Þjóðviljinn - 28.05.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 28. - 29. maí 1983
skammtur
Affegurðarsamkeppni
Samkvæmt ævafornri skilgreiningu, skiptast konur í
tvo hópa: Fríðar konur og vel vaxnar og ófríðar konur
og illa vaxnar.
Fríðar konur og vel vaxnar eru hvers manns hug-
Ijúfi, en ófríðar konur og illa vaxnar, ekki alltaf.
Ófríðar konur og illa vaxnar eiga það til að hafa allt á
hornum sér, enda eru þær illa í sveit settar í samfélagi
þar sem kostir kvenþjóðarinnar eru einkum metnir
eftir andlitsfegurð, brjósta, mittismáli og læralengd.
Árviss viðburður í íslensku þjóðlífi er fegurðarsam-
keppnin, en þá eru leiddar uppá pall þær konur, sem
að mati okkar karla eru umfram aðrar föngulegar,
girnilegar og eigulegar. Semsagt búnar þeim kostum,
sem gera konuna það sem hún á að vera: EFTIR-
SÓKNARVERÐ.
Fegurðarsamkeppnin er ófríðum konum og illa
vöxnum mikill þyrnir í augum, eða eins og segir í
vísunni:
Ef að konur fagrar fá
fegurðina að sýna,
greppitrýnin grýlur sjá,
geggjast bæði og hrína.
Ófríðar konur og illa vaxnar verða í eitt skipti fyrir öll
aö gera sér það Ijóst að náttúrulögmálum verður ekki
breytt. Eigi kona á annað borð að vera gjaldgeng þarf
hún að vera búin kvenlegum yndisþokka, lágmarks
fríðleik og viðunandi sköpulagi. Þessir eiginleikar eru
að vísu vöggugjafir, sem skaparinn úthlutar æði mis-
rausnarlega eins og öðrum kostum, en við því er
ekkert að segja frekar en öðru sem frá honum kemur.
Án fagurra kvenna væri líf hins hugsandi manns
bæði litlaust og fánýtt, einkum utan heimilisins. Óneit-
anlega þarf margur maðurinn að búa við mikinn ófríð-
leik heima fyrir, og er það mörgum góðum dreng
þungbærara en tárum taki, eins og gamla góða spak-
mælið ber með sér:
Ljót kona er löstur á manni
en fögur kona fengur í ranni.
Með þessi fornu sannindi að leiðarljósi ætti hver
maður að velja sér konu til eignar.
Því fríðari sem konan er, þeim mun heppilegri móð-
ir, kona og meyja hlýtur hún að verða. Þessu lýsir
skáldið svo undurvel í þriðja erindi kvæðisins
„Móðirin":
Móðir barni blíðuhót
byrjaði að sýna.
Af því hún var ekki Ijót
var allt i þessu fína.
í andófi sínu gegn fegurðarsamkepþnum bera ó-
fríðar konur og illa vaxnar það helst fyrir sig að slíkar
sýningar séu niðurlægjandi fyrir hið veika kyn, dag-
draumafóður handa ógeðslegum og náttúrulausum
karlrembusvínum, gripir til sýnis einsog búfénaður
eða ambáttir á markaðstorgum í Barbaríinu, vanvirða
við hugsandi fólk, jafnvel þó það sé kvenfólk. Þær
segja að verið sé að viðhalda gamalli og ógeðfelldri
kvenhugmynd, semsagt þeirri að það fari mest eftir
útliti kvenna, hve góðar þær séu til síns brúks.
Þá halda framangreindar konur því fram að veikara
kynið geti undir sumum kringumstæðum haft vitsmuni
og þroska ávið karlmenn, en að við karlar höldum
þeim niðri í bæði eiginlegum og óeiginlegum skilningi.
Við þessu öllu er hægt að beita gamalli og sígildri
röksemd: „Það verður þá bara að hafa það“.
Nei, það má undir engum kringumstæðum afleggja
hina árvissu fegurðarsamkeppni. Það fer alltaf fiðring-
ur um oss, þegar vér fréttum af því, að undirbúningur
sé hafinn. Sérstakir sendimenn ferðast um landið,
eins og Árni Magnússon forðum í leit að fágætum og
ókrumpnum eintökum undir fögru skinni. Farið er í
kotbæi og krummaskuðir, bústnarheimasæturdregn-
ar útúr bæjunum framá hlaðið, þær flettar klæðum,
barmur mældur og kloflengd. Og þegar búið er að
fínkemba dreifbýlið er öllum skaranum smalað til
bygg'ða þar sem þéttbýlissafnið bíður þess að farið sé
í undanrásir og riðla. Svo er dregið í dilka, stúlkurnar
látnar tína af sér spjarirnar að ýtrustu velsæmismörk-
um, eða lengra, ef kostur er, og þær prufukeyrðar, svo
að þær séu nú „reynslunni ríkari", einsog „snyrtillinn"
segir. Ljótar og illa vaxnar eru sortéraðar frá, síðan er
enn betur grisjað, með því að „frekar" Ijótar og “frek-
ar“ illa vaxnar eru sendar aftur heim. Að síðustu eru
svo aðeins eftir tíu stykki fríðar og vel vaxnar og þá er
varla lengur hægt að gera uþþámilli skrokkanna en
farið að leita að öðrum kostum en fegurðinni; „ungfrú
vandvirk, vinsæl, myndræn," að ekki sé nú talað um
fegurðardrottingu íslands og Reykjavíkur, sem ekki
þarf endilega að vera - og er víst aldrei - ein og sama
stúlkan.
Að síðustu er svo búin til terta, nákvæm eftirlíking af
fegurðardrottningunni frá í fyrra og hún étin með húð
og hári, byrjað á augunum og hnakkaspikinu og síðan
haldið niðureftir skrokknum eins og leið liggur um
barminn, geirvörturnar þjóhnappana, lærin og lend-
arnar o.s.frv... o.s.frv...
Hjá konum verður fegurðin ein að ríkja ofar hverri
kröfu. Allt annað er fánýtt hjóm.
Hvað sagði raunar ekki Jón Sigurðsson, þegar ófríð
kona og illa vaxin varpaði - á fundi - fram þeirri
hugmynd að konur ættu að fá kosningarrétt:
Kona sem að ekki er
augnagaman,
hún á bara að halda sér
- held ég - saman.
Flosi.
skraargatið
I gœr
var su ákvörðun tekin í
Þjóðleikhúsinu að hætta við að
fara í leikför út um land með
Ieikritið Tvíleik. Ástæðan er pen-
ingaleysi. í þessu leikriti eru þó
aðeins tveir leikendur og leik-
mynd afar einföld og því allur
kostnaður í lágmarki. Áuk þess
er það skylda Þjóðleikhússins að
þjóna öllu landinu. í Iokin er rétt
að minna á að nýlega fór
Þjóðleikhúsið í rándýra leikför
með Silkitrommuna til Suður-
Ameríku.
Almenningur
er óhress með hina nýju ríkis-
stjórn. Þetta kom greinilega fram
í morgunútvarpi Stefáns Jóns
Hafstein í gærmorgun (föstudag)
þar sem fólk hringdi inn og sagði
skoðanir sínar á henni og hinum
nýju ráðherrum. Þar hringdi t.d.
einn verkamaður, sem sagðist
alla tíð hafa kosið Sjálfstæðis-
flokkinn. Hann sagði að það
væru útgerðarmenn í sinni ætt og
hann vissi því vel að þeir gætu
sýnt taprekstur en borist samt
mikið á. Það væri nær að sækja
peninga í þeirra vasa heldur en
láglaunafólksins í stað þess að
færa þeim peninga. Þetta leiðir
hugann að þeirri staðreynd að
margt launafólk kýs Sjálfstæðis-
flokkinn af einhverjum misskiln-
ingi og er þannig í raun að greiða
atkvæði gegn sjálfu sér.
Jómfrúarferð
m.s. Eddu verður farin n.k.
miðvikudag og verður mikið um
dýrðir um borð. í þessari fyrstu
ferð verður m.a. sérstakur
heiðursgestur sem ekki hefur ver-
ið greint frá ennþá en ekki kæmi
það á óvart þó það væri Halldór
Laxness, frægasti Gullfossfar-
þeginn frá fyrri tíð. Fyrir utan
hljómsveit skipsins verða einnig
með í för sérstakir skemmtikraft-
ar, þeir Björgvin Halldórsson og
Magnús Kjartansson. Þá verður
boðið ferðamálafrömuðuTi ýms-
um og blaðamönnum. Er ekki
að efa að það verður dýrleg sig-
ling.
Pað
hefur vakið athygli að einungis
einn af fjórum ráðherrum Fram-
sóknarflokksins úr fyrri ríkis-
stjórn fær að sitja í hinni nýju.
Þegar verið var að ganga frá ráð-
herralistanum í þingflokknum
hélt Ólafur Jóhannesson hóf fyrir
starfsfólk utanríkisráðuneytisins
og kom hvergi nærri. Tómas Árn-
ason mun ekki hafa grátið að
missa sitt embætti því að hann fær
annað feitt í staðinn í Fram-
kvæmdastofnun en lætur sam-
þingmann sinn úr Austurlands-
kjördæmi, Halldór Ásgrímsson,
vinna skítverkin. Ingvar Gíslason
mun hins vegar ekki hafa gefið
ráðherradóm eftir þegjandi og
hljóðalaust en var einfaldlega
sparkað þar sem hann hefur
reynst einhver versti ráðherra
sem um getur.
Mikið
fjör er nú að færast í ýmsar ljós-
myndabækur með myndum frá
fyrri tíð. Skráargatið hefur frétt
af a.m.k. þremur slíkum bókum
sem koma munu út í haust. Ljós-
myndasafnið hyggur á útgáfu
með myndum Péturs A. Ólafs-
sonar en hann tók frábærar
myndir á fyrri hluta aldarinnar
frá Patreksfirði, Flatey, Akur-
eyri, Reykjavík og víðar. Þá mun
útgáfufyrirtækið Hagall sem gaf
út Akureyrarmyndir Hallgríms
Einarssonar í fyrra hyggja á út-
gáfu á myndum áhugaljósmynd-
ara nokkurs sem tók myndir í
Reykjavík á árunum 1920-50.
Austur á Eyrarbakka er búsett
Inga Lára Baldvinsdóttir sagn-
fræðingur sem er sérfræðingur í
ljósmyndum. Hún er gift Magn-
úsi Karel Hannessyni oddvita á
Eyrarbakka. Þau hyggjast gefa út
innan tíðar bók með gömlum
Eyrarbakkamyndum.
Hinn
8. júní n.k. eru 200 ár liðin frá ví
að Skaftáreldar hófust en af-
leiðing þeirra var m.a. sú að um
þriöjungur þjóðarinnar féll íval-
inn. Heilmikið verður um að
vera í tilefni af þessu afmæli en
undanfarin ár hafa ýmsir fræði-
menn verið að rannsaka sögu
þessara hamfara með tilstyrk úr
samnorrænum sjóði. 8. júní
verður opnuð sýning á Kirkju-
bæjarklaustri um Skaftárelda og
áhrif þeirra sem þeir Gylfi Már
Guðbergsson landfræðingur og
Þorleifur Einarsson jarðfræðing-
ur hafa skipulagt og hannað.
Verður sérstök dagskrá í tilefni
opnunarinnar. Seinna í sumar
verður svo kirkjuhátíð á Prest-
bakka og Kirkjubæjarklaustri
þegar 200 ár verða liðin frá því að
sr. Jón Steingrímsson söng „Eld-
messuna" frægu í kirkjunni á Kir-
kjubæjarklaustri.
Skemmtiferð í Ósafjörð við PatreksQörð snemma á öldinni. Ein af
myndum Péturs A. Ólafssonar sem gefnar verða út á bók í haust.
Minningarkapella séra Jóns Steingrímssonar á Kirkjubæjarklaustri.
200 ára afmæiis Skaftárelda verður minnst með margvíslegum hætti í
sumar.