólk
og eru þeir flestir saihmála um að
ábyrgðinni á þeiisj.Áá'ftda skuli nú
velt yfir á herðarujjjfeýðunnar. Á
þessari stundu virwlt aðeins deilt
um hversu þungar þter byrðar skuli
vera.
Fundurinn vís^j&§ú bug þeirri
kenningu, að vaqgLjyóðarbúsins
sé vegna of hárra .jámá verkafólks
og að það eitt mem>4íÍ[a til bjargar
vorri þjóð að sk|i|) niður laun
landsmanna.
Jafnframt fontómir fundurinn
þann tvískinnung seþiifram kemur
hjá helsta talsmanhibankavaldsins
í landinu sem krefst afnánis verð-
bóta á laun, aðhalds og sparnaðar á
öllum sviðum, meðan bankahall-
irnar þjóta upp eins og gorkúlur á
haug, en allur atvinnurekstur er að
sligast undan okurvöxtum og fjár-
magnskostriaði sem í sumum tilfell-
unt er orðinn mun hærri en launa-
kostnaður fyrirtækjanna. Fundur-
inn minnir á að þegar þjóðin hefur
orðið fyrir alvarlegum efnahags-
legum áföllum hefur verkalýðs-
hreyfingin ekki skorast undan því
að axla sinn hluta byrðanna. Til
dæmis skal athygli vakin á biölund
hreyfingarinnar á árum hinnar svo-
kölluðu Viðreisnarstjórnar og fyrri
hluta stjórnartímabils Geirs Hall-
grímssonar, en þá greip verkalýðs-
hreyfingin ekki til aðgerða fyrr en
hún stóð frammi fyrir stórfelldum
landflótta launafólks úr sínum
röðuni og áætlunum um hatramm-
ar árásir á lífskjör almennings.
Einnig skal á það bent að þótt
ekki komi til frekari ásælni ríkis-
valdsins er spáð 8-10% kaupmátt-
arrýrnun á þessu ári.
Komi tit þess að óhjákvæmilegt
reynist að ganga enn frekar á gerða
samninga verkafólks, álítur fund-
urinn fráleitt að það fjármagn verði
látið renna beint í vasa atvinnurek-
endá án tillits til þess hver þörf
fyrirtækjanna er.
Því leggur fundurinn til að slíkar
aðgerðir verði í fullu samráði við
verkalýðshreyfinguna og að það
fjármagn sem þannig er tekið af
umsömdum launum renni í sjóð er
verkalýðshreyfingin hafi umráð
yfir og því fjármagni verði síðan
varið: 1. Til að styrkja fyrirtæki
sem leggja fram reikninga og sýna
fram á þörfina fyrir aðstoð enda fái
starfsfólk í staðinn eignaraðild að
fyrirtækjunum og áhrif á stjórnun
þeirra. 2. Til að efla byggingu
íbúða og leiguhúsnæðis á félags-
legum grundvelli. 3. Til eflingar
framkvæmda sem stuðla að
aukinni atvinnu.
Fundurinn varar við einhliða að-
för að lífskjörum verkafólks sem
fyrirsjáanlega mun leiða til óvina-
fagnaðar og átaka á vinnumark-
aðinum þegar mest er um vert að
þjóðin standi saman að lausn þess
vanda er við blasir.