Þjóðviljinn - 03.06.1983, Page 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNJ Föstudagur 3. júní 1983.
Grace
Jones
hér
Bridge
Það er ansi neyðarlegt í tvímenning,
stundum, að spiia andstæðingana upp úr
skónum og stela „heim" óhugnanlegum
samning, og uppgötva síðan að skorblaðið
hefur sína skoðun á hlutunum. Frá spilak-
völdi hjá Bridgefélagi Breiöholts. N gefur,
i:
Norður
S 43
H 10864
T A63
LG1086
Austur
S A108
H AG7
TKG9
L A752
Suður
S KD75
H 95
T D852
L K93
N-S voru spilarar til alls vísir, en þetta
kvöld hafði gengið treglega. Norðri fannst
þvi orðið tími til að „gera eitthvað" (..eins
og oft áður). Hann ákvað að vekja á 1-
grandi, meö 5 punktana. - „Eins og í Prec-
ision, eða svoleiðis," sagð'ann. Austur
passaði, hlakkandi (það sást svosem...)
og Suður 2-lauf. Það var passað út, þótt
Austri þætti það sárt. Suður sat hugsi.
Nú, útspilið var hjarta og litnum var spil-
að í þrígang. Suður trompaði. Spilaði tígli á
ás og tígli sem Austur vann með kóng. Það
virtist tilvalið að reyna smáspaða. Kóngur.
Nú tók sagnhafi á tígul dömu og hélt síðan
áfram með 13. tígulinn. Vestur kastaði
spaða, .. .en sagnhafi trompaði í borði með
áttu. Austur mátti missa einn spaða..
Hjarta-10 þá og þótt Austri liði nú sjáanlega
illa, trompaði hann og S trompaði betur.
Lítill spaði og A var inni á ás.
Næst kom tromp undan ásnum („ef fé-
lagi á dömu..) og stakur kóngur átti slaginn.
Spaði trompaður í blindum og nú varð
Austri að orði: Sama hvað ég geri, og að
svo mæltu undirtrompaði hann í 12. slagl
Vægast sagt, furðulegt allt saman.
Austur virðist hafa sannfærst um að sagn-
hafi ætti tromp-drottninguna, úr því hann
„sleppti" svíningunni!
Nú, 90 hlaut að vera dágóð tala, og
alveg áreiðanlega úr þvi N-S áttu hana.
Skorblaðið hélt nú ekki. Súlu af 300-200
og 100 í N-S sýndi það.
Það má því segja sem svo, að þjófnaður-
inn hafi heppnast vel, en ránið komist upp.
A-V á hætti
Vestur
S G962
H KD32
T 1074
L D4
Skák
Karpov að tafli - 147
abcde fgh
Ljubojevic - Karpov
Hver er besti leikur svarts?
Staöan kom upp í 3. umferð alþjóðlega
mótsins í Manila og á þessu augnabliki var
Karpov með 'h vinning úr 2 skákum. (
þessari stöðu hitti hann á bráðsnjalla leið:
31. ..exf3!
32. Rxf3
(Svartur gat ekki leikið 32. Dxc5 vegna 32.
- Hxe1 + 33. Hxe1 (ef 33. Dg1 þá 33. -
fxg2+ 34. Kh2 Bd6 mát!) fxg2+ 34. Kh2
Bxc5 og svartur vinnur.)
32. ..Dxc2
33. Dxa6 Bxf3
34. gxf3 Hxe1 +
35. Hxe1 Rh5!
(Með hótununum 36. - Rg3+ og 37. -
Bc5+.)
36. He8 Df2!
37. Hxf8+
(Eini varnarmöguleikinn, en hann dugar þó
skammt.)
37. ..Kxf8
38. Da3+ Ke8
39. Da4+ Ke7
40. Db4+ Kf6
41. Dd6+ Kg5
42. De5+ Kh6
- og Ljubojevic gafst upp. Ekki vann Karp-
ov fleiri skákir í móti þessu. Hann gerði
jafntefli i þeim þrem skákum sem eftir voru.
Lokaniðurstaðan varð þessi: 1. Torre 4’/2
v. 2. Karpov 3 v. 3. Ljubojevic 2'b v. 4.
Browne 2 v.
Grace Jones veitti ljósmyndaran-
um góðfúslega leyfi til að smella
af nokkrum myndum í flýti fyrir
utan flugstöðina í Keflavík í
gráum og heidur svölum sumar-
morgni. Myndir SG.
Það var aldeilis fótaferðin á
okkur Sævari Guðbjörnssyni út-
litsteiknara, en að þessu sinni
ljósmyndara, í gærmorgun, þegar
við lögðum í’ann til Keflavíkur til
að reyna að ná mynd af hinni sér-
stæðu söngkonu Grace Jones,
sem væntanleg var með flugi frá
henni Ameríku kl. 5.45. fyrir há-
degi.
En það var óguðlegur fótaf-
erðartími hjá fleirum þennan
morgun, og jafnvel enginn hátta-
tími í skynsamlegri fjarlægð þar á
undan hjá sumum. Grýlurnar
Grýlur
okkar
þar
Grýlurnar í Flughöfninni í Kefla-
vík í gærmorgun, eldsnemma og
eidhressar (...svefngalsi, sagði
einhver): Ragnhildur, Linda,
Inga Rún, Herdís. Þær voru að
leggja af stað í hljómleikaferð um
Skandinavíu og áttu að spiia strax
um kvöldið í Kaupmannahöfn.
Ljósm.SG
voru á förum til Danmerkur og
áttu að mæta kl. 6.00 (líka fyrir
hádegi) á Keflavíkurflugvelli og
fékk því helmingur þeirra að
fljóta með Þjóðviljapakkinu,
ásamt ósköpunum öllum af drasli
sem Grýlur hafa með sér í Skand-
inavíuferð til þriggja vikna. Eins
gott að þær gerðu ekki ráð fyrir
lengri dvöl, því að allir fóru hrey-
fingarlausir til Keflavíkur nema
bflstjórinn, sem gat hreyft aðra
höndina og allir sauðirnir voru
svo heppnir að bensínfóturinn
lenti á milli bensíngjafarinnar og
gítartöskunnar...og komst liðið
því rétt í tæka tíð á áfangastað þar
sem baksætisbflstjóranum tókst
að smokra hnakkanum upp á
bremsuna.
Verandi á síðustu stundu,
„smeygði“ Sævar sér út úr bifr-
eiðinni með myndavél á magan-
um, en skildi eftir sig marbletti á
sumu af innihaldi bflsins og hvarf.
...Hrúgan úr bflnum sorteraðist í
Grýlur og þeirra hafurtask með
erfiðismunum ærnum, og allir
búnir að gleyma Grace þarna í
suddalegu morgunsárinu... nema
Sævar, sem rétt náði í skottið á
henni áður en hún lagði af stað til
Reykjavíkur. Þar skemmtir hún í
kvöld í Sigtúni, en annað kvöld,
laugardag, í Safarí. Miðar eru
seldir í hljómplötuverslunum
Fálkans og svo við innganginn, ef
einhverjir miðar verða þá eftir.
Við getum hinsvegar sagt af
reynslu gærdagsins að það er
þægilegra og árangursríkara að
vera ekki á síðustu stundu. Góða
skemmtun.
A