Þjóðviljinn - 28.05.1983, Side 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 28. - 29. maí 1983
um hclgrina
Mál og menning efnir til dagskrár:
Ljóðalestur í
Norrœna húsinu
Nýlega komu út tvær nýjar
ljóðabækur hjá Bókaforlagi Máls
og menningar, eftir þau Ingi-
björgu Haraldsdóttur og Einar
Olafsson. Af því tilefni efnir Mál
og menning til ljóðadagskrár í
Norræna húsinu, laugardaginn
28. maí kl. 4 síðdegis. Auk höf-
unda nýju bókanna koma fram
skáldin Helgi Hálfdanarson,
Nína Björk Arnadóttir, Vilborg
Dagbjartsdóttir, Ólafur Haukur
Símonarson, Norma E. Samúels-
dóttir og Olga Guðrún Árnadótt-
ir.
Hjalti Rögnvaldsson leikari
les úr verkum Snorra Hjartar-
sonar og Ólafs Jóhanns Sigurðs-
sonar. Kynnir er Silja Aðal-
steinsdóttir.
Neskaupstaður
Guðmundur
sýnir í Egilsbúð
Guðmundur Björgvinsson
opnar málverkasýningu á morg-
un, laugardaginn 28. maí, í Egils-
búð í Neskaupstað. Opnar sýn-
ingin kl. 14 og verður hún opin
daglega frá 14-22 til maíloka.
A sýningunni í Egilsbúð er
Guðmundur með pastelteikning-
ar, olíumálverk, acrylmálverk og
myndir með blandaðri tækni.
Guðmundur Björgvinsson var
með sýningu á Kjarvalsstöðum
fyrir um það bil mánuði, og vöktu
verk hans mikla athygli.
Skagfirska söng-
sveitin
Tón-
leikar
Skagfirska söngsveitin heldur
sína árlegu vortónieika fyrir
styrktarfélaga laugardaginn 28.5
’83 kl. 15 í Austurbæjarbíói.
Stjórnandi er Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir. Undirleikari
Olafur Vignir Albertsson.
Skagfírska söngsveitin í Kanada 1981.
Á söngskránni eru bæði innlend
og eriend lög. Einsöngvarar
koma fram með kórTSum og
syngja t.d. sextett úr Lucia Di
Lammermoor eftir G. Donizetti
og kvartett úr Vínarvölsum eftir
Jóhann Strauss. Aðgöngumiðar
verða seldir við innganginn.
Listmunahúsið
Nýjar og
gamlar
grafík
myndir
Laugardaginn 28. maí kl. 14
verður opnuð í Listmunahúsinu,
Lækjargötu 2, sýning Braga Ás-
geirssonar á gömlum og nýjum
grafíkmyndum.
Eftir nær tveggja áratuga hlé
hefur Bragi tekið til við listgrafík
á ný og út er komin grafísk mappa
með sex steinþrykkjum, auk
þriggja stakra mynda, sem eru til
sýnis og sölu í Listmunahúsinu.
Sýningin er opin daglega frá kl.
10-18, laugardaga og sunnudaga
frá kl. 14-18. Lokað mánudaga.
Sýningin stendur til 5.júní.
Karlakór
Reykjavíkur
heldur tónleika
Hinir árlegu tónleikar Karla-
kórs Reykjavíkur fyrir styrktar -
félaga kórsins verða haldnir í Há-
skólabíói 1., 3. og 4. júní n.k.
Kristján Jóhannsson, óperu-!
söngvari, verður einsöngvari
með kórnum að þessu sinni og
mun hann syngja meðal annars
ítalskar og franskar aríur, auk ís-
lenskra laga.
Stjórnandi Karlakórs Reykja-
víkur er Páll Pampichler Pálsson
og píanóleikari Guðrún A. Krist-
insdóttir.
Nokkrir aðgöngumiðar verða
seldir við innganginn á alla tón-
leikana.
Karlakór Reykjavíkur ásamt stjórnanda sínum, Páli Pampichler Páls
syni.
leiklist
Þjóðleikhúsið:
Klukkan 15.00 í dag laugardaginn 28.
mai verður siðasta Nemendasýning
Listdansskóla Þjóðleikhússins, sem Ing-
ibjörg Björnsdóttir stjórnar. [ kvöld verð-
ur svo Grasmaðkur Birgis Sigurðssonar.
Síðasta sýning á Línu langsokki í vor
verður á sunnudag kl. 14.00 og um
kvöldið verður skemmtun með Victor
Borge. Allra síðasta sýning á Súkkulaði
handa Silju eftir Nínu Björk Árnadóttur
verður svo á þriðjudagskvöld.
Félagsstofnun:
„Aðeins eitt skref“
Annað kvöld, sunnudaginn 29. maí verð-
ur dagskrá í Félagsstofnun stúdenta á
vegum Stúdentaleikhússins og nefnist
hún „Aðeins eitt skref". Flutt verða þrjú
verk, sem tengjast og eru samofin í flutn-
ingi. Þau eru: Steinaspil, einþáttungur
fyrir einn ieikara og „Solo un paso", verk
fyrirflautuleikara, söngkonu, segulband,
Ijós og hluti. Sjá nánar annars staðar í
blaðinu.
Tosca á Akureyri
Óperan Tosca eftir Puccini verður flutt í
Iþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn
28. maí n.k. og hefst flutningurinn kl.
19.00. Þessi flutningur óperunnar, sem
er í konsertformi, var fyrirhugaður 12.
mars s.l. en féll niður vegna veðurs.
Flytjendur auk Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands eru: Sieglinde Kahmann, sem
syngurToscu, Kristján Jóhannsson, Ca-
varadossi, Robert Becker, Scarpia, en í
minni hlutverkum eru þau Elín Sigurvins-
dóttir, Guðmundur Jónsson, Kristinn
Hallsson og Már Magnússon, ennfremur
Söngsveitin Fflharmonía, en sveitina
skipa 70 manns.
myndlist
Kjarvalsstaðir:
Eina sýningin sem verður um helgina^
verður opnuð í dag í vestursal. Það er'
Ljósmyndaklúbburinn Hugmynd sem
stendur fyrir sýningunni.
Hún stendur til 22. júní.
Árni sýnir í Nýlistasafninu
Árni Ingólfsson opnar sína 3. einkasýn-
ingu í Nýlistasafninu við Vatnsstig 3b
laugardaginn 28. maí kl. 16.00
Árni hefur tekið þátt í fjölmörgum sýning-
um á Islandi og utan, hann var einn af
þremur fulltrúum fslands á Ungdómsbi-
enalnum í París 1980.
Hann stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla Islands frá árinu 1973-77
og framhaldsnám í Hollandi frá 1977-
80, Árni hefur kennt við Myndlista- og
handíðaskóla íslands frá árinu 1980,
sýningin er opin frá kl. 16.00-20.00 virka
daga en 14.00-22.00 um helgar, hún
stendur til sunnudagsins 5. júní.
Glerárgata 34 Akureyri:
Laugardaginn 21. maí opnaði Hörður
Geirsson sína fyrstu Ijósmyndasýningu í
Listsýningarsalnum að Glerárgötu 34 á
Akureyri.
Á sýningunnni verða 45 litmyndir auk
nokkurra svart/hvítra mynda og eru þær
allar nýjar af nálinni. Viðfangsefni sækir
höfundur í sitt nánasta umhverfi sem oft
eru hversdagsleg, en eru tekin óvenju-
legum tökum.
Sýningin verður opin alla virka daga frá
kl. 20.00-22.00 og helga daga frá kl.
14.00-22.00 og lýkur sunnudaginn 29.
maf.
Hvassaleitisskóli:
Samtök áhugamanna, Myndlistarklúbb-
ur Hvassaleitis, efnir til málverkasýning-
ar f Hvassaleitisskóla nú um helgina. E'r
hún opin kl. 14-22 í dag, laugardag og á
morgun.
22 taka þátt í sýningunni og eru á öllum
aldri og meirihlutinn konur. Sýndar eru
um 150 myndir. Leiðbeinandi þessa
áhugamannaklúbbs hefur f vetur verið
Sigurður Þórir Sigurðsson.
ýmislegt
Fyrirlestur um tölfræði:
Stephen Bennett, tölfræðingur við há-
skólann í Reading á Englandi heldur
fyrirlestur á vegum reiknifræðistofu
Raunvísindastofnunar Háskólans mán-
udaginn 30. maí n.k. kl. 16:00 í Gömlu
loftskeytastöðinni við Suðurgötu.
Fyrirlesturinn nefnist:
Methods for the Analysis of Survival
Data
og er á sviði tölfræðilegrar úrvinnslu á
læknisfræðilegum gögnum.
Kaffidrykkja Húnvetningafélagsins
Næstkomandi sunnudag 29. maf kl.
15.00 býður Húnvetningafélagið í
Reykjavík eldri Húnvetningum til kaffi-
drykkju í Domus Medica.
Samkomur með þessu sniði hafa verið
fastur liður í starfi félagsins mörg undan-
farin ár og jafnan vel sóttar. Stjórn fél-
agsins væntir þess að sem flestir sjái sér
fært að koma og rifja upp gömul kynni og
njóta þess sem fram verður borið.
Stúdentafélagið
Sumar
hátíð í
kvöld
Sumarhátíð Stúdentafélags
Reykjavíkur verður í kvöld
laugardaginn 28. maí, kl. 20.30 í
Háskólabíói.
Fram koma: Victor Borge, Fé-
lagar úr íslensku hljómsveitinni,
Sigrfður Ella Magnúsdóttir, Jú-
líus Vífill Ingvarsson, Ólafur
Vignir Albertsson, Gunnar
Kvaran, Gísli Magnússon, Fé-
lagar úr íslenska dansflokknum,
Ómar Ragnarsson. Kynnir:
Þorgeir Ástvaldsson.
Victor Borge
Einstakur viðburður - aðeins
þetta eina sinn. Forsala aðgöng-
umiða í Háskólabíó.
Eva sýnir í
Ásmundarsal
Eva Benj amínsdóttir myndlist-
arkona opnar um helgina mynd-
listarsýningu í Ásmundarsal við
Freyjugötu. Eva er búsett í Bost-
on Bandaríkjunum, en þar hefur
hún numið við Museum School of
Fine Arts nokkur undanfarin ár.
Hún hefur einnig lært í Cordova
Museum School, Massachusetts
College of Art og Mt. St. Vincent
College í New York. Þetta er
fyrsta einkasýning Evu, en hún
hefur áður tekið þátt í samsýning-
um, bæði hér heima og erlendis,
nú síðast í Boston City Hall.
Sýningin verður opnuð föstu-
daginn 27. maí kl. 17, og henni
lýkur 5. júní. Sýningartímar eru
kl. 14-22 um helgar, en kl. 16-22
aðra daga.
Kór Mennta skólans Kópavogi
Hátíðar-
tónleikar
Hátíðartónleikar verða á
morgun í íþróttahúsi Digranes-
skóla og hefjast þeir klukkan
17.00. Flytjendur eru kór
Menntaskólans í Kópavogi og
Nemendahljómsveitin, en ein-
söngvarar eru Sigríður Gröndal,
Guðný Árnadóttir, Halldór Tor-
fason og Steinþór Þráinsson.
Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafs-
son. Menntaskólinn í Kópavogi á
nú 10 ára afmæli og er þetta liður í
hátíðarhöldunum.